Morgunblaðið - 10.03.1959, Side 1
20 siðuv
46. árgangur
57. tbl. — Þriðjudagur 10. marz 1959
Prentsmiffja Moi ernnblaðslna
Félagi Kassems gerir upp-
írak
reisn i
Fréttir stangast á: Ein kveður upp-
reisnarforingjann fangaðan, önnur
segir uppreisnina breiðast út
LONDON, 9. marz. — (Reuter).
tJtvarpið í Bagdad skýrði frá því
í kvöld, að Abdul Wahab
Shawwaf ofursti, sá er stjórnaði
uppreisninni í Norður-lrak í gær,
hefði verið handtekinn. Áður
hafði útvarpið haldið því fram,
að Shawwaf hefði verið drepinn
af sínum eigin mönnum, en út-
varp uppreisnarmanna í Mosul
bar það til baka. Þá sagði útvarp
uppreisnarmanna ennfremur, að
liðsafli frá stjórninni, sem sendur
var til Mosul, hefði verið þurrk-
aður út. Það voru fyrstu fréttir
um bardaga uppreisnarmanna
við hermenn stjórnarinnar, sem
uppreisnarmenn komu með.
Útvarpið í ísrael skýrði frá þvi
í dag, að útvarp uppreisnar-
manna, sem kallaði sig „Útvarp
Mosul“, væri sennilega einhvers
staðar í Sýrlandi. Sérfræðingar
hefðu lýst því yfir, að ekki hefði
verið nein útvarpsstöð í Mosul,
og styrkleikurinn í útvarpssend-
ingum uppreisnarmanna benti til
þess að þær ættu upptök sín ut-
an landamæra íraks, sennilega í
Sýrlandi. Þessi kenning styðst
líka við það, að öll áróðurstæki
Arabíska sambandslýðveldisins
hafa lýst yfir óskiptum stuðningi
við Shawwaf ofursta.
Útvarpsfyrirlesarar í Beirut
voru líka þeirrar skoðunar að
útvarp uppreisnarmanna væri
ekki í Mosul og bentu á, að upp-
reisnarmenn hefðu ekki skýrt frá
loftárásinni á Mosul fyrr en út-
varpið í Bagdad var búið að
segja frá henni.
Oliusvæðin
Fregnir af uppreisninni eru all-
ar mjög óljósar. Uppreisnarmenn
héldu því fram að ibúar Kirkuk-
og Irbilhéraðanna ásamt öllum
íbúum Norður-íraks væru hlynnt
ir þeim. Það eru einkum Kúrd-
ar sem búa í norðurhéruðum
landsins, en þeir hafa verið tald-
ir andvígir stjórn Kassems. Út-
varpið í Bagdad birti tilkynn-
ingu mu að sett hefðu verið 10
þús. sterlingspund til höfuðs
Shawwafs, hvort sem hann næð-
ist dauður eða lifandi. Uppreisn-
armenn skoruðu hins vegar á
Olíuféiag íraks, sem er alþjóð-
legt hlutafélag, að hætta að
greiða stjórn Kasscms peninga
fyrir olíu.
Eðlilegt aftur í kvöld
Bagdad-útvarpið skýrði frá því
í dag, að járnbrautarferðir milli
Bagdad og Mosul hæfust aftur í
kvöld. 1 Beirut sagði talsmaður
Olíufélags íraks, að olíuvinnslan
gengi eðlilega, og flugstjórar
arra héraða landsins, þrátt
fyrir yfirlýsingar stjórnarinn-
ar um að uppreisnin hefði
verið kæfð. Mikill herafli er
sagður hafa gengið í lið með
Shawwaf ofursta ásamt mörg-
um innbornum kynþáttum.
Herafli stjórnarinnar sem
sendur var til Mosul er sagð-
ur hafa mætt öflugri mót
spyrnu, svo hann varð að láta
undan síga. Útvarp uppreisn-
armanna skýrði frá því, að
&
*
tveggja flugvéla sem komu frá
Irak til Beirut í dag sögðu að
allt væri með kyrrum kjörum
í Kirkuk, sem er fyrir suðaustan
Mosul og miðstöð olíuvinnslunn-
ar.
I Kaíró var tilkynnt að egypzku
fréttastofunni í Bagdad hefði ver
ið lokað samkvæmt fyrirmælum
setuliðsstjórans í borginni.
Breiðist út
NTB-fréttastofan norska
skýrði frá því seint í kvöld, að
uppreisnin í Norður-írak virt-
ist vera að breiðast út til ann-
Maemillan ræðir
við Debré
PARÍS, 9. marz. NTB-AFP. —
Macmillan forsætisráðherra
Breta og Debré forsætisráð-
herra Frakka hófu i dag tveggja
daga viðræður sínar í París. Mac-
millan kom til Parísar ásamt
Lloyd utanríkisráðherra um há-
degið í dag. Viðræðurnar
í dag hófust með því, að
Macmillan sagði frá för sinni til
Moskvu og árangri hennar, en
síðar var rætt um Berlínavand-
málið og friðarsamninga við
Þýzkaland.
Crívas hœttir baráttunni
og styður Makaríos
NÍKÓSÍU, 9. marz: — NTB—
Fyrrverandi leiðtogi EOKA-leyni
félagsskaparins á Kýpur, Georgos
Grívas ofursti, lét í dag formlega
af störfum sem leiðtogi þessara
baráttusamtaka grískumælandi
Kýpurbúa. Á sérstökum flugmiða
gaf hann fylgismönnum sínum
skipun um að hætta baráttunni
og hlýða hinum nýja leiðtoga,
Makariosi crkibiskupi.
Eftir að flugmiðarnir höfðu
verið sendir út, byrjuðu Kýpur-
Grikkir í Níkósíu og Famagusta
ný hátiðahöld með enn meiri þátt
töku en áður. Margir höfðu beðið
eftir viðbrögðum Grívasar við
Kýpursamningunum, áður en þeir
ákvæðu að taka þátt i fagnaðar.
látunum.
Grívas hefur að undanförnu
unnið að því að tryggja framtíð
þeirra leiðtoga EOKA, sem setið
hafa í fangelsi. í dag voru níu
þeirra leystir úr haldi.
Ekki er enn vitað hvar Grívas
heldur sig.
her þeirra væri nú á leið til
Bagdad. Járnbrautarferðir
lágu niðri í dag í írak og síma-
Framh. á bls. 19.
Landsfundur Sjálfstæðis-
flokksins hefst á morgun
Fulltruar vitji skírteina í dag.
ÞRETTÁNDI landsfundur Sjálfstæðisflokksins verður settar I
Gamla Bíói kl. 8,30 annað kvöld.
Á þessum fyrsta fundi landsfundarins mun formaður flokksins,
Óiafur Thors, flytja yfirlitsræðu um stjórnmáiaþróunina að undan-
förnu og framtíðarviðhorf í þeim efnum. Að lokinni ræðu for-
manns verða nefndir kjörnar.
Til þess að auðvelda undirbúning fundarins eru það eindregia
tilmæli miðstjórnar flokksins, að ailir landsfundarfulltrúar úr
Reykjavík og fulltrúar utan af landi, sem þegar eru komnir til
bæjarins, vitji fulltrúaskírteina í skrifstofu flokksins í Sjálfstæð-
ishúsinu í dag.
Stórkostleg framför
í lyflækningum
Brezkir læknar finna ný penisilín-lyf
læknablaðið „The
nýtur mikils
BREZKA
Lancet“, sem
álits meðal lækna um allan
heim, hefur skýrt frá miklu
afreki þriggja brezkra sér-
fræðinga á sviði lyflækninga.
Þeim hefur, að sögn blaðsins,
tekizt að skipta mólikúlum
penisilínsins og mun það hafa
Krúsjeff rceðir við v-þýzka
sósíaldemókrata
Kveðst fús að fallast á málamiðlun
BERLÍN, 9. marz. NTB-Reuter---
Krúsjeff forsætisráðherra Sovét-
ríkjanna sagði í dag á fjöldafundi
í Austur-Berlín, að Rússar væru
fúsir að fallast á það, að Banda-
ríkin, Bretland, Frakkiand og So-
vétríkin eða hlutlaus riki hafi
litla herstyrki í V-Berlín til að
tryggja stöðu hennar sem óháðs
borgríkis. En hann visaði á bug
tillögum um að Austur-Berlín
yrði li'ka gerð borgríki und'ir
sömu stjórn og Vestur-Berlín.
Nokkrum klukkustundum áður
hafði Krúsjeff átt viðræður við
leiðtoga vestur-þýzku stjórnar-
andstöðunnar, Erich Ollenhauer,
sem er foringi sósíaldemókrata,
og jafnframt boðið Willy Brandt
yfirborgarstjóra Vestur-Berlínar,
sem einnig er sósíaldemókrati, til
að eiga við sig viðæður á morgun.
Mörg mál rædd
Samkvæmt fréttum AFP sagði
Ollenhauer eftir viðræðurnar að
þær hefðu snúizt um Austur-Ber-
lín, Þýzkalandsmálin og ýmis önn
ur efni, sem þeir voru ósammála
um. Hins vegar hefðu viðræðurn-
ar farið fram í anda vinsemdar
og agnkvæmrar virðingar.
Áður en Krúsjeff ræddi við
Ollenhauer fór hann í opinbera
heimsókn í ráðhús Austur-Ber-
línar og sagði þá, að ekki mundi
líða á löngu þangað tii Berlín öll
yrði laus við hernámið.
Ágreiningur um fjölmörg mál
Ollenhauer sagði fréttamönn-
um að hann og Krúsjeff hefðu
orðið ásáttir um, að öll alþjóða-
vandamál væri hægt að leysa
með samningagerð. Þeir hefðu
rætt væntanlega friðarsamninga
við Þýzkaland, stöðu Berlínar, af
nám hersetunnar í Berlín og ýmis
vandamál sem snertu frið og ör-
yggi. Hann kvað ágreining hafa
verið um fjölmörg mál, en við-
ræðurnar hefðu gert báðum áðil-
um kleift að skýra sjónarmið sín.
Leynd yfir viðræðunum
Valerian Zorin aðstoðarutanríkis-
ráðherra og Mihail Pervukuhin
sendiherra Rússa í Austur-Þýzka-
landi voru viðstaddir samtalið, en
tóku ekki þátt í því.
„Mér virtist sovétstjórnin vera
staðráðin í að gera allt sem hún
gæti til að finna friðsamlega
lausn á vandamálunum og hindra
Framh. á bls. 19.
Belgísk tillaga iim
Þýzkalandsmálið
BRÚSSEL, 9. marz. NEB-AFP. —
Belgíski utanríkisráðherrann,
Pierre Wigny, hefur sent öllum
meðlimum Atlantshafsbandalags-
ins orðsendingu, þar sem hann
kemur fram með höfuðdrættina
í tillögum um lausn Þýzzkalands-
málsins. Samkvæmt heimildum
í Belgíu tekur utanríkisráðherr-
ann ekki til meðferðar spurning-
una um minnkun heraflans, en
tiHögur hans gætu orðið umræðu
grundvöllur, sem öll vestræn ríki
eiga að geta fallizt á. Gengið
var frá höfuðdráttunum í tillög-
um Wignys á fundi sem hann
átti við de Murville utanríkisráð-
herra Frakka á föstudaginn.
í för með sér gífurlegar fram-
farir í lyflækningum, því útlit
er fyrir, að með þessu verði
unnt að framleiða ný lyf við
sjúkdómum, sem ekki hefur
verið unnt að sigrast á áður
og einnig lyf, sem vinna bug
á sýklum, sem nú eru orðnir
ónæmir fyrir gamla penisilín-
inu.
Vísindamennirnir, sem hér
eiga hlut að máli, eru Frank
Doyl, Frank Batchelor og John
Naylor. Blaðið lætur liggja að
því að þessi uppgötvun þremenn-
inganna muni færa þeim í skaut
Nóbelsverðlaunin í læknisfræði.
Nú verður hægt að framleiða
margar tegundir af penisilíni og
blaðið segir, að hver tegundin
eigi að vinna bug á sérstökum
bakteríuflokkum, þannig að
læknar geti gefið þá tegund, sem
við á í hverju sjúkdómstilfelli.
Þá verður einnig,.að sögn blaðs-
ins, hægt að framleiða sérstakt
penisílinlyf fyrir þá sjúklinga,
sem ekki þola eða hafa ofnæmi
fyrir venjulegu penisilínL
Þremenningarnir hafa gert víð-
tækar rannsóknir með þetta nýja
penisilín, sem nefnist á fagmáli
„6-amino-penisilínsýra“ bæði á
músum, rottum og kanínum, en
það verður reynt á hundum líka,
áður en tilraunir verða gerðar
á mönnum.
Lundúnablöðin á laugardag
segja, að hér sé um stórkostlega
framför að ræða í framleiðslu
antíbiótískra lyfja og sumir
ganga jafnvel svo langt að full-
yrða, að þetta sé mesta framför-
in, sem orðið hefur í lyflækn-
ingum síðan penisílínið var fund-
ið upp í Bretlandi fyrir styrjöld-
ina.
Þriðjudagur 10. marz
Efni blaSsins m.a.:
Bls. 6: KönnunarferS Macmillans.
— 8: LoftleiSir 15 ira i dag.
— 9: Bókaþáttur: Majakovski a|
sósalrealisminn.
— 10: Forystugreinin: Dramb Fram-
sóknar.
— 11: Kjördæmabreytingin er sjálf-
sögff og rétt, grein eftir Siguri
á Laugabóli.
— 12: Hvernig var sveitin og hvrmlg
er hún nú, skógræktargrein