Morgunblaðið - 19.01.1958, Page 10

Morgunblaðið - 19.01.1958, Page 10
10 MORCUNBLAÐIÐ Sunnud. 19. janúar 1958 .mMiritafrifr tJtg.: H.í. Arvakur, Reykjavík. Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson. Aðairitstjorar: Valtýr Stefánsson (ábm.) Bjarní Benediktsson. Hitstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vigur Einar Asmundsson. Lesbók: Arni Óla, simi 33045 Auglýsmgar: Arni Garðar Kristinsson. Ritstjórn: Aðaistræti 6. Auglýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480. Asknftargiald kr. 30.00 á mánuði innanlands. I lausasölu kr. 1.50 eintakíð. UTAN UR HEIMI HVAÐ YRÐI ÞÁ UM FJARHAG REYKJAVÍKUR ? ASEINASTA fundi bæjar- stjórnarinnar, sem nú er að Rveðja, lagði Gunnar Thoroddsen, borgarstjóri, fram reikning um rekstrarútgjöld Reykjavíkurbæjar árið 1957. Þar kom í Ijós að rekstrarútgjöldin höfðu orðið lægri heldur en áætlað var. Tekjur höfðu farið verulega fram úr áætlun eða um 14,5 milljónir króna en gjöldin hins vegar reynzt lægri, sem nam 361 þúsund krónum. Niðurstað- an á reikningnum varð sú, að rekstrarafgangurinn nam 54,8 millj. króna og var honum öll- uVn varið til verklegra fram- kvæmda, svo sem bygginga rað- húsa, fjölbýlishúsa við Gnoðar- vog, skólabygginga, byggingar bæjarsjúkrahúss, Leikvangsins í Laugardal, Sorpeyðingarstöðvar- innar og fleira. Eins og áður er sagt, reyndust gjöldin lægri en áætlað hafði verið. Einstöku liðir gjaldameg- in á rekstrarreikningi höfðu far- ið fram úr áætlun, svo sem fram- lög til skólanna, til gatna- og holræsagerða og til heilbrigðis- mála. Aðrir liðir höfðu yfirleitt staðið í stað eða lækkað. Það er glöggt, að hin örugga meðferð Sjálfstæðismanna á fjár- málum bæjarins undir forustu borgarstjórans, er undirstaða þess, að hægt hefur verið að leggja í þær stórfelldu fram- kvæmdir, sem bærinn hefur nú með höndum, varðandi bygging- ar íbúðarhúsa, skóla, og þess annars, sem getið var um hér á undan að rekstrarafganginum hefði verið varið til. Reynt hefur verið til hins ýtrasta að halda rekstrargjöldunum niðri, en einstaka liði, svo sem í sam- bandi við skólana, einstaka tækni lega liði, svo sem gatna og hol- ræsagerð, auk heilbrigðismál- anna, varð að hækka og var lagt í þá meira fé en upphaflega hafði verið áætlað. Þetta var vegna ríkrar nauðsynjar, sem ekki varð umflúin. Þegar borgarstjóri lagði þenn- an reikning fram, höfðu bæjar- fulltrúar minnihlutaflokkanna ekkert til málanna að leggja. Þeir höfðu engar athugasemdir við reikninginn að gera á nokk- urn hátt. Það eina, sem kom fram í því sambandi, var að fulltrúi Alþýðuflokksins taldi að Sjálfstæðismenn áætluðu tekj- urnar of varlega. Það er vita- skuld hygginna manna háttur að áætla tekjuhliðina sem gætileg- ast, enda er á það að líta að Reykjavíkurbær styðst einung^s við einn tekjustofn og getur oltið á ýmsu milli ára, hvernig um hann fer. Það skilja allir Reykvíkingar og vita, að það er fullkomlega útilokað, að rekstur Reykjavik- urbæjar og fjárhagur hans væri í svo góðu horfi ef ekki nyti fcruggrar og einbeittrar forustu eins flokks. Ef 4 flokkar, sem lítt koma sér saman, ættu að sitja yfir sjóði bæjarins og hafa hann að bitbeini, er augjlóst, hvernig fara mundi. Það væri fjárhagslegur háski fyrir Reykja víkurbæ, ef minnihlutaflokkarn- I ir, glundroðinn í bæjarstjórn- 1 inni, kæmist til valda og fengi ' þannig ráð á fjárhag bæjarins. Þetta er sögð fyrsta myndin, sem tekin var af llillary við komuna til Suðurheimskautsins. Hann er til vinstri á myndinni, en til hægri er einn af Bandaríkjamönnunum, sem aðsetur hafa í rann- sóknarstöðinni á heimskautinu. Sá heitir Palle Mogensen, danskur að ætt. Bak við Hillary sér á dráttarvélina hans, en svörtu deplarnir í fjarska eru olíuföt, er Bandaríkjamenn hafa raðað umhverfis rannsóknarstöð sína. Barber er ekki með á myndinni — enda er hún tekin fyrir hádegisverð. a DAGSBRÚNARMENN SJÁ DÆMIÐ FRÁ IÐJU Afimmtudagskvöld var haldinn félagsfund- ur í Iðju. Þar var lögð fram skýrsla um rannsókn lög- giltra endurskoðenda á reikn- ingum félagsins fyrir árið 1956 en það var seinasta árið, sem komm- únistar höfðu völdin í Iðju. Öll skjöl félagsins önnur en þessi reikningsslitur frá þessu eina ári voru horfin út í veður og vind. Kommúnistar höfðu séð það ráð vænzt að þurrka út fortíð sína í félaginu með því að tortíma skjölum eða fela þau. Hér í blaðinu voru í gær rakt- ir nokkrir drættir úr skýrslu endurskoðandans. En það voru aðeins sýnishorn. Skýrslan er löng og ýtarleg og þar voru ýmis önnur dæmi svipuð þeim, sem tekín voru upp í blaðinu. Meðferð kommúnista á Iðju hefur verið með slíkum endem- um, að það mun einsdæmi hér á landi, að nokkurn tímann hafi verið farið þannig með félag og sjóði þess eins og kommúnistar gerðu í Iðju. Þrjá fimmtu hluta af sjóðum félagsins höfðu komm- únistar lánað sjálfum sér, áður en þeir hrökkluðust frá völdum og sumar „tryggingar", sem áttu að heita að væru settar út af þeim skuldum, voru lítið nema pappírinn einn, eins og rakið er í skýrslunni. Þá kom m. a. í ljós að 100 félagsskírteini voru „horf- in“, en þannig mun standa á því, að kommúnistar hafa misfarið mjög með félagsskírteini á þann hátt, að sumum hefur verið neit- að um þau vegna þess að þau finnist ekki og var þar um and- stæðinga kommúnista að ræða, en aðrir, sem eru taldir tryggir kommúnistar munu hafa fengið félagsskírteini án þess að greiða fyrir þau. Kommúnistar töldu sig örugga í Iðju og þess vegna létu þeir greipar sópa um eignir félags- ins og hirtu ekki um hag þess. Þeir telja sig líka örugga í Dags- brún. Vafalaust telja þeir sér óhætt að meðhöndla félagið eins og þeim sýnist og skeyta ekki um hag verkamanna frekar en þeim býður við að horfa í það og það skiptið. Hagsmunir komrn- hverjum tíma í bága við það sem ofar öllum öðrum hagsmunum, og fari hagur verkamanna á ein- hverjum tíma í bág við það sem telst pólitísk nauðsyn fyrir kommúnistaflokkinn sjálfan, þá verða verkamenn skilyrðislaust að lúta í lægra haldi. Á morgun er seinni dagur stjórnarkosninganna í Dagsbrún og munu félagsmenn þar hafa dæmið frálðju í huga, þegar þeir ganga þar til kosninga. // ® „Ég er á heimskautinu". — Þannig hljóðaði feitletruð fyrir- sögn yfir þvera forsíðu Lundúna blaðsins „Daily Mail“ fyrir skemmstu — og síðan kom frétt- in. „Ég er kominn til suðurheim- skautsins. Ég er sjötti Bretinn, sem stígur fæti á syðsta hluta jarðar, sá fyrsti í 45 ár — síðan Scott og félagar hans komust hingað 1912. En þeir náðu aldrei heim aftur“. Fréttin var öll í sama dúr. Hún var frá fréttarit- ara blaðsins, Noei Barber, og skrifuð í þessum sígilda enska „sjónarvotts~stíl“. í Fleet Street var hinni „sigur sælu“ för Barbers með banda- rískri herflugvél til Suðurheims- skautsins fagnað af nokkrum öðr um blöðum, m.a. „Daily Mirror“, sem gefið er út í helmingi stærra upplagi en Daily Mail, eða hátt á fjórðu rnilljón eintaka. Suðurheimskautið í alfatraleið • En „Daily Express", eitt að- alblað Beaverbrooks blaðakóngs, sem gefið er út í liðlega fjórum milljónum eintaka, fagnaði ekki heimsskautsförinni j afnákaflega. Samkeppnin er hörð á milli Lund únablaðanna — og þess vegna minnist „Daily Express" ekki á Barber fréttaritara Daily Mail, en sagði hins vegar í frétt sinni af Suðurheimsskautaförum, að nú væru menn farnir að flykkjast til „þorpsins" á Suðurheimsskaut- inu. Segja mætti, að „fljúgandi strætisvagn“ væri farinn að halda uppi ferðum þangað, og það væri algengt orðið, að menn brygðu sér suður eftir. Hefur ferðazt 1.000.000 mílur © Þessi heimsskautsför Barbers var merkasti áfangi, sem hann hefur náð á starfsferli sinum. Hann hefur unnið hjá „Daily Mail“ síðan 1953 — og á þessum tíma hefur hann ferðazt um 1.000.000 mílur. Fyrst var hann egisverðu r með H illary n menn heim — og síðast en ekki sízt: Hann var í Budapest, þegar átökin urðu þar með Ungverjum og „vinum“ þeirra, Rússum. Og í fréttum sínum frá Suðurpóln- um sagði Barber margt skemmti- legt, sagði frá kuldanum, matar- æðinu, undirbúningi að móttöku Hillarys — en einu gleymdi hann að segja frá: Bandarisku rann- sóknarstöðinni og vísindamönn- unum, sem fyrir voru á heim- skautinu, gestgjöfum hans. Og „Daily Mail“ reyndi að gera sér eins mikinn mat úr frækilegu afreki Barbers og kostur var á. Jafnvel var farið miklum viður- kenningarorðum um Barber í rit- stjórnargrein blaðsins — og til þess að taka af allan vafa (sem Daily Express hafði valdið) var þess getið, að Barber væri í röð fremstu fréttamanna heims. Hver verður fyrstur? © En „Daily Express" gerði sér þetta ekki að góðu — og daginn eftir var skýrt frá því í aðalfor- síðufrétt, að blaðið mundi efna til samkeppni um það hver af lesendum þess yrði fyrstur að komast til Suðurheimskautsins. Þangað gætu allir farið, samgöng urnar væru orðnar það góðar. Ekki væri annað að gera en að kaupa sér farmiða — og fara (eins og Barber — var undanskil- ið). Og til þess að gefa gigtveik- um og öðrum lítt ferðafærum ein hverja úrlausn, bauð blaðið þeim lesendum, sem hug hefðu á, að senda póstkort til Suðurheims- skautsins. Blaðið ætlaði að sjá um sendinguna, ekkert væri auð- veldara — og mátti lesa milli línanna, að ferðir væru nú til heimsskautsins á hálftíma fresti. Ekki ,.sá sjötti“ — aðeins fréttamaður 9 Nú gengu bæði „Daily Sketch“ og „Daily Mirror“ í lið með „Daily Mail“ — og „Sketch“ gerði „Daily Express“ tilboð strax daginn eftir — þess efnis, að blaðið skyldi greiða liverri þeirri líknarstofnun, sem „Ex- press“ óskaði, 500 sterlingspund, ef einhver lesenda „Express" kæmist til Suðurheimsskautsins fyrir janúarlok. Fjölmargir gáfu sig fram til þátttöku í samkeppn- inni um heimskautssförina, en samt er almennt ætlað, að Daily Sketch 'muni halda 500 pundun- um. Hins vegar fór nú lækkandi rostinn í „Daily Mail“. Daginn, sem Hillary kom til heimskauts ins hljómaði forsíðufregnin: „Há- degisverður með Hillary". En fréttin var ekki sögð vera frá „sjötta Bretanum, sem komizt hafði til Suðurheimskautsins“ — heldur aðeins frá „Noel Barber, eina brezka fréttamanninum á staðnum". Jólairéssfagnaður Isl. I Kaliforníu 1 sendur á slóð Stanleys í Afríku, ' síðan elti hann smyglara í Mar- | okko, þá sótti hann marga fræga ÍSLENDINGAFÉLAGIÐ í Norð- ur-Kaliforníu hélt jólatrésfagn- að fyrir börn og fullorðna þ. 29. des. s.l. í hinni nýju Björnson Hall félags Norðmanna á Mac Arthur Blvd. í Oakland. Um 70 fullorðnir og 50 börn voru sam- ankomin. Var dansað í kringum stórt og fagurlega skreytt jóla- tré, sem komið hafði verið fyrir í salnum á miðju gólfi. Voru sungnir bæði íslenzkir og ame- rískir jólasálmar. Undirleik ann- aðist frú Louise Gudmunds. Séra 'S. O. Thorlákson, íslenzki kon- súllinn í San Francisco, sagði börnunum jólasöguna af fæðingu Krists. Síðan var farið í ýmsa leiki. Á borð var borið heitt súkkulaði fyrir börnin en kaffl fyrir fullorðna, ásamt með smurðu brauði og kökum, og var þar mikið um íslenzkt álegg og íslenzkar kökur. Að endingu birtist jólasveinn, sem sagði börnunum frá ferðalög um sínum og gaf þeim epli og jólakörfur fullar af sælgæti eð íslenzkum sið. Eftir að börnin voru farin heim, skemmti fullorðna fólkið sér við spil fram til miðnættis. Fór skemmtunin hið bezta fram og kom öllum saman um, að hér væri góðum sið á komið. í undirbúningsnefnd vor Mar- grét Brandson, Gunnhildur S. Lorensen og SveinH Ólafsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.