Morgunblaðið - 06.11.1959, Side 2
2
MORGUNBLAÐ1Ð
Föstudagur 6. nóv. 1959 <
Lántaka Sogsvirkjunarinnar
og Seðlabankinn valda deil-
um á bæjarstjórnarfundi
A BJÆARSTJÓRNARFUNDI í
gær var tekin til umræðu fund-
argerð bæjarráðs frá 3. nóvem-
ber, en 12. liður þeirrar fundar-
gerðar er á þessa leið:
Lagðar fram fundargerðir
stjórnar Sogsvirkjunarinnar frá
29. f.m. eg 3. þ.m., með ályktun
um skuldabréfalán hjá Seðla-
bankanum. Vísað til bæjarstjórn-
ar
Seðlabankinn tók að sér að
bjóða út lánið
Gunnar Thoroddsen, borgar-
stjóri, tók þennan lið fundargerð
arinnar sérstaklega til umræðu.
Rakti hann aðdraganda þess er
bæjarstjórn og ríkisstjórnin
höfðu samráð við að útvega 30
milljón kr. lán til Sogsvirkjunar-
innar. Hefði niðurstaðan orðið sú,
sem kunnugt væri, að Seðlabank-
inn hefði tekið að sér að bjóða út
lán þetta og hefðu verið sam-
þykkt á Alþingi lög s.l. vor í því
sambandi.
Seðlabankinn hefði talið nauð-
synlegt að verðtryggja skulda-
bréfin eftir nýjum leiðum. Væri
trygging þeirra því ekki miðuð
við vísitölu heldur væri miðað
við meðaltaxta á rafmagni í
Reykjavík. Bréfin væru gefin út
frá einu til fimm ára og vextir
fimm og hálft til sjö prósent.
Hefði orðið samkomulag um
þetta við ríkisstjórnina og Seðla-
bankann.
Þá skýrði borgarstjóri svo frá,
að er mál þetta hefði verið tekið
til meðferðar í stjórn Sogsvirkj-
unarinnar, hefði einn stjórnar-
meðlimur, Einar Olgeirsson, talið
lánsskilyrðin óaðgengileg og
hefði hann borið fram tillögu á
þá leið, að vextir bréfanna yrðu
lækkaðir 14%, lántökugjaldið,
sem er 1% yrði lækkað í hálft
prósent og þess yrði krafizt, að
fullskipaður stjórnarfundur í
Seðíabankanum tæki afstöðu til
málsins. Þessi tillaga hefði verið
felld í stjórn Sogsvirkjunarinnar
með 3 atkv. gegn 1. ,
Skuldabréfin yrðu gerð
seljanleg
c. unnar Thoroddsen sagði frá
því, að Seðlabankinn hefði lagt
á það sérstaka áherzlu, að skulda
bréfin væru úr garði gerð eins
og þau eru, með tilliti til þess, að
þau yrðu seljanleg. Fleiri en Ein-
ar Olgeirsson mundu gjarnan
vilja að vextir af bréfunum
hefðu ekki þurft að vera nema
4%, en þá væri enginn möguleiki
á að selja bréfin.
Um lántökugjaldið lét borgar-
stjóri þess gétið, að það væri jafn
hátt og gjald það, er Fram-
kvæmdabankinn hefði tekið fyrir
lánsútvegun. Um þriðja atriðið
í tillögu Einars Olgeirssonar, að
leggja bæri málið fyrir fullskip-
aðan stjórnarfund í Seðlabankan-
um, væri það að segja, að um
málið hefði einkum verið rætt
við bankastjóra Seðlabankans, þá
Vilhjálm Þór og Jón Maríusson,
en hitt væri svo mál bankans,
hvort þeir tækju málið fyrir á
fullskipuðum stjórnarfundi eða
ekki, og hefði stjórn Sogsvirkj
unarinnar ekki talið ástæðu til
að segja þeim fyrir verkum um
það atríði. Borgarstjóri kvaðst að
lokum vilja leggja til, að mál
þetta yrði samþykkt óbreytt í
bæ j arst j órninni.
Fullskipaður stjórnarfundur
Guðmundur Vigfússon talaði
næstur. Kvaðst hann vilja minna
á, að er lántaka til Sogsvirkjun-
arinnar hefði verið í undirbún-
ingi, hefði Einar Olgeirsson hald-
ið því fram, að hægt mundi að
fá lán í Sovétríkjunum eða Tékkó
slóvakíu með lágum vöxtum.
Niðurstaðan hefði þó orðið sú, að |
lánið hefði verið tekið í Banda-
ríkjunum með miklu óhagstæðari
kjörum. Seðlabankinn krefðist
7% vaxta og 1% lántökugjalds,
en mundi þó lána þetta fé sjálfur
en ekki selja skuldabréfin. í lok
ræðu sinnar bar Guðmundur
fram tillögu frá fulltrúum Ai-
þýðubandalagsins í bæjarstjórm
inni á þá leið, að bæjarstjórnin
legði til að skuldabréfin yrðu
með 4% vöxtum, lántökugjaldið
Vz% og fullskipaður stjórnar-
fundur í Seðlabankanum tæki af
stöðu í málinu.
Ekki lán frá Seðlabankanum
Gunnar Thoroddsen, borgar-
stjóri, kvað það á misskilningi
byggt hjá Guðmundi Vigfússym,
er hann talaði um beint lán frá
Seðlabankanum. Skuldabréfin
væru þannig úr garði gerð, að
von væri um að selja þau á al-
mennum markaði, enda byggð-
ist lánútvegunin fyrst og fremst
á sölu skuldabréfómna.
Þá vék borgarstjóri að tillögu
Einars Olgeirssonar um lántöku
í Sovétríkjunum, er Guðmundur
Vigfússon hefði minnzt á. Kvaðst
hann í því sambandi vilja taka
fram, að ekki hefði legið endan-
lega fyrir, hvort lán væri fáan-
legt, né heldur, hvort sú lántaka
yrði bundin þeim skilyrðum, að
vélar og annar útbúnaður yrði
keyptur í 'Sovétríkjunum eða ann
arsstaðar austan jámtjalds.
Kvaðst borgarstjóri hafa snúið
sér til forsætisráðherra vinstri
stjórnarinnar, Hermanns Jónas-
sonar, og fengið þær upplýsing-
ar, að ekkert lægi fyrir um slíkt
lán og ríkisstjórnin mundi ekki
hafa milligöngu um það.
Guðmundur Vigfússon kvað
reynsluna eiga eftir að skera úr
því, hvort um beint lán yrði að
ræða frá Seðlabankanum eða
ekki. Hann sagði einnig, að það
hefði aldrei legið endanlega fyrir.
hvort hægt væri að fá umrætt
lán í Sovétríkjunum eða ekki,
því aldrei hefði verið leitað eftir
því, hvorki af ríkisstjórninní né
af stjórn Sogsvirkjunarinnar.
hljóðs. Kvað hann sorglegt hve
sjónarmið peningabraskarans
mætti sín mikils í þessu landi.
Hefði verið leitað til Alþingis um
málið í fyrravetur og þeirri mála
leitan fyrst hafnað, en svo hefði
verið leitað aftur til Aþingis og
þá hefði málið verið samþykkt
og sjónarmið peningabraskarans
þar með orðið ofan á. Alfreð kvað
Seðlabankann engan áhuga hafa
á að selja bréfin. Það væri ekki
verið að gera þau aðgengileg til
sölu, heldur aðgengileg fyrir
Seðlabankann. Taldi hann mjög
illa gengið frá þessu öllu.
Almenningur legði til lánsféð
Geir Hallgrímsson minnti á að
hér væri um almennt lánsútboð
að ræða og lánskjörin miðuðust
við það, að almenningur keypti
skuldabréfin og legði þannig
fram það lánsfé, sem Sogsvirkj-
uninni vanhagaði um. Þegar
Alfreð Gíslason héldi því fram að
lánskjörin væru ákveðin með til-
liti til hagsmuna peningabrask-
ara, þá væri hann um leið að
stimpla almenning, væntanlega
kaupendur bréfanna, sem pen-
ingabraskara.
Bæjarfulltrúar Alþýðubanda-
lagsins dragi í öðru orðinu í efa
að almenningur mundi kaupa
bréfin og veita lánið til Sogs-
virkjunarinnar gegn hinurn
ákveðnu vöxtum og væri það út
af fyrir sig vísbending um að
lánskjörin væru ekki of hag-
kvæm fyrir lánveitanda.
Það væri gersamlega óraun-
hæft hjá kommúnistum að tala um
4% vexti, þegar bankar og spari-
sjóðir greiddu hærri vexti fyrir
kvaðalaust innlánsfé. Það væri
nauðsynlegt fyrir fjárhagskerfi
landsins að jafnhliða þessari 30
milljón kr. lántöku yrði samsvar
andi ný sparifjármyndim. Þess
vegna þyrfti almenningur að
finna hvöt hjá sér og hafa hag
af að kaupa bréfin, en Seðlabank-
inn sem allra minnst að veita
umbeðið lán sjálfur þar sem út-
lán væri þegar meiri en sparifjár
myndun þjóðarinnar gæfi tilefni
til. Seðlabankinn hefði væntan-
„Sjónarmið peningabraskarans“
Alfreð Gíslason kvaddi sér ' lega engin ráð önnur, ef hann
!***00***t* 000*0*0000 *.,0 .0 J* 0 0 s
Landshappdrætti
Sjálfstæðisflokksins
LANDSHAPPDRÆTTI Sjálfstæðisflokksins hefur staðið
yfir frá því í apríl sl. Var miðum þá þegar dreift til um-
boðsmanna um allt land, og hefur sala þeirra víðast hvar
gengið allgreiðlega og sums staðar vel. Við síðasta yfirlit
um sölu var staðan þessi:
Mýrarsýsla ....................... 47.05%
Keflavík og Gullbringusýsla ...... 45.45%
Siglufjörður ..................... 38.92%
Suður-Þingeyjarsýsla ............. 35.00%
ísafjörður og N-ísafjarðarsýsla .. 33.75%
Kópavogur ........................ 33.33%
Borgarfjarðarsýsla .............. 31.48%
Árnessýsla ....................... 31.00%
Yfirlit þetta er tekið fyrir kosningamar 25. okt. sl., og
er því óhætt að fulyrða, að salan hafi aukizt að mun frá
þeim tíma. —
Dregið er í Landshappdrættinu 1. desember n. k. Þessi
mánuður er því lokaspretturinn í sölunni. Happdrættis-
nefndin hvetur umboðsmenn sína um land allt til þess að
gera síðasta átakið árangursríkt og stefna að 100% sölu
um gjörvallt land.
Jafnframt skorar happdrættisnefndin á alla þá, sem hafa
fengið senda miða heim og ekki enn hafa gert skil, að gera
það nú þegar.
Látið ekki happ úr hendi sleppa. Kaupið
miða í Landshappdrætti Sjálfstæðisflokksins.
ætti að veita lánið sjálfur, en að
draga úr öðrum lánveitingum eða
láta prenta fleiri peningaseðla.
Með prentun fleiri seðla væri
gildi peninganna rýrt, en það
mundi aftur leiða af sér hækk-
að vöruverð og aukningu verð-
bólgunnar. Sá mundi verða árang
urinn, ef stefnu kommúnista væri
fylgt.
Því lét hann málið ekki
til sín taka?
Gunnar Thoroddsen borgar-
stjóri kvaðst fáu hafa við það
að bæta, er Geir Hallgrímsson
hefði sagt. En þar sem Alþýðu-
bandalagsmönnum væri svo um-
hugað að öll stjórn Seðlabankans
mætti á fundi til að taka afstöðu
í þessu máli, vildi hann varpa
fram þeirri spurningu, hvers
vegna fulltrúi Alþýðubandalags-
ins í bankaráði Seðlabankans,
sem einnig væri varabæjarfull-
trúi, hefði ekki látið til sín taka
til að bjarga Reykjavíkurbæ frá
//
Barnfóstran
44
ÞAÐ er oft talsvert er nefnilega bezta vin
heimilisvandamál, þeg kona hennar — og
ar hjón vilja skjótast gætir barnanna með
að heiman á kvöldin glöðu geði, þegar
til þess að lyfta sér Daisy er önnum kafin
ofurlítið upp — hvar við vinnu sína. Og
á að fá barnfóstru. — litlu hvolparnir kunna
En hún Daisy, mynd- hið bezta við „barn-
arleg bolabítstík í fóstruna" sína.
Willy Hagenback-sirk Það er ekki létt
usinum í Þýzkalandi, verk fyrir unga móð-
þarf ekki að hafa nein ur að annast um fimm
ar áhyggjur af slíku — börn — þegar faðir-
þótt hún sé einstæð iim sýnir það ábyrgð-
móðir með mörg börn. arleysi að hlaupast á
— Ljónaynjan Negus brott frá öllu saman.
— Negus skilur, að við
saman. Og þær eru
hjartanlega sammáia
um það vinkonurnar,
að þessum „karlmönn-
slíkar aðstæður verða um“ sé alls ekki treyst
„konurnar“ að halda andi..........
þessum ósköpum, sem „peninga-
braskarar" ætluðu að leiða yfir
hann, að sögn Alfreðs Gíslason-
ar. Tillaga bæjarfulltrúa Al-
þýðubandalagsins var felld, en
málið samþykkt með 12 atkvæð-
um gegn þremur.
„Allt á sama stað44
- minnist afmælis
með sérstökum
hætti
EIN stærsta og kunnasta bíla-
verzlun landsins, sem nýlega átti
30 ára starfsafmæli, hefur minnst
þessa merka áfanga m.a. á þann
hátt, að veita ríflegan styrk til
náms hér og erlendis, í fjögur ár.
Er hér um að ræða fyrirtækið
„Allt á sama stað“, — bílaverzlun
Egils Vilhjálmssonar h.f. að
Laugavegi 118.
í gær barst Mbl. svohljóðandi
fréttatilkynning frá Háskóla ís-
skóla íslands um þessa höfðing-
legu gjöf fyrirtækisins og for-
ráðamanns þess Egils Vilhjálms-
sonar forstjóra:
H.f. Egill Vilhjálmsson hefur
í tilefni 30 ára afmælis fyrirtæk-
isins ákveðið að veita námsstyrk
einum efnalitlum og efnilegum
stúdent í viðskiptafræðum hér í
háskólanum. Styrkurinn verður
veittur til þess að ljúka prófi 1
viðskiptafræðum hér innan eins
árs og til þess að Ijúka prófi í
erlendum háskóla i sömu fræði-
grein á næstu þremur árum.
Styrkurinn er alls 70.000 krón-
ur og greiðist með 10.000 kr.
1959/60 og síðan árlega 20.000 kr.
næstu þrjú ár.
(Frá Háskóla Islands).
Breytingar á Ing-
ólfi Arnarsyni
A BÆJARSTJ ÓRNARFUNDI í
gær var tekin til afgreiðslu til-
laga útgerðarráðs um breytingar
á togaranum Ingólfi Arnarsyni,
sem skýrt var frá hér í blaðinu
í gær.
Gunnar Thoroddsen, borgar-
stjóri, gerði grein fyrir málinu,
en því næst var tillagan sam-
þykkt með samhljóða atkvæð-
um. —