Morgunblaðið - 07.12.1957, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 07.12.1957, Blaðsíða 6
6 MOKCVNBT AÐIÐ Laugardagur 7. des' 1957 Giuuur Rúnar tók þessa mynd á Núpsstað og sér autsur yfir Núpsvötn til Lómagnúps og Öræfa- jökuls. — Hér var Stefán póstur veí kunnugur. t I fáum orðum sagt: < • ► 1 ▼▼▼▼▼▼▼▼▼▼'» ^▼▼▼▼▼▼▼> ▼▼ ^ Ég nennti aldrei að ríða lötum hesti, segir Stefán póstur — og hlær að virðingunni! Þegar Skeiðará hljóp og Hörðuskriða fór i s/oinn UNGUR maður átti afmæli i gær. Það er Stefán Þorvaldsson, fyrrum iandpóstur. Hann varð níræður. Þegar ég hitti Stefán fyrir skömmu, sagðist hann ekkert muna að segja mér. Ég er orðinn svo gamall, sagði hann og er far- inn að gleyma. Þetta er líka orðin svo löng leið og þó að maður muni eitthvert brot af ýmsu, er flest nú gleymt. Jú, það er svo langt síðan þetta gerðist, bætti hann við og snússaði sig ræki- lega. Stefán var landpóstur um tutt- ugu ára skeið, eða frá 1896—1917. Hann er fæddur á Einholti á Mýrum 1 Austur-Skaftafells- sýslu og var sonur Þorvalds, sem síðar varð lögregluþjónn í Reykjavík og nefndur Þorvaldur pólití. Þegar hann var á 11. ári fluttist hann með Sigurði J. Ól- afssyni lækni að Hörgsdal á Síðu og ári síðar að Kálfafelli í Fljóts- hverfi. Hér verða látin fylgja nokkur slitur úr frásögn Stef- áns. Hann segir: — Allt mitt líf hefur verið sí- fellt ferðalag, þótt ég hafi verið bóndi í 60 ár. Ég hóf ferðalögin þegar ég var 13 ára gamall. Þá fór ég með Sigurði lækni til Reykjavíkur sem hestasveinn, en snúningur austur aftur með hestalestinni. Starfið var m. a. fólgið í því, að ég átti að standa undir, teyma hestana og smala þeim saman á morgnana. Ferða- lagið sjálft tók fullan hálfan mánuð, en auk þess dvöldumst við í Reykjavík í vikutíma, eða á meðan læknir lét stoppa meðöl- in í koffort, en lestarferð þessi var einmitt til þess farin að sækja læknislyf. Nú, svo hafa sennilega örðið einhverjar tafir fyrir sunnan, ég man það ekki glöggt, hitt man ég aftur á móti, hvað mér þótti skemmtilegt að skoða í búðargluggana, þótt þeir væru ekki margir í þá daga, enda var Reykjavík ekki stór bær og heldur léleg á nútíma- vísu. En hvað um það, við fór- um heim að viku liðinni með koffortin á klökkum eins og venja var. Stefán stendur upp og gengur út að glugganum: Ég gætti hestanna hér hjá Bústöð- um, segir hann og bendir niður í Fossvoginn, þá þótti æðilangt þangað neðan úr bæ. En ekki leiddist mér, öðru nær. Suður- ferðin þótti mikið og merkilegt ævintýri og kannski hef ég verið dálítið upp með mér í aðra rönd- ina að hafa fengið tækifæri til að gæta hesta í Reykjavík. Það var heldur óvanalegt, að ungl- ingar færu í lestarferðir. Á þess- um tímum voru engar brýr, eng- ir vegaspottar, ekkert nema troðningar. Hestarnir voru sund- settir bæði í ölfusá og Þjórsá, en mennirnir ferjaðir yfir. Svo var legið í tjöldum, eins og þu kannski veizt. Ferðalagið með Sigurði lækni gekk ágætlega, en stundum var legið fyrir óveðri og þótti ekki ástæða að taka sig upp. — Ja, ég sagði nú víst, að ferðalagið með Sigurði hefði gengið vel. Ójú, það er rétt. Við skulum segja það. Annars var Hólsá í Skaftártungu talin ófær, þegar við lögðum í hana og höfðu allir snúið frá henni. Ein- ar heitinn 1 Hrísnesi beiddi Sig- urð að fara ekki út í ána, en hann trúði ekki, að hún væri ófær, enda var hann dálítið við vín og örari en venjulega. En hann fór samt og við komumst útyfir *g til Víkur um kvöldið. En á löngu broti var aðeins aó hestarnir sköruðu. — Sigurður fór á undan, en ég á eftir og teymdi hrossin. Ég reið mjög stórum og fallegum hesti, sem hét Blendingur. I-Iann var heldur seinvæður, en Jarpur litli, sem ég teymdi á eftir, var hraðvæðui og vildi komast framfyrir Blend- ing, en ég gat haldið afturaf hon- um, svo að hann ýtti okkur ekki aftur austur í álinn. Hefði þá get- að farið illa. Margir undruðust, að við skyldum komast útyfir ána, en Sigurður var ágætur vatnamaður, öruggur vel og kunni skil á öllum straumum. — En segðu mér, hvernig stóð á því, að þú gerðist landpóstur? — Ég gerðist húsmaður hjá Guðlaugi sýslumanni á Kirkju- bæjarklaustri, þegar ég var um tvítugt og var þar í fjögur ár, en fluttist svo að Kálfafelli, þegar ég tók við póstferðunum. Guð- laugur sýslumaður var mér ákaf lega góður og reyndist mér hinn bezti dx-engur. Þegar Gísli Gísla- son póstur, sem er nýlátinn hér í bæ, fluttist vestur á Eyrar- bakka, skipaði Guðlaugur mér eiginlega að taka við starfinu. Eg á hendi ferðina frá Kirkjubæjar- klaustri að Hólum í Hornafirði og tók hún 8—10 daga. Ójú, þetta var ákaflega erfitt ferðalag og allrysjótt á stundum. Ekki neita ég því. Öll ferðin lá eiginlega yfir einn vatnaklasa, einkum á sumrin, þegar hitar voru: Núps- vötn, Skeiðará, Jökulsá á Breiða- merkursandi og loks Hornafjarð- arfljót austast. Þetta eru svo sena engar smásprænur. En það var nóg- af þeim líka. — Ég fór tólf ferðir á ári, en hafði auk þess ýmislegt annað á mínum snær- um, t. d. fylgdir yfir Skeiðarár- sand og a. m. k. þrjár lestarferð- ir suður til Reykjavxkur og þrjár ferðir með strandmenn. Ég þekkti mig vel fyrir austan, já allt austur í Lón, en segðu samt ekki, að ég hafi þekkt hverja þúfu. Fyi'r má nú vera. — Póst- ferðirnar hafa sennilega verið talsvert eftirsóttar, jú ætli það ekki, maður fékk 60 krónur fyr- ir ferðina og þótti því talsvei'ður slægur í embættinu. En ég varð að leggja mér bæði klyfsöðul undir koffortin, hnakk og beizli Stefán póstur og Sámur, hunður hans. var fátækur þá og ekki beysnari bógur en svo, að ég treysti mér ekki að malda í móinn við sýslumann, þó að ég þætt- ist vart um starfið fær. — En við þetta sat, og tók ég svo við póstferðunum. Ég hafði shrifap úr ^ daglega lífinu Þýðingar á þjóðsöngnum 1 7EGNA athugasemdar og fyrir- w spurnar frá Marlene í dálk- um Velvakanda í fyrradag (5. des.) varðandi val á þýzkri þýð- ingu íslenzka þjóðsöngsins í ný- komna útgáfu ríkisstjórnarinnar, skal þetta tekið fram: Fyrir hönd forsætisráðuneytis- ins sá ég um þessa útgáfu, nema að því er til lagsins tekur, og réð vali á þýðingunum, Þýzkar þýð- ingar þekki ég þrjár. Hin elzta, eftir J. C. Poestion (í Eislandblút en 1904), er ekki sönghæf og kom því ekki til álita af þeim sökum. Um þýðingu Þórarins Jónssonar tónskálds vissi ég, fór til hans og spurðist fyrir um, hvar hana væri að finna og hvort birta mætti hana, ef til kæmi. Tók hann þessu mjög ljúfmannlega, sem hans var von og vísa. Auk prentunarinnar í Morgunblaðinu 7. marz 1934, sem Marlene nefnir, er þýðingin einnig á bls. 140 í (ferða)bókinni Insel unter Feuer und Eis eftir Paul Burkert, Ber- lín (ártalslaus). Þessi þýðing Þór arins Jónssonar fannst mér víða falleg og skáldleg, og svo finnst mér enn. Einnig barst mér í hendur þýðing eftir ^yrrverandi þýzkan sendikennara hér við háskólann, Edzard Koch. Hafði ég þann hátt á að safna öllum þýðingum, er mér voru tiltæk ai', og bar þær síðan undir dóm manna af viðkomandi þjóð- erni og islenzkra sérfræðinga á hin erlendu tungumál, þegar þess var kostur, því að engan veginn tel ég mig bera það málskyn á margar erlendar tungur, að því sé treystandi. Um þýzku þýðing- arnar leitaði ég m.a. álits þýzkrar menntakonu, sem dvaldist hér um árabil og lauk hér háskóla- prófi í íslenzku, og núverandi þýzkukennara háskólans, en ann- ar þeirra er þýzkur og hinn ís- lenzkur. Voru þau öll á einu máli um, að einkum væru óþýzkuleg- ar í þýðingu Þórarins braglínurn ar: „aus Sonnen und Sternen um- wunden Dir wird von Aeonen ein Kranz, wund- ersam,“ svo að Þjóðverjar hnytu um þær, en ekkert í þýðingu Kochs særði þýzka málkennd og væri hún því tækilegri. Réð þetta vali mínu. Enginn skyldi ætla, að ég sé fyllilega ánægður með allar þýð- ingarnar, sem birtar eru í útgáfu þeirri, sem hér um ræðir, þótt ýmsar séu ágætar, og stundum var mikið álitamál, hverjar velja skyldi. Ef taka hefði átt þær þýð- ingar einar, sem til fulls „ná efni og blæbrigðum hins dýrlega lof- söngs Matthíasar“, eins og Marl- ene kemst að orði, þá hefði þeim fækkað til muna. Steingrímur J. Þorsteinsson. Nú er bezt að fara gætilega ¥--Á er nú snjórinn farinn að * láta sjá sig aftur. Það var svolítið föl á götunum í gærmorg un, nóg til þess að það er víða glerhálka, sem jafngott er að gæta sín fyrir. í Morgunblaðinu hafa undanfarið birzt tvær mynd ir af bílum, sem hafa beyglazt og skekkzt illilega í árekstrum, og í fyrradag var sagt frá þvi, að daginn áður hefðu fjögur börn orðið fyrir slysum. Ekki minnkar hættan nú, þegar snjófölið kem- ur svo, að Velvakandi biður menn I guðsbænum að fara varlega. og sömuleiðis tvo hesta. Þegar aukahestur var hafður með í för- úm, fékk ég hann borgaðan sér á parti. — Já, hvenær ég hef orðiS verst staddur á þessum ferðum minum? Ég álít að það hafi verið á Hornafjarðarfljótum. Þau voru öll á ís, þegar ég fór að morgni frá Árnanesi í Nesjum og ætlaði beint að Hólmi á Mýrum. Um það leyti sem ég lagði af stað frá Árnanesi, byrjaði hann að hvessa og þegar ég var kominn útí Skógey, var komið rokveður á norðan með brunagaddi. Ég leitaði skjóls í fjárrétt, sem þar var, opnaði koffortið og tók upp stóran ullartrefil, vafði honum um háls og andlit og hélt svo út á ísinn, vissi sem var, að allur útbúnaður yrði að vera í bezta lagi, því að ég mátti ekki stoppa á ísnum, ef vel átti að fara. Veðrið var orðið svo mikið, að hestarnir urðu að ganga beint í það, til þess að ekki stæði á hliðina á þeim. Þá var hætta á, að þeim slægi um. Ég ætlaði beint yfir vötnin, en varð að taka á mig langan krók, þar eð nauðsynlegt var að beila upp í veðrið. Ég hélt rösklega áfram og miðaði allvel, enda ekki á því að lenda þarna, eins og við sögðum fyrir austan. Kom ég svo innfyrir Prestsfit og náði landi og var þá eins og ég kæmi í hús, enda skjól af vindborðsfjalli þeim megin árinnar. Siðan fór ég sem leið lá að Hólmi, þar sem póstafgreiðslumaðurinn var, og ekki var ég fyrr kominn inn úr dyrunum en Gísli hreppstjóri segir við mig: Nú, ertu að leika þér að því að drepa þig, Stefán? — Þú hefur oftast verið einn á þessum ferðalögum þínum. Hvernig líkaði þér einveran? — Ég vandist henni, enda held ég óhætt sé að segja, að ég hafi ekki verið kjarkminni en aðrir Framh. á bls. 9

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.