Morgunblaðið - 04.03.1958, Qupperneq 2
2
MORGVNBL.4ÐIÐ
Þriðjudagur 4. marz 1958
Sjómaðurinn sem myrti unnustu
sína ætlaði með henni á dansleik
Þau ætluðu oð byrja oð búa innan
skamms. Frásögn aí írumrannsókn
málsins
Sófasett sem öndvegi hf. liefur á boðstólum.
Húsgagnaverzlun opnar
Valbjörk flutt á Laugaveg 133 og
beitir Öndvegi hf.
EINN af hörmulegustu atburð-
um í sögu bæjarins síðasta ára-
tuginn, átti sér stað á laugardags
kvöidið, og hafa landsmönnum
þegar borizt fregnir af honum.
Um klukkan 5,30 á sunnudags-
kvöldið varð kunnugt, að 36 ára
gömul kona, tveggja barna móðir,
hafði verið myrt í íbúð þeirri, er
bráðlega átti að verða hennar eig-
ið heimili. Kona þessi var Sig-
ríður Sigurgeirsdóttir til heim-
ilis að Skólavörðustíg 35 hér í
bæ, einkadóttir foreldra sinna.
Þá þegar um kvöldið féll grun-
ur á unnusta hennar, Guðjón
Magnússon Guðlaugsson sjó-
mann, 31 árs, frá Skálholti í
Grindavík, en þar búa foreldrar
hans nú. Seint á sunnudags-
kvöldið var hann handtekinn á
heimili foreldra sinna. í gærdag
játaði hann að hafa orðið Sig-
ríði unnustr sinni að bana seint
á laugardagskvöldið. Hafi hann
verið gripinn æði og framið þenn-
an hryllilega verknað meðan á
því stóð.
★
Frumrannsókn máls þessa
hófst þegar á sunnudagskvöldið
um klukkan 5,30 og má heita, að
hvíldarlaust hafi verið að því
unnið þar til um klukkan 6.15 í
gærkvöldi, að sakadómari, Valdi
mar Stefánsson, og Sveinn Sæ-
mundsson, yfirmaður rannsókn-
arlögreglunnar, skýrðu blöðun-
um frá því, sem þegar hafði fram
komið við þessa frumrannsókn.
Er drápsmaðurinn, Guðjón Magn
ússon Guðlaugsson, hafði játað
verknaðinn síðdegis í gær, var
hann úrskurðaður í gæzluvarð-
hald og til geðheilbrigðirann-
sóknar.
. ★
I aðaldráttum var frásögn
sakadómara af atburði þessum
og aðdraganda á þessa leið:
Um klukkan 17,25 á sunnudag-
inn var lögreglunni tilkynnt, að
morð myndi hafa verið framið í
rishæðaríbúð að Eskihlíð 12B.
Hús þetta er stórt fjölbýlishús.
Lögreglan var komin á vettvang
skömmu síðar. I íbúðinni hafði
Sigriður Sigurgeirsdóttir fundizt
örend, fáklædd undir sæng á legu
bekk. Á líkinu var ein mjög djúp
hnífstunga, vinstra megin á
brjósti, og tvær hnífstungur aðr-
ar. Blóðugur hnífur, nýlegur að
sjá, mjög blaðlangur og oddhvass,
lá alblóðugur á gólfi upp við skáp.
Sem fyrr greinir var Sigríður
trúlofuð Guðjóni Magnússyni Guð
laugssyni, Skálholti í Grindavík.
Það var í ráði að þau færu að
búa í þessari rishæðaríbúð innan
skamms. Þau áttu dreng tveggja
ára.
★
Á laugardaginn var hafði Guð
jón verið að dytta að íbúðinni. Ár-
degis hafði hann keypt flösku af
konjakki. — Um nónbil hittir
hann Sigríði unnustu sína í í-
búð þeirra og neyttu þau þá lít-
ils háttar af konjakkinu. Þau
fóru svo um kvöldið heim til Sigr-
íðar og foreldra hennar að Skóla-
vörðustíg 35 og borðuðu þar
kvöldmat. Voru þau þar til kl. um
9 á laugardagskvöldið. Það hafði
komið til ta'3 milli þeirra, að
þau færu saman á dansleik. En
úr því varð ekki, svo að þau héldu
kyrru fyrir um kvöldið í íbúð
inni í Eskihlíð 12B. — Guðjón
hefur skýrt svo frá, að þau hafi
þar drukkið úr flöskunni. Þegar
nálgaðist miðnætti, segir Guðjón,
að þau hafi orðið ósátt og
farið að kýta. Hann kveðst lengi
hafa þjáðst af afbrýðisemi gagn-
vart unnustu sinni. Hafi hann í
þessari orðasennu skyndilega ver-
ið gripinn þvílíkri heift og æði,
að harin hafi ekki vitað sitt rjúk-
andi ráð. 1 þessu hryllilega æðis-
kasti hafi liann gripið saxið
langa, ráðizt að unnustu sinni og
stungið hana til bana. Telur Guð-
jón að hér hafi allt lagzt á eitt,
langvarandi afbrýðisemi, ölæði
og ofsreiði andartaksins sem
nálgazt hafi fullkomna brjálsemi.
En Guðjón skýrði einnig frá
því, að þessar afbrýðisemi-hug-
renningar hans hafi verið algjör-
lega ógrundaðar og hann hafi í
rauninni ekkert haft fyrir sér í
þeim efnum. Hafi unnusta sín æ-
tíð verið sér góð og trú.
Sömuleiðis hafi tilvonandi
tengdaforeldrar verið sér einstak-
lega góðir.
Guðjón segir, að þá er hann
hafi verið búinn að vinna hroða-
verknað þennan, hafi hann verið
gripinn ofsahræðslu, og stokkið
út úr íbúðinni.
— Talið er, að Guðjón hafi
ráðizt með hnífinn á unnustu
sina, þar sem hún lá á legubekkn-
um, því að engin verksummerki
bentu til, að til sviptinga hafi
komið í herberginu, sem er lítið
— Trúlega hafa hnífstung-
urnar orðið konunni fljótlega að
bana.
★
Líklegt er talið, að Guðjón hafi
myrt unnustu sína laust fyrir
miðnættið, því er hann flýr á
brott eftir verknaðinn, nær hann
sér í leigubíl og ekur heim til sín
suður í Grindavík, en þangað
virðist hann hafa komið laust fyr
ir klukkan 2 aðfaranótt sunnu-
dagsins. Á leiðinni neytti hann
áfengis og kom snöggvast við í
Keflavík.
★
Um heimkomu hans til foreldra
hans í Grindavík þessa nótt, lágu
ekki fyrir upplýsingar í gær-
kvöldi, en þar syðra voru rann-
sóknarlögreglumenn og fulltrúi
sýslumanns Gullbringu- og Kjós-
arsýslu við yfirheyrslur í gær.
Vitað var, að Guðjón fór á
sunnudagsmorguninn til læknis-
ins í Keflavík, vegna áverka á
síðu. Rannsóknarlögreglan er ekki
búin að fá fulla vitneskju um það
hvemig á þeim áverka stendur.
— Þegar Guðjón kom frá lækn-
inum í Keflavík, fór hann inn á
herbergi heima hjá sér, dæsti að
sér og lét ekkert á sér bæra. —
Seint á sunnudagskvöldið komu
rannsóknarlögreglumenn héðan
fra Reykjavík og handtóku Guð-
jón, sem ekki veitti neina mót-
spyrnu. Var komið með hann
hingað til Reykjavíkur aðfara-
nótt mánudagsins og hann þá
strax tekinn til yfirheyrslu. Var
frambui-ður hans þá mjög rugl-
ingslegur og sum atriði hans aug-
Ijós markleysa. Rannsóknarlög-
reglan hefir fengið þær uppl. hjá
þeim, sem telja sig kunnuga Guð-
jóni, að hann Iiafi ekki verið fylli-
lega heill á geðsmunum.
Þetta var í öllum aðalatriðum
frásög* rannsóknarlögreglunnar.
★
Þessu til viðbótar er þess að
geta, að Grindvíkingur einn, er
Mbl. átti símtal við í gær, sagði
að fregn þessi hafi komið eins og
reiðarslag yfir kauptúnið.
— Ég þekki Guðjón ekki að
öðru en að vera gæfur maður,
sem gott er við að eiga. Hann hef
ur aldrei verið viðriðinn neina ó-
knytti hér. Svo hefur þó virzt
sem hann hafi upp á síðkastið
gerzt meira hneigður til víns. Að
honum stendur duglegt og heið-
arlegt fólk. Faðir Guðjóns er Guð
laugur Guðjónsson verkamaður,
en hann og kona hans eiga átta
upkomin börn, fjórar dætur og
uppkomin börn, fjói'ar dætur og
fjóra syni. Guðjón hefur ekki
verið í Grindavík að undanförnu.
Hefur hann verið landmaður á
bát í Keflavík.
★
Sigríður heitin var einkabarn
foreldra sinna, frú Ingunnar Öl-
afsdóttur og Sigurgeirs Guðna-
sonar, en hann er sonur Guðna
steinsmiðs (á Grtttisgötunni). —
Hún lætur eftir sig 16 ára dótt-
ur, Ingunni, og svo litla dreng-
inn, sem heitir Sigurgeir eftir
afa sínum.
Þeim, sem þekktu Sigríði, bera
henni mjög á einn veg söguna.
— Hún var mjög stillt og prúð
stúlka, og sérlega nærgætin við
móður sína sem um tveggja ára
skeið hefur átt við mikla van-
heilsu að stríða tg orðið að ganga
undir uppskurði, sagði kona ein,
sem þekkt hefur Sigríði og heim-
ili foreldra hennar frá þvi Sigríð
ur var lítil telpa. Hún var Ijós
yfirlitum og mjög myndarleg ung
kona.
Þau Sigríður og Guðjón voru
fyrir nokkru búin að kaupa sér
húsgögn í íbúð sína í Eskihlíð
12b, en í hana hafði Guðjón lagt
fé, er hann fékk fyrir hús, sem
hann átti suður í Grindavík. —
Börnin voru hjá foreldrum Sig-
ríðar.
í GÆR var útbýtt á Alþingi eft-
irfarandi þingsályktunartillögu,
sem flutt er af Einari Olgeirs-
syni og Karli Guðjónssyni:
„Neðri deild Alþingis ályktar
að skipa fimm manna rannsókn-
DeiWarstpri
V arnarmáladeiH-
ar og „reiknings-
meistarinn64 gefa
skýrslur •
TÍMINN slsýrir frá því á sunnu-
dag, að haldið hafi verið áfram
aðalfundi Framsóknarflokksins
á Xaugardag og hafi Tómas Árna
son, deildarstjóri í Varnarmála-
deild, fiutt „skýrslu fjársöfnun-
arnefndar T;mans“. Hins vegar
svarar Timinn ekki, fremur en
fyrr, þeim spurningum, sem Mbl.
hafur matg iiekað út af vöru
braskinu í bzskistöð Regins h.f.
í Silfurtúm og er því enn allt á
huldu um þær fjárupphæðir sem
þar er um að ræða. Skýringíu
kann raunar að vera sú, að deild-
arstjóri Varnarmáladeildarinnar,
ítem veitti „heimildnna“ til
brasksins með varnarliðsvörur
ar hafi ekki haft tima til að
sinna því máli um skeið vegna
annríkis við „fjársöfnunina
handa Tímanum".
Tíminn getur þess ennfremur,
að Ólafur Jóhannesson próf., „for
maður skipulagsnefndar", hafi
á sama fundi flutt skýrslu. Eins
og kunnugt er, var Ólafur annar
aðalreikningsmeistarinn, sem
undirbjó kosningaklæki Hræðslu
bandalagsins fyrir þingkosning-
arnar 1956. Ef til vill hefur nú
þótt ástæða til að endurskoða þá
reikninga eitthvað í ljósi bæjar-
stjórnarkosninganna. Þær sýndu
greinilega óvinsældir þess banda
lags og er ekki ótrúlegt að reikn
íngsmeistarir-n hafi nú í því sam
bandi athugað hvaða möguleik-
ar hin „algera" sameining Fram
sóknar og kommúnista gæfi til
nýs kosningabralls, þegar hent-
ugt þykir.
f DAG hefur húsgagnaverzlunin
sem áöur hét Valbjörk, starfsemi
sína í nýjum húsakynnum að
Laugavegi 133, undir nafninu
Öndvegi h.f. Var fréttamönnum
boðið að skoða hin nýju húsa-
kynni í gærdag. — Verzl-
unin hefur á boðstólum sömu
vörur og áður, sem eru húsgögn
alls konar í mjög fjölbreyttu úr-
vali.
arnefnd innandeildarmanna sam-
kvæmt 39. gr. stjórnarskrárinn-
ar til þess að rannsaka:
1) hvaða sala á þeim varningi,
er herlið Bandaríkjanna á ís-
landi eða verktakar í þjónustu
þess hafa flutt inn tollfrjálst,
hefur farið fram með leyfi ís-
lenzkra stjórnarvalda;
2) hvort farið hafi verið að lög-
um og settum reglum um þau
viðskipti;
3) hvers vegna hluti af þeim
viðskiptum sé framkvæmdur af
öðrum aðilum en þeim, sem ríkis-
stjórnin hefur falið þessa verzl-
un;
4) hvaða einkaaðilar séu kaup-
endur og hvern ágóða þeir muni
hafa haft af þeim viðskiptum.
Nefndin stal hafa það vald,
sem heimilað er í 39. gr. stjórn-
arskrárinnar, til þess að heimta
skýrslur af embættismönnum og
öðrum.
Nefndin skal að rannsókn lok-
inni gefa deildinni ýtarlega
skýrslu um störf sín og niður-
stöður“.
NEW YORK, 3. marz. — Sænski
herforinginn von Horn hefur
verið skipaður yfirmaður gæzlu-
liðs SÞ í Falestínu, en Burns
hershöfðingi er að láta af störf-
INGI R. JÓHANNSSON lét ekki
við það sitja að vera skákmeistari
Reykjavíkur 1958 heldur bætti
hann og við sig hraðskákmeistara
titli þessa árs, er úrslitaKeppni
hraðskákmóts Reykjavikur fór
fram í Sjómannaskólanum í fyrra
dag. Herman Pilnik, stórmeistari,
hreppti annað sætið, en hann
keppti sem gestur á mótinu.
Þriðji varð Guðmundur Pálma-
son og má segja að þessir þrír
hafi borið allmjög af, því að ekki
var nema hálfs stigs munur a
útkomu þeirra hvers um sig. Ann
ars urðu úrslitin þessi:
1. Ingi R. Jóhannsson 21(6 v.
2. Herman Pilnik .... 21 v.
Verður rekin með sama sniði
og áður
Baldur Guðmundsson sem rek-
ið hefur Valbjörk h.f., að Lauga-
vegi 99, veitir einnig hinni nýju
verzlun forstöðu. Verzlunin verð-
ur rekin með sama fyrirkomu-
lagi og áður og hefur aðalumboð
fyrir Valbjörk h.f. á Akureyri.
Bólstrun
Fyrirhugað er að í sambandi
við hina nýju verzlun verði kom-
ið á fót bólstrun, til þess að auka
á fjölbreytni þess sem verzlað
er með og að gera þjónustuna
fyllri. Verzlunin mun þannig
hafa á boðstólum úrval af alls
konar húsgögnum og auk þeirra
gólfteppi, dregla og áklæði. Hef-
ir verzlunin nú þegar á annað
hundrað tegundir af áklæði.
Rúmgóð og vistleg húsakynni
Húsnæði það sem verzlunin
hefur nú til umráða er mjög
vistlegt og rúmgott. Málningarliti
í verzlunina hefur Sveinn Kjarval
valið en Svan Magnússon og
Björn Gíslason séð um verkið.
Grindavíkurbátar
hefja netjaveiði
GRINDAVÍKURBÁTAR hafa nú
lagt línu sína á land. 1 landleg-
unni í gær var unnið að'liví að
steina netin og' mun flotinn þar
almennt róa með net er veðrinu
slotar.
Á línuvertíðinni hafa 19 hátar
róið frá Grindavík, en nú þegar
bátarnir hefja netjaveiðar munu
fleiri bátar leggja upp þar. —
Hæstu bátar í Grindavík eru
Hrafn Sveinbjarnarson, Arnfirð-
ingur og Sæljón.
Fyrir helgina lagði bátur frá
Reykjavík, „Ásdís“ net sin á
mið Grindavíkurbáta og fékk
11 tonn í 30 trossur, eftir tvær
nætur.
3. Guðm. Pálmason .. 20% V.
4. Jón Þorsteinsson .. 18 V.
5. Jón Pálsson 17% V.
6. Baldur Möller .... 16 V.
7. Sveinn Kristinsson 15% V.
8.-9. Jónas Þorvaldsson 13% V.
8.-9. Ólafur Magnússon 13% V.
10. Benóný Benediktss. 13 • V.
11. Reimar Sigurðsson 12% V.
12. Jón Víglundsson .. 12 V.
Arir minna.
Ingi R. tapaði fyrir Braga Ás-
geirssyni og gerði jafntefli við
Jón Pálsson. Pilnik tapaði fyrir
Inga R. og Jóni Pálssyni. Guð-
mundur Pálmason tapaði fyrir
Inga R. og Pilnik en gerði jafn-
tefli við Reimar Sigurðsson. —
Úrslitakeppnin stóð í 5 klst.
Verzl.vIftsScipti vlð varn-
arllðið €$ff verktaka þess
um.
Ingi R. Jóh. hraðskák-
meistari Reykfavíkur