Morgunblaðið - 19.01.1958, Side 19
Sunnud. 19. Janöar 1958
MORCVNBLAÐIÐ
19
Leikfélag Reykjavíkue
frumsýnir „Glerdýrin"
nœstkomandi miðvikud.
Hálogalandshverfið er eitt af þeim svæðum, sem skipulögð hafa verið í Reykjavík nýlega. Mynd-
in, sem tekin var á skipulagssýningunnl, er nú itendur yfir í Þjóðminjasafninu, sýnir líkan af
hverfinu. Breiða gatan til vinstri er Suðrlandsbraut. Hringtorgið lengst til vinstri er á gatna-
mótum Grenásvegar og Suðurlandsbrautar, og gatan, sem liggur þaðan til hægri er hin fyrir-
hugaða Dalbraut. Milli Dalbrautar og Álfheima eru fjölbýlishús. Neðar á myndinni sjást fjöl-
býlishús við Gnoðarvog. Gatan, sem liggur í sveig frá Suðurlandsbraut og allt upp á Langholts-
veg er Sólheimar. Þar hjá eru 5 háhýsi og Langholtskirkja. Einnig sjást raðhúsin við Skeiðarvog
á myndinni. — Skipulagssýningin er í bogasal Þjóðminjasafnsins, og verður hún opin kl. 2—10
daglega þessa v5t”
LEIKFÉLAG Reykjavíkur hefur
frumsýningu á leikritinu „Gler-
dýrin“ eftir Tennessee Williams,
í þýðingu Geirs Kristjánssonar
n.k. miðvikudagskvöld kl. 8. Höf
undurinn er bandarískur og er
einn af helztu leikritahöfundum
Bandaríkj anna.
Leikritið var frumsýnt í New
York 1945. Hlaut það þá tvenn
verðlaun, verðlaun leiklistargagn
rýnenda í New York og Donald-
son-verðlaunin, en þau eru veitt
fyrir sérstakt afrek í leikhúsum
Bandaríkjanna. Aðeins eitt leikrit
eftir þennan höfund nefur verið
sýnt hér áður og er það leikritið
„Sumri hallar“, sem Þjóðleikhús
ið sýndi fyrir nokkrum árum.
Persónur þessa leikrits eru að-
eins fjórar. Eru þjú hlutverkin
aðalhlutvek. Leikarar eru Helga
Valtýsdóttir, Kristín Anna Þórar
insdóttir. Gísli Halldórsson og
Jón Sigurbjörnsson.
Sjálfur höfundurinn nefnir
Spörum nú heifa vatnið
FRÉTTAMAÐUR Morgunblaðs-
ins hringdi í gærkvöldi til Helga
Sigurðssonar hitaveitustjóra og
spurði hann hvernig gengi að
láta heita vatnið endast nú í kuld
unum.
Hitaveitustjóri sagði, að fyr-
ir nokkru hefðu vatnsgeymarnir
á öskjuhlíð verið svo til fullir
á morgnanna, en eyðslan hefði
aukizt mjög síðustu sólarhring-
ana. Því hefði verið svo komið á
föstudagsmorgun að geymarnir
hefðu aðeins verið hálfir, (vatns-
borðið um 3V2 m frá botni). í
gærmorgun var vatnsdýptin orð-
in.3,70 m.
Hitaveitustjóri kvaðst vilja
hvetja fólk til að fara sparlega
með vatnið og gæta þess, að
skrúfa fyrir það á nóttunni, svo
að geymarnir næðu að fyllast.
Mikið hefur vantað á, að svo
væri undanfarnar nætur. Hefur
Þung færð
FffiRH) var þungt á vegum hér
suðvestanl. í gær. Þó varð kom-
izt frá Reykjavík til Selfoss um
Krýsuvík. Fært var til Keflavík-
ur og upp í Hvalfjörð, en ekki
alla leið til Akraness. Miklir
snjóar eru í Árnesþingi en þó
komust bílar frá Selfossi um Iðu-
brú upp í Biskupstungur.
Fimm bátar gerðir
út frá PatreksfirSi
PATREKSFIRÐI, 18. jan. —
Fimm vélbátar eru gerðir út ó
línuveiðar frá Patreksfirði í vet-
ur. Leggja þeir aflann upp hjá
Hraðfrystihúsi Patreksfjarðar hf.
Eru þetta bátarnir Sæborg, Andri
og Sigurfari frá Patreksfirði og
Guðmundur frá Sveinseyri og
Tálknfirðingur frá Tálknafirði.
Tálknaf j arðarbátarnir munu
sennilega byrja löndun aftur upp
úr miðjum febrúar í Tálknafirði.
Verður þá fiskurinn frystur, hert-
ur og saltaður. Vonir standa til
að hið endurbyggða hraðfrysti-
hús í Tálknafirði byrji aftur að
starfa í marz eða apríl n.k.
Guðmundur á Sveinseyri er
þegar búinn að afla um 55 lestir
af óslægðum fiski í 10 róðrum.
Hinir bátarnir byrjuðu seinna að
róa og hafa milli 10 og 15 lestir
hver. Hefur afli yfirleitt verið
3—8 lestir í róðri. Sigurfarinn
missti í síðasta róðri um 50 lóðir.
— Karl.
notkunin komist upp í 274 1 á
sek., en alls berast í geymana
rúmir 400 1 á sek. þegar vel geng-
ur.
Fuchs vænlanlegur
til pólsins í dag
SUÐURPÓL,NUM,.18 jan. — Við
byrýun þessa dags var leiðang-
ur dr. Vivians Fuchs aðeins um
30 km frá Suðurpólnum. Menn
búast nú við komu hans til heim
skautsins eftir nokkrar klukku-
stundir. Sir Edmund Hillary sem
átti í deilum við dr. Fuchs kom
flugleiðis til heimskaiutsins í gær
og mun hann bjóða dr. Fuchs
velkominn.
Trúíiaðarmenn
Sjálfstæðis-
fíokksins
FJÁRÖFLUNARNEFNDIN biður
trúnaðarmenn á vinnustöðum,
sem fengið hafa merki flokks-
ins til sölu, að bregðast nú við vel
og drcngilega. Takmarkið er að
sjálfsögðu að selja hvert einasta
merki við sem hæstu verði. Skil
við skrifstofu flokksins eru trún-
aðarmenn vinsamlegast beðnir að
geri í síðasta lagi fimmtudaginn
23. janúar n. k.
SAMTAKA NÚ!
leikrit þetta „minningarleikrit".
Það er alvarlegs eðlis og fjallar
um vandamál móður og tveggja
barna hennar.
Leikstjóri er Gunnar R. Han-
sen. Leikstjóri hefur Magnús
Pálsson gert, en Gissur Pálsson
sér um ljósin.
Málflutningsskrifstofa
Einar tí. Guðmundsson
Guðluugur Þorláksson —-
Guðmuudur Pétursson 1
Aðalstræti 6, III. hæð.
Símar 1200? — 13202 — 13602.
BARNAMVNDATÖKUR
Allar myndatökur.
UÓSMYNDASTOFA
Laugavegi 30. — Sími 19849.
Vorw 3 daga
' C' *
i larviori
ÞAÐ MUN sannast mála, að (
menn munu hafa búizt við því
að þilfarshleðslan á m.s. Reykja-
fossi, sem hingað kom í fyrra-
kvöld seint, myndi öll vera meira
og minna skemmd, því svo slæmt
veður hreppti skipið á leiðinni.
í þessari ferð Reykjafoss var
Magnús Þorsteinsson 1. stýrim.
skipstjóri. Hann kom inn á höfn-
ina með allt óskemmt, skip og
farm. Meðal þess sem var á þilj-
um voru allmargir bílar. Hafði
Reykjafoss tafizt um nær 2 sól-
arhringa. Suður af landinu var
skipið 3 sólarhringa í fárviðri og
stórsjó, en alltaf var þó ferðinni
haldið áfram.
Gunnar Jónsson
Lögmaður
við undirrétti or hæstarétt.
Þingholtsstræti 8. — Sími 18259.
Kom með veikan mann
PATREKSFIRÐI, 18. jan. — í
morgun kom hingað togari frá
Hamborg með veikan mann. Var
maðurinn með botnlangabólgu og
þurfti að skera hann þegar upp.
Var hann lagður í sjúkrahúsið
hér.
Þá kom hingað einnig í dag
togari frá Grimsby með bilaðan
radar. — Karl.
Samkosmisr
K. F. U. K_Ad.
Saumaf undur!
Efni: „Hver er náungi minn?“
Kvikmynd og kaffi. — Allar kon-
ur velkomnar. — Stjórnin.
K. F. U. M. — í dag
Kl. 10 f.h. Sunnudagaskólinn.
Kl. 10,30 f.h. Kársnesdeild.
Kl. 1,30 e.h. drengjadeildirnar.
Kl. 8,30 Samkoma. — Magnús
Runólfsson talar. Allir velkomnir
Hjálpræðisherinn
Kl. 11: Helgunarsamkoma. Kl.
14: Sunnudagaskóli. Kl. 20,30:
Hjálpræðissamkoma. — Mánudag
kl. 16: Heimilasamband.
Bræðraborgarstíg 34
Sunnudagaskóli kl. 1. — Alm.
samkoma kl. 8,30. Allir velkomnir.
Fíladelfía
Sunnudagaskóli kl. 10,30. — Á
sama tíma í Eskihlíðarskóla. —
Brotning brauðsins kl. 4. Almenn
samkoma kl. 8,30. Allir velkomnir!
Vakningarvika hefst í Fíladelfíu
n. k. þriðjudagskvöld. Aðkomnir
ræðumenn.
Hjartanlega þakka ég öllum, sem heimsóttu mig á 60
ára afmæli mínu 11. janúar sl., með gjöfum, skeytum og
blómum.
Guð blessi ykkur öll ókomin ár.
Kristbjörg Jónsdóttir,
Skúlagötu 52.
Elsku litli drengurinn okkar og bróðir
SIGURJÓN FRANKLÍNSSON
lézt af slysförum 18. janúar.
Franklín Steindórsson, Kristín Hansdóttir,
og systkini, Laugarneskamp 38B.
Elskuleg móðir okkar
MARlA GUÐMUNDSDÓTTIR
frá Hellissandi lézt að heimili sínu Nýlendugötu 15 þann
17. janúar.
Jarðarförin auglýst síðar.
Börnin.
Vinkona mín
KRISTlN ÞÓRARINSDÓTTIR
kennari við Melaskólann lézt laugardaginn 18. þ.m.
Fyrir hönd fjarstaddra systkina.
Jóhanna Björnsdóttir.
Kveðjuathöfn um okkar ástkæru móður
MAGNFRlÐ IVARSDÖTTUR
frá Gröf, Rauðasandi, fer fram frá Laugarneskirkju
þriðjudaginn 21. janúar kl. 13.30.
Athöfninni verður útvarpað.
Jarðsett verður í Sauðlaugsdal.
Börn hinnar látnu.
Við þökkum öllum, sem sýndu okkur samúð við fráfall
eiginmanns míns og föður okkar
SIGURÐAR M. WIIUM
Sérstakar þakkir færum við yfirmönnum og samstarfs-
fólki hans á Keflavíkurflugvelli.
Guð blessi ykkur öll.
Sína D. Wiium og börn.
Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og
jarðarför
HÓLMFRlÐAR SAMtÍELSDÓTTUR
Gröf
Vandamenn.
Við þökkum hjartanlega öllum þeim, sem vottuðu okkur
samúð og vinarhug við andlát og útför
HARALDS GUÐMUNDSSONAR
frá Háeyri og sýndu minningu hans sóma.
Þuríður Magnúsdóttir og f jölskylda.
Innilegar þakkir til allra nær og fjær, fyrir auðsýnda sam-
úð, við andlát og jarðarför eiginmanns mins og föður
SKÚLA JÓHANNSSONAR
Sérstaklega viljum við þakka nokkrum vinum hins látna,
sem minntust hans ógleymanlega.
Kristín Sigurðardóttir,
Sigurður J. Skúlason.