Morgunblaðið - 04.03.1958, Síða 6
6
MORCTJNBLAÐIÐ
Þriðjudagur 4. marz 1958
Núverandi stjórn Málarafélags Reykjavíkur, aftari röð, talið
frá vinstri: Halldór Gíslason ritari stjórnar, Grímur Guðmunds-
son gjaldkeri, Matthías Ólafsson ritari félags. Fremri röð:
Hjálmar Jónsson varaform. og Lárus Bjarnfreðsson formaður.
Mólarafélog Reykjavíkur 30 ára
MÁLARAFÉLAG Reykjavíkur
var stofnað 4. marz 1928 í Iðn-
skólahúsinu í Reykjavík. Stofn-
endur félagsins voru 16 að tölu.
Fyrsta stjórn félagsins var skip
uð eftirtöldum mönnum:
Albert Erlingsson formaður,
Ágúst Hakonsen féhirðir, Hörður
Jóhannesson ritari. Varamenn:
Óskar Jóhannsson, Georg Vil-
hjálmsson og Þorbjörn Þórðar-
son.
Bráðlega tókust samningar við
V Málarameistarafélagið, sem stofn
’að var um líkt leyti og var kaup
málarasveina þá ákveðið kr: 1.60
á klukkustund.
1935 fékk félagið í fyrsta sinn
jnann í prófnefnd og er Kristján
Guðlaugsson fulltrúi félagsins í
nefndimji.
Félagið fékk einn mann í Iðn-
ráði, það sæti skipar Þorsteinn
B. Jónsson.
Árið 1937 stóð félagið að stofn-
un Sveinasambands bygginga-
manna ásamt öðrum iðnsveina-
félögum í byggingaiðnaði. Til-
gangurinn með þeirri sambands-
stofnun var að treysta samtökin
og vernda vinnuréttindi félag-
anna.
Árið 1947 gekk félagið í Alþýðu
samband lslands og stóð við hlið
annarra verkalýðsfélaga í verk-
fallsátökunum miklu 1952 og
1955. Félagið hefur háð þrjú önn-
ur verkföll.
Félagið hefur komið sér upp
nokkrum sjóðum. Eru það Vinnu-
deilusjóður, Ekkna- og minning-
arsjóður, Fræðslu- og menningar-
sjóður og Sjúkrastyrktarsjóður.
Árið 1954 samdi Málarafélagið
við málarameistara um að tekin
skyldi upp ávkæðisvinna fyrir
málarastéttina. í verðskrárnefnd
Málarafélagsins eiga sæti: Krist
ján Guðlaugsson, sem hefur unn
ið þar geysimikið starf fyrir fé-
lagið og stéttina í heild, í nefnd-
inni eru einnig Halldór Gislason
og Karl Filbert Jóhannsson.
Eftirtaldir menn hafa verið for-
menn félagsins á sl. 30 árum: Al-
bert Erlingsson, Kjartan Stefáns
son, Jón Ágústsson, Björn Björns
son, Jón B. Jónsson, Ásbjörn Ó.
Jónsson, Sæmundur Sigurðsson,
Magnús B. Hannesson, Gunnar
Leó Þorsteinsson, Guðjón Krist-
insson, Hannes Kr. Hannesson,
Þorsteinn B. Jónsson, Kristján !
Guðlaugsson, og Lárus Bjarn-
freðsson.
Félagið minnist afmælisins með
hófi í Silfurtunglinu föstudag-
inn 7. þ.m. — í félaginu eru nú
136 manns.
Nýr bátur í
hörðum árekstri
HORNAFIRÐI, 28. febr. — Það
mikla óhapp vildi til á mánu-
dagskvöldið að harður árekstur
varð milli tveggja báta og stór-
skemmdist annar þeirra. Slys
varð ekki á skipsmönnum.
Árekstur þessi varð í rennunni,
sem liggur út frá bryggjunni hér.
Vélskipið Gissur hvíti, sem er
nýr glæsilegur fiskibátur, var að
leggja af stað í róður. — Fór
hann með hægri ferð út renn-
una.
Vélskipið Pálmar frá Seyðis-
firði var að koma inn í mynni
rennunnar þegar áreksturinn
varð, en við hann urðu gífift-leg-
ar skemmdir á Gissuri hvíta, er
stefni Seyðisfjarðarbátsins kom
á hann. Gissur hvíti var þó sjó-
fær eftir áreksturinn og strax um
nóttina var honum siglt til Nes-
kaupstaðar þar sem bráðabirgða-
viðgerð fer fram. Er gert rað'
fyrir, að hún taki um það bil
vikutíma. — Gunnar.
Björn Ófeigsson form. Fél.
vefnaðarvörukaupmanna
AÐALFUNDUR Félags vefnaðar-
vörukaupmanna var haldinn 27.
febrúar. Björn Ófeigsson var kjör
inn formaður og Haildór R. Gunn
arsson, Leifur Múller, Sveinbjörn
Árnason og Þorsteinn Þorsteins-
son meðstjórnendur. I varastjórn
voru kosin Sóley Þorsteinsdóttir
og Edvard Frímannsson. Aðal-
fulltrúi í stjórn Sambands smá-
söluverzlana var kosinn Björn
Ófeigsson og Ólafur Jóhannesson
til vara.
si*rif*ar úr
daglega lífinu
Um veðrabrigði o. fl.
ÞAÐ má með sanni segja, að s
skammri stund skipast veður
í lofti hér í henni Reykjavík.
Aumingja Velvakandi skrifaði
smápistil á föstudaginn um forar-
slettur. Þá voru vilpur um allar
götur, bílstjórarnir urðu að
gæta að sér til að komast hjá þvi
að óhreinka vegfarendur og Vel-
vakandi var farinn að telja sjálf-
um sér trú um, að vorið væri
komið. Þessi ritsmíð birtist svo
á laugardaginn, og þá var vorið
stungið af, veðurguðirnir höfðu
breitt snjóteppi yfir götur og
garða og ónotalegir byljir gengu
yfir. Þegar þetta er skrifað, er
snjórinn orðinn enn meiri og sýn-
ir ekki á sér neitt fararsnið.
I þessu sambandi er vert að
minnast ábendingar, sem glöggur
maður kom á framfæri við Vel-
vakanda fyrir skömmu. Hann
sagði, að oft kæmi það fyrir, að
snjó, sem ýtt er af akbrautun-
um á götum höfuðstaðarins,
væri mokað upp á gangstéttir.
Þetta er auðvitað til mikils traf-
ala fyrir þá, sem þurfa að notast
við hesta postulanna til að kom-
ast á milli húsa. Og ekki eru
þær öfundsverðar mæðurnar eða
barnfóstrurnar, sem ösla mjöllina
með barnavagna á undan sér.
Bærinn á þeytara, sem blæs
snjónum upp á bíla, en ekki verð-
ur komizt yfir að hreinsa allar
götur með þessu tæki.
Og svo er þess að minnast, að
snjór og hálka valda því, að
ökumenn verða að gæta sín. Og
nú er það ekki bara vegna vesal-
inganna, sem eftir gangstéttunum
stika, heldur vegna bílstjóranna
sjálfra. Árekstrar, bílskemmdir
og slys á fólki eru daglegir at-
burðir, þegar hált er á götunum
Og ekki virðist sizt vanþörf á
að minna unga og svellkalda bíl-
stjóra á þessa staðreynd. Nú
dugar ekki að ýta bensíninu nið-
ur til að finna, hvað það er gam-
an að láta kröftuga vélina þeyta
bílnum áfram — og treysta svo
á bremsurnar. Þær geta sem sé
verið til ills eins í hálku. Munið
það!
Fagrar bækur
YRIR rúmum Vz mánuði tók
til starfa í Reykjavík stofnun,
er nefnist Prentskólinn. Það er
fyrsti fasti, verklegi skólinn fyr-
ir iðnnema, sem komið hefur ver-
ið á fót hér á landi, og munu allir
prentnemar í borginni vera þar
við nám um nokkurra mánaða
skeið hér eftir, þó að verklega
kennslan fari eftir sem áður aðal-
lega fram í prentsmiðjunum. —
Skóli þessi á í framtiðinni að
vera hluti af stærri skóla, Bók-
iðnaskólanum, þar sem kenna á
nemum í bókbandi, prentmynda-
gerð og offsetprentun — auk
prentnema.
Þetta er rifjað upp nú í tilefni
þess, að fyrir nokkrum dögum
átti Bókiðnafélagið danska 70
ára afmæli. — Þetta félag var
stofnað að frumkvæði Hendrik-
sens nokkurs, en hann var lista-
maður, sem aðallega fékkst við
að gera tréstungur. Einhverju
sinni rétt fyrir jólin var hann á
gangi um götur Kaupmanna-
hafnar. Dvaldist honum þá nokk-
uð framan við glúgga bókaverzl-
ananna, eins og oft vill verða
um góða menn. Og sem hann
rölti þarna um strætin fylltist
hann slíkum fítonsanda, að hann
gat ekki á sér setið, hljóp heim
og ritaði grein: „Frágangur bók-
anna okkar“. Þar skammar hann
danska bókagerðarmenn þeirra
tíma af miklum móði og segir
þá brjóta gegn „öllum heilbrigð-
um reglum prentlistarinnar og
fegurðarkröfum.“ Ýmsum þótti
sem hér væru orð í tíma töluð,
og nokkru síðar var Bókiðnafé-
lagið stofnað. Félagið hefur gefið
út ýmis rit um bókiðnirnar og
sérstakt blað um sama efni. Það
stofnaði lika danska bókiðna-
skólann, þó að hann starfi nú ekki
lengur á þess vegum.
Starfsemi félagsins nú er m. a.
fólgin í því að velja fegurstu bæk
ur ársins. Snjallar greinargerðir
fylgja úrskurðunum um val bók-
anna. Framan af árum urðu eink-
um fyrir valinu bækur, sem gefn-
ar voru út í litlum upplögum
handa mönnum, sem sérstaklega
höfðu áhuga á frágangi bóka. Nú
er farið að veita verðlaunin þeim,
sem ganga frá bókum handa al-
menningi, og hefur gildi verðlaun
anna aukizt við það. Þá hefur fé-
lagið beitt sér sérstaklega fyrir
því, að betur sé gengið frá skóla-
bókum en áður var, og hefur það
starf borið góðan árangur.
Starf danska Bókiðnafélagsins
minnir okkur á, að hér á landi
er margt ógert á þessu sviði, þó
að framfarir hafi orðið í íslenzkri
bókagerð á síðustu árum.
Hörð átök í bæjar-
stjórnarkosninganum
í Dánmörka
Borgaraflokkarnir hafa víða samvinnu
gegn jafnaðarmönnum
í DAG fara bæjarstjórnarkosning
ar fram í Danmörku. Leiðtogar
allra stjórnmólaflokkanna hvetja
kjósendur til að líta ekki aðeins
á bæjarmál heldur líka á lands-
mál, þegar þeir greiða atkvæði.
Þetta eru fyrstu kosningarnar í
Danmörku eftir að samsteypu-
stjórn H. C. Hansens, var mynd-
uð í maí í fyrra. Úrslit bæjar-
stjói-narkosninganna gefa • vafa-
laust bendingu um það, hvernig
kjósendunum geðjast að þessari
emkennilegu ríkisstjórn.
Það kom sem kunnugt er, flatt
upp á alla, þegar H. C. Hansen
myndaði stjórn með þátttöku
þriggja flokka, nefnilega jafnað-
armanna, Róttæka flokksins og
Réttarsambandsins, eftir að hann
hafði tapað þjóðþingskosningun-
um og beðizt lausnar. Sérstak-
lega furðuðu menn sig á því, að
leiðtogar Réttarsambandsins
skyldu setjast á stjórnarbekk
með jafnaðarmönnum, sem þeir
móti hafa tveir stjórnarflokk-
anna nefnilega Róttæki flokkur-
inn og Réttarsambandið, gert
kosningabandalag við stjórnar-
andstöðuna (íhaldsmenn og
vinstrimenn) í mörgum bæjum.
Jafnaðarmenn segja, að fyrst
og fremst sé barizt á móti þeim
við þessar bæjarstjórnarkosning-
ar. Þetta er að miklu leyti rétt.
Það skiptir vitanlega miklu
máli, hvort fylgi jafnaðarmanna,
stærsta flokksins í landinu,
eykst eða minnkar. En því verð
ur líka veitt mikil eftirtekt,
hvernig kjósendur Réttarsam-
bandsins taka þátttöku leiðtoga
sinna í ríkisstjórn, sem er skip-
uð jafnaðarmönnum. Sumir spá,
að Starcke, ráðherra án stjórnar
deildar, sé líka að verða ráð-
herra án fylgis. En margt bendir
til þess, að breytingarnar á
flokkaskiptingunni í landinu
reynist ekki stórvægilegur.
í allmörgum bæjum er þó svo
Starcke: Ráðherra án fylgis
hafa alltaf barizt heiftarlega á
móti.
Dönsku blöðin hafa oft skemmt
sér að því, að H. C. Hansen, sagði
fyrir þingkosningarnar í fyrra,
að Starcke væri „kedelig karl“.
H. C. Hansen minntist nýlega á
þetta á ræðu og sagðist standa
við það, sem hann hefði sagt, af
því að það væri rétt mælt. For-
sætisráðherrann lætur annars
ekkert tækifæri ónotað til að
segja mönnum, að samvinnan í
rikisstjórninni sé góð.
Það er þó augljóst, að stjórn-
arflokkarnir eru ósammála um
ýmis þýðingarmikil mál. En
H. C. Hansen reynir í lengstu
lög að komast hjá að taka opin-
berlega afstöðu til ágreinings-
málanna. Við því er þó ekki bú-
izt, að samvinnan milli stjórnar-
flokkanna fari út um þúfur í
náinni framtíð. En ef til vill fer
svo, að úrslit bæjarstjórnarkosn
inganna ráði miklu um það, hve
lengi samvinnan getur haldizt.
Þegar litið er á fullyrðingar
forsætisráðherrans um góða sam
vinnu í ríkisstjórninni, þá mætti
vænta þess, að stjórnarflokkarn-
ir stæðu sameinaðir við bæjar-
stjórnarkosningarnar. Þessu er
þó ekki þannig farið. Þvert á
ástatt, að tiltölulega lítil breyt-
ing á skiptingu atkvæða getur
gert að verkum, að meirihlutinn
komist í aðrar hendur. í 21 af 84
kaupstöðum þurfa jafnaðarmenn
ekki að tapa nema einu bæjar-
stjórnarsæti til þess að borgara-
flokkarnir fái meirihluta. Og í
18 kaupstöðum fá jafnaðarmenn
meirihluta, ef borgaraflokkarnir
tapa einu sæti.
í Kaupmannahöfn verða jafn-
aðarmenn þó án efa áfram fjöl-
mennastir í borgarstjórninni.
Þeir hafa þar nú 32 af 55 sætum.
Þeir tala núna fyrir kosning-
arnar mikið um, að þeir hafi
verið í meirihluta í borgar-
stjórn höfuðborgarinnar síðast-
liðin 40 ár að einu kjörtímabili
undanteknu. „Politiken“, aðal-
blað Róttæka flokksins, bendir
jafnaðarmönnum á, að þeir ættu
ekki að hæla sér af þessu. Þeir
hafi stjórnað höfuðborginni svo
illa, að fjöldi fólks flytji til út-
borganna vegna hinna háu út-
svara í Kaupmannahöfn.
Við bæj arstj órnarkosningarnar
fyrir fjórum árum fengu jafnað-
armenn meirihluta í 54 kaup-
stöðum, íhaldsmenn í 15, vinstvi-
menn í 7, Róttæki flokkurinn í 14
og sameiginlegir borgaralistar
í 6.
Páll Jónsson.