Morgunblaðið - 19.01.1962, Blaðsíða 10
10
MORGVNBLAÐIÐ
Föstudagur 19. jan. 1962
Otgefandi: H.f Arvakur. Reykjavík.
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
Ritstjórar: Valtýr Stefánsson (át>m.)
Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Auglýsingar: Arni Garðar Krifiíinsson.
Ritstjórn: Ai$alstræti 6.
Auglýsingar og avgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480.
Askriftargjald kr. 55.00 á mánuði innanlands.
lausasölu kr. 3.00 eintakið.
AUKIN LANDBÚNAÐ-
ARFRAMLEIÐSLA 1961
í yfirlitsgrein um landbún-
* aðinn 1961 eftir Guðmund
Jónsson, skólastjóra á Hvann
eyri, sem Morgunblaðið birti
í gær, er þess m. a. getið, að
veruleg aukning hafi orðið í
landbúnaöarframleiðslunni á
árinu. Kemur sú staðreynd
illa heim við fullyrðingar
Framsóknarmanna um það að
hagur bænda hafi farið
versnandi.
Magn innveginnar mjólkur
hefur á 11 fyrstu mánuðum
síðasta árs aukizt um rúm-
lega 6 millj. kg., miðað við
sama tíma ársins á undan,
og sauðfjárslátrun jókst úr
713 þús. í 820 þús. fjár.
Undanfarin ár hefur fólki
i sveitum fækkað hérlendis,
eins og raunar víðast ann-
ars staðar, en engu að síður
hefur landbúnaðarframleiðsl-
an stóraukizt, og samhliða
framleiðsluaukningunni hafa
lífskjör að sjálfsögðu batnað.
Framsóknarmenn spáðu því,
að nú mundi framleiðsla
landbúnaðarafurða dragast
saman og lífskjör fara versn-
andi, töluðu jafnvel ummóðu
harðindi, kreppu, samdrátt
og síðast um lömun. Þessar
hrakspár hafa ekki rætzt,
heldur hefur almenn velmeg-
un ríkt til sveita eins og við
sjávarsíðuna.
Því er ekki að neita, að lít-
Hlega hefur dregið úr jarð-
ræktarframkvæmdum 1961.
Hafa menn augljóslega lagt
megináherzlu á að aukafram
leiðslu búa sinna. Er það líka
rétt stefna að leitast við að
auka fyrst tekjurnar til að
hafa nokkurt eigið fjármagn
ta að standa undir fram-
kvæmdum á komandi árum,
enda munu margir bændur
vera orðnir langþreyttir á
því að knékrjúpa kaupfélags-
stjóranum sínum í hvert
skipti sem þeir þurfa að fá
einhverja úttekt, vegna þess
að þeir hafa verið skuldum
vafðir.
Framsóknarmönnum finnst
það auðvitað ekki gleðiefni,
er menn reyna að auka fram
leiðsluna, án þess að binda
sér of þungan skuldabagga.
Þá kynni svo að fara að
bændur yrðu fjárhagslega
sjálfstæðir, en um leið minnk
ar áhrifavald það, sem kaup-
félögin hafa, er þau beita
skuldasvipunni.
EYSTEINSKAN í
ALGLEYMINGI
|7ysteinn Jónsson hefur rit-
" að undir nafni grein í
Tímann, þar sem m.a. stend-
ur eftirfarandi:
„Seðlabankinn borgar kostn
aðinn við að láta féð liggja
dautt. Hann er ekkert smá-
ræði, því borgaðir eru 9%
vextir. Það kostar því 27
millj. á ári að loka inni 300
millj.“
Þessi rök ber fyrrverandi
fjármálaráðherra á borð fyr-
ir lesendur Tímans, og síðan
eru þau endurprentuð í rit-
stjórnargrein þess blaðs. —
Sjálfsagt verður svo haldið
áfram með þessar fullyrðing-
ar, þangað til búið er að
„sanna“ samkvæmt fræði-
kenningum Eysteihskunnar
að þetta sé einmitt svona,
svipað og átti sér stað, þeg-
ar Eysteinn „sannaði“ að 13
—24% kauphækkanir skertu
hag útflutningsframleiðslunn
ar um 1%!
En ef það „kostar" þjóðar-
búið 27 millj. á ári „að loka
inni 300 millj.“, þá ætti ekki
að þurfa að hafa miklar á-
hyggjur af efnahagsvanda-
málum þjóðarinnar. Með ná-
kvæmlega sömu rökum mætti
segja, að þjóðin gæti hagn-
azt um 2700 millj. á ári með
því einu að Seðlabankinn
prentaði 3000 millj. í seðlum
og léti þá upphæð renna til
lánveitinga.
Að sjálfsögðu er hluti
sparifjáraukningarinnar fest-
ur í Seðlabankanum til þess
að tryggja gjaldeyrisvara-
sjóði, því að tilgangslaust
er að hugsa sér að afla gjald
eyrisvarasjóða, ef samhliða
eru aukin útlán innanlands
og þar með ávísað stöðugt
meiri innlendum peningum á
hið erlenda fé.
VAFASAMUR
HEIÐUR
IT’ins og að líkum læturbirt-
^ ir málgagn heimskomm-
únismans á íslandi með mik-
illi velþóknun tillögu þá,
sem Eiríkur Pálsson, skatt-
stjóri í Hafnarfirði, lagði
fram á umræðufundi Varð-
bergs, frá nokkrum mönnum
úti í bæ, þótt honum væri
fullkunnugt um, að fundur-
inn væri ekki boðaður til
ályktana. í tveimur greinum
öðrum í þessu sama blaði er
Eiríki Pálssyni mjög hrósað
fyrir frammistöðu hans á
fundinum.
Skattstjórinn í Hafnarfirði
er ekki kommúnisti heldur
Framsóknarmaður, en hann
hefur í hinum svonefndu
4. sinfónía Shosfakovich frumflutt
Sinfónían lá í skiíffu
tónskáldsins í 25 ár
HÖFUNDUR tónverksins sem
átti að flytja sat á áttunda
bekk í hljómlistarsalnum, ók
sér í sætinu og beið tauga-
óstyrkur eftir því, að hljórrv
sveitin hæfi leik sinn. f kring-
um hann sátu aðrir áheyrend-
ur. tónskáld, gagnrýnendur og
listamenn. Tónlistasalurinn í
Moskvu var alveg fullskipað-
ur og áheyrendur þess fylli-
lega meðvitandi, að kvöldið
hafði bæði tónlistarlega og
stjórnmáiaiega þýðingu.
* * *
Ástæðan til þess að þeir
voru þarna samankomnir, var
frumflutningur fjórðu sin-
fóníu rússneska tónskáldsins
Dmitri Shostakovic'h, en verk-
ið hefur legið í skrifhorðs-
skúffu höfundar í 25 ár. Er
það vegna opimberrar árásar,
sem á hann var gerð 1936. Um
það leyti var hann sakaður
um að ópera hans „Lady
Macbetb of Mtsensk“ og bal-
lett hans „The Limpid
Stream“ fælu í sér mestu
synd, sem hægt væri að drýgja
á sviði listarinnar: þ.e. að að-
hyllast ekki sósealrealisma
Stalíns.
Þó að æfingar á 4. sinfóní-
unni væri hafnar þegar árás-
argreinarnar birtust í Pravda,
dró Shostakovich verkið strax
til baka undir því yfirskini,
að hann þyrfti að endurbæta
það.
S.l. vor spurði Phiiharmoniu
hljómsveitin í Moskvu tón-
skáidið, hvort fjórða synfóní-
an væri nú fullgerð. Játaði
hann því og fékk stjórnanda
Dmitri Shostakovich.
hennar Kiril Kondrashin,
verkið í bendur.
Fréttaritari bandaríska tima
ritsins Newsweek, sem var
viðstaddir voru sögðu, að sin-
fóníunnar sagði. að þessi sin-
fónía væri sennilega eitt á-
hrifamesta verk tónskáldsins.
Aðrir vesturlandabúar, sem
viðstaddir voru sögðu, að sin-
fónían væri eins langt frá
sóséalrealisma og abstrakt
málverk Picassos. Væri hún
mjög ólík verkum þeim, sem
Shostakovich hefði samið síð-
an hann var ávítaður, en eftir
það varð 'hann vinsælasta tón-
skáld ráðamanna í Kreml.
* * *
Hún er með öðrum orðum
mjög iangt frá því að líkjast
12. sinfóníu tónskáldsins, sem
„Samtökum hernámsandstæð
inga“ þjónað mjög dyggilega
málstað hins alþjóðlega
kommúnisma. Ásamt honum
undirskrifa svo nokkrir menn
aðrir undir tillöguna, og eru
þeir a.m.k. ekki allir komm-
únistar og mundu þar af leið
andi ekki óska eftir því að
við lentum undir járnhæl
Moskvuvaldsins.
Morgunblaðið leyfir sér að
beina því til þessara manna,
að þeir hugleiði, hvers vegna
blað kommúnista hefur svo
mikið við þá, hvers vegna
þeim er hælt og nöfn þeirra
birt með velþóknun. Dettur
mönnum þessum í hug að
það sé gert, vegna þess að
kommúnistar telji baráttu
þeirra styrkja hinn íslenzka
málstað, málstað friðar og
frelsis. Naumast geta þeir
ímyndað sér það. Þess vegna
er ef til vill von til þess að
það renni upp fyrir þeim,
þó seint sé, að þeir eru hér-
lendis einhverjir ötulustu bar
áttumenn fyrir framgangi
þeirra ógnana, sem Morgun-
blaðið vill trúa að þeir í
innsta eðli séu andvígir.
Beinar viðræður
um Kasmír
Washington 17. jan. (AP)
HÁTTSETTIR embættismenn í
Bandaríkjunum fara þess ein-
dregið á leit við Indland og
Pakistan, að Iöndin hætti við að
ræða um Kasmír á Allsherjar-
þingi Sameinuðu þjóðanna og
reyni að gera nýja tilraun til að
komast að samkomulagi með
beinum viðræðunr..
Sendimenn Bandaríkjanna
hafa bent Ayub Khan, forseta
Pakistan og Nehru ,forseta Ind-
lands, á það, að nær vonlaust sé
að samkomulag náist með viðræð
um á Allsherjarþinginu og Sovét
ríkin séu eini aðilinn, sem geti
haft hag af því, að þeir munn-
höggvist um Kasmír 1 þingsöl-
um SÞ.
Ræða samvinnu
Afríkuríkjanna
Lagos .Nigeria 17. jan.
f DAG var tilkynnt, að forustu-
menn flestra hinna sjálfstæðu
Afríkuríkja, 28 að tölu, myndu
koma til fundar ,sem hefjast á í
Lagos 25 .jan. n.k.
var frumflutt f október s.l. og
er tileinkuð Lenin.
Sinfónían, sem kom Shosta-
kovich í náð hjá valdhöfun-
um, er sjöunda sinfónía hans,
Leningrad sinfónían, en hún
er ekki flutt lengur. 2.
sinfóníu sína samdi tónskáld
ið til minningar um októ-
berbyltinguna og sú 3., sem
samin var 1930, er tileinkuð
1. maí. En sagt er, að í béðuna
þessum verkum hafi tónskáld-
inu mistekizt að túlka bylt-
inguna.
Af sinfóníum Shostakovich,
eru 1. og 5. sinfónían mest
leiknar.
* * *
Opinber ummæli um fjórðu
sinfóníuna hafa enn ekki verið
birt, en þeir, sem viðstaddir
voru frumfiutning hennar,
létu hrifningu sína óspart í
Ijós.
Tónskáldið Aram Khachat-
urina sagði: — Eftirtektarvert,
— stórkostleg hugmynd.
Margir óskuðu Shostakov-
ich til hamingju með verkið,
en hann var taugaóstyrkur og
benti á, að þegar hann hefði
fyrst skrifað sinfóniuna, hefði
hann alltaf unnið að henni af
og til og nú væri hann loksins
ánægður með hana.
Tónskáldið. sem ekki vildi
láta nafn síns getið »agði um
fjórðu sinfóníuna: „Þetta er
voldugt, hugmyndaríkt verk.
Ef til vill geðjast ekki öllum
að hinum stríðu hljómum, en
þetta er eitt af beztu verkum
tónskáldsins. Þetta er raun-
verulega Shostakovich.
Ðeila um stríðs-
skaðabætur
Rangoon, 17 jan. (AP)
U NU forsætisráðherra Burma
sagði í dag, að hann færl til
Japan eins fljótt og auðið værl
til að jafna deilurnar, sem stað.
ið hafa um stríðsskaðabætur. er
Burmamenn krefjast af Japön-
unr.,
* * *
Krafa Burmamanna nemur
200 millj. dollara til viðbótar við
þær skaðabætur, sem þeir hafa
þegar fengið. Einnig fara þeir
fram á jaf» háa upphæð, til
stuðnings efnahagssamvinnu
milli landann*.
Tvær tilraunir hafa áður verið
gerðar til að koma á samkomu-
lagi um greiðslur þessar.
í
Skotnír
Havana, Kúbu, 17. jan. (AP)
,FIMM menn voru skotnir í '
höfninni í Havana í dag, er
,þeir reyndu að flýja land í
smáskútu. Segir í opinberri
tilkynningu stjórnarinnar um
málið, að mennirnir hafi allirl
verið „andbyltingarsinnar". j