Morgunblaðið - 08.10.1957, Qupperneq 19

Morgunblaðið - 08.10.1957, Qupperneq 19
Þriðjudagur 8. október 1957 1lOr.CVNTtLAÐIÐ 19 Akranes vann 5:0 í KALSAVEÐRI á sunnudaginn fór fram bæjakeppni í knattspyrnu milli Reykjavíkur og Akraness. Leikurinn var leiðinlegur eins og veðráttan og lélegur. í fyrri hálfleik brá fyrir knattspyrnu en það hvarf í hinum síðari er úthaldsleysi og þreyta fór að segja til sin. Akurnesingar sigruðu með 5 mörkum gegn 0. Voru þeir vel að sigri komnir. Dómari í leiknum var Magnús Pétursson og átti hann sinn þátt í að setja „sirkusblæ" á þennan leik, sem knattspyrnuíþróttar- innar vegna hefði verið betur óleikinn. * Forföll Forföll voru mikil í báðum lið- um — og kom það einkum illa út fyrir Reykjavíkurliðið. Þar vantaði þrjá af beztu mönnum Rvíkur í dag. Halldór Halldórs- son, Reyní Karlsson og Guðmund Guðmundsson. Vörn Reykjavík- urliðsins var eins og vængbrot- inn fugl vegna fjarveru þessara manna og svo hins að Björgvin i markinu var mjög miður sín. Forföllin í AkranesliðinuCDonni, Kristinn, Helgi) fylltust betur einkum vakti innherjinn, Gísli Sigurðsson athygli. hórður Þórðarson var bezti maður Akranesliðsins. Hann og Sveinn Teitsson voru sívinnandi og tókst einum eins vel upp og í fyrri leikum. Margt gerði Þórð- ur laglega mjög. ★ Mörkin Hann fékk og að leika nokkuð 'aus því Halldór Lúðvíksson var honum ekki erfiður. Þórður skor- aði fyrsta markið er 12 mín voru af leik. Komst hann í gegnum vörn Reykjavíkur hægra megin mjög auðveldlega og sendi að marki. Björgvin var „úti að aka‘ og knötturinn skoppaði í stöng og inn. Eftir miðjan hálfleik skoraði Þórður aftur. Nafni hans Jónsson gaf fyrir frá vinstri. Þórður Þórð ar skallaði hátt og öllum á óvart fór knötturinn yfir Björgvin í netið. Þetta mark má skrifa á reiknings Björgvins — hví ekki að slá? Varla mín. síðar eru Akurnes- ingar í sókn. Þórður á skot sem varið er — en dómarinn flautar vítaspyrnu. Það mun á sára fárra vitorði hvað skeði. En staðan hafði breytzt á tæpum 2 mín úr 1:0 í 3:0 og raunverulegii bar- áttu var lokið. Ilafsteinn Sveinsson var 3:01,2 ldst. með 42,2 km Léttist um 4 hg í Maraþonhlaupimi ir Síðari hálfleikur Það brá fyrir í fyrri hálfleik á smáköflum vilja til að gera vel en það var vart hægt að segja um seinni hálfleik. Reykjavík átti eitt sæmilegt tækifæri í fyrrj hálfleik er Skúli miðjaði og Þor- björn spyrnti viðstöðulaust að marki — en yfir. Akurnesingar áttu hins vegar mun fleiri tæki- færi en góð skot sáust varla, þeir léku upp í mark — og eitt sinn bjargaði Hreiðar, bezti maður Reykjavíkurvarnarinnar á línu. í síðari hálfleik áttu Reykvík- ingar eitt laglegt upphlaup og skaut Dagbjartur framhjá. Tvö tækifæri önnur fengu þeir er dóm arinn dæmdi þeim vítaspyrnu. Það vita fáir fyrir hvað þær voru. En í bæði skiptin var spymt beint á markvörð. Spyrnti Þorbjöm 1 fyrra skiptið og Guðm. Óskars- son í hið síðara. f eitt skipti upp úr hornspyrnu bjargaði Helgi Hannesson á línunni lausum skalla Karls Bergmanns sem áður hafði komið inn fyrir Skúla Niel- sen. Og eitt bezta tækifæri Reykjavíkur var er Ánu Njálsson átti skot í stöng undir leikslok. Akurnesingar sýndu það sem sýnt var að öðru leyti. Tvívegis skoruðu þeir. Þórður Jónsson komst í gegn vinstra megin og gekk eiginlega með knöttinn í netið. Hið siðara skoraði Þórður Þórðar með lausu skott í bláhorn ið eftir að hann brauzt laglega í gegn einn síns liðs. Það má annars furðulegt kall- ast hve léleg knattspyrnan var. Þarna áttu að vera komnir sam- an allir beztu knattspyrnumenn landsins. Veðrið skemmdi að vísu, en æfingaieysið sagði fljótt til sín og það er greinilegt að flestir eða allir hafa löngu hætt að æfa, eða að æfingin er ekki raunhæf að öðrum kosti. Það má heita van sæmd að bjóða tryggum áhorf- endum upp á knattspyrnu sem þessa og knattspyrnudóm sem þennan. HAFSTEINN Sveinsson frá Sel-! fossi vann á sunnudaginn þá þrek | raun að hlaupa í kalsaveðri Mara' þonhlaup. Lagði Hafsteinn af I stað frá Kambabrún um kl. 3 og lauk hlaupinu á Melavellinum | rétt yfir kl. 6. Var hann 3:01,02 klukkustundir á leiðinni þessa 42,195 metra sem Maraþonhlaup- ið telst á síðustu áratugum \era. Magnús Guðbjörnsson KR hijóp síðastur íslendinga Maraþon- hlaup á undan Hafsteini, Var það ....... ■jSSgSjwS'*..... Hafsteinn Sveinssor 1928 og var vegalengdin þá talin vera 40,2 km. Tími Magnúsar var 2:53,06 klst. Tími var tekin á Ilaf- steini við það mark og var hann 2:49,01,2 klst. ★ Stormur og rigning Hafsteinn hafði vind í bakið mestan hluta leiðarinnar og létti það undir með honum. En á móti kom kuldinn og má hiklauSt telja að Hafsteinn gæti betur í hlýju veðri og lygnu. Fyrstu 10 km hljóp Hafsteinn á 37 mín og hélzt hraði hans óbreyttur um 20 km í viðbót. Hafsteinn k-nndi ekki þreytu fyrr en komið var niður undir Elliðaár. Þá fór hann einnig að kenna svima. ★ Á Melavellinum Allþrekaður var hann er hann kom inn á Melavöllinn að viðstöddum fjölda fólks. Þar þurfti Hafsteinn að hlaupa 1100 metra og sennílega hefur það verið erfiðasti kafli leið- arinnar. Hljóp Magnús Guð- björnsson með honum 1 hring- inn. Var Hafsteinn þá svo þreyttur að hann gekk er hann hafði vindinn í fangið. ★ 4 kg fþróttalæknir skoðaði Hafstein eftir á og taldi hann ekki hafa haft meint af. En þess má geta að sama vogin sýndi hann 4 kg léttari eftir hlaupið en fyrir. Það er ekki óeðlilegt því útgufun vatns úr líkamanum er mikill við svo langa og mikla áreynslu. Þetta hlaup Hafsteins er mikil þrekraun, miðað við veður og það að hafa ekki hlaupafélaga sér við hlið. Félagslái Aðalfundur KnaUspyrnufélagsins Fram verður haldinn í Félagsheimil- inu í kvöld kl. 20,30. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Félag- ar mæti vel og stundvíslega. — Stjórnin. Sunddeild Ármanns! Æfingar eru byrjaðar. Sundæf- ingar verða í vetur á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 7—8,30 og föstudögum kl. 7,45—8,30. Sund- knattleikur kl. 9,50—10,40 á mánu dögum og miðvikudögum. — Fjöl- mennið. Verið með frá byrjun. — — Stjórnin. Enn ókyrrð í San Marino SAN MARINO, 7. okt. — And- kommúnistastjórnin í \ San Marino lét þau boð út ganga í dag, að hún mundi innan skamms taka öll völd í landinu í sínar hendur. Fréttamenn segja, að sennilega muni stjórnin hafa fengið aðstoð vopnaðra sveita og hyggist fjarlægja kommunista- stjórnina (sem neitar að láta völd in í hendur meirihlutastjórn andkommúnista) með valdi úr ráðhúsinu, þar sem hún hefur búið um sig. 2-24-80 I. O. G. T. Stúkan Verðandi nr. 9 Fundur í kvöld kl. 8,30. — 1. Inntaka nýliða. 2. Innsetning embættismanna. 3. Hagnefndaratriði annast Stefán Þórir Guðmundsson og Árni Ágústsson. — Æ.t. Vinna Hreingerningar Vanir menn. Fljót og góð vinna. Sími 23039. — ALLI. Fram — Handknattleiksdeild Æfingar að Hálogalandi í vet- ur verða sem hér segir: Sunnud.: 3. fl. karla 5,30—6,20. Þriðjud.: 3. fl. karla 6,00—6,50. Mfl. kvenna 6,50—7,40; Mfl. karla 7,40—8,30. — Föstud. Mfl. kvenna 9,20—10,10; Mfj. karla 10,10— 11,00. — Þjálfari verður Tryggvi Malmquist. — Nefndin. Sunddeild K.R. Sundæfingar eru byrjaðar og verða í vetur í Sundhöll Reykja- vílcur eins og hér segir: Böm: Þriðjudaga kl. 7,00— 7,40 e.h. — Fimmtudaga kl. 7,00 —7,40 e.h. Fullorðnir: Þriðjudaga kl. 7,30 —8,30 e.h. Fimmtudaga M. 7,30— 8,30 e.h. Föstudaga kl. 7,45—8,30 eftir hádegi. Sundknnttleikur: Mánudaga kl. 9,50—10,40 e.h. Miðvikudaga kl. 9,50—10,40 e.h. KR-ingar! Mætið vel á æfingar. — Stjórnin. Hjartanlegar þakkir fyrir auðsýnda vináttu á 80 ára afmæli mínu. Ebenezer Þorláksson, Stykkishólmi. Öllum sem heiðruðu mig á fimmtugsafmæli mínu þann 22. september, með heimsóknum, gjbfum, heillaskeytum og hlýjum orðum, flyt ég alúðar þakkir. Anton Einarsson, Skeggjastöðum. Hreingerninga- Vanir og liðlegir menn. Sími 12173 Snmkomur K. F. U. K. — Ad. Fundur í kvöld kl. 8,30. Hlíðar- stjórn hefur fundinn. — Takið handavinnu með. Hlíðarkonur, f jöl mennið. — Hjálp ræðisherinn 1 kvöld kl. 18,00: Bamasam- koma kl. 20,30. — Almenn sam- koma. Fíladelfía Almennur biblíulestur kl. Allir velkomnir! 8,30. Frænka mín GUÐRÚN ÁRNADÓTTIR frá. Ölvisholtshjáleigu í Holtum, andaðist á Elliheimil- inu Grund 29. september. Jarðarförin er ákveðin mið- vikudaginn 9. okt. n.k. frá Marteinstungu í HoltahreppL Athöfnin hefst kl. 1,30 e.h. Fyrir hönd vandamanna. Margrét Árnadóttir, Laugaveg 99, Reykjavík. Móðir okkar HELGA STEFÁNSDÓTTIR Þjórsárholti, andaðist að heimili sínu hinn 5. október. Börnin. Konan mín SIGRÍÐUR KORNEIÁUSDÓTTIR andaðist í Landspítalanum að morgni 6. október. Útförin tilkynnt síðar. Fyrir mína hönd og dætra okkar. Óskar Sigurðsson. Jarðarför FINNS ÓLAFSSONAR stórkaupmanns frá Fellsenda 1 Dölum, fer fram frá Dóm- kirkjunni miðvikudaginn 9. þ.m. kl. 2. — Athöfninni í kirkjunni verður útvarpað. Guðsteinn Eyjólfsson. Þökkum innilega auðsýnda samúð við fráfall og jarð- arför eiginmanns míns, föður okkar og tengdaföður ERLINGS JÓNSSONAR vélstjóra. Helga Eyþórsdóttir börn og tengdaböm. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og jarðarför » KARÓLÍNU JÓHANNESDÓTTTUR Geirþrúður Guðjónsdóttir. Þökkum innilega öllum sem sýnt hafa okkur samúð við andlát og jarðarför litlu dóttur okkar KRISTÍNAR ÁSU JÓNSDÓTTUR Jón Júlíusson, Guðný Valgeirsdóttir. Þökkum innilega samúð^ okkur veitta við andlát og jarðarför móður minnar, tengdamóður og ömmu MARGRÉTAR BJÖRNSDÓTTUR Miðtúni 26. — Guð blessi ykkur ölL Henry Olsen Gunnþóra Gísladóttir, Hafliði Olsen,

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.