Morgunblaðið - 18.12.1960, Síða 21
Sunnudagur 38. des. 1960
MORCVMiLAÐlÐ
2i
„Þar sem háir hólary/
Þar sem háir hólar.
Fáeinar bernskummningar
Leiftur 1960.
NÝR rithöfundur úr hópi kvenna
heíir komið fram og kveður sér
hljóðs með bók, sem heit«r „Þar
sem háir hólar“. Höfundurinn er
Helga Jónasardóttir frá Hólabaki,
og „háu hólarnir“ sem hún kennir
bók sína við, eru Vatnsdalshólar
hinir furðulegu og óteljandi.
Meðal þessara hóla og við aevin-
týralegt seiðmagn þeirra, sleit
hún barnsskónum. Og það eru
endurminningar frá þeim dögum,
sem hún lýsir í bókinni.
Sumir munu nú segja að það
sé lítils virði, og engin auðgun
ibókmenntanna í landinu, þótt
rifjaðar sé upp skrásettar æsku
minningar, þar geti ekki verið
um auðugan garð að gresja, og
þar sé í rauninni ekkert til frá-
sagnar það er almenning varði.
Jæja. En vilja menn þá ekki
skyggnast dálítið dýpra í eigin
barm og vita hvað þeir sjá, er
þeir renna augum til æskudaga
sinna
Þótt menn verði gamlir og
margt merkilegt hafi á daga
þeirra drifið í baráttu við menn
og misjöfn kjör, verða æskuminn
ingarnar þó öllum öðrum endur-
minningum sterkari. Og þetta er
mjög eðlilegt. Ekkert, bókstaf-
lega ekkert er jafn merkilegt í
lífi nokkurs manns eins og það,
er barnið fer fyrst að skynja og
skilja, þegar því opnast fyrst sé
undraheimur, sem heitir líf. Það
er stærsta opinberunin í ævi
hvers manns, og hann býr að
henni fram á grafarbakkann.
Fyrsta stafrófskver hvers
sveitarbarns er umhverfið og
náttúra þess, hin björtu vor, gró
andinn, fuglasöngurinn, flugur
og fiðrildi og fénaður í haga.
Alls staðar er líf og barnið skynj
ar að það er borgari í þessum lífs
heimi. Svo fer það að taka eftir
landslagi, margbreytileik þess,
fegurð og dulkynngi.
Á þessum árum fæðist hugsun-
in, og dr. Helgi Pjeturss sagði
einu sinni að það væri stórkost-
legasta kraftaverkið hér á jörð, j
þegar efnið færi að hugsa. Er
það þá þýðingarlaust að segja
frá þeim tíma þegar slíkt krafta-
verk er að gerast
Nei, og þess vegna á bókin
hennar Helgu eigi óveglegan sess
meðal bókmenntanna. Frásögnin
er auk þess einlæg og laus við út
úrdúra. rFeysteinn Gunnarsson
skólastjóri ritar formála að bók-
inni og þar segir hann m. a. um
hana: „Myndirnar eru dregnar
fáum dráttum, skýrum og ein-
földum: Átthagarnir, bernsku-
minningarnar smáatvikin, sem
festust óafmáanlega í minning-
unni, viðhorfið til dýra og
manna, ekki sízt til þeirra, sem
umkomulausir eru, kynningin
við skáldin, sem fegurst kváðu,
allt þetta sér lesandinn fyrir sér
um einfaldar, glöggar myndir,
sem brugðið er upp í svip . . . Og
þá kann ég ekki um bók að
dæma, ef hún á ekki eftir að ylja
mörgum um hjartarætur“.
Þessi orð hins þjóðkunna
menntamanns og ritsnillings eru
nokkurs konar hæstaréttardóm-
ur, sem aðrir munu hvorki bæta
um né vefengja. Á.
Sjálfsæfisaga Eggerts Stefánssonar
LÍFIÐ OG ÉG
Á sjötugs afmæli sínu hinn 1. desember
áritaði höfundur nokkur eintök af sjálfs-
æfisögu sinni.
Það sem óselt er af þessum eintökum fæst
aðeins hjá okkur.
•
LÍFIÐ OG ÉG er göfug vinargjöf
LÍFIÐ OG ÉG er fögur bók
á jólunum
Bókabúð Lárusar Blöndal
Skólavörðustíg 2
Jólafötin
fáið þið i fjolbreyttustu
úrvali hjá okkur
>• *
NYTIZKU SNIÐ
Kagkvæmt stærðakerfi
tryggir flestum fdt
við sitt hæfi
G E F J U N
KIRKJUSTRÆTI 8—10.