Morgunblaðið - 19.01.1958, Qupperneq 12
12
MORCUNBLAÐIÐ
Sunnud. 19. janúar 1958
— Reykjavikurbréf
Framh. af bls. 11
þrengjast um pólitíska frelsið".
cf svo heldur fram í þessum efn-
um, sem nú horfir, sérstaklega
þýðingarmikil. Hægara er að
beita þvílíkum tökum í fámenn-
inu úti á landi en hér í þéttbýlinu.
Nú þegar er SÍS þó orðinn einn
aðalatvinnurekandinn í Reykja-
vík, og sannarlega mundu ýmsir
starfsmenn þar geta sagt ófagrar
sögur af því, hvernig valdinu er
beitt, ef þeir teldu sér það henta.
Stöðuveitingin
til Steingríms
Ofurveldi SÍS er ekki eina
meðalið, seni beitt mun verða til
hins ýtrasta í þessum kosningum.
Sjálft ríkisvaldið er nú í hönd-
um þeirra manna, sem ekki skirr
ast við að nota það sjálfum sér
og flokkum sínum til framdrátt-
ar.
Af gefnu tilefni var nýiega vik
ið að því hér í blaðinu, hvernig
Steingrímur Hermannsson
fjármálaráðuneytið hefur smám
saman verið gert að eins konar
deild í Framsóknarflokknum. Það
er engin tilviljun, að það skuli
einmitt vera „deildarstjóri" úr
fjármálaráðuneytinu, sem að
þessu sinni er hið nýja ijós Fram
sóknar í bæjarmálunum. Maður
að nafni Kristján Thorlacius, sér
stakt handbendi Eysteins Jóns-
sonar.
Um suma aðra starfsmenn þess
ráðuneytis ríkir fullkomin óvissa,
hvort þeir séu fremur erindrekar
Framsóknarflokksins eða ríkis-
starfsmenn. Er ekki nóg með, að
þeir séu látnir vinna störf í
flokksins þágu hér í bænum sam-
hliða stöðu sinni í ráðuneytinu,
heldur eru sömu mennirnir ýmist
erindrekar Framsóknar á Akur-
eyri eða hálaunaðir, svokallaðir,
stjórnarráðsstarfsmenn í Reykja-
vík.
Ágengni Hermanns Jónassonar
fyrir sig og sína er ekki minni
en Eysteins Jónssonar. í því eru
þeir sammála, þótt samlyjidið
vilji bregðast í sumu öðru. Her-
mann Jónasson tróð t. d. strax
tengdasyni sínum inn í það ráðu-
neyti, sem hann réði yfir, þegar
sá ungi maður hafði lokið
prófi. Siðar gerði Hermann son
sinn að fulltrúa íslands hjá Sam-
einuðu þjóðunum. Nú í vetur lét
hann dubba sama pilt upp í að
verða framkvæmdastjóri rann-
sóknarráðs ríkisins, þó að meirr
hluti ráðsins teldi annan mann,
Magnús Magnússon, hálærðan
vísindamann, ráðherrasyninum
færari til að taka að sér starfann.
Ætternið var látið ráða, réttar
reglur settar til hliðar, fjölyrt
um spiljingu annarra og hinn
nýskipaði meðlimur rannsóknar-
ráðs, sem fékst til að mæla með
syni íorsætisráðherrans, verðlaun
aður með 13. sæti á lista flokks-
ins hér í bæ.
Dagsbrúnar-
kosningarnar
Þessa daga fara fram kosningar
í verkamannafélaginu Dagsbrún.
Um þær gildir svipað og bæjar-
stjórnarkosningarnar hér í bæ,
að víst væri um úrslitin, ef nógu
margir greiða atkvæði og engin
rangindi við höfð. Allir vita, að
lýðræðissinnar eru í verulegum
meirihluta innan Dagsbrúnar.
Engu að síður telja kommúnistar
sér sigurinn vísan. Það kemur af
því, að þeir semja kjörskrána
eftir sínum reglum. Þeir finna
upp öll hugsanleg rangindi, sem
þeir hafa í frammi, allt með það
fyrir augum að tryggja kommún-
istum meirihlutann á hverju sem
veltur.
Ósagt skal látið, hvort þetta
tekst fyrir kommúnistum á þann
veg,_ sem hugur þeirra stendur
til. Á sínum tíma ætluðu þeir að
halda Alþýðusambandi íslands
með rangindum eftir að þeir
höfðu misst meirihluta. Ráða-
gerðirnar brustu þá á því, að
Hermann Guðmundsson neitaði
að ljá sig til slíkrar óhæfu. Á
þann veg skapaði Hermann sér
meiri tiltrú manna úr öllum
flokkum en nokkru sinni áður.
Af núverandi ráðamönnum Dags-
brúnar er enginn, sem hefur dug
eða drengskap Hermanns Guð-
mundssonar. Þess vegna mun
ekki verða látið vera að fara
eftir þeim reglum kommúnista
að forráðamennirnir reyni með
rangindum að tryggja sjálfum
sér völdin, hver sem vilji kjós-
endanna er.
Starfsstúlkna-
félagið „Sókn64
AÐALFUNDUR Starfsstúlkna-
félagsins Sóknar var haldinn s.l.
þriðjudag. Formaður félagsins,
Margrét Auðunsdóttir, flutti
skýrslu stjórnarinnar og skýrði
hún sérstaklega frá síðustu samn
ingum félagsins við atvinnurek-
endur, en með samriingum fengu
Sóknarkonur framgengt ýmsum
mikilsvarðandi réttindum.
Þá gat formaður félagsins þess
að tvær konur í fráfarandi stjórn,
varaformaður félagsins, Stemunn
Þórarinsdóttir og gjaldkeri þess,
Guðrún S. Ólafsdóttir. gæfu ekki
kost á sér í stjórn aftur og þakk-
aði Margrét þeim vel unnin störf
í þágu félagsins og góða sam-
vinnu. Þá skýrði gjaidkeri félags
íns Guðrún S. Ólaísdóttir reikn-
inga félagsins og las þá.
í stjórn félagsins voru kjörnar
eftir taldar konur:
Margrét Auðunsdóttir, for-
maður, Helga Þorgeirsdóttir, vara
formaður, Þórunn H. uðmunds-
dóttir, ritari, Sigríður Friðriks-
dóttir, gjaldkeri og Bajrnfríður
Pálsdóttir, meðstjórnadi.
I vara stjórn voru eftirtaldar
konur kjörnar einróma: Jóhanna
Kristjánsdóttir, Björg Jóhanns-
dóttir og Guðlaug B. Jónsdóttir.
Trúnaðarráð, auk stjórnar,
skipa þesar konur: Kristín Bjöirys
dóttir, Sigurrós Jónsdóttir, Mar-
grét Guðmundsdóttir og Sólveig
Sigurgeirsdóttir.
Efstu menn
D-listans í
Kópavogi
Sjálfstæðisfólk
í Kópavogi!
Munið framboðs-
fundinn í dag kL 2
í ICópavogsskóla
Baldur Jónsson,
framkvæmdastjóri.
Jón Þórarinsson,
forstöðum. Sinfóníuhljómsv.
Sveinn S. Einarsson,
verkfræðingur.
Frú Guðrún KristjánsdóttSr,
form. Sjálfstæðiskvfél. Eudu.
Elnar Jóhannsson,
múrarameistari.
HeSmdaBBur, félag ungra Sjálfstæðismanna
„Æskan og Reykjavík"
HEIMDALLUR, F.U.S. effnir fil almfínns fundar í filefni af bæjarsfjórnarkosningunum
í Sjálfsfæðishúsinu í dag kiukican 2 e. h.
Ræður flytja:
Geir Hallgrímsson, bæjarfulltrúi
Höskuldur Ólafsson, sparisjóðsstjóri
Hörður Einarsson, menntaskólanemi
Guðjón Sigurðsson, iðnverkamaður
Skúli Möller, verzlunarskólanemi
Ragnhildur Hélgadóttir, alþm.
Bkgir Gunnarsson, stud. jur.
Guðmundur H. Garðarsson, viðskiptafr.
ÆSKUFÓLK er sérsfaklega hvaff fil þess að fjölmenna á fundinn, en allf sfuðningsfólk
Sjálfsfæðisflokksins er velkomið meðan húsrúm leyfir.—
Heimdallur F.U.S