Morgunblaðið - 19.01.1958, Page 3
Sunnud. 19. janúar 1958
MORCVIS BL AÐ1Ð
3
Ú r verinu
-- Eftir Einar Sigurðsson -
Xogararnir
TÍÐIN hefur verið með afbrigð-
um slæm síðarihluta vikunnar,
ofsaveður á vestan og norðvest-
an.
íss hefur eitthvað orðið vart á
miðunum fyrir vestan, en ekki
fullkannað enn, hve mikil brögð
eru að honum, því að skipin
hafa ekki komizt út síðan.
Afli þessa viku hefur verið
tregur, t. d. kom Marz inn í gær
með sem svarar 10 tonna meðal-
afla á dag.
Einhver skip hafa reynt við
Jökulinn og þá einkum á heim-
leið að vestan. Oft hefur verið
kominn þar góður afli um þetta
leyti, einkum ýsa, en nú er af.
sem áður var, þar er nú engan
afla að fá.
Sölur erlendis sl. viku:
Bjarni riddari 165 t. DM 119400
Egill Sk.gr.
Surprise
Þorkell máni
184
171
195
15075
12423
14714
Fisklandanir sl. viku:
Geir 180 t. 14 dagar
Keykjavík
Hóið var aðeins tvo fyrstu
daga vikunnar og notaðist illa
vegna veðurs. Síðan hefur verið
stöðug suðvestan- og vestanátt og
oftast ofsaveður. Eftirtekjan hef-
ur verið eftir veðrinu.
Aflahæstu bátarnir í net frá
áramótum og fram að miðjum
mánuði (sl. og ósl.):
Rifsnes 46 tonn
Helga 44 —
Barði 33 —
Aðalbjörg 33 —
Aflahæstu línubátarnir:
Freyja
Hafþór
20 tonn
20 tonn
Sigrún reri annan róðurinn í
vikunni út í Jökuldjúp og fékk
8 lestir, síðari róðurinn var hún
á heimamiðum og fékk 3 lestir.
Á grunnmiðum er hið mesta
fiskleysi eins og sést bezt á því,
að bátar eru að fá þar 2—3 lest-
ir af smáfiski og ýsu á 36 stampa.
Bátum fjölgar nú óðum, sem
eru að verða tilbúnir, og róa
sennilega 12—14 bátar næst, þeg-
ar á sjó gefur.
V estmannaey jar
Róið var tvo fyrstu daga vik-
unnar, og var afli frá 3—8 lestir
(ósl.). Síðan hefur verið óslitið
aftakáveður og allir því fegnast-
ir að hafa báta sína í höfn.
Engar skemmdir hafa orðið á
bátum í þessu veðri og er það
mikil breyting frá því, sem áður
var, er vaka varð yfir hverjum
bát í sliku veðri og dugði ekki
til. Alltaf urðu meiri og minni
skemmdir á bátum og einstaka
slitnaði upp og rak á land. Mun
höfnin nú vera orðin einhver
bezta höfn á landinu.
Aflahæstu bátarnir frá áramót
um og fram að miðjum mánuði:.
Gullborg
Snæfugl SÚ
Víðir SÚ
Stígandi
40 tonn (ósl.)
30 — —■
26 — —
24 — —
Keflavík
Á mánudaginn var suðvestan
stormur, svo að ekki var róið. A
þriðjudag og miðvikudag var
hins vegar almennt róið, en upp
úr hádegi á miðvikudaginn gerði
mikið veður af suðvestri, en í
þeirri átt er vont sjólag. Það
hjálpaði þó nokkuð, að smá-
streymt var, og fór allt vel, allir
náðu heilu og höldnu að landi,
og varð lítið veiðarfæratjón. —
Þetta var það mikið veður, að
allir Sandgerðisbátar nema einn,
leituðu vars í höfninni og enn-
fremur 4—5 Reykjavíkurbátar.
Nokkrir bátar reru með ýsulóð
í Leiruna tvo síðustu daga vik-
unnar.
Hæstu línubátarnir fram að
miðjum mánuði:
Guðm. Þórðars. 67 t (ósl) 9 sj.f.
Bára 61,5 t (ósl) 10 sj.f
Bjarmi 48-t(sl) 8 sj.f.
Hæstu bátar, sem róa með ýsu-
net:
Stærsta róðurinn á vertíðinni,
það sem af er, fékk Víðir SÚ, 14
tonn (ósl.).
Smásíldarveiðin er rányrkja
Smásíldarveiðin í Eyjafirði er
nú komin upp í 22.000 mál. Af
þessari síld fara um 22 í kg., þeg-
ar bezt lætur, og svo smá er
síldin nú orðin, að miklu fleiri
síldar fara í kg. Af venjulegri
síld fara 5—6 í kg.
Það er næstum hörmulegt til
þess að vita að drepa þannig ung
viði, þar sem það er að vaxa upp
hér við strendur landsins, og
merkilegt, að það opinbera skuli
ekki hafa gripið í taumana. Hvi
lóta ekki fiskifræðingarnir til sín
heyra um þetta mál?
Kárl
Guliborg
24 t. (ósl.) 9 sj.f.
23 t. (ósl.) 9 sj.f.
Heildaraflinn frá áramótum og
fram að miðjum mánuði er hjá
línubátum 834 tonn (sl.) í 171 sjó-
ferð og hjá netjabátum 116 tonn
(ósl.) í 49 sjóferðum.
27 bátar eru byrjaðir með línu
og 3 ekki byrjaðir. 8 netjabátar
eru byrjaðir og 5 ekki byrjaðir.
Akranes
Aðeins var róið tvo róðra í vik-
unni, á mánudag og þriðjudag
Síðan hefur verið landlega, vest-
an og norðvestan rok, eitthvert
versta veður, sem lengi hefur
komið. Afli var 3—8 lestir. 7 b'át-
ar eru byrjaðir róðra.
Þennan fyrsta hálfa mánuð
érsins var aflinn 86% lest í 24
sjóferðum.
Aflahæstir • voru:
Sigrún
Sigurvon
24 t. 4 sjóf.
12 t. 4 sjóf.
Eiga togararnir framtíð fyrir sér?
Eins og kunnugt er, eru í smíð-
um í Þýzkalandi 12 stálskip við
250 lestir að stærð, og verða 10
þeirra búin togútbúnaði. Þá hef
ur ríkisstjórnin á prjónunum
kaup á 15 nýjum togurum, sjálf-
sagt af nýjustu og fullkomnustu
gerð og vafalaust ekki minni en
togarinn, sem Reykjavíkurbær
er nú að láta smíða í staðinn fyr-
ir Jón Baldvinssón, og á að verða
900 lesta skip. Nýsköpunartogar-
arnir eru við 650 lestir, gömlu
togararnir innan við 400 lestir.
íslendingar geta vissulega
þakkað togaraútgerðinni mikið
bætta lífsafkomu í landinu. Ef
menn hefðu eingöngu haldið sig
að vélbátum, væri efnahagsaf-
koman ekkert í líkingu við það,
sem hún er nú. Og nú þegar fisk-
ur þverr á heimamiðum, er hlut-
verk togaranna enn mikilvægara
í fiskveiðum landsmanna. Fiskur
er enn mikill við Grænland, og
má segja, að hægt hafi verið að
moka honum þar upp, a. m. k.
stundum Fiskur er einnig mikill
í Barentshafinu norður af Nor-
egi og við Bjarnárey, þótt ís-
lenzku togararnir hafi ekki farið
þangað neinar frægðarfarir nú
síðustu árin. Aðrar þjóðir fiska
þar ógrynni.
Ýmis bæjarfélög og einstakl-
ingar hafa keypt togara í trausti
þess, að þeir gætu jafnað atvinn-
una, og það er alveg rétt. Engin
tæki eru eins örugg til þess og
togararnir, alveg að ólöstuðu hlut
verki bátanna, en hjá þeim ei
aflinn miklu árstíðabundnari.
tæki eru eins örugg til þess og
vita, að þannig skuli vera búið
að togurunum, að þeir séu mestu
„þurfalingar“ þjóðarinnar og á
góðum vegi með að sliga eitt bæj-
arfélagið á fætur öðru. Það er
óefnilegt að vera að kaupa 15 ný
skip, ef þau eiga að fara í sama
fenið og þau, sem fyrir eru.
Togaraútgerðin á vitaskuld að
búa við sömu kjör og bátarnir.
Þá kemur í ljós, hvorir hafa yfir
burðina. Það er að vísu þannig
með afkomu bátanna eins og er,
að mikill hluti þeirra hefur ekki
fyrir útgjöldum, svo að afkoma
þeirra er ekki á marga fiska frek
ar en togaranna, en liklega er
hún þó skárri. En vona verður,
að ekki verði til lengdar búið
þannig að sjávarútveginum, að
hann fái ekki borið sig í meðai-
ári. Fólkið í bæjunum verður að
snúast gegn því, að velt sé yfir á
það stórtöpum togaraútgerðarinn
ar og krefjast þess, að rekstrar-
grundvöllur togaranna verði
endurskoðaður.
Færi svo, að menn misstu
trúna á togaraútgerð, vegna þess
hve mikið tap hennar væri o_
íslendingar hættu að endurnýja
togaraflota sinn, myndi verða
kyrrstaða í sjávarútvegi lands
manna og þar myndast kreppu-
ástand og skerðing lífskjara
fylgja í kjölfarið. Vonandi ganga
menn ekki blindandi til verks
þessu einhverju mikilvægasta
máli þjóðarinnar, heldur fylgja
þróuninni eftir með nýjum og
stöðugt fullkomnari togurum
sem gerðir eru út hallalaust, svo
að togaraútgerðin geti endur
nýjað sig sjálf, en þurfi ekki
alltaf að lifa á bónbjörgum og
vera upp á skattþegnana komin.
Fiskibátar xír plasti
Danskt fyrirtæki áformar að
Þyggja fiskibáta úr plasti. Stærð-
in verður til að byrja með 15
rúmlestir, og e'iga þeir að hafa
12—14 mílna hraða. Meðalhraði
báta í Danmörku af slíkri stærð
sem svarar kr. 175.000,00 ísl., eða
er aðeins 8 mílur.
Söluverð bátanna er áætlað
sem svarar kr. 175.000,00 ísl., eða
tæpar 12 þúsund kronur lestin og
er ódýrt borið saman við báta úr
venjulegu efni.
Séra Þorhergur Kristjánsson Bolungarvík:
Og lífil var Ijós mannanna
FYRIR NOKKRU íhuguð-
um vér hér stuttlega orð Jó-
hannesar um Krist, — orðið, sem
varð hold: „í því var líf“, segir
Jóhannes og heldur síðan áfram
,og lífið var ljós mannanna".
Já, lífið og ljósið, þetta tvennt
heyrir saman, það þekkjum vér.
En eins og log lampakveiksins
sækir ljósorku sína í oliuna, sem
honum er, — eins- og ljómi
Norðmenn missa spou
úr askinum sínum,
ef íslendingar færa út land-
helgi sína. Birgir Rasmussen,
fiskifræðingur í Noregi, heldur
því fram, að síldveiði Norð-
manna muni minnka um 50%, ef
svo verði, en nota bene, ef síldin
verði á hinum fornu slóðum, ann
ars hafi útfærslan ekki mikið að
segja.
Afli Norðmanna á línu við ís-
land myndi minnka um 10%.
Við Grænland myndi úrfærsla
landhelginnar í 12 mílur hafa
lítið að segja, eða 10%.
Við Skotland myndi veiði Norð
manna ganga saman um 50%.
Bylting í fiskimjöls-
framleiðslu?
Danskur vei-kfræðingur, H. M
Ehlert, hefur fundið upp aðferð
til að blanda sýrum í síld, fisk
og fiskúrgang til að auka
geymsluþolið. Síðan má vinna
lýsið úr síldinni við mjög lógt
hitastig, 50°C„ í þar til gerðum
skilvindum og fá mjöl, sem er
mjög eggjahvíturíkt.
Vinnið nð sigri Sjóli-
stæðisilokksins
ALLT Sjálfstæðisfólk í Reykjavík er lxvatt til að starfa
fyrir Sjálfstæðisflokkinn bæði á kjördegi og fyrir kjördag.
Skrásetning á sjálfboðaliðum fer fram í skrifstofu Sjálf-
stæðisflokksins í Sjálfstæðishúsinu dagiega kl. 9—12 og
13—19.
Fólk er áminnt að láta skrá sig til starfa sem fyrst.
Sjálfstæðisflokkurinn.
rafmagnslampans byggist á orku
aflstöðvarinnar, sem hann er
tengdur, þannig verðum einnig
vér að eiga rætur vorar í þeirri
lífsuppsprettu, sem var og er
ljós mannanna, eigi oss að auðn-
ast í einhverjum mæli að bera
birtu og yl til meðbræðra vorra
og systra. En það er öruggt mál,
að svo fremi sem lífsins ljós nær
að tendrast hið innra með oss,
jafnvel þótt það sé aðeins lítil
týra til að byrja með, þá getur
log þess orðið svo glatt, að það
verði virkilega ljós til þess að
lýsa þeim, er sitja í myrkri og
skugga dauðans, eða a. m. k.-til
uppörvunar þeim, er þykir dökkt
í álinn.
Kristur sjálfur er auðvitað
æðsta og ótvíræðasta dæmið um
þetta: „Ég er ljós heimsins“,
sagði hann og hann áréttaði
þessa staðreynd enn frekar í orð-
um sínum til vina sinna: „Hver
sem fylgir mér, mun ekki ganga
í myrkri, heldur hafa ljós lífs-
ins“. Og allar aldir síðan hefir
skin þessa ljóss verið skærara en
allra annarra, þrátt fyrir ótald-
ar tilraunir til þess að byrgja
það og slökkva. — Ekkert hefir
t. d. sambærilegan mátt til þess
að framkalla bros i gegnum tár.
Já, þetta ljós hefir upplýst
bæði Gyðinga og Grikki, og það
hefir einnig varpað ljóma sin-
fyrir augum og fannst dapurt í
um á vora vegu, er oss var dimmt
heimi, — orðið oss vegvísir, er
leiðin gjörðist ógreið og villu-
gjörn og vér í vafa um það, til
hverrar áttar skyldi stefna.
En sé Kristur ljós heimsins,
þá megum vér ekki gleyma því,
að í Fjallræðunni undirstrikar
hann það alveg ótvírætt, að
einnig allir vér, er berum hans
nafn, erum eða eigum að vera
ljós í umhverfi voru: „Þér eruð
ljós heimsins", segir hann, „borg,
sem stendur uppi á fjalli fær
ekki dulizt. Ekki kveikja menn
heldur ljós og setja það undir
mæliker, heldur á ljósastikuna,
og því lýsir það öllum, sem eru
í húsinu, þannig lýsi ljós yðar
mönnunum — — —Hér er
skýrt og skilmerkilega að orði
kveðið og ekkert um að villast.
Af leiftrandi andagift og inn-
sýn í heimana báða, hefur Krist-
ur hér skilgreint það, hvert er
ætlunarverk vort, er viljum heyra
honum til og eyða árunum, er
oss gefast í hans nafni, á hans
vegum. Þetta er vissulega mikið
hlutverk, hláeitt og heilagt. Merk
ið er hér sett hátt, en oss er um
leið boðinn aðgangur að mætti,
sem meiri er en okkar sjálfra,
— elsku, sem innilegri er og
dýpri en allar mannlegar kennd-
ir. Sé Kristur við hlið vora á
veginum, ef Ijósið, sem sækir líf
sitt til hans, býr í hugum vorum,
þá getum einnig vér orðið til þess
að lýsa upp, þar sem ljósið skort-
ir og skuggarnir ógna, auðveld-
að þeim, sem dimmt er fyrir aug-
um að beina sjónum sínum í sól-
arátt, og lagt þannig af mörkum
vorn litla skerf til þess, að það
lífsins orð, er varð hold og bjó
með oss, nái að varpa bjartari
bjarma á brautir hins nýbyrjaða
árs.
Og það skiptir í þessu sam-
bandi engu meginmáli, hver að-
staða vor er, eða hvernig vér er-
urn sett. Vér þurfum eigi langt
að leita til þess að oss megi auðm-
ast að leggja vort lóð á meta-
skálar ljóssins og lífsins afla.
Tækifærin eru ærin á heimilum
vorum og næsta nágrenni, já í
bæjar- eða sveitarfélagi voru, —
í söfnuði vorum erum vér kölluð
til starfa, og „hvað vannst þú
Drottins veröld til þarfa/þess
verður þú spurður um sólai’lag".
Gleymum því þá ekki á kom-
andi dögum, að vér eigum að
ganga erinda hans. Reynum að
sjá ásjónu hans í andliti þeirra,
sem honum er annast um, —
allra þeirra, sem á einhvern hátt
standa höllum fæti og finnst svo
sem hart sé í heimi. Gleymum
því ekki, að vér eigum hvert og
eitt að vera verkfæri eða far-
vegur fyrir áhrifin frá honum,
sem þetta var sagt um: „f honum
var líf, og lífið var ljós mann-
anna“, já, ég hygg, að oss sé
öllum hollt, að hyggja að þessu,
er vér hefjum göngu vora á nýju
ári, að vér eigum að vera lífs-
farvegir og ljósberar.
Vér höfum ekki áður farið leið-
ina, sem framundan er, og vér
vitum í rauninni harla fátt um
það, hvað þar kann að mæta oss,
vitum eigi, hvað framtíðin kann
að bera í skauti sér af gleði eða
sorg oss til handa, — skini eða
skúrum. En ef vér eigum hið
innra með oss hlutdeild í því
lífi, sem var og er ljós mann-
anna, þá þurfum vér ekki að ótt-
ast það, sem framundan kann að
vera. Jafnvel þótt óvinsamleg öfl
mæti, er vilja buga oss, munum
vér sigra fyrir guðlegan mátt og
gleðilega náð. Og oss mun þá
einnig auðnast að verða að liði
þeim, sem eru oss samferða á veg
inum og ávallt eiga mikið und-
ir því komið, hvers konar fólk
vér erum. Við skiníð frá lífsins
ljósi, mun oss auðnast „að ganga
til góðs götuna fram eftir veg“,
bæði sjálfum oss og öðrum.
Já, Guð gefi þér gott ár og
gleðilegt, — ljóssins ár, þar sem
lífið gengur með sigoir af hóhni.
Árshátíð Sjálf-
stæðisfélagsins
Skjaldar
STYKKISHÓLMI, 15. jan. —
Sjálfstæðisfélagið Skjöldur í
Stykkishólmi hélt árshátíð sína
sl. laugardagskvöld við húsfylli,
og fór hún hið bezta fram, fé-
laginu til sóma og öllum til á-
nægju. Hörður Ásgeirsson frysti-
hússtjóri setti samkomuna og
stjórnaði.
Sigurður Ágústsson alþingis-
maður hélt aðalræðu kvöldsins
og mörg skemmtiatriði voru önn-
ur. Síðan var dansað fram eftir
nóttu. — Árni.
Heimsókn Maka-
riosar gagnslaus?
LONDON 15. jan. — Makarios
erkibiskup, leiðtogi grískumæl-
andi Kýpui'búa, sem nú er stadd-
ur í Aþenu, hefir sótt um vega-
bréfsáritun til Tyrklands í sendi-
ráði Tyrkja í borginni. Hlaut
Makarios það svar, að hann
þyrfti ekki vegabréfsávísun til
þess að komast til Tyrklands
vegna þar að lútandi samninga
milli Tyrkja og Breta. Sagði í
svari Tyrkjanna,' að Makarios
þyrfti því ekki áritun frekar en
aðrir þegnar brezku krúnunnar.
Utanríkisráðherra Tyrklands lét
svo um mælt í dag, er hann var
spurður álits um væntanlega
heimsókn erkibiskups, að hún
mundi verða með öllu ‘gagnslaus.