Morgunblaðið - 19.01.1962, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 19.01.1962, Qupperneq 12
1? MORGUNBL4Ð1Ð Fostudagur 19. jan. 1962 Alúðar þakkir til ailra sem glöddu mig á áttræðis afmæli mínu roeð heimsóknum, gjöfum og skeytum. Guð blessi ykkur. Guðmundur Árnason. Öllum vinuro mínum, nær og fjær, sem heiðruðu mig með nærveru sinni, heillaóskaskeytum, gjöfum, blómum og hlýjum handtökum á 70 ára afmæli mínu 3. jan. færi ég minar innilegustu þakkir. — Guð blessi ykkur. Elínborg Jónsdóttir, Gunnarssundi 7, Hafnarfirði. Dömur ÚTSALA — OTSALA Útsalan er í fullum gangi. Mjög mikill afsláttur. GÓÐAK VÖRUR hjá BÁRU Austurstræti 14. Konan mín KARÍTAS JOCHUMSDÓTTIR andaðist í Bæjarsjúkrahú.sinu 18. þessa mánaðar. Gústaf A. Ágústsson. Móðir okkar HALI.DÓRA ÁSGEIRSDÓTTIR frá Þverá andaðist i Lanasspítalanum 16 þessa mánaðar. Börnin. Faðir okkar GliÐMUNDUR ÍSLEIFSSON trésmiður, Skipasundi 23, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju Iaugard. 20. þ.m. kl. 10,30. — Athöfninni vc-rður útvarpað. Börnin. Eiginmaðui minn, faðir okkar og tengdafaðir HANNES JAKOBSSON málarameistari frá Húsavík, er lézt 14. þ.m. verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju mánudaginn 22. janúar 1962 kl. 10,30. Athöfninni í kirkj- unni verður útvarpað. Ilansína Karlsdóttir, Herdís Arnórsdóttir, Karl Hannesson, Helen Hannesdóttir, Ólafur Erlendsson. Þökkum inniiega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og jarðarför SIGRÍÐAR JÓNSDÓTTUR frá Veðraá. ASstandendur. 2/o til 3/o herb. íbúð Höfum verið beðnir að útvega tveggja til þriggja herbergja íbúð til kaups. Há útborgun. Málflutningsskrifstofa Einars B. Guðmundssonar, Guðlaugs Þorlák«c*>nar Guðniundar Péturssonar Aðalstræti 8 — Símar 1-2002 1-3202, 1-3602 Ungur maður á aldrinum 16—20 ára óskast til vinnu í verksmiðju okkar. SÁPUGERÐIN FRIGG Nýlendugötu 10 — Sími 24313. Atlantshafsbandalagiö og efnahagsmál EITT HELZTA álhugamál Kennedys Ðandaríkjaforseta er að auka tengsl Atlantshafs bandalagsríkjanna á sviði við- skipta og markaðsmála. Allt frá því að hann tók við em- bættinu, hefur hann unnið markvisst að því að láta NATO-bandalagið einnig láta til sín taka efnahagsmál í sam einingu. Kennedy álítur, að til einhvers konar efnahags- bandalags hljóti að koma með al Atlantshafsríkjanna, og því fyrr, því betra. — Landatoréf- ið sýnir Atlantshafsbandalag- ið, eins og það hefur þróazt frá árinu 1947, þegar vísir að NATO myndaðist, sem and- svar við vígbúnaði og hernað- arlegum yfirgangi ríkjanna undir stjórn kommúnista í Austur-Evrópu. Þegar kom- múnistar hrifsuðu til sín völd in í Tékkó-Slóvakíu árið 1948, gerðu England, Frakk- land, Holland, Belgía og Luxemburg með sér varnar- sáttmála, hinn svonefnda Brússel-samning. Bandalag þessara ríkja var kallað Vest- ur-Evrópubandalagið, og aðild arríkin skuldbundu sig til að koma upp sameiginlegum vörnum og hafa með sér sam- vinnu á sviði efnahagsmála og menningarmála. Ef ráðizt Átján létust í Alsír í gær Oran, 17. janúar. (AP) HIN mesta ógnaröld hefur ríkt í Alsír í dag. Víða verið óeirðir — og fjölmargir lát- izt og særzt. 1 Oran létust tiu menn og tugir særðust, er stór plast- sprengja sprakk í fjölbýlishúsi serkneskra manna í borginni. — Var talið, að þar væru sem fyrr að verki hægrisinnaðir öfga- menn — og mun sprengjan hin stærsta sem þeir hafa sprengt til þessa. Skömmu síðar hópuðust Serk- ir saman til mótmæla — þeir lögðu eld i stórverzlun evrópsk manns í borginni og varð litlu eða engu bjargað. Einn Evrópu- maður var sleginn í höfuðið með skóflu og beið hann þegar bana. Víðar urðu óeirðir og er talið, að alls hafi látizt í dag átján menn, evrópskir og serk- B neskir. Virðist ástandið í land- inu fara versnandi með hverj- um degi sem líður. yrði á eitt þessara landa, áttu hin jafnskjótt að koma því til hjálpar. Sovétríkin héldu áfram að ógna sjálfstæði Vest- ur-Evrópu og annarra lýð- frjálsra ríkja, og valdahlut- fallið var orðið svo breytt frá því, sem áður var, að jafnvel ríki eins og Bretland og Frakkland gátu ekki staðið Sovéttröllinu á sporði að neinu verulegu leyti. Banda- ríkin ein gátu skapað valda- jafnvægi í heiminum, og það var útþennslupólitík Rússa, sem knúði Bandaríkjamenn til að taka hina heimssögu- legu ákvörðun: að ganga í varnarbandalag í Evrópu á friðartímum og rjúfa þar með hina gömlu og hefðbundnu utanríkisstefnu sína. Hættan var nú orðin svo yfirvofandi af ógnunum Stalíns, að full- trúar Bandarikjanna og Kan- ada hófu viðræður við Vestur- Evrópubandalagslöndin, og^ í marz 1949 var Danmörku, fs- landi, Ítalíu, Noregi og Portú- gal einnig boðið til viðræðna. 4. apríl 1949 stofnuðu þessi tólf ríki Atlantshafsbanda- lagið. Höfuðstöðvar voru settar á stofn í Paris, og al- þjóðlegri herstjórn komið á fót, sem tæki stjómina í sín- ar hendur, ef til styrjaldar kæmi. Árið 1952 tengdust Grikkland og Tyrkland NATO og Vestur-Þýzkaland 19'55. — NATO hefur staðizt raunina á hernaðarsviðinu og í varnar- málum, og framsókn kommún ismans í Evrópu hefur verið stöðvuð. Öðru máli gegnir um samvinnu NATO-ríkja í efna- hagsmálum. Samkeppni og viðskiptalegar andstæður hafa stundum orðið að hálf- gerðu verzlunarstríði milli sumra NATO-ríkja, en við því var að vísu alltaf búizt. Nú er útlit fyrir, að takast megi að vinna bug á ýmsum erfiðleik- um á þessu sviði, sem áður voru álitnir óyfirstíganlegir. Skarpur munur á venjum og hagsmunum hinna ýmsu að- ildarríkja tefur þróunina, en skilningur þjóðanna á því, að stóraukin samvinna þeirra á milli. er ekki einungis þeim fyrir beztu, heldur blátt áfram lífsnauðsyn. (Með einkarétti: Mbl. og Nordisk Pressebureau). “ Sophia og Ponti fyrir rétt Róm, 17. jan. (AP) TILKYNNT var i Róm í dag að kvikmyndaleikkonunni Sophiu Loren og manni henn ar, kvikmyndaframleiðandan- n Carlo Ponti, yrði stefnt ;fyrir rétt fyrir tvíkvæni. ★ Ponti var kvæntur en hann og Sophia gengu i hjónaband. IFékk hann skilnað frá fyrri konu sinni í Mexiko, en þau giftust á Ítalíu og þar eru 'skilnaðir ólöglegir. í ágúst 1960 hófst aðstoðar- 'saksóknari Rómaborgar handa 'um söfnun á sönnunum fyrir ’því, að Sophia og Ponti hefðu gerst sek um tvíkvæni. Hefur 'hann nú krafist þess að þeim verði stefnt fyrir rétt. — Athugasemd Framh. af bls. 9. málaákvörðun. Eðlilegast virðist að útgerðar- maðurinn kaupi það skip, sem hann ætlar sér að reka og þá væntanlega af því að hann treyst- ir sér til þess. Mér virðist aug- ljóst, að hann verði að fá að ráða hvers konar skip hann vill kaupa til framleiðslunnar. Hann er varla útgerðarmaður lengi nema hann beri eitthvert skynbragð á þetta atriði. Hins vegar gegnir að sjálf- sögðu allt öðru máli um pólitískt skipaða embættismenn hjá bæjar- eða ríkisreknum útgerðarfyrir- tækjum. En svona hefir þetta ekki geng- ið til undanfarið. Valið á tækjun- um hefir að talsverðu leyti oltið á stjórnmálum, ekki rekstrar- sjónarmiðum. öflun atvinnutækj- anna hefir gengið fyrir öllu, rétt eins og þau skiluðu arði sjálf- krafa. Hlutverk mannsins hefir verið stórkostJega vanmetið, og jafnvel gleymst. Af þessu hefir leitt mikið tjón og sóun. Opinber- ar ráðstafamr á sviði efnahags- málanna eiga að mínu áliti fyrst og fremst aö miðast við mannina og frjáls samtök einstaklinganna, en ekki við atvinnutækin. Þau eru hjálpargögn. Þetta á sérstak- lega við i útgerð.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.