Morgunblaðið - 27.08.1959, Síða 12
12
MORGUWBLAÐIÐ
Fimmtudagur 27. ágúst 1959
Böðvar Hallsteinsson
Skorholti
MINNINGARORÐ
rYRIR ári á björtum og yndis-
fögrum degi, eða nánar tiltekið
laugardaginn 16. ágúst, bjó sig
heiman óvenjulegur fjöldi sveita
fólks utan Skarðsheiðar og margt
lengra að, t. d. frá Keflavík,
Reykjavík og Akranesi og
stefndu að Skorholti í Leirár- jg
Melasveit. Allra erindi var að
fylgja til grafar heiðursbóndan-
um og ljúfmenninu BöðvaFi
Hallsveinssyni. Hann var jarð-
settur aö Saurbæ í Hvalfjarðar-
strandarhreppi við hlið foreldra
• sinna, sem voru þar áður jörðuð
á sínum tíma.
Böðvar heitinn var fæddur 27.
okt. 1900, að Skipanesi, en fluttist
barn að aldri að næsta bæ Skor-
holti með foreldrum sínum Stein-
unni Eíríksdóttur og Hallsteini
Ólafssyni, sem bæði voru Borg-
firzkrar ættar. Hann dvaldizt eft
ir það, æ síðan á þeim stað og
andaðist 7. ágúst á Akranesspít-
ala eftir nokkra vikna erfiða
sjúkdómslegu.
Eins og nærri má geta um
mann, sem aldrei yfirgaf sitt
— æskuhoimili og foreldra á meðan
þeirra naut við og tvö yngstu
systkini sín, sem þar tóku við
búsforráðum ásamt honum að
þeim látnum, unni hann heimili
sínu og systkinum heilshugar. —
Hann var sannur, heilsteyptur
sveitamaður og bóndi, helgaði
jörð sinni og sveit alla sína starfs
(wku. Hjalpsemi hans við náung-
ann, velvllja og hugulsemi, var
viðbrugðið og heimili þeirra syst
kina víðþekkt að gestrisni. Ekki
taldi hann eftir sér að bæta við
sig verkum systkina sinna, ef
honum fannst það liggja betur
við að þau færu að heiman til
hjálpar eða vinnu við félagsleg
störf, þegar þess var einhvers
staðaT þörf. Þó verður mér og
líklega mörgum fleirum, hann
minnisstæður sem barnavinur-
inn. Á ég þar um ótal minnis-
stæðar endurminningar og um-
sagnir mæðra, sem átt hafa bö-.n
sín á heimili þeirra systkina. Og
þegar ég sá alla drengina, er ver-
ið höfðu í Skorholti undanfarin
sumur (en voru nú að vísu orðmr
stórir menn), standa upp í Saur-
bæjarkirkju og raða sér upp við
líkkistu hans til að bera hann
úr kirkju síðasta spölinn til graf-
ar, svifu þessar minningar fyrir
sjónum mínum eins og kvik-
myndir. Öllum hafði hann reynzt
jafn veL Verið þeim leiðtogi og
^fyrirmynd í öllu dagfari og hátt-
um. Aðeins einni mynd af mörg-
um get ég ekki stillt mig um að
bregða upp: Böðvar heitinn var
hestamaður að eðlisfari og átti
er ég kom hér í nágrenni hans
gæðing búinn öllum kostum hins
bezta hests. Sjaldan lét hann
það samt eftir sér að koma hon-
um á bak, en lánaði hann stund-
um vinum sínum spottakorn og
gladdist yfir þeirra yndisstund,
sem þeir áttu í samveru við hest
hans. Einu sinni var ég á ferð
hér í nágrenni við Skorholt og
sá þá hilla ur.dir þrjá menn á
hestum. Ég þekkti fljótt að þarna
var Bóðvar á ferð á góðhesti.
sínum ásamt tveim börnum. Gæð
ingurinn tiplaði spor við spor og
froðufelldi af fjöri en lék samt
ljúflega við hann. Mér fannst það
freistandi fyrir Böðvar að riða
hraðar á svo góðum vegi, en um
það var ekki að tala, því dýr
farmur var á hinum hestununi
og fyrir börnin var ferðin farin.
Þannig var Böðvar, allt hans Jíf
sifelld fórn og umönnun fyrir
annarra hag.
Jafnvel þegar ég sá hann í síð-
asta sinn nokkrum dögum fyrir
andlát hans þá orðinn helsjúkur,
svo vart heyrðist mál hans, var
hann fullur samúðar með öðrum
sem veikindi og slys höfðu hent.
Hann var athugull vökumaður,
yfir öllu, sem í kringum har.n
var og lífsanda dró. Vinur manna
og málleysingja. Vann erfiðis-
vinnu sína löngu tíð, vegna
ósérplægni sinnar orðinn lúinn
maður um aldur fram.
Hann var glaður í viðmóti og
hafði glöggt auga og eyra einnig
fyrir hinu kátbroslega í lífinu.
Hefði hann aðeins verið seinna
á ferðinni, það er að segja ungur
nú, er víst að fleiri hefðu fengið
að heyra til hans og skemmta sér
vel við en við næstu nágrannar
hans er heyrðum hvernig hann
á græskulausan hátt þó, gat stælt
hvers manns rödd og látbragð.
Svo miklum leikarahæfileikum
var hann gæddur, enda komst
hann ekki hjá því, að leika ýmis
smáhlutverk í félagsskap ungta
félaga hér áður fyrr. Því má og
skjóta hér inn, að Böðvar heitinn
var föðurbróðir þeirra systra
Steinunnar og Hallbjargar
Bjarnadætra, sem allir lands-
menn þekkja til.
Böðvar var heiðursfélagi í U.
M.F. sveitarinnar og léði því fyrr-
á árum mikið lið og vinveittur
því alla tíð. Enda sæmdi sá fé-
lagsskapur hann látinn með fögru
minningarriti.
Fleiri erfiðleikar og alvarleg
veikindi en veikindi og dauði
Böðvars heitins steðjuðu að Skor
holtsheimilinu í fyrra sumar, sem
vöruðu út allan sláttinn og getur
flest sveitafólk sett sig inn í hvað
fyrir því er að verða. En vegna
góðrar veðráttu (í fyrrasumar)
áttu sveitungar auðvelt með að
rétta hjálparhönd við heyskap-
inn og gerðu það líka eftir þörf-
um. Fyrir þennan sjálfsagða
greiða fa.-.nst Skorholtssystkinum
þau þurfa að gjalda. (En nú bið
ég þau að fyrirgefa, þó ég segi
frá því, sem þau sjálf vilja ekki
hafa hátt um). Á jólunum sendu
þau jólagjafir til allra barna a
þeim heimilum, sem lögðu fram
hjálp þeim til handa í þessum
erfiðleikum. Sum þessara barna
höfðu árum saman fengið jóla-
kveðju og gjafir frá þessum þrem
systkinum sameiginlega, en nú
— nú voru þær sem hinzta kveðja
frá barnavinum Böðvari. Á bet-
ur viðeigandi hátt gátu þau syst
kinin ekki minnzt hans. Þetta
var sannarlega gert í hans anda.
Okkur sveitungum Böðvars
heitins fannst hann fara fyrir
aldur fram og söknum hans hlýja
viðmóts. En sárastur er harmur
kveðinn að þeim systkinum hans
sem með honum bjuggu og hann
studdi með atorku sinni og ást-
ríki svo vel, að aldrei bar skugga
á samband hans og þeirra. Ég
hefði viljað senda fyrr þessi fá-
tæklegu minningarorð. En, að
þau koma nú, þó um síðir sé,
sýnir þar á móti að ekkert hefur
rykfallið og svo djúp spor á hann
í hugarheimi mínum og minna,
að vonandi mást þau ekki að
sinni.
Blessuð sé minning hans.
Ó. I. J.
Ungur reglusamur maður getur fengið
atvinnu
við iðnað strax. Framtíðasatvinna möguleg.
Upplýsingar um aldur, ásamt fyrri störfum, sendist
afgr. Mbl. merkt: „Ábyggilegur—4843“
Rennismiður
óskast
Upplýsingar í síma 14965 og 16053.
Vörulyfta
tveggja tonna vörulyfta
til sölu.
II. Benediktsson h.f.
Hafnarhvoli — Sími 11228
Husgagnosmiðir - Trésmiðir
Eftirtaldar trésmíðavélar og verkfæri eru til sölu:
Fræsari, Hjólsög Bútasög, Hulsubor, Afréttari,
Bandsög, Þykktarhefill. Ennfremur Límofn, Blokk-
þvingur, Lakksprautuáhöld, Suðuáhald fyrir sagar-
blöð, Smergelmótor, 5 nýjir hefilbekkir, 50 þvingur
o. fl. áhöld.
Allar vélarnar eru í bezta ásigkomulagi, og sumar
sem nýjar. Þeir, sem vilja kaupa allar vélarnar og
áhöldin, geta fengið sérlega hagkvæma greiðsluskil-
mála mánaðarlega.
Uppl. í síma 10388 kl. 4—6 virka daga.
Afgreiðslustarí
Óskum eftir stúlku og afgreiðslumanni strax. Unglings-
piltur kemur einnig til greina.
Sunnuhúðin
Laugateig 24
Fram tíðaratvinna
Ungur algerlega reglusamur maður óskast til Bygg-
■ingarefnaverzlunar til aksturs og afgreiðslustarfa.
Umsóknir er geta um aldur og fyrri störf, ásamt
mynd sendist afgr. Mbl. fyrir mánudagskvöld, merkt:
„Ábyggilegur—4725“
Gurðsláttnvélar
Bankastræti 7 — Laugavegi 62
Nýjar vörur
Damask, mikið úrval
Hörlakaléreft kr. 30.60
Finsk efni í úrvali
ódýrt og gott silkifóður
SKEIFAM
Blönduhlíð 35 — Sími 19177
Snorrabraut 48 — Sími 19112
Gólf, sem eru áberandi hrein,
eru nú gljáfægð með:
SELF POLISHIMG
mm
Reynið I dag sjálf-bónandl
Dri-Brite fljótandi Bón.
Mjög auðvelt í notkun!
Ekki nudd, — ekki bog-
rast, — endist lengi, —
þolir allt!
Jafn bjartari gljáa er varla
hægt aö ímynda sér!
fœst allssfaðar