Morgunblaðið - 19.01.1958, Page 2

Morgunblaðið - 19.01.1958, Page 2
MORGVNBLAÐIÐ Sunnud. 19. Janúar 1958 Sorpeyðingarstöðin Sorpeyðinga rsiöðin tekur til starfa eftir nokkrar vikur Öskuhaugarnir falla ur sogunni Mikið þrifnaðarmál fyrir alla bæjarbua Byggingaframkvæmd- ir yið sorpeyðingarstöð Reykjavíkurbæjar hóf- ust sl. vor og hefur verk- inu miðað það vel, að stöðin mun taka til starfa eftir nokkrar vikur. Eins og kunnugt er, var samið j við Vélsmiðjuna Héðin um smíði og uppsetningu véla. Vél- arnar eru smíðaðar að mestu leyti hér, skv. teikningu vél- smiðjunnar Dano, Danmörku, og smíðar hún einnig einstaka hluti í vélasamstæðuna. Smíði véla er nú lokið, og uppsetning þeirra er nú mjög langt á veg komin. Sorpeyðingaraðferð sú, er hér verður notuð, er tiltölulega ný, en hefur fengið nokkra reynslu og ryður sér nú mjög til rúms og eru margar verksmiðjur af þess- ari gerð í notkun og í smíðum víða um heim. Úr bílunum er sorpinu steypt í gryfjur og flyzt þaðan á færi- böndum í tvo rúmlega 20 m langa sívalninga, sem stöðugt snúast um öxul sinn. Á þessari leið tínir rafsegull málmhluti úr sorpinu. Berst sorpið síðan í gegnum sívalningana á 3—5 dög- um og er blásið í það lofti og rakastig þess hækkað til þess að örva rotnunarstarfsemi í sorpinu. Vegna gerjunarinnar myndast talsverður hiti í sorpinu, 60— 70° C, og drepast við þessar að- stæður sýklar og víur, en sorpið brotnar niður í gróft moldar- kennt efni. Úr sívalningnum berst efni þetta á færiböndum í hristi- síur, sem aðskilja efni, sem ekki geta rotnað, frá lifrænu efni í sorpinu, sem nú er orðið hinn ákjósanlegasti áburður. Áburðarefni þetta kemur heitt út úr vélasamstæðunni og helzt hitinn í því vikum saman. Er það því tilvalið í vermireiti og þar sem menn vilja flýta gróðri. Efni þetta jafngildir fyllilega húsdýraáburði hvað áburðargildi snertir, enda mjög eftirsótt til hvers konar ræktunar. Efnið er lyktarlaust og mjög áþekkt mold að sjá, og hrein- legt í meðförum. Þess má geta að áburðarefni Finnskt skip strand- ar á Garáskagaflös mm Eggert Guðlaugur Þorgrímur Birgir Einar Æsbnlýðshmdui F. U. S. Stefnis STEFNIR, féíag ungra Sjálfstæð ismanna í Hafnarfirði heldur út- breiffslufund í Sjálfstæffishúsinu i dag kl. 4 síðdegis. Ræður og ávörp flytja: Eggert ísaksson, Guðlaugur B. Þórðarson, Þorgrímur Hall- dórsson, Birgir Björnsson, Einar Sigurðsson, Amgrímur Guðjóns- son, Árni Grétar Finusson, Jó- Magnús Finnbogi það, sem úr sorpinu er unnið, er einnig notað sem gróðurmold, t. d. í húsagarða, og sem upp- fyllingarefni. 1 Vélarnar geta unnið úr 50—60 smálestum af sorpi á dag. Nú þegar Sorpeyðingarstöðin tekur til starfa verða öskuhaug- arnir á Grandagarði lagðir nið- ur, og er þar með fallið burt það gamla fyrirkomulag að aka sorpi á afvikna staði, eins og gert hefur verið og er að því hinn mesti þrifnaðarauki að slikt skuli þá vera með öllu úr sögunni. Nils Jaenson láfnn NILS Jaenson, sem um langt skeið var aðalræðismaður Svía hér á landi, lézt í Stokkhólmi s.l. föstudag. — Hann var maður vinsæll og átti fjölda vina hér. KLUKKAN rúmlega 6 síðd. í gær strandaði finnskt skip á Garðskagaflös. Áhöfnin, sem mun vera um 20 menn, var enn í skipinu í gærkvöldi, en ekki var unnt að gera sér ljósa grein fyrir björgunarlíkum. — Björgunarsveit Gerðahrepps var á landi við strandstaðinn, vonir voru litlar um björgun úr landi vegna f jarlægðar út í skipið. Varðskipið María Júlía var á strandstaðnum, en hafði ekki getaff komizt að finnska skipinu. Fenginn hafði veriff minni bátur, Mummi frá Sand gerði, til að reyna að komast nær því, og Jökulfell og varð- skipið Albert voru á leið á staðinn. Hið strandaða skip heitir „Valborg“ og er frá Pori (Björneborg). Það er gamalt og ganglítið, um 2000 tonn að stærð. Hingað til lands kom það um miðjan desember með timbur frá Finnlandi, og hefur losað það víða um land. Það fór frá Vestmannaeyjum i fyrrakvöld og var tómt, en átti að taka saltsíld í Keflavík og flytja hana til Rússlands. Fréttaritari Morgunblaðsins í Keflavík, Ingvar Guðmunds son, átti í gærkvöldi tal við vitavörðinn á Garðskaga. Sagði hann, að Ijós væru slokknuð í skipinu. Norðan- bára var, en ekki hafbrim. Hið strandaða skip hafðl samband við land og nálæg skip, er Mbl. frétti siðast. Á Garðskagaflös urðu síðast skipsskaðar árið 1950. Strönd- uðu þar þá 2 erlend skip og eyðilögðust, en manntjón varð ekkert. Spáð er norðan kuBda Vetrarríki á Akureyri í gær N Ú E R norðanáttin orðin ríkjandi hér á landi og eru eng- ar horfur á#að hún gangi niður næstu dægur að því er veður- stofan skýrði Mbl. frá í gær- kvöldi. Eru horfur á 6—12 stiga frosti í byggð. OEK? Norðanáttin mun því mið- ur ekki verða hæg, heldur má búast við að hún verði allhvöss. í gær var kaldast hér á láglendi á Hæli í hreppum 13 stiga frost, á Þingvöllum og Eyrarbakka var 12 stiga frost. — A Grímsstöðum Lítill drengur ætlaði að hanga aftan í bíl — og beið bana hanna Helgadóttir, Magnús Þórð arson og Finnbogi F. ArndaL Það er ekki að efa að ungt fólk í Hafnarfirð fjölmennir á fundinn til þess að kynna sér bar áttumál hafnfirzkrar æsku. HÖRMULEGT slys varð hér í Reykjavík á föstudagskvöldið. Drengur, tæpra sjö ára, varð undir bíl og lézt nokkrum klukku stundum síðar. Gerðist þetta í Laugarnesbúðum. Drengurinn hét Sigurjón Franklinsson, Laug- arnesbúðum 38>B. Rannsókn á slysi þessu hefur leitt í ljós, að orsökin var sú, að litli drengurinn hefur ætlað að hanga aftan í bílnum. Þetta gerðist um klukkan 9. Bíllinn, sem um ræðir var kola- flutningabíll og voru kolin í pok- um á vörupalli. Var bíllinn að losa kol við skála nr. 15 í Laug- arnesbúðum. Þegar koaflutninga mennirnir höfðu losað kolin og stigu upp í bílinn, báðu þeir nær- stödd börn um að fara frá biln- um. — Bílstjórinn þurfti að aka spölkorn afturábak. Maðurinn, sem með bílstjóranum var, stóð á aurbrettinu vinstra meginn til þess að fylgjast með ferðum barnanna á meðan. Neyðaróp barnanna Vissu þeir ekki fyrri til en börnin, sem nærstödd voru ráku upp neyðaróp. Eitt barnanna hafði orðið undir bílnum, Sigur- jón Franklinsson, tæplega sjö ára. Var hann með lífsmarki, er hann var tekinn undan bílnum og lagður í sjúkrakörfu og flutt- ur í sjúkrahús. En meiðslin voru það mikil að litli drengurinn lézt um klukkan 1 í fyrrinótt. Rannsókn málsins Rannsóknarlögreglan hefur nú lokið lögreglurannsókn slyss þessa. Hefur það komið berlega fram, að orsökin til þessa svip- lega slyss er sú, að litli dreng- urinn hefur farið inn undir bíl- inn og tekið þar um bita undir vörupallinum. Hefur drengurinn sennilega haldið að bíllinn myndi aka áfram. En er bíllinn rann af stað afturábak, hefur drengurinn misst takið, orðið fótaskortur og fallið fyrir afturhjól bílsins, sem fór yfir hann. Háskalegur leikur Sem kunnugt er, er sá háska- legi leikur tíðum leikinn af börn- um og unglingum, að láta bíla draga sig, þegar snjór er á göt- unum. Mun þetta vera í annað skipti, sem barn hlýtur bana vegna þessa hér í Reykjavík, en mörg hafa slasazt meira og minna. Foreldrar Sigurjóns litla, Franklin Steindórsson og kona hans, Kristín Hannesdóttir, eiga tvo drengi aðra, sem báðir eru nokkru eldri. Mun annar þeirra a. m. k. hafa verið við bílinn, er slysið varð. 948 kusu í Dagsbrún ígær STJÓRNARKOSNING i verka mannafélaginu Dagsbrún hófst í gær. Kusu þá 948 menn, en á kjörskrá eru 2500 —2600 nöfn. í dag verður kos- ið frá kl. 10 f. h. tU kl. 11 e.h. á Fjöllum og í Möðrudal var 14 stiga frost. 003 Víða á Norðurlandi var mikil snjókoma í gær. Var t. d. ósvikin Norðurlands-stórhríð í Skagafirði, þar sem skyggni var aðeins nokkrir metrar. Hvasst var og töluvert frost. OEK3 Á Akureyri má heita að hríð hafi verið allan daginn og hefur þar sett niður mikinn snjó. Var skyggni þar milli 100 og 200 m. Það var 8 stiga frost, hvasst og hið mesta vetrarríki í höfuð- stað Norðlendinga. OHO Um sunnanvert landið var hreinviðri, allhvasst með nokkru frosti. Hér í Reykjavík var 8 stiga frost í gærdag. Þýzkir vélfræð- ignar athuga vél Gerpis SEYÐISFIRÐI, 18. jan. — Þá er búið að leggja togaranum Gerpi frá Neskaupstað hér við bryggju. Varðskipinu gekk greiðlega með hann hingað til hafnar. Hér mun togarinn liggja í nokkra daga eða þar til strand- ferðaskipið Hekla kemur hingað, en með því koma þýzkir vélfræð- ingar frá hinni þýzku verk- smiðju, sem vélina smiðaði. Eru þeir nýkomnir að utan til Rvíkur. Mun vél togarans enn vera í ábyrgð verksmiðjunnar að miklu eða öllu leyti. Vonazt er til að vélfræðingun- um takist að komast fyrir orsök bilunarinnar í vélinni. Geti þeir það ekki, virðist ekki annað fyr- ir höndum en að draga togarann utan aftur, en vonandi kemur ekki til slíks. •— Benedikt. Poseidon til Patreks PATREKSFIRÐI, 18. jan. — Hið nýja þýzka sjúkraskip, Poseidon, kom fyrir nokkrum dögum hing- að til Patreksfjarðar og tók tvo þýzka sjómenn sem legið hafa hér á sj úkrahúsinu. Flytur skipið þá til Þýzkalands. Skip þetta er mjög glæsilegt. Mun það verða staðsett að stað- aldri hér við ísland. — Karl. NORSKUKENNSLA FYRIR ALMENNING í háskólanum hefst á ný n. k. þriðjudagskvöld kl. 8.15. (Byrj- endaflokkur) og n. k. fimmtu- dagskvöld (framhaldsflokkur) kL 8.15 í VI. kennslustofu.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.