Morgunblaðið - 19.01.1962, Side 3

Morgunblaðið - 19.01.1962, Side 3
Föstudagur 19. jan. 1962 MORGUNBL AÐ1Ð 3 heilsað 1 D A G er bóndadagur, miður vetur og þorri byrj ar. Að fornum sið, meðan blót ríktu, var efnt til miðsvetrarblóts, er síðar befur hlotið nafnið jóla- blót eða þorrablót. Forn- menn háðu miðsvetrarblót til gróðrar. Snemma hafa þeir viljað byrja að blíðka guðina til góðs árferðis um bjargræðistímann. Hér standa þeir Halldór Gröndal framkvæmda stjóri Nausts og- matsveinn hans IB Vestmann. yfir hraukuðum trogum af þorramat. þorra í garð. Átti hann að fara út á eintómri skyrtunni og annarri brókarskálminni, en draga hina á eftir sér, en vera allsber að öðru. Svo átti hann að hoppa á öðrum fæti þrjá hringi í kringum bœinn Veitingahúsið Naust hér í bæ hefir um 5—6 ára bil hald- ið uppi framreiðslu þorra- matar og hefir mörgum þótt þjóðlegt og skemmtilegt. Blaðamönnum var fyrir noKkru boðið að neyta þess meö gömlum mat Jafnan þótti þorrakoma tyllidagur en á þrengingar- tímum þjóðarinnar munu há- tíðahöld að tilefni hennar hafa fallið niður nema á Austurlandi að því er séra Jónas á Hrafnagili telur. Þar segir hann að tíðkazt hafi að nefna miðsvetrardag eða föstu daginn fyrstan í þorra bónda- dag. Samkvæmt munnmælum átti bóndinn á hverjum bæ að fara snemma á fætur og bjóða og viðhafa formála og bjóða þorra í garð. Húsfreyja átti síðan að halda vel til bónda síns, en hann átti að bjóða bændum úr mágrenninu til sín til veizlu. ★ 1 dag leitast menn við að halda við þessum sið og gera sér r.okkurn dagamun einkum í mat og drykk. Brókarhoppið mun þó með öllu niður lagst. Gísli Pálmason kjallarameistari í Naustinu ræðst á eina Irarkhpifnn'i í hirirAQckpip.niii vpiíinp’íihn^in';. há- sem húsið ætlar að bjóða fram á þorranum og var þar margt gómsæti á borðum, að minnsta kosti mun þeim finn- ast sem þekkja gamlan íslenzk an mat. ★ Hvar sem ferðamenn ber að garði erlendis er mikið fyrir því haft að eiga á boðstólum þjóðlega rétti hvers lamds fyr- ir sig. Á hér bæði við mat og drykk. Hér á landi hefir nú síðustu árin farið mjög í vöxt að gera hinn gamla mat og bjóða hann gestum og svo hef- ir farið að hann hefir ekki einasta verið vinsæll hjá út- lendingum, er hér hafa viljað neyta einhvers þjóðlegs held- ur hafa landar, sem áður voru næsta ókunnugir gamla ís- lenzkan matnum, komizt upp á að neyta hans, sér til á- nægju og yndis. Matur var á þrengingartím- um þjóðarinnar það sem menn lögðu líf sitt í sölurnar fyrir. Kæmust menn í góðan mat sér að kostnaðarlausu, var vel til hans tekið og er lýsing Jóns Thoroddsens í „Pilti og stúlku" um Þorstein matgogg skemmtilegt dæmi um það. Er Þorsteinn hafði hroðið grautarskál eina mikla og steikartrog sem út af flaut svo og vænan skammt af lummum hné hann í öngvit en andaði frá sér þessari frómu bæn áður en hann sofn- aði: „Guð gæfi að ég væri kom- inn i rúmið. háttaður, sofnað- ur, vaknaður aftur og farinn að éta.“ Ekki gleymir Benedikt Gröndal gamla íslenzka matn- um í Heljarslóðarorrustu sinni þar sem Austurríkis- keisari hélt Napóleoni mikla veizlu á Marengóvöllum með nógu af brauði og brennivíni ásamt lostæti víðsvegar úr heiminum að ógleymdu hangi- ketskrofi norðan úr Skaga- firði, sauðaþykkni úr Svarf- aðardal. saltfiski sunnan úr Njarðvík, rjóma norðan af Sléttu og dilkahöfði austan úr Múlasýslu. Og svo mikil var veizlan og sviðið stórt að maður vel ríðandi varð að fœra mönnum í staupinu. En nú skulum við líta á trogin í Naustinu og sjá hvað þar lifir af fornri frægð í ís- lenzkri matargerð. Það nýstárlegasta, sem fyr- ir augun ber eru súrsaðir selshreyfar, sem fengnir eru vestan af Breiðafirði og sviðnir þar vestra, en hreins- aðir og súrsaðir hér í matar- gerð Naustsins. Hangikjöt er þar á boðstólum, hvort það er riorðan úr Skagafirði vit- um við ekki, en þénlegasti matur var það eigi að síður. Svið bar þar fyrir, ágœt á bragðið og að líkum austan úr Múlasýslu. Lundabaggi var meðal gómsætis að súrmat til. Þá voru súrir bringukollar vænir vel, sviðasulta og súrir hrútspungar. Hvorki voru þeir þó rakaðir né sviðnir en lost- æti eigi að síður. Súr hvalur, lifrapylsa og blóðmör skreyttu trogin, harðfiskur og hákarl voru til bragðbætis. Hákarl- inn var einkar góður, glær austan af Vopnafirði en skyr- morkinn vestan af Flateyri og verð ég að taka það fram að slíkt ágæti hef ég ekki bragð- að fyrr. Með öllu þessu borðuðu menn rúgbrauð eða flatbrauð með smjöri og rófnastöppu en renndu öllu saman niður með öli Qg brennivíni. Mest af þessum mat er verk að hér í höfuðstaðnum, þótt þekkingin til þeirrar verkun- ar sé fengin frá hinum ýmsu stöðum á landinu þar sem hver þessara rétta er héraðs- frægur. Þessi þorramatur er ánægju leg tilbreyting í átlífi höfuð- borgarbúa og má gjarnan verða fjölbreyttari eftir því sem fleiri gamlir kunnáttu- menn leggja þar til málanna og kenna okkar ágætu mat- reiðslumönnum að búa þessa gömlu rétti á borðið fyrir okkur í dag. Það er athyglis- vert að hin síðustu ár hefir ýmiss gamall matur orðið mikils virði, sem nær var gleymdur og glataður víðast hvar á landinu. Nægir þar að nefna hákarlinn, sem heita mátti að enginn legði sér til munns. Nú fara vinsældir hans stöðugt vaxandi og beita, sem áður var hægt að fá fyrir lítið að vestan, er nú seld hér í höfuðstaðnum hæsta verði eins og munaðarvara. vig. STAK8IEII\IAR Atvinnulíf með einstökum blóma f forystugrein íslendings á Akureyri er fyrir skömmu m.a. komizt að orði á þessa leið um atvinnuástandið fyrir norðan: „Barlómsdátar og hallæris- kempur Framsóknarflokksins hafa löngum haldið því fram, að viðreisnarstefna núverandi ríkis- stjórnar miði að því að draga úr athafnalífi í landinu, sé í einu orði sagt „samdráttarstefna“ að ekki sé nránnzt á móðuharðinda- vælið frá botni Skjálfanda. Eng- an stað hafa málgögn hins tæki- færissinnaða Framsóknarflokks getað fundið í kenningu sinni, þvi að fólksekla og eindæma atvinna á öllum sviðum æpa gegn þeim. Stundum hafa Framsóknarblöðin talið það vott um samdráttar- stefnu, að ekki séu byggð íbúðar og peningshús í fullbyggðum sveitum, svo sem áður hafði tiðk- azt. En því skyldu menn byggja að gamni sínu, eftir að búið er að byggja nægilega stórt og vel yfir fólk og fé?“! I»að vantar fólk fslendingur heldur áfram for- ystugrein sinni: „Hvaðan sem okkur berast fréttir af atvinnulífi, er sagan allsstaðar hin sama: það vantar fólk. — Iðnfyrirtæki samvinnu- manna hér í bæ hafa vissulega orðið fyrir barðinu á fólksekl- unni, svo og fjöldi annarra iðju- og iðnfyrirtækja: saumastofur, frystihús, niðursuðuverksmiðjur, byggingariðnaður o.s. frv. Oft verður að leita á náðir fram- haldsskólanna um að gefa nem- endum eftir einn og einn dag til að bjarga framleiðslunni frá skemmdum. Víða er unnið langt fram yfir eðlilegan vinnutíma vegna þess, hve margar hendur vantar til að bjarga þeim verð- mætunt., er berast á land úr gull- kistunum umhverfis landið. Nauðsynlegum framkvæmdum hefur orðið að slá á frest vegna fólkseklu. í einni verstöð norð- anlands var róðrum hætt þrem dögum fyrir jól, þar sem fólk var að verða uppgefið af of mikilli vinnu og hefði ekki getað notið jólahátíðarinnar án hvíld- ar.“ Þessi umrnæli hins norðlenzka blaðs segja vissulega sína sögu. f forystugreininni greinir einnig frá því, að áður fyrr hafi margt manna í hinum norðlenzku sjáv- arplássum. þurft að sækja at- vinnu sína suður á land á vetrar- vertíð. Nú hafi hinsvegar svo skipazt, að brottfluttir menn flytji heim í þessi byggðarlög. Kommúnistar *apa í Finnlandi Kommúnistar hafa tapað tölu- verðu fylgi í forsetakosningun- um í Finnlandi. Sætir það vissu- lega engri furðu. Finnskur al- menningur veit, að kommúnista- flokkur landsins er aðeins útibú af rússneska kommúnistaflokkn- um, Hann er allt af reiðubúinn til þess að reka rýt- inginn í bak finnsku þjóðar- innar. Þegar Krúsjeff heimt- ar rússneskar herstöðvar á finnskri grund á hann e n g a n bandamann tryggari en Herthu Kuusinen. Hjarta hennar slær austur i Moskvu. Þar er hennar föður- land og annarra kommúnista, enda þótt hún segi finnskum kjósendum að hún sé einlægur ættjarðarsinni! Hertha Kuusinen.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.