Morgunblaðið - 17.06.1959, Síða 6

Morgunblaðið - 17.06.1959, Síða 6
6 MORGVNBLAÐIÐ Miðvikudagur 17. jöní 1959 Nómskeið í íslenzku móli 09 bókmenntum hnldið hér í honst Æskilegt að þátttakendur geti búið á íslenzkum heimilum um 2ja mánaða skeið NÁMSKJEIÐ í íslenzku máli og bókmenntum fyrir norræna stúdenta verður haldið hér næsta haust á vegum Stúdentaráðs Há- skóla fslands og verða þátttakend ur væntanlega um 15 að tölu. Ætlað fyrir norræna stúdenta Hliðstæð námskeið þessu hafa áður verið haldin í Danmörku (1955 og ’58), Noregi (1956) og Svíþjóð (1957), þar sem fjall- að hefur verið um tungu og bók- menntir viðkomandi þjóðar, en landssambönd háskólastúdenta á Norðurlöndum gerðu fyrir nokkr um árum samkomulag sín á milli um að efna til slíkra námskeiða til skiptis. Að þessu sinni er röðin komin að ís’endingum og verður næsta náinskeið, hið 5. í röðinni, því haldið við Háskóla fslands frá 11. september til 6. nóvember á þessu ári. Þrir prófessorar annast kennslnna Kennsla á námskeiðinu verð- 17. jímí liátíða- höldin í Keflavík KEFLAVÍK, 16. júní: — Hér í Keflavík hefjast 17. júní hátíða- höldin kl. 1,15 með því að lúðra- sveit leikur við kirkjuna og það- an verður síðan gengið í skrúð- garðinn. Þar verða ræðuhöld og skemmtiatriði. Síðar um daginn verða kapp- leikir í handknattleik og knatt- spyrnu, en um kvöldið verður dansað á Hafnargötunni og undir dansinum verða einnig ýmis skemmtiatriði. — Helgi S. Gróðurselning og girðingar VALDASTÖÐUM, Kjós, 15. júní. — Fyrir skömmu var lokið við að gróðursetja um 3000 trjáplönt- ur í Vindáslandi og ganga frá girðingu kringum þær. Landið, sem gróðursett var i, er á mörk- um landsvæðis, sem K.F.U.M. hefur eignazt í Vindáshlíð. Er það 4—5 ha að stærð. Að gróður- setningunni hafa staðið Skóg- ræktarfélag Kjósarmanna og Átt hagafélag Kjósverja, en auk þess hafa nokkrir einstaklingar í sveit inni sett niður nokkuð á annað þúsund plöntur. —St. G. ur hagað þannig, að til að byrja með verður eingöngu kennt ís- lenzkt mál og verða kennslu- stundir í því væntanlega 80 að tölu; þá kennslu mun próf. Hreinn Benediktsson annast og verður hann jafnframt forstöðu- maður námskeiðsins. Þegar þátt- takendur hafa öðlazt nokkra und irstöðumenntun í tungumálinu er ráðgert að bókmenntakennslan hefjist og mun próf. Einar Ól. Sveinsson flytja fyrirlestra um eldri bókmenntir íslendinga, en próf. Steingrímur J. Þorsteinsson fjalla um það, sem ritað hefur verið á síðari árum. Fyrirlestrar um bókmenntirnar munu vænt- anlega verða 20 alls. Þar að auki er svo ráðgert að fá fróðleiks- menn á ýmsum sviðum til þess að flytja einstaka fyrirlestra um Þetta ent hinir nýbökuðu stúd- entar frá Menntaskólanum í Reykjavík. — Ef að líkum lætur setja hvítu kollarnir svip sinn á bæinn við hátiðahöldin í dag. — Ljósm. Mbl.: Ól. K. M. 17. júní hátíða- höldin í Kópavogi í KÓPAVOGI verður tilhögun 17. júní hátíðahaldanna með þeim hætti, að kl. 1,30 verður safnazt saman við félagsheimiliði. Þaðan verður svo gengið í skrúð- göngu um götur bæjarins með hljómsveit í fararbroddi. Þriggja metra langt líkan af svani verð ur á vagni í skrúðgöngunni til augnayndis fyrir börnin. Skúðgangan nemur staðar við íþróttavöllinn og þar setur Magnús Kristinsson, yfirkennari, skemmtnuina og Hulda Jakobs- dóttir, bæjarstjóri, flytur ávarp. Þá verður almennur söngur og lúðrasveit leikur. Næst. flytur fjallkonan, Ilólmfríður Þórhalls- dóttir, ávarp. Að síðustu verða skemmtiatriði fyrir yngstu kyn- slóðina og koma þá fram m. a. snillingarnir Baldur og Konni, Skuggasveinn, Ketill skrækur og fleiri. almenn málefni íslenzk. Og loks verður reynt að sýna gestunum landið eftir föngum. Það er álit þeirra, sem að nám- skeiðinu standa, að mjög sé æski- legt að væntanlegir þátttakend- ur eigi þess kost að dveljast á íslenzkum heimilum meðan nám- skeiðið stendur yfir, þannig að þeir hafi sem nánust kynni af þjóðinni og læri sem fljótast og bezt að skilja og tala íslenzka tungu. Því beinir Stúdentaráð þeim tilmælum til allra þeirra, sem áhuga hefðu á því að veita stúdentunum húsnæði eða fæði, að hafa samband við skrifstofu ráðsins, sími 15959, þriðjudaga og fimmtudaga kl. 10—12 f.h. eða laugardaga kl. 2—4 e.h. Þar má einnig fá allar náriari upplýs- ingar varðandi námskeiðið, en eins og áður var vikið að hefur Stúdentaráð háskólans haft for- göngu um að námskeiðið verður haldið og annast undirbúning þess. 75. stúdentaárgangurinn trá Verzlunarskólanum 28 stúdentar brautskráðir í gœr SKÓLAUPPSÖGN í lærdóms- deild Verzlunarskóla fslands fór fram við hátíðlega athöfn í gær, að viðstöddum nemendum, kenn- urum og allmörgum gestum m.a. stúdentum brautskráðum fyrir 10 árum. Brautskráðir voru að þessu sinni 28 stúdentar, þar af einn utanskóla. Er þetta fjöl- mennasti stúdentahópurinn, sem brautskráður hefur verið til þessa. Gat skólastjóri þess sér- staklega, að þetta væri 15. sinn sem stúdentar væru brautskráðir frá Verzlunarskóla íslands. Skólastjóri skýrði frá skóla- starfinu á síðastliðnum vetri. f lærdómsdeild voru nemendur samtals 50, 27 í 6. bekk og 23 í 5. bekk. í ársprófi 5. bekkjar varð Ragnheiður H. Briem efst, hlaut 1. ág. einkunn, 7,64. (Notað úr skrifar daglegq hfinu Fimmtán ára afmælishátíð ÞENNAN dag fyrir 15 árum héldu tugir þúsunda fslend- inga til Þingvalla, til að hylla hið nýstofnaða lýðveldi. Talið var að um 30 þús. manns hefðu verið þar, þrátt fyrir ausandi rigningu næstum allan daginn. Og aðrir landsmenn dvöldu þar í hugan- um. Það fór vel á því að fæðing- ardagur Jóns SigUTðssonar skyldi valinn til stofnunar lýðveldis á íslandi, og í dag minnumst við lýðveldisstofnunarinnar í 15. sinn. — vonandi ekki í rigningu. Nýstúdentarnir setja svip á bæinn HÉR í Reykjavík setja nýstúd- entarnir með hvítu kollana sína ætíð svip á bæinn. — 17. júní. Sá siður var lagður niður fyrir allmörgum árum að stúd- entar frá Menntaskólanum í Reykjavík útskrifuðust þann dag. Þá er of mikið um að vera í bænum, svo að athöfnin þótti drukkna í öðrum hátíðahöldum. Lengi fengu stúdentar skírteini sín 16. júní og sátu svo hóf Nem- endasambands Menntaskólans um kvöldið. Þrátt fyrir það reynd ist tíminn of naumur, foreldrarn- ir fengu varla að sjá börn sín á þessum hátíðisdegi í lífi þeirra, iOg nú hefur verið tekið það ráð að segja upp Menntaskólanum 15. júní. — Þeim degi geta nýstúd- entarnir þá eytt fjölskyldu sinni, daginn eftir fagna þeir áfangan- um í hópi eldri stúdenta og 17. júní taka þeir svo þátt í hátíða- höldum í bænum og setja svip á þau, ásamt Verzlunarskóla- stúdentum og nýstúdentum utan af landi, sem margir hverjir Ieggja kapp á að koma hingað. Það fer vel á því að ungu stúd- entarnir séu áberandi á götunum einmitt á þessum degi. „Úr hópi þessara manna hafa á hverjum tíma risið fjölmargir forystu- manna þjóðarinnar á flestum sviðum menningar og fram- kvæmda", sagði Kristinn Ár- mannsson, rektor er hann af- henti nærri 100 stúdentsprófs- vottorð í fyrradag. Og einnig: ,,Hér á landi virðast ærin verk- efni fyrir unga menn og konur, starfið er margþætt og öll ættum við að vera fús að vinna fóstur- jörðinni — eða með orðum Hann- esar Hafsteins: Starfið er margt, en eitt er bræðrabandið boðorðið, hvar sem þér í fylking ing standið. Hvernig sem stríðið þá og þá er blandið, það er: Að elska, hyggja og treysta á landið“. Tækni- og vísinda- menntun eykst ÞEGAR framtíðarstarf ungu stúdentanna er til umræðu, vekur það athygli hve mikill hluti þeirra hefur meiri áhuga fyrir eða telur heppilegast að stunda nám í stærðfræðideild. Þróunin gengur í þá átt, að nem- endum fækkar í máladeild en fjölgar í stærðfræðideild. Þar af leiðandi hefur orðið að fjölga kennurum í eðlisfræði og stærð- fræði í M. R., og hörgull er orð- inn á mönnum í þær stöður. Þetta er í samræmi við það sem annars staðar er að gerast í heim- inum. Humanistisk fræði eru á undanhaldi, en tækni og vísindi skipa sífellt stærra rúm í hugum ungs fólks. Það er tíðarandinn. er einkunnarkerfi Örsteds). Er það jafnframt hæsta einkunn í skólanum að þessu sinni. Þetta er ennfremur hæsta einkunn, sem nokkur nemandi hefur hlot- ið á ársprófi 5. bekkjar síðan lær- dómsdeildin tók til starfa fyrir 16 árum. Annar í ársprófi 5. bekkjar var Árni B. Sveinsson með 1. eink., 7,36 og þriðji Vil- hjálmur Lúðvíksson, 1. eink. 7,28. Á stúdentsprófi hlutu 13 fyrstu einkunn en 15 aðra einkunn. —. Efstur varð að þessu sinni Óttar Yngvason, hlaut 1. eink., 7,40, annar varð Sigvaldi Sigurgeirsson ,með 1. eink., 7,28 og þriðji Birgir Þorm- ar með 1. eink., 7,27. Bókaverð- laun frá skólanum hlutu þessir nemendur fyrir ágætan námsár- angur: Óttar Yngvason, Sigvaldi Sigurgeirsson, Birgir Þormar og Guðmundur Jónmundsson. Enn- fremur var Stefán Gunnársson sæmdur bókaverðlaunm fyrir vel unnin umsjónarstörf í 6. bekk og Ragnheiður H. Briem fyrir glæsilegan árangur í árs- prófi 5. bekkjar. Félagið Ger- mania veitti eftirtöldum nemend- um bókaverðlaun fyrir ágætis- einkunn í þýzku á stúdentsprófi: Birgi Þormar, Birni Matthías- syni og Ferdinand Alfreðssyni. Dansk-íslenzka félagið sæmdi þá Birgi Þormar og Sigvalda Sigur- geirsson bókaverðlaunum fyrir ágæta frammistöðu í dönsku og British Council veitti þeim Jóni Andréssyni, Sigvalda Sigurgeirs- syni og Birgi Þormar bókaverð- laun fyrir prýðilegan námsárang- ur í ensku. Er skólastjóri hafði afhent ný- stúdentum prófskirteini sín og sæmt þá verðlaunum, sem fram úr höfðu skarað, ávarpaði hann hina nýju stúdenta, árnaði þeim heilla og hvatti þá til dáða. Lauk hann máli sínu með þessum orð- um: „Ef þér ungu stúdentar reyn ið eftir megni að sækja fram til vaxandi þekkingar, leitið sann- leikans og viðurkennið hann, tel ég yður hafa lagt traustan grund völl að framtíð yðar með námi yðar hérna í skólanum". Að lokum tók til máls fulltrúi 10 ára stúdenta, Þórður B. Sig- urðsson. Flutti hann skólanum kveðjur og árnaðaróskir þeirra félaga og færði skólanum ágæta bókagjöf. Þakkaði skólastjóri gjöfina og árnaði þeim félögum heilla. Athöfninni lauk með því að hinir ungu stúdentar sungu skólasöng Verzlunarskóla ís- lands.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.