Morgunblaðið - 19.01.1958, Page 13
Sunnud. 19. janúar 1958
MORCUNBLAÐIÐ
13
TJM leið og þátturinn þakkar
jóla- og nýjárskveðjur, vil ég
óska lesendunum góðs árs með
þeirri ósk, að þetta nýbyrjaða
ár megi verða viðburðaríkt fyrir
frímerkjasafnara og þá sérstak-
lega að nýir safnarar bætist við
í hópinn.
txi Ungir frímerkjasafnarar. f
tómstundaþætti útvarpsins ný-
verið gat stjórnandi hans Jón
Pálsson nokkuð um starfsemi
Félags ungra frímerkjasafnara
og er það ánægjulegt að vita, að
svo margir skulu nú þegar hafa
gjörzt meðlimir þessa unga fé-
lags, því eins og hér hefur áður
verið bent á, er frímerkjasöfnun
holl og nytsöm tómstundaiðja íys
ir unglinga og vonandi á F.U.F.S.
eftir að vinna þarft verk og leið-
beina hinum ungu söfnurum og
stuðla að frímerkjasöfnun barna
og unglinga hér á landi.
Ég vil í þessu sambandi beina
þeirri fyrirspurn til fræðslumála
stjóra og fræðslustjóra Reykja-
víkur, hvort ekki væri hugsan-
legt að koma því við í barna- og
unglingaskólum landsins, að upp
yrði tekin til að byrja með, ein
kennslustund mánaðarlega, þar
sem sérfróður maður um frí-
merkjasöfnun kenni nemendum
byrjunaraðferðir um söfnun og
meðferð frímerkja, því vitnð er
að frímerkjasöfnun getur margt
gott af sér leitt fyrir unglinga
auk fræðslu í landafræði, sögu
o.m.fl., sem af frímerkjasöfnun
má læra. Þýzkir skólar hafa tek-
ið upp þessa kennslugrein og
hefur það aflað nemendum margs
konar fróðleiks og þekkingar.
CS3 Meðferð frímerkja af fylgi-
bréfum. Margir safnarar hafa
kvartað undan því, að þegar frí-
merki þau er íslenzka póststjórn-
in selur notuð, eða svonefnd „kíló
vara“ eru látin í vatn og leyst
frá fylgibréfum bögglasendinga,
þá sé oft erfitt að komast hjá
því að pappír sá sem notaður
er í fylgibréfin, skilji eftir eða
láti lit í frímerkin eftir að merk-
in losna fra fylgibréfinu. Þetta á
aðeins við eina rauðlitaða tegund
fylgibréfa, en ef réttar aðferðir
eru viðhafðar, er hægt að forðast
þetta með því að láta frímerkin
ekki liggja of lengi í vatninu og
leggja ekki of mikið magn sam-
tímis í bleyti, þannig að liturinn
nái ekki að festast í frímerkinu.
Gott ráð er að láta merkin fyrst
í nokkuð heitt vatn og síðan, þeg-
ar þau byrja að losna frá fyigi-
bréfinu ,að skipta þá um vatn og
skola merkin í köldu vatni. JHins
vegar væri æskilegra að póst-
stjórnin notaði þannig pappír í
fylgibréf og póstávísanir, að hann
gæfi ekki frá sér lit þótt í vatn
væri látinn, þótt segja megi þetta
hættulaust vegna frímerkjanna.
En ef svo tekst til að liturinj
úr fylgibréfinu kemst í merkin,
er sú aðferð ágæt, að láta frí-
merkin aftur í vatn og sjóða þau
í 5—10 mínútur og hverfur þá
liturinn úr þeim, það er að segja,
ef liturinn hefur ekki verið um
lengri tíma í merkinu og hann
náð að festast í pappírnum.
1X1 Erlendar fréttir. Fjöldi
nýrra frímerkja hefur komið út
síðustu vikur, en hér er ekki rúm
til að geta þeirra allra, en nefna
má, að Berlin gefur út flokk af
frímerkjum sem bera myndir
frægra manna og birtast hér
myndir af þremur þessara
I
merkja, þ.e. 15 Pf. með mynd af
prófessor Fritz Haber, og 20x10
Pf. merki með mynd af dýra-
fræðingnum próf Ludwig Heck
en yfirverði þessara merkja verð
ur varið til eflingar dýragarðin-
um í Berlín, og þá er 25 Pf. merki
með mynd af prófessor Max Rein
hardt.
Sameinuðu þjóðirnar gáfu út
eins og á undanförnum árum á
mannréttindadeginum 10. desem
ber tvö ný merki 3 og 8 centa
og eru þau teiknuð af dönskum
teiknara Olav Mathiesen að naini.
Holland hefur, eins og mörg
önnur Evrópulönd gefið út tvö
ný merki 10 og 30 centa Evrópu-
frímerki.
í frímerkjaþættinum „FRI-
MÆRKENYT" í Politiken 29. des.
s.l. er vakið máls á því, að í s.l.
25 ár hafi ekki komið eins fáar
nýjar frímerkjaútgáfur í Dan-
mörku, eins og á s.l. ári og er í
þessu sambandi uppéstunga rit-
stjóra frímerkjaþáttarins Dahl-
erup-Koch, um að danska póst-
stjórnin gefi út nýjan frímerkja-
flokk með myndum af fögru
landslagi í Danmörku og þá ef til
vill einnig ^tf landslagi í Græn-
landi og Færeyjum, en ritstjór-1
>><>i -
inn bætir því við að í horni þess-
ara nýju landlagsmerkja mætti
koma fyrir mynd af Friðrik kon-
ungi IX. — Það skal viðurkennt
að dönsk frímerki hafa þótt held
ur snauð hvað fegurð snertír og
það er nokkuð einhliða, að gefa
út árum saman frímerki með
mynd af þjóðhöfðingja og þá
ávallt að notast við sömu mynd-
ina, en vera má, að danska póst-
stjórnin breyti nú til við næstu
f rímerk j aútgáfur.
Ein tegund frímerkja virðist
hafa verið eftirsótt hjá frímerkja
söfnurum víða um heim, en það
eru norrænu merkin með svön-
unum, sem út voru gefin 30. okt.
1956 á Norðurlöndunum fimrn, en
merki þessi eru nú uppseld í Dan
mörku og aðeins lítið magn er
eftir af íslenzku útgáfunni. Þetta
ættu safnarar að taka til athug-
unar og tryggja sér þessi merki
í söfn sin, ef þeir ekki hafa eign-
azt þau ennþá.
XI „FRÍMEX 1958“. Nú hefur
íslenzku frímerkjasýningunni
verið gefið nafn, eins og tiðkast
með slíkar sýningar og nefnist
þessi fyrsta frímerkjasýning
„FRÍMEX 1958“. Sýningarnefnd-
in hefur nú auglýst í blöðum og
útvarpi um þátttöku í sýningunni
og er þess vænzt að íslenzkir frí-
merkjasafnar, en þeim einum
er heimil þátttaka, — keppist
um að sýning þessi megi verða
Félagi frímerkjasafnara til sóma
og þá um leið vakning fyrir söfn-
un frímerkja hér á landi.
J. Hallgr.
F R í M E R K I
íslenzk keypt haestaverðl.
Ný verðskrá ókeypls.
J. S. Kvaran,
Oberst Kochs Allé 29,
Kóbenhavn - Kastrup.
ríuerki
Frínierkjaskipti
Skipti á erlendum frímerkjum
fyrir íslenzk. — ED. PETEllSON,
1265 N. Harvard, Los Angeles 29,
Californíu. —
islenzk (rímerki hæsta verði.
. Ný verðskrá scnd ókeypis.
Gtsli Brynjólfsson,
Pðsthóll 734, Rcykjavik.
Nýkomin ódýr pólsk
Barnasfigvé! Kt. 27.40.
NYJA BÍJÐIIM
Ingólfsstræti 8
Verzlunar- og
iðnaðarhúsnœði
150—200 ferm. óskast strax eða í vor.
Tilb. merkt: Verzlunairhúsnæði — 3770,
sendist Mbl. fyrir 23. þ.m.
Heimamyndatökur
eru bezt og fljótast unnar af Ljósmyndastofunni
Stjörnuljósmyndir, Framnesvegi 29.
Myndirnar eins góðar og þær séu teknar í stofu.
Barnamyndir, passar, brúðkaup, veizlur, skóla-
spjöld, samkvæmi heimahúsa og seríur, 8 stilling-
ar í smekklegu veski með firmanafni. —
Áherzla lögð á fljóta og góða afgreiðslu.
Sími 23414
ELlAS HANNESSON
Frá Skattstofu Reykjavíkur
AUir þeir, sem fengið hafa send eyðublöð undir
launauppgjöf eða hluthafaskrá, eru áminntir um að
gera skil nú þegar.
Áríðandi er, að fá öll eyðublöðin til baka, hvort
sem eitthvað er út að fylla eða ekki.
Skattstjórinn í Ileykjavík.
Verzlunarhúsnæði ósbnst
Óska eftir verzlunarhúsnæði, sem næst
miðbænum. Helzt á 1. hæð en má þó
vera í kjallara. — Tilboð sendist Mbl.
merkt: „3776“.
Ödýrir skór
verða seldir næstu daga.
Kvenskór — Verð kr. 100.00
áður kr. 262.00 með háum hæl og kvairthæl.
Karlmannaskór - Verð kr. 198.00
áður kr. 257.00 með gúmmísólum
Kvensf rigaskór — Verð kr. 90.00
áður kr. 124.00 með uppfylltum hælum
Barnalnniskór — Verð kr. 60.00
áður kr. 143.00. — Gæruskinnsfóðraðir.
Notið tœkifœrið, og
kaupið ódýran skófatnað
Aöalstræti 8 — Laugavegi 20 — Laugavegi 38
Snorrabraut 38 — Garðastræti 6