Morgunblaðið - 19.01.1962, Síða 1

Morgunblaðið - 19.01.1962, Síða 1
20 síður HÉR sjást átta mannanna, sem hröktust um á gúmmíbátnum fná Skjaldlbreið s.l. þriðjudag. Var myndin tekin við komu þeirra til Grundarfjarðar. Tal- ið frá vinstri: Indriði Guðjóns- son III vélstjóri, Erling Magn- ússon, viðvaningur, örlygur Pétursson vélamaður, Jón Ragnars, háseti, Hörður Jó- hannsson, viðvaningur, Frið- rik Jónsson, í stýrimaður, Hlöðver Jónsson, háseti og Jó- hann GuðmundssOn, aðstoðar- matsvein. Á myndina vantar níunda manninn, Aðalstein, Friðfinnsson, skipstjóra, sem var farþegi með Skjaldbreið. (Ljósm. Bæring Cecilsson). Tungl skot á mánudag Washington, 18. jan. (NTB) SKÝRT var frá því í Was- hington í dag að fyrirhugað væri að skjóta eldflaug til tunglsins næstkomandi mánu dag. Á eldflaugin að flytja hnött með margskonar tækj- um til mælinga og athugana á yfirborði tunglsins. I hnettinum verða m. a. sjónvarpsvélar, sem senda myndir jafnóðum til jarðar. Vill SÞ til Nýju Guineu Forsætísráðlierra Hollands svarar II Thant Haag, 18. jan. (NTB-AP) JAN DE QUAY, forsætisráð- herra Hollands, óskaði í dag opinberlega eftir því að fulltrú- ar eða eftirlitsmenn frá Sam- einuðu þjóðunum yrðu sendir til Hollenzku Nýju-Guineu. — Kom þetta fram í orðsendingu forsætisráðherrans til U Thants, framkvæmdastjóra SÞ. Orðsending de Quay er svar við orðsendingu, sem U Thant sendi Hollendingum og Indónes- um hinn 13. þ. m. í þeirri orð- sendingu skoraði U Thant á bæði löndin að vinna að frið- samlegrl lausn deilunnar um Nýju-Guineu. í svari sínu leggur de Quay áherzlu á að Hollendingar hafi hingað til forðast að grípa til nokkurra þeirra aðgerða, sem gætu haft árekstra í för með sér. Muni Hollendingar áfram gæta ítrustu varúðar í þessum efnum, þrátt fyrir stöðugar ógnanir Indónesa um valdbeit- ingu. Loks segir forsætisráð- herrann að sendiherra Hollands hjá SÞ sé reiðubúinn til þess hvenær sem er að ræða við U Thant um möguleika á að finna friðsamlega lausn á deilunni. Ráðstafanir vegna ferðamanna að utan MBL átti í gær tal við Benedikt! vart ef það kennir sér einhvers Tómasson, skólayfirlækni, er meins. gegnir störfum landlæknis í fjarveru hans og spurðist fyrir um hvernig eftirliti væri hagað varðandi fólk það, er kemur er- lendis fra með tilliti til bólu- eóttar. Sagði Benedikt að fólk, sem kemur frá ósýktum svæðum er- lendis, væri undir eftirliti heil- brigðiseftirl) tsins. Er fylgst með fólki þessu, og verður það að láta vita um ferðir sinar og gera að- Varðandi fólk, sem kemur frá ninum sýktu svæðum, er farið eftir sérstakri sóttvarnarreglu- gerð. Heímilt er að láta slíkt fólk undirgangast kúabólusetn- ingu, hlíta sóttvarnareftirliti, eða hvorutveggja. Ef fólk, sem kem- ur frá sýktu svæði, neitar að láta bólusetja sig, sem það getur gert, má lögum samkvæmt einangra það og setja i sóttkví. Ekki hefur þó komið tii þess enn, enda mun aðeins einn maður hafa komið frá sýktu svæði. Vel búinn her 1 dag var einnig birt í Haag yfirlýsing varnarmálaráðuneytis- ins varðandi árekstrana sl. mánudag þegar hollenzk her- skip sökktu indónesískum tund- urskeytabáti út af strönd Nýju- Guineu. Segir í yfirlýsingunni að báturinn hafi verið 12 mílur frá ströndinni þegar honum var sökkt. Nokkrir tundurskeyta- bátar frá Indónesíu hafi siglt með fullri ferð að ströndinni og m.a. skotið á hollenzka flugvél. Ætlunin var, segir í yfirlýsing- unni, að setja her á land á Nýju-Guineu og var árás þessi bersýnilega undirbúin löngu fyrirfram. 52 fangar voru tekn- ir, en talið er að um 30 menn Viðræður Rússa og l\!orð- manna I Ósló, 18. jan. (NTB) UTANRÍKISRÁÐUNEYTIÐ í Ósló skýrði frá því í dag að því hefði í gærkvöldi borizt svar frá Moskvu varðandi fram- haldsviðræður um fiskveiðilög- sögu. Samþykkja Rússar að við- ræður hefjist að nýju hinn 12. febrúar nk. Það voru Rússar, sem óskuðu eftir framhaldsviðræðum og lögðu Norðmenn til að þær hefð ust um miðjan næsta mánuð. Viðræður fóru síðast fram í nóvember sl., en þær voru ár- angurslausar vegna þess að Rússar vildu ekki veita norsk- um fiskimönnum samsvarandi hlunnindi og þeir óskuðu að rússneskum fiskimönnum yrði veitt við Noreg, þ.e.a.s. heimild til veiða innan nýju 12 mílna fiskveiðilögsögunnar á allt að sex mílna breiðu svæði. Ekki er vitað hvort Rússar hafa nú skipt um skoðun. hafi farizt er bátnum var sökkt. Hollenzka varnarmálaráðu- neytið segir að hermenn þeir, er teknir voru, hafi verið búnir vélbyssum, sprengjuvörpum og Framhald á bls. 2. Aukin útgjöld Kennedy leggnr í j drlagaí rumvarp íyrir þingið Washington, 18. jan. (AP) í D A G lagði Kennedy for- 'seti fyrir bandaríska þingið frumvarp sitt til fjárlaga fyr ' ir næsta fjárhagsár, sem, , hefst hinn 1. júlí nk. Er þar, i gert ráð fyrir útgjöldum ser nema 92.537 milljónum doll- ara (kr. 3.980.000.000.000,00) ' ,en tekjum, sem nema 93 þús.' Imillj. dollara. — Þetta eru1 |' ,mestu útgjöld, sem áætluð , hafa verið í fjárlögum' * Randarík janna á friðartím- ’um. Eru tekjurnar miðaðar við ' 'að framleiðsla landsins auk- ist að verðmæti í 570 þús. millj. dollara, tekjur einstakl, | inga verði 448 þús. millj., dollara og viðskiptahagnaður, '56,5 þús. millj. dollara. Stærsti útgjaldaliðurinn i frumvarpi Kennedys er til< landvarna, alls 52,7 þúsund [millj. dollarar, þar af 3.900 milljón dollara aðstoð við er- Iend ríki. Doktorsvörn um lærisvein Svein- bjarnar Egilssonar NORSKA fréttastofan, NTB, skýrði frá því í gær að á laugardag muni Per S. And- ersen, háskólalektor, verja doktorsritgerð um „Rudolf Keyser, embættismann og sagnfræðing". En Jacob Rudolf Keys- er kom 22 ára til ísland til að stunda nám í sagnfræði og íslenzku við Latínuskól- ann á Bessastöðum árið 1825. Það var í lok júnímánaðar 1825, sem Jacob Rudolf Keyser kom til fslands með vísindastyrk frá Noregi til rannsókna á sögu, fornri tungu Noregs Og íslenzku. Var þetta upphaf að rannsóknum Norðmanna á þessum sviðum og í fyrsta sinn sem opinber styrk- ur var veittur til þeirra mála. Alþingi kvatf saman ALÞINGI hefur verið hvatt til framhaldsfundar fimmtudag- inn I. febrúar 1962, kl. 13,30. (Frá forsætisráðuneytinu) Dvaidi Keyser á Bessastöðum f tvö ár. Þess má geta að um þess- ar mundir voru meðal kennara á Bessastööum þeir Hallgrímiu: Seheving, Bjorn Gunnlaugsson og Sveinbjörn Egilsson. Þegar Keys- er kom heim til Noregs gerðist hann kennari og seinna prófessor við háskðlann í Christianiu lOsló). Lét hann af prófessors- embætti 1862, en hélt áfram sögu rannsóknutn sínum. Rannsóknir Keysers beindust einkum að niðurlægingartíma Noregs á miðöldum. Með rann- sóknum þessum vonaðist hann til að geta útskýrt fyrir sjálfum sér og fyrir norsku þjóðinni hvernig þetta tímabil hófst og hvernig Novðmenn gátu endur- heimt sjálfstæðiskennd sína 1814. Keyser var sagnfræðingur Eiðs- vallarkynslóðarinnar, eins og seg ir í fréttinni, þeirra manna, sem iögðu grutidvöllinn að sjálfstæði Noregs með stjórnarskránni, sem samþykkt var á Eiðsvöllum 17. maí 1814. En upp frá því og þar til fullt sjálfstæði fékkst árið 1905 nutu Norðmenn nokkurrar sjálfstjórnar en voru í persónu- sambandi við Svíþjóð þannig að Svíakonungur var einnig konung- ur Noregs. Doktorsvörn Per S. Andersens fer fram i hátíðasal Oslóarhá- skóla.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.