Morgunblaðið - 08.10.1957, Síða 15
Þriðjudagur 8. október 1957
MORGUNBLAÐIÐ
15
Sámon Sturlaugsson
Hinningoiorð
Deyr fé,
deyja frændr,
deyr sjálfr et sama;
en 'orðstírr
deyr aldrigi
hveim er sér góðan getr.
í DAG verður jarðsettur frá
Stokkseyrarkirkju, Símon Sturl-
augsson bóndi og fyrrverandi
formaður frá Kaðlastöðum,
Stokkseyri, er andaðist í Lands-
spítalanum í Reykjavík 26. sept.
síðastliðinn.
Hann var fæddur að Starkaðar-
húsum, Stokkseyri, 12. febrúar
1895, sonur Sturlaugs bónda og
formanns þar, Jónssonar Sturl-
augssonar Jónssonar Bergssonar
í Brattsholti. Móðir Símonar var
Snjáfríður Nikulásdóttir frá
Stokkseyrarseli. Símon var yngst
ur 6 systkina er upp komust, en
faðir hans lézt þegar hann var
fárra vikna gamall. Með móður
sinni og systkinum ólst hann upp
og vandist þegar í æsku land-
búnaðar og sjávarstörfum, sem
urðu aðalstörf hans á lífsleiðinni.
Árið 1918 kvæntist hann Viktoríu
Kolfinnu Ketilsdóttur bónda að
Kaðlastöðum og tók þá við búi
tengdaforeldra sinna, en þau
dvöldu hjá honum til æviloka og
reyndist hann þeim sem bezti
sonur í langvarandi veikindum
þeirra. Símon og Viktoría eign-
uðust 3 börn: Ketil vélstjóra,
Sturlu bílstjóra, báðir kvæntir og
búsettir á Selfossi og Bjarnfríði
húsfreyju á Stokkseyri.
Á Kaðlastöðum bjó Símon lag-
legu sveitabúi, þrefaldaði töðu-
feng jarðarinnar og lagði kapp
á að eiga góðar skepnur og fara
vel með þær. Þó hygg ég að hann
hefði getað tekið undir með
skáldinu:
Land mitt liggur að hafi,
þar landrými á ég nóg.
Þótt horfi ég upp til heiða,
er hugurinn út við sjó.
Tólf ára gamall byrjaði hann
sjóróðra með Jóni bróður sínum
og sjó sótti hann á vetrum yfir
40 vertíðir eða svo lengi sem
heilsa og þrek leyfði, þar af for-
maður margar vertíðir.
Auk þess réri hann flest haust
og vor að meira eða minna leyti.
Sjósókn var Símoni áreiðanlega
að skapi, enda hafði hann í rík-
um mæli beztu kosti sjómanns-
ins: Hugrekki og snarræði ásamt
útsjón og fyrirhyggju. Óvíða í
verstöðvum á landinu reynir
meira á þessa eiginleika, en á
hinni brimasömu innsiglingu
Stokkseyrar, þar sem bilið er oft
mjótt milli lífs og dauða, enda
margur vaskur drengur hlotið
þar vota gröf.
Farsæll var Símon í störfum
sínum bæði á landi og sjó. Meðan
hann var formaður sigldi hann
skipi sínu ætíð heilu í höfn með
skipverja alla heila á húfi. Eitt
sinn átti hann manna ríkastan
þátt í björgun báts með brotna
vél og 7 menn innanborðs í veltu-
brimi á Stokkseyrarsundi. öðru
sinni bjargaði hamn á sundi konu,
sem hafði farið í sjóinn við skips-
hlið úti fyrir Þorlákshöfn. Lýsa
þessi atvik vel skaphöfn Símon-
ar. í bæði skiptin var um björg-
un úr bráðri lífshættu að ræða;
þar þurfti að bregða við skjótt
og öruggt og í bæði skiptin vannst
taflið við Ægi konung, sem ó-
gjarnan sleppir því sem hann .er
að hremma.
Ekki komst Símon hjá því að
taka að sér ýmis trúnaðarstörf
fyrir sveitunga sína, þótt hann að
allra dómi væri um of hlédræg-
ur í þeim efnum. Hann sat í
hreppsnefnd um árabil, var for-
maður nautgriparæktarfél., for-
maður Ekknasjóðs Stokkseyrar
og hafði með höndum ýmis þess
háttar störf. Fulltrúi á fjórðungs-
þingum Fiskifél. íslands mörg
síðustu árin og var mjög áhuga-
samur um allt er viðkom sjó-
sókn og fiskveiðum.
í landsmálum fylgdi Símon
alla tíð Sjálfstæðisflokknum að
málum og hafði trú á athafna-
frelsi og framtaki einstaklingsins
til hags og heilla fyrir þjóðar-
heildina. Ekki lét hann þó stjórn-
málaskoðun ráða mati sínu á
mönnum né málefnum og bakaði
sér hvorki með því né annarri
breytni sinni óvinsældir enda
óhætt að fullyrða, að hann hafi
aldrei neinn óvildarmann átt.
Síðastliðið vor kenndi hann
meins þess er dró hann til dauða.
Hann var búinn að segja það fyr-
ir áður, hvað sér yrði að aldur-
tila, og kvað sér ekkert að van-
búnaði að halda í hinztu ferð.
Trúarvissa hans var örugg. í
9 vikur og þó lengur, háði hann
stranga baráttu við „manninn
með ljáinn“ og beið að lokum
þann ósigur, sem allir bíða, fyrr
eða síðar.
Okkur vinum og kunningjum
Símonar, og raunar öllum sem
höfðu af honum nokkur kynni,
finnst skarð fyrir skildi. Þessi
stóri, dugmikli og glaðsinna mað-
ur er horfinn af sjónarsviðinu.
Hann var einstaklega heimilis-
kær og umhyggjusamur heimilis-
faðir og vekur því fráfall- -hans
að sjálfsögðu mestan söknuð hjá
nánustu skyldmennum: Eftirlif-
andi konu, sem reyndist honum
ástrík eiginkona í nær 40 ár;
börnum hans sem bera foreldr-
um sínum og uppeldi fagurt
vitni; tengdabörnum, sem hann
elskaði sem eigin börn og þau
litu á sem sinn annan föð-
ur; aldraðri konu, sem var á
heimili hans allan hans búskap,
og síðast en ekki sízt sakna barna
börnin afa, sem allt vildi fyrir
þáu gera og bókstaflega bar þau
á höndum sér. En minningarnar
lifa, margar og hugljúfar.
Ástvinum hans votta ég dýpstu
samúð.
Blessuð sé minning hans.
Vinur.
Verzlunarhúsnæði
óskast til kaups eða leigu. Tilboð sendist afgr. Mbl.
fyrir föstudag merkt: Strax — 6894.
Unglingur óskast
til innheimtu nú þegar, hálfan eða allan daginn.
Vátryggingarskrifsfofa
Sigfúsar Sighvafssonar hf.
Lækjargötu 2, Nýja Bíói
Fáið hreinni, hvitari tennur
og ferskt munnbragð
notið COLGATE
Chlorophyll Toothpaste
H afnarfjör&ur
Vantar unglinga eða eldri menn til að
bera blaðið til kaupenda. — Hátt kaup.
Talið strax við afgreiðsluna, Strand-
götu 29.
Skrifstofuhúsnœði
í miðbænum til leigu nú þegar. Tilboð merkt:
,,6902“ sendist afgr. blaðsms fyrir miðvikudags-
kvöld.
Gjaldendur í Kópavogi
eru minntir á greiðslu skatta ársins 1957. Lögtök
eru þegar hafin hjá þeim, sem engin skil hafa gert.
Skrifstofan er opin á föstudögum kl. 5—7 e.h. auk
venjulegs skrifstofutíma.
Bæjarfógetinn í Kópavogi.
Innréftingar og hurðir
Get bætt við mig nokkrum innréltingum og hurð-
um til húsa til afgreiðslu strax.
Húsgagnavinnusf. Ástráðs /. Proppé
Akranesi, simi 87
Bakarí
Til sölu er húspláss fyrir bakarí í verzlunarhúsi
voru við Miklubraut—Skaftahlíð. Tilboð sendist
Agnari Gústafssyni, Austurstræti 14, sími 22870,
en hann veitir allar nánari upplýsingar eftir kl. 3
daglega.
Veggur hf.
Diesel
Framkvæmum viðgerðir
á olíuverkum með full-
komnustu tækjum og af
æfðum fagmönnum. —
Góð varahlutaþjónusta.
BOSCH umboðið á íslandi
Bræðurnír Ormsson hf.
Vesturgötu 3 — sími 11467 (3 línur)
JaBSCO
LENSIDÆLUR
fyrir fiskibáta eru
heimsþekktar fyrir gæði
JABSCO dælur eru nú í fjölda mörgum íslenzkum fiski-
bátum og eru sérstaklega gerðar til að lensa með og
dæla sjó á dekk. — Nokkur stykki væntanleg. Þeir, sem
pantað hafa eru beðnir að endurnýja pantanir sínar.
Einkaumboð:
Vélaverkstæði BjÖrns & Halldórs
Ingólfsstræti 11 — Sími 22220