Morgunblaðið - 19.01.1958, Blaðsíða 4
4
MORGVNBLAÐIÐ
Sunnud. 19. Janúar 1958
PSDaybók
í dag er 19. dagur ársins.
Sunnudagur 19. janúar.
Árdegisflæði k)l. 5,09.
Síðdegisflædi kl. 17,26.
Slysavarðstofa Kej'kjavíkur I
Heilsuverndarstöðinni er opin all-
an sólarhringinn. Læknavörður L
E (fyrir vitjanirl er á sama stað,
frf kl. 18—8. Sími 15030.
NæturvörSur er í Reykjavíkur-
apóteki, sími 11760. Laugavegs-
^pótek, Ingólfs-apótek og Lyfia-
búðin Iðunn, fylgja öll lokunar-
tíma sölubúða. Apótek Austurbæj-
ar, Garðs-apótek, Holts-apótek og
Vesturbæjar-apótek eru öll opin
til kl. 8 daglega. Einnig eru þessi
apótek opin á sunnudögum milli
kl. 1 og 4.
Kópavogs-apótek, Álfhólsvegi 9
er opið ^aglega kl. 9—20, nema
laugardaga kl. 9—16 og helgidaga
kl 13—16. Sími 23100.
Hafnarfjarðar-apótek er opið
alla virka daga kl. 9 -21. Laugar
daga kl. 9—16 og 19—21. Helgi-
daga kl. 13—16 og 19—21.
Næturlæknir er Kristján Jó-
hannesson.
Keflavíkur-apótek er opið alla
virka daga kl. 9—19, laugardaga
frá kl. 9—16 og helga daga frá
k!. 13—16. — Næturlæknir er
Björn Sigurðsson.
LO.OÍ^. 3 = 1391208 = E. I.
LO.O.F. = Ob. 1 P.. = 1391218 %
= E. L
□ EDDA 59581207 = 3
□ EDDA 59581217 = 2
ESSMessur
EUiheimilið: — Guðsþjónusta
kl. 2. — Heimilispresturinn.
* AF M Æ Ll *
85 ára er á morgun, 20. janúar,
frú Sólveig Jónsdóttir, Vindási,
Rangárvöllum.
|03 Brúðkaup
1 dag verða gefin saman í hjóna
band af séra Jakobi Jónssyni ung-
frú Herborg Margrét Friðjónsdótt
ir, Laugateig 3 og Halldór Ólafs-
son, Hagamel 18.
Gefin hafa verið saman í hjóna-
band af séra Jóni Auðuns, ung-
frú Arndís Jónsdóttir, Baldurs-
götu 4 og Karl Guðmundsson, stud.
öcon. Heimili þeirra er að Smára-
götu 12.
í gær voru gefin saman í hjóna
band af séra Jóni Thorarensen
Halldóra Sigurjónsdóttir, Sörla-
skjóli 82 og Baldur Karlsson,
sama stað. Heimili ungu hjónanna
verður að Skeiðarvogi 151.
Skipin
Skipaútgerð ríkisins: — Hekla
fer frá Rvík í dag austur um Iand
í hringferð. Esja er væntanleg til
Reykjavíkur í dag að austan. —
Herðubreið er á Austfjörðum. —
Skjaldbreið er í Reykjavík. Þyrill
fer væntanlega frá Rvík í dag til
Austfjarða. Skaftifellingur er í
Reykjavík.
Kvennadeild
Slysavarnafélagsins
í Reykjavík heldur skemmtifund þriðjud. 21 jan.
kl. 8.30 í Sjálfstæðishúsinu.
Til skemmtunar:
Kvennakórinn syngur undir stjórn
Herbert Hriberschik
Gamanþáttur: Hjálmar Gíslason.
D A N S .
Fjölmennið!
STJÓKNIN.
Skipadeild S.t.S.: — HvassafeJLl
er í Riga. Arnarfell er í Riga, fef
þaðan til Ventspils og Kaupmanna
hafnar. Jökulfell er í Reykjavik.
Dísarfell fer í dag frá Reyðar-
firði áleiðis til Hamborgar og
Stettin. Litlafell er í Krossanesi,
fer þaðan til Siglufjarðar og Ham
borgar. Helgafell er í New York.
Hamrafell væntanlegt til Reykja-
víkur 20. þ.m.
H!3 Hjónaefni
Nýlega opinberuðu trúlofun
sina Maria Jóhannsdóttir, Munka
þverárstræti 18, Akureyri og Þór-
ir Magnússon, Meðalholti 14,
Reykjavik.
^gFlugvélar
Flugfélug íslands h.f.: — H rím-
faxi er væntanlegur til Reykjavík
ur kl. 16,10 í dag frá. HamborT,
Kaupmannahöfn og Osló. Flugvél-
in fer túl Lundúna kl. 08,30 í fyrra
málið. — Innanlandsflug: 1 dag
er áætlað að fljúga til Akureyrar
og Vestmannaeyja. — Á morgun
er áætlað að fljúga til Akureyrar,
Fagurhólsmýrar, Hornaf jarðar,
Isafjarðar, Siglufjarðar og Vest-
mannaeyja.
Loftleiðir h.f.: — Edda er vænt
anleg til Reykjavíkur aðfaranótt
mánudags frá Hamborg, Kaup-
mannahöfn og Osló. Fer til New
York eftir skamma viðdvöl. Einn-
ig er væntanleg til Reykjavíkur
Saga, aðfaranótt mánudags, frá
New York. Fer til Osló, Gautaborg
ar, Kaupmannahafnar og Ham-
borgar eftir skamma viðdvöl.
|Félagsstörf
K. F. U. M. Fríkirkjunnar heldur
fund í kvöld kl. 8 að Lindargötu
50.
’ Eyfirðingafélagið heldur þorra-
blót í Sjálfstæðishúsinu, laugar-
daginn 1. febrúar.
Þjóðdansafélug Reykjavíkur. ——
Æfing í kvöld kl. 8 í Skátaheim-
ilinu. —
K.F.U.M. og K., Hafnarfirði. —
Á almennu samkomunni í kvöld
talar Reidar Albertsson, kennari.
I Ymislegt
Danski sendikennarinn, Erik
Sönderholm, byrjar aftur nám-
skeið í dönsku fyrir þá, sem
lengra eru komnir, þriðjudaginn
21 janúar kl. 8,15 e.h. í II.
kennslustofu háskólans.
Pennavinir. — Morgunblaðinu
hafa borizt nokkrar óskir um
pennavini á Islandi. Fara hér á
eftir nöfn þeirra og eru þeir sem
vilja sinna þessu, beðnir að skrifa
beint til viðkomandi aðila:
Urban Lindquist, Toleredsgat-
an 9A, Göteborg, Sverige. Vill
skrifast á við íslending < ensku.
Heinz Kubitz, Dresden N 23
Weinbergstrase 24 D D R. Þjóð-
verji vill skrifast á við 17—19
ára pilt eða stúlku. Hann skrifar
á þýzku.
Kiaqs Ullmann, Wilkau Haslau,
Sachs., Postfach 3 Germany, vill
skrifast á við 21 árs gamla stúlku.
Áhugamál: íþróttir, hljómlist,
ferðalög og bókmenntir.
Robin Bronley, 20 Macky street,
Lower Hutt, New Zealand, vill
skrifast á við pilt eða stúiku. —
Bréfið var á ensku.
S. Talsma, Tjalleberd, 49, (by
Heerenveen) Friesland, Neder-
land, vill komast í samband við
frímerkjasafnara. Bréfið er á
ensku.
Wolfgang Kublun, Dortmund;
Scharnhorst, Mansfeldstr. 49,
West Germany vill skrifast á við
15 ára stúlku.
Hung Chien Chuen, 9 Njamp-
lungan Str., Surabaja, Djawa, In-
donesia, vill komast í kynni við
frímerkjasala. Bréfið er á ensku.
Þá hefur blaðinu borizt bréf
frá Júgóslafa, og er það skrifað
á júgóslavnesku. Ennfr. bréf á
kinversku og eitt á indó.iesisku
Þeir sem vilja komast í bréfa-
viðskipti við þessa aðila, eru vin
samlegast beðnir að snúa sér til
Dagbókar Morgunblaðsins, en
þar verða þessi þrjú bréf afhent.
Vonandi eru hér einhverjir sem
hafa áhuga á þessum málum.
Læknar fjarverandi:
Ólafur Þorsteinsson fjarver-
andi frá 6. jan. til 21. jan. — Stað
gengill: Stefán Ólafsson.
Spurning dagsins?
Hverja teljið þér helztu á-
stæðuna til minnkandi kirkju-
sóknar á íslandi?
Séra Magnús
Runólfsson:
Hjartað er frá-
hverft Guði, en
finnur þó ekki
hvíld nema í hon
um. Það þráir
frið og kraft.
Kirkjusókn vex,
ef kirkjan getur
svalað þeirri
þrá hjartans. .
Halldóra Gunnarsdóttir, stud.
philol: Ein höfuðástæðan er að
• tiiti qú að efnishyggjan
mínu áliti su,
metf
Heildsölubirgðir: EGGERT KRIST3ANSSON & CO. H.F.
— Hvernig sendur á þvi, að
Jónssons-hjónin eru farin að læra
frönsku, bæði komin yfir fimmt-
ugt?
— Það er vegna þess að þau
eru búin að taka franzkt fóstur-
harn og verða að læra frönsku il
að skilja það þegar það fer að
tala.
★
— Hvenær æciarðu í sumar-
leyfi?
— Ég veit það ekki ennþá. Ég
kemst að minnsta kosti ekki fyrr
en nágranni minn er kominn úr
sínu leyfi með ferðatöskuna nnína.
— Ertu ekki þeirrar skoðun-
ar að tíminn sé bezti læknirinn?
— Að vísu — en ekki er hann
l nú fegurðarlæknir.
FERDINAND
„Frjáls” glíma
rriJ ymfa
að efnishyggjau
hefur náð sterk-
um tökum á
fólki almennt,
og þá sér í lagi
því yngra. Blá-
kaldar stað-
reyndir, áþreif-
anlegir hlutir og
rökleg vizka heí
ur samrýmzt bet
ur skoðunum
seinni tíma
manna en dýrðarhjal og sefandi
söngur. Greinilegt er, «ð kirkjan
stendur í núverandi mynd á
straummótum. Fólk hugsar yfir-
leitt minna um trúmál en áður
fyrr, líklega vegna þess hve
margt gleypir og glepur tíma
þess út á við. Kirkjan verður að
koma til móts við mannkindina,
eins og hún hugsar og lifir nú til
dags, laða hana að sér á ný með
breytileik, bæði í söng og ræðu-
höldum. Það eitt trúi ég að leysi
þann doða, sem nú ríkir í
kirkjunnar málum.
Séra Jón Þorvarðsson: Spurn-
ingin mun miðuð við samanburð
á kirkjusókn nú og fyrir nokkr-
um áratugum. Á
stæðurnar til
breytingarinnar
á því tímabili
munu vera marg
ar, en hin helzta
sú, að þjóðin hef
ur haft mörgu
að sinna við
framkvæmdir
og fjölþætt fé-
lagslíf. Mörgum
þykir og þægilegra að sitja við
útvarpið og hlusta á útvarps-
messur en að sækja kirkju sína.
Stórfelldar breytingar þjóðlífsins
og hraðinn, sem áður var óþekkt-
ur, hafa haft sín áhrif. Taka verð
ur tillit til fámennis í sveitunum,
en í Reykjavík hefur tilfinnan-
lega skort kirkjur í hlutfalli við
vaxandi íbúatölu. Þess ber og að
geta, að á seinni árum vex stöð-
ugt barnafjöldi só, sem tekur þótt
í kristilegu starfi kirkjunnar og
ekki er meðtalinn, þegar talað
er um kirkjusókn. Ýmsir telja og,
að seinustu árin hafi kirkjusókn-
in fremur farið vaxandi í land-
inu. Víst er, að í umróti timanna
hefur kirkjan sannað gildi sitt
og styrkleika og nýtur velvildar
þjóðarinnar.
Jón Ölver Pétursson, stud.
oecon: Æ fleiri, einkum meðal
yngri kynslóðarinnar, virðast
veikjast í trúnni
á kristindóminn
og telja hin
tæknilegu vís-
indi það, sem
koma skal — en
kirkjuna vart
annað en sam-
kunduhús tauga
veiklaðs fólks.
Þetta tvennt, trú
og vísihdi, ætti
þó að geta farið saman. Þeir, sem
annars vilja hlýða á guðsorð,
kjósa nú stöðugt fleirl að sitja
við útvarpið, vegna þess að þeir
telja sig ekki njóta messunnar
neitt betur í kirkju. Kirkjurnar
okkar vantar þá listrænu fegurð
og fágun, sem ég álít nauðsyn-
lega til þess að skapa rétt and-
rúmsloft og veita fólki þann sál-
arfrið, sem það leitar eftir og
þarfnast. Prestar mættu og gjarn
an minnast þess oftar og breyta
samkv. því, að þeir eru fyrst og
fremst þjónar Guðs, en ekki vel
launaðir embættismenn.