Morgunblaðið - 19.01.1962, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 19.01.1962, Blaðsíða 16
16 MORCUNBT. 4Ð1Ð Föstudagur 19. jan. 1962 Barbara James: 4 Fögur og feig Hvað er svo sem um það að •egja? Þú ættir að fara oftar til borg- arinnar, og halda þig þar sem Rory er helzt. Taka þátt í þessum boðum, sem hann fer í. Fara oft- ar í leikhúsið. Ég hef andstyggð á þessum eig- inkonum, sem eru sí og ae að flækjast í leibhúsunum og inni í búningsherbergjum mannanna sinna. Og ég hef heyrt þig sjálfa segja sitthvað um það sama. Kann að vera. En konur, sem eru annars alltaf úti í sveit og sleppa mönnum eins og Rory lausum í borginni, eru að bjóða vandræðunum heim. Þá kemur alltaf einhver kisan og festir klærnar í manninum. Kannske var þetta allt rétt hjá henni. Eftir að börnin fæddust hætti ég við leikstarfsemi, og kom sárasjaldan að tjaldabaki. Vissi sem var, að konur, sem gera mikið að því, eru illa séðar, en auk þess hafði ég of gaman að að koma baksviðs í leikhús og fann þá til saknaðar, er ég minnt ist daganna þegar ég var sjálf að leika. Það var leiðinlegt að eiga ekki þarna heima lengur, og því tók ég það í mig að koma þarna sem allra minnst. En ég lofaði sjálfri mér því einhverntíma, að þegar börnin væru orðin stór, skyldi ég taka upp aftur mitt fyrra starf, en þangað til alls ekki koma nærri því. Með því að eign- ast húsið úti í sveitinni, höfðum við fengið algjöra andstæðu þess heims, sem Rory starfaði í. Þar gat hann hvílt sig og jafnað sig eftir erfiðar sýningar og aðra vinnu — leikið við börnin — leikið golf, sem var nýjasta dægra stytting han, og unniff í garðin- um. Hann var enginn samkvæm- ismaður — ekki fyrr en þá ný- lega — og tók sveitina langt fram yfir borgina. Vitanlega fór ég til borgarinnar endrum og eins, en eins og Vanda sagði: ekki nógu oft. Þú átt að vera meira með hon- um í borginni, var hún alltaf að klifa. Þessi Crystal er piltatál — en það ert þú líka. Farðu bara. Þér verður ekki mikið fyrir að binda endi á þetta. Ég er hrædd um, að það sé um seinan, Vandy, sagði ég. ,Það er nú engin ástæða til að gefast «pp að óreyndu, sagði Vandy með miklum ákafa. Finnst þér ekki? Líttu á þetta: Horfðu vel á það. Ég tók upp blaðið og rétti henni. Hún horfði gaumgæfilega á það. Já, ég sé, hvað þú átt við. Þessir karlmenn. Þeir eru hver öðrum líkur. Og viðbjóðurinn skein út úr orðunum. Hún gat líka úr flokki talað. Hennar eig- in maður hafði yfirgefið hana og var nú einhversstaðar erlendis, en hún hafði setið uppi með börn in tvö. Síðan hafði hún ekki heyrt frá honum, auk heldur séð hann. Þetta líður hjá, sagði hún. Rory fer aldrei að yfirgefa þig. Ertu viss um það? Aðrir eigin- menn yfirgefa konurnar sínar og börnin. Maður les um það dag- léga. Ekki Rory. Ég veit ekki. Ég get að minnsta kosti ekki talað. við hann framar. Það er kominn veggur á milli okkar, sem verður ekki yfirstig- inn. Hann yfirgefur big nú samt sem áður alls ekki. Það finn ég alveg á mér. Það var eins og hún væri að reyna að sannfæra sjálfa sig. Áttu við vegna barnanna? Og þráir hana svo seint og snemma. Nei, þakka þér fyrir. Hann kemst yfir þetta. Það gera þeir alltaf áður en lýkur. Ég stóð upp og gekk um gólf óróleg. Ég er ekki viss um, að ég vilji hafa hann með þeim skilyrðuni. Ef hann þráir hana svona afskaplega, getur hann haft hana, sagði ég með ákafa. Vandy varð hneyksluð. Þú reynir þó væntanlega að halda í hjónabandið þitt, þó ekki væri nema vegna Tims og Júlíu. Heldurðu kannske, að svona sýndarhjónaband geti gert börn- in hamingjusöm? Nei, þau finna á sér ósamkomulagið milli for- eldranna, og verða miður sín. Ég veit, hvað ég er að tala um. Ég hef reynt það sjálf. Ég var bara átta ára þegar mamma dó. Foreldrar mínir rif- ust aldrei ef ég var nærri, en ég mundi engu að síður eftir því, hvað mér leið illa, af því að ég fann það á mér, að þau voru allt- af önirg hvort við annað — þótt ef til vill ekki syði alveg upp úr. Nei, það er betra fyrir alla hlut aðeigandi, að segja öllu hreinlega slitið. Farðu þér hægt, Rosaleen. Ég skal alveg játa, að þessi mynd gefur sitthvað til kvnna, þó að ég viti ekki 'hvað. Það getur vel ver- ið ljósmyndablekking. Ljós- myndavélin getur logið, og það er engin ástæða fyrir þig að vera of fljót á þér að draga af þessu neinar ályktanir. Og þú skalt heldur ekki láta neina vegg koma milli ykkar. Gakktu heldur beint að verki og gerðu þetta upp" við hann. Það verðurðu að gera. Ég veit ekki. Það er erfitt. Ég veit ekki, hvort ég kem mér nokkurntíma að því að gera upp við hann. Það verðurðu nú samt að gera, endurtók hún. Ég brosti máttleysislega. Vandy var nú svo einbeitt. Jæja, samt hafði hún nú misst manninn sinn. Ég var alls ekki viss um, að þessi ráðlegging hennar væri heppileg — ekki fyrir mig að minnsta kosti. Hitt vissi ég, að eitthvað yrði að gera, Það var ‘heimská að láta þetta reka svona á reiðanum og loka augunum fyr ir staðreyndunum. Kannske var þetta líka mér að kenna. Ég hafði bein kynni af leikstarfsemi, og mátti því vita, að ef maður er giftur leikstjörnu, sem allir dá, var ekki nóg að vera bara ánægð í hjónabandinu, heldur verður maður að vera virkur, til þess að allt geti farið vel. Maður verður að vera viðbúinn samkeppni. Maður eins og Rory hlaut alltaf að umgangast gráðugar konur, sem létu sér á sama standa þó að hann væri kvæntur maður. En hann ætti að hafa mannsmóð í sér til að standast þær, hugsaði ég þrjózkulega. Kannske var það nú samt ekkj svo auðvelt. Rory gekk í augun á kvenfólki, og einmitt það var drjúgur þáttur í velgengni hans. Konurnar höfðu orðið þess áskynja, að bak við þe$si snilldarlegu fíflalæti bans var alvarlegur, margslunginn og skemmtilega torræður maður. Og auk þess var eins og persónu- leiki hans væri rafmagnaður og það hreif þær ekki hvað sízt. Hann virtist tiu sinnum meira lifandi en nokkur meðalmaður, og aðeins þannig sáu þær hann. En ég þekkti hann betur og hafði séð hann í öðruvisi ham — þreytt an, niðurdreginn, öryggislausan og sneyddan þessu dásamlega fjöri. Ég hafði tekið þátt í von- lesyisköstunum hans. Ég þekti manninn, sem almenningur fékk aldrei að sjá. Hvað ég óskaði, að ég vissi eitthvað meira um Crystal Hugo. Ég hafði gert mér þá hugmynd, að hún væri bara sýningarstúlka og kannske tilvonandi leikkona, sem legði vandlega stund á útlit sitt og með nokkrum árangri. Hún hafði komið í leikflokkinn, sem var með ..Sólbruna og sælu“, fyrir aðeins sex mánuðum, í stað annarrar, sem forfallaðist, eða var ráðin í kvikmyndir. Hún hafði heldur lítið hlutverk i sýn- ingunni — kom aðeins fram í tveim ómerkilegum atriðum. En hún var ógleymanleg- því var ekki að neita. Rautt hár, hvítt hörund og krakkalegur vöxtur, sem var ennbá meir aðlaðandi en kvenlegar línur. Hárið hékk kæruleysislega niður á axlir. Búningurinn hennar var alls ekki neitt djarflegur, en engu að síður ögrandi. f seinna atriðinu var hún sveipuð svörtum hjúp frá hvirfli til ilja og fallega hárið var afturgreitt og sett upp í hnakkanum. svo að háu kinn- beinin urðu sérlega áberandi. Hún var engu síður áhrifarík þarna en í hinu atriðinu. En þetta var bara ekki nein raunveruleg kona, heldur árangyrinn af brelli brögðum leikhússins. Ég hafði fyllzt fyrirlitningu yfir því, að Rory skyldi geta orðið hrifinn af þessu, sem var svo greinileg gerviframleiðsla. Það gat ekkl orðið langvinnt, sagði ég við sjálfa mig og ég hafði orðið reið yfir því, að hann skyldi geta far ið að fórna hamingju okkar fyrir augnablikshrifningu. Ég hafði þá verið að blekkja sjálfa mig. Ég hefði átt að vita betur. Og kannske hafði ég líka gert það, en ég var furðu lítið siegin þó að ég ýrði reið við Crystal og fyrirliti hana. Ég hefði átt að geta séð greind eða ein- hvern annan óræðan eiginleika í þessu andliti, sem var svo eftir- tektarvert. Ég hafði ekki hitt hana nema einu sinni, rétt snöggvast, á einhverri viðhafn- arsamkomu. Þá var hún í hvítum silkikjól og með hvítan ref. Hún talaði hásum rómi, sem ég álykt- aði, að hún hefði haft mikið fyrir að æfa, af því að hún hefði lesið einhversstaðar, að svona málróm ur tilheyrði hennar útliti. X- X- * GEISLI GEIMFARI >f X- >f >— Jæja, misstu ekki stjórn á sjálf- — Farið frá læknir, við erum að — Ef það er rétt vil ég fá vemd! om þér læknir. Mundu að ég hef leita að Pétri Fyrir tvöfalda Gjörið svo vel að leita vandlega auga með þér! morðtilraun. Við vitum að hann er herrar mínir! U — Hvað.... ? hér! SKltltvarpiö Föstudagur 19. janúar 8:00 Morgunútvarp (Bæn — 8:05 Morg unleikfimi — 8:15 Tónleikar — 8:30 Fréttir — 8:35 Tónleikar — 9:10 Veðurfregnir — 9:20 Tónl.). 12:00 Hádegisútvarp (Tónleikar. -• 12:25 Fréttir og tilkynningar). 13:15 Lesin dagskrá næstu viku. J 13:25 „Við vinnuna“: Tónleikar. 15:00 Síðdegistónleikar (Fréttir, tilk. — Tónl — 16:00 Veðurfregnir. — Tónleikar — 17:00 Fréttir Endurtekið tónlistarefni). 17:40 Framburðarkennsla í esperanto og spænsku. 18:00 „£>á riðu hetjur um héruð“: Guð mundur M. Þorláksson talar um feðgana Ólaf pá og Kjartan. 18:20 Veðurfregnir. 18:30 Harmonikulög. 19:00 Tilkynnir ^ar. — 19:30 Fréttir. 20:00 Daglegt : íál (Bjarni Einarsson cand. mag.). 20:05 Efst á baugi (Björgvin Guðmunds son og Tómas Karlsson). 20:35 Frægir söngvarar: X: Heinrich Schlusnus syngur. 21:00 Ljóðaþáttur: Einar Ólafur Sveins1" son prófessor les kvæði eftir Jónas Hallgrímsson. 21:10 Píanótónleikar: Svjatoslav Rikht er leikur Fantasiestticke op. 12 eftir Schumann. 21:30 Útvarpssagan: „Seiður Satúrnus^ ar“ eftir J. B. Priestley; V. (Guðjón Guðjónsson). 22:00 Fréttir og veðurfregnir 22:10 Um fiskinn (Thorolf Smith frétU maður). 22:30 Á síðkvöldi: Létt-klassísk tónlist. Útdráttur úr óperettunni ,.Gs.la thea in fagra“ eftir Franz von Suppé (Elisabth Roon, Waide- mar Kmentt, Kurt Preger og Otto Wiener syngja með xór og hljómsveit Ríkisóperunnar í Vín arborg. Stjórnandi: Anton Paul-» ik. Jón n. Kjartansson kynnir verkið). 23:30 Dagskrárlok. Laugardagur 20. janúar 8:00 Morgunútvarp (Bæn — 8:05 Morg unleikfimi — 8:15 Tónleikar 8:30 Fréttir — 8:35 Tónleikar 9:10 Veðurfregnir — 9:20 Tónl.). 12:00 Hádegisútvarp (Tónleikar. — 12:25 Fréttir og tilkynningar). 12:56 Óskalög sjúkilnga (Bryndís SigUT jónsdóttir). 14:30 Laugardagslögin. (15:00 Fréttir) 15:20 Skákþáttur (Ingi R. Jóhannsson) 16:00 Veðurfregnir, — Bridgetþáfctur (Hallur Símonarson). 16:30 Danskennsla (Heiðar Ástvalda* son). 17:00 Fréttir. — Þetta vil ég heyra: Ey jólfur Haraldsson stud. med. vel ur sér hljómplötur. 17:40 Vikan framundan: Kynning á dag skrárefni útvarpsins. 18:00 Útvarpssaga barnanna: ,Nýja heimilið“ eftir Petru Flagestad Larssen; II. (Benedikt ArnkeJs- son). 18:20 Veðurfregnir. 18:30 Tómlistarþáttur barna og ungl« inga (Jón Pálsson). 18:55 Söngvar í léttum tón. 19:10 Tilkynningar — 19:30 Fréttir, 20:00 Léttir kvöldtónleikar: a) Karlakórinn Fóstbræður syngja þrjú bandarísk lög. Söngstjóri: Ragnar Björnsson, Einsöngvarar: Kristinn Halls* son, Erlingur Vigfússon og Gunnar Kristinsson. Píanóleilc ari: Carl Billich, b) . Capitöl sinfóníuhljómsveitin leikur bandarísk hljómsveitar lög; Carmen Dragon stj. 20:30 Leikrit: „Tanja” eftir AlekseJ Arbuzoff. Höfundur útvarpshand rits: David Tutajev. Þýðandij Halldór Stefánsson. — Leikstjórij Baldvin Halldórs. Leikend: Helga Bachmann, Helgi Skúlason, F3osi Ólafsson, Helga Valtýsdóttir, Jón Sigurbjörnsson, Jóhanna Norð« fjörð, Nína Sveinsdóttir, Anna Guðmundsdóttir, Þorsteinn Ö, Stephensen og Jóhann Pálsson* 22:00 Fréttir og veðurfregnir. 22:10 I>orradans útvarpsins: M.a. leik« ur hljómsveit Guðmundar Finn^ bjömssonar fyrir dansinum ný íslenzk lög. Söngfólk: Huda Em ilsdóttir og Sigurður Ólafsson, 02:00 Dagskrárlok. Hann vann / HafifuýuEtti HÁSKÓLANS

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.