Morgunblaðið - 24.12.1959, Side 1

Morgunblaðið - 24.12.1959, Side 1
EII ur0uiíil>lal»il> 24',M9 Með Valtý Stefánssyni á Möðruvöllum VALTÝR Stefánsson tók við ritstjórn Morgunblaðsins 1924 og hefur því verið rit- stjóri þess um 35 ára skeið, eða lengur en nokkur annar. Morgunblaðið hefur verið lífs- starf Valtýs og hann átt meiri þátt í þróun þess en nokkur annar og má raunar segja, að hann sé höfundur þess. Störf Vaitýs við Morgun- blaðið eru alþjóð kunn, en ekki vita allir deili á þroska og mótunarárum hans og þótti mér rétt að bregða upp mynd af þessum árum fyrir lesend- ur í hans eigin blaði. Ég hef rætt við hann um ýmislegt sem á daga hans dreif, einkum fyrst framan af, þegar hann var ungur, íhugull drengur norður á Möðruvöllum, ein- hverju mesta menntasetri landsins á sínum tíma. Þaðan er margs að minnast og þang- að hvarflar hugurinn oft. I. íslendingur Valtýr byrjaði rabb okkar með því að segja mér frá fyrstu bernskuminningunni: Hún er síður en svo merki- leg, sagði hann. Ég lék mér á skrifstofugólfinu í íbúðarhús- inu á Möðruvöllum og skreið á prjónateppinu, sem var með gisnum, rauðum rönd- um. í stofunni sátu þeir Halldór Briem, kennari við Möðruvallaskóla, og Stefán, faðir minn, og ég held þeir hafi verið að ræða um mann- fjölda á íslandi. Þá heyri ég að Halldór segir og bendir á mig: „Þarna er einn íslend- ingurinn!“ Ég rak upp stór augu: íslendingur, hvað var nú það? — Ég hafði aldrei heyrt það fyrr, en varð glaður og fannst ég alltaf mundu muna eftir þessu merkilega heiti, sem Halldór gaf mér. Mér þótti ég standa í mikilli þakkarskuld við hann fyrir að hafa bent mér á þetta svo stoltur var ég af því að vera íslendingur. Ekki man ég, hve gamall ég var, þegar þetta gerðist, en senni- lega hef ég verið á þriðja eða fjórða ári. „Harmleikur“ Öðrum atburði man ég eftir sem gerðist um svipað leyti. Það var þegar Einar á Hraun- um Guðmundsson gekk að eiga Dagbjörtu Magnúsdóttur frá Isafirði, eða Döggu eins og við kölluðum hana. Hún var stallsystir móður minnar og hafði um skeið dvalizt á Möðruvöllum. Hún tók ást- fóstri við mig ungan dreng og er mér brúðkaup hennar af þeim sökum einkarminnis- stætt. Þau voru gefin saman heima í stofunni á Möðruvöll- um 7. maí 1897, og hef ég þá verið á fjórða ári. Dagbjört sagði mér að hún mundi fara af heimilinu með manni sín- um og var ég ákaflega hrygg- ur yfir því: „Ég skal reka hann Einar í burtu, þegar hann kemur“, sagði ég. Var mér síðar sagt, að hann hefði brosað að digurmælum þessa „skeinuhætta“ keppinautar síns og þótzt hafa í öllum höndum við hann, enda nokkr um áratugum eldri. Ekki treysti ég mér til að lýsa brúð kaupi þeirra, en þó rámar mig í, hvernig það fór fram. Ég held ástæðan sé sú, að þetta var í fyrsta skipti sem ég sá Einar og hafði auðvitað á hon- um nánar gætur. Þótti mér hann til lýta gamall, enda gráhærður orðinn og kominn á sextugsaldur og gat ég enga skýringu fundið á dá- læti fóstru minnar á þessum framandlega og óaðlaðandi manni, að mér fannst. Lengi síðar hryllti mig við öllum hjónavígslum og var ákveð- inn- í að verða aldrei önnur aðalpersónan í þeim harmleik! Skömmu fyrir brúðkaupið Valtýr Stefánsson var mér í fyrsta skipti á æv- inni sýndur trúnaður. Dag- björt kallaði mig á eintal, tók mig á hné sér og sýndi mér mynd af unnusta sínum: „En þú mátt engum segja frá þessu“, bætti hún við undir róm. Um þetta leyti var leik- systir mín á Möðruvöllum lítil telpa, sem Rúna var kölluð. dóttir Sigurðar Björnssonar brunamálastjóra. Hún var heldur yngri en ég. Sunnu- daginn næsta á eftir var ég nærri því búinn að glopra leyndarmálinu út úr mér við Rúnu, en áttaði mig í tíma og gætti tungu minnar. Var ég ákaflega feginn að hafa ekki gerzt sekur um trúnaðarbrot. Þegar ég renni huganum aftur til þessa tíma, varpar einn atburðurinn ljósi á ann- an eins og oft vill verða. Ég man eftir því að á brúðkaups- degi þeirra Einars og Dag- bjartar var haldin tombóla í „leikhúsinu". Steindór Jónas- son frá Þrastarhóli gekk með mér um húsið. Hann var, ásamt Ólafi Davíðssyni, bezti æskuvinur minn, hafði verið nemandi föður míns á fyrstu árum hans við skólann 1887 eða ’88 og voru með þeim miklir kærleikar sem gengu í erfðir til mín, enda var Stein- dór verzlunarmaður hjá Þor- valdi Davíðssyni, mági sínum, og gaf mér stundum barna- gull. Hvergi voru freistingarn- ar jafntælandi og í hans hús- um. Einu sinni man ég eftir að hann gaf mér forláta apa- kött, sem klifraði upp snúru og þótti mér það ganga krafta- verki næst. Steindór varð síð- ar kennari minn og upp- fræddi mig í landafræði, sem ég hafði einna mest yndi af. Kennsla fór þannig fram, að hann þýddi fyrir mig lexíuna úr dönsku. Hann var eldfljót- ur og hafði ég þess full not. Ég byrjaði námið snemma og var mér síðar sagt, að ég hefði verið fluglæs 4ra ára. En ég skal segja þér dálítið nánar frá náminu á eftir, því mig langar að staldra lengur við minninguna um Steindór. Mér finnst oft, þegar ég hugsa um hann, að hann hefði verið ámóta manngerð og „kavalerarnir" í Gösta Ber- lings-sögu, sem voru í nánum tengslum við húsráðendur á heimilinu, boðnir og búnir til að vera þeim til aðstoðar í hverju einu. Hann var alltaf glaður og reifur, alúðlegur í viðmóti við gesti heimilisins og góður félagi. Danski Bakkus Þegar Stefán faðir minn tók sig upp veturinn 1900 og fór til Kaupmannahafnar með einu af Wathnes-skipunum, bauðst Steindór til að fara með honum og vera' honum til aðstoðar á leiðinni. Faðir minn hafði einhverja mein- semd í hálsi og fékk alltaf svæsna hálsbólgu einu sinni á ári og það svo heiftuga, að honum lá við köfnun. Þegar Steindór fór með föður mín- um til Kaupmannahafnar voru hálskirtlarnir brenndir úr honum, en síðar fór allt í sama farið aftur. Faðir minn sagði mér stundum að undrum sætti, að hann skyldi ekki hafa orðið morfínisti, eins oft hvað Steindór féll fyrir danska Bakkusi og týndist nokkra daga í Kaupmanna- höfn, komst í kynni við rón- ana eða „basserallerne", eins og þeir voru kallaðir þar í borg. Hann var lipur kennd- erísmaður í stíl við Möðru- vallaheimili,. Vín var oft á vegi mínum í þá daga, því fað ir minn var mikill gleðskapar- maður og hafði gaman af að umgangast vín, en notaði það alltaf í hófi og ég gæti talið þau skipti á fingrum annarrar handar, sem ég sá á honum vín. Þegar ég var síðar í Menntaskólanum í Reykjavík og hann á þingi hafði hann oft vín um hönd, því hann hafði kynni af mörgum gleð- skaparmönnum. Ef vín var á borðum, þegar ég kom til hans, veitti hann mér alltaf, eins og ég væri fullorðinn maður. Ég held því fram, að hann hafi kennt mér „að drekka" þegar við vorum saman í Reykjavík. Hann vildi að ég vendist á að um- gangast vín réttilega, þá væri ég hólpinn alla ævi. Ólafur Davíðsson var mikið gefinn fyrir vin, en á allt annan máta heldur en Stein- dór. Hann „datt aldrei i það“ eins og sagt er, en drakk sig fullan eftir fyrirfram gerðu plani. Eitt sinn um páskaleyt- ið sagði móðir mín við Ólaf: „Ertu ekki orðinn leiður á fylliríinu, ólafur minn?“ — en þá hafði hann verið all- marga daga undir áhrifum víns, svo áberandi var. Ólafur tók því ekki fjarri. Hann átti 4ra potta kút sem hann kall- aði „Drink“ og hafði miklar mætur á. Eftir samtalið við móður mína fór hann með „Drink“ út á hlað að Fiska- steini, sem var á bak við hús- ið og mölbraut hann þar. Annað var einnig til sann- indamerkis um góðan ásetning Ólafs: hann fór niður í „Leyn- ing“, sem er laut niður undan hlaðinu, tók flöskustrá, vætti í olíu og kveikti í, setti síðan roðhatt sem hann átti og gekk oft með á bálið og fargaði hon um þar, því hann taldi að hatt- inn væri þeirrar náttúru að kveikja áfengisþorsta í þeim sem hann bæri. Annars var það venja Ólafs að senda „Drink“ til Akureyrar, þegar ferð féll, og láta fylla á hann þar. Var kúturinn einkar- handhægur og fór vel í hnakk- tösku. SJXS i atv,fSStan.Hrossi>te3 »g grasateSi um. Að öðru leyti var ferð Ólafur Ðavíðsson kenndi þeirra ekki söguleg, nema mér margt. Einu sinni fór MYNDIN er tekin á Akureyri þegar Valtýr Stefánsson fór fyrstu kaupstaðarferð sína. Hann situr á hestbaki með Pétri Jóhannssyni, sem reiddi hann (lengst til vinstri). Lengst til hægri er Stefán Stefánsson, faðir Valtýs. á hesti sínum, en á miðri mynd- inni eru Steinunn Frímans- dóttir, móðir Valtýs, og Klemenz Jónsson, þáverandi sýslumaður með yngri dóttur sína. hann með mér upp í grösuga hlíðina á Möðruvallafjalli til að safna plöntum. Við urðum báðir mjög þyrstir á göngu okkar um hlíðina, en þá kom ég að litlum polli með tæru vatni. Samt datt mér ekki í hug að ég gæti fengið mér að drekka úr þessum polli, því í honum miðjum var nýleg hrossataðshrúga og þótti mér hún heldur ókrjáleg. En Ólaf- ur greip þá tækifærið og sagði mér að við gætum drukkið úr pollinum þeim arna, því hrúgan væri ó- hreyfð. Það gerðum við og gætti ég þess vandlega að koma ekki við hrossataðið eins og nærri má geta, og var þetta mikill lærdómur fyrir mig. Þegar ég var orðinn allæs, las ég þjóðsögur Jóns Árna- sonar af kappi, sennilega fyrir áeggjan Ólafs: „Lestu þjóð- sögurnar", sagði hann, „það er bezti skólinn11. Ólöf Guð- mundsdóttir, uppeldissystir móður minnar, kenndi mér lestur. Hún giftist síðar Þor- steini Jónssyni, ráðsmanni á Möðruvöllum og reistu þau bú, fyrst í Arnarnesi og síðar á Bakka í Öxnadal. Ólöf var greind kona og mér góð. Hún kenndi mér að lesa á stafrófs- kver Jóns Ólafssonar. En ég var að tala um Ólaf Davíðs- son. Þegar hann kom heim frá Kaupmannahöfn og var seztur að á Hofi, fékkst hann sjálfur mjög við þjóðsagna- •ritun, eins og kunnugt er. Hann skrifaði skýra hönd og gat ég lesið hana strax og ég varð læs. Af þeim sökum fékk ég sérstakan áhuga á þjóðsögum hans, en bækur Jóns Árnasonar voru til í bókasafni föður míns. Af þeim lærði ég réttritun og hef hvorki fyrr né síðar hlotið aðra kennslu í þeirri grein. Þegar ég var í vafa um staf- setningu, reyndi ég að gera mér grein fyrir, hvernig orð- in væru rituð hjá Jóni og hegðaði mér eftir því. Þegar Framh. á bls. 50

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.