Morgunblaðið - 19.01.1962, Qupperneq 20
Fréttasímar Mbl.
— eftir lokun —
Erlev.tlar fréttir: 2-24-85
Inniendat fréttir: 2-24-84
ísafjörður
Sjá bls. 11.
15. tbl. — Föstudagur 19. janúar 1962
IVfikinn leka
setti að
Eyjabát
Vestmeyjum í gserkvöldi.
MÓTORBÁTURINN Kári VE
47, 63 lestir, var á línuveið-
um í dag um þrjár sjómílur
vestur af Geirfuglaskeri. Um
það bil er skipsmenn voru
að ljúka við að draga lín-
una síðdegis í dag, urðu'
þeir varir við að mikill leki
var kominn að bátnum, og
Jþað svo, að vélin stöðvaðist
af sjó. Var þegar kallað á
hjálp og fór hafnsögubátur-
' ,inn Lóðsinn þegar á vett-
• vang. Rétt áður en Lóðsinn
kom að bátnum hafði báts-
verjum tekizt að stöðva lek-,
ann, og reyndist orsökin vera
sú, að rör við botnkranann,
' hafði brotnað. Lóðsinn tók
j IKára í tog og er um það bil
að koma til Eyja. — Björn.'
En^inii bátur
liafði kastað
AKRANESI 18. jan — Margir
hringnótabátanna eru vestur á
Jökuldjúpi að leita fyrir sér í
ágætu veðri. Sumir eru suður
í Miðnessjó. en þar er austan
kaldi. Á hvorugum staðnum
hafa bátarnir kastað enn kl.
10:45 í kvöld. — Línubátarnir
sjö sem á sjó voru i dag fiskuðu
fra 1200 kg upp í tæp fimm
tonn. Ásmundur var aflahæstur.
— Oddur.
Unnið að þéttingu
Skjaldbreiðar
Skipinu siglt til Rvíkur
Allar vörur, sem brotnuðu og
skemmdust í iest skipsins, fara
með því til Reykjavíkur. Hins-
vegar var skreiðarhjallaefni, sem
skipið flutti. skipað upp í Stykk-
ishólmi, þar sem það verður
geymt fyrst um sinn. — Enginn
póstur eyðilagðist, en hinsvegar
allar vörur, sem voru í lest. Eitt-
hvað mun hafa farið útbyrðis af
hjailaefnmu, en þó minna en
ástæða hefði verið til að ætla.
— Fréttaritari
Stykkishólmi, 18. janúar
KAFARI hefur unnið að þéttingu
Skjaldbreiðar í dag. Hefur hann
gert við marga leka staði á
skipinu að utan, en þó er gert
Þdrður stóð einn
á borgarstjórnarfundi
Á borgarstjórnarfundi í
gær urðu skemmtilegar um-
ræður um tillögu, sem Þórð-
ur Björnsson, fulltrúi Fram-
sóknarflokksins, flutti um
lækkun tryggingariðgjalda
húseigenda og greiddi að lok-
um atkvæði einn.
Skjól Valborgar!
Þórður Björnsson benti á það,
að síðan bærinn tók húsatrygg-
ingar í sínar hendur 1954, hefði
Húsatryggingarsjóður efnazt
verulega og ætti nú 22 millj. kr.
Ætti því að vera unnt að lækka
tryggingariðgjöld, og hljóðaði
Cóð færð um
Kerlingarskarð
Stykkishólmi, 18. jan. — Ágætt
veður var hér í dag, sólskin og
tveir bátar á sjó. Eru þeir enn ó-
komnir að landi. — Ágætis færð
er nú í Kerlingarskarði, og kom-
ast fólksbílar þar jafnvel yfir
keðjulaust.
Unglingar óskast til að bera
blaðið til kaupenda í eftir-
talin hverfi:
Fjólugötu
Hávallagötu
Víðimel
Hafið samband við af-
greiðsluna, simi 2-24-80.
ráð fyrir að hann þyrfti að fara
niður einu sinni enn til þess að
ljúka verkinu.
í nótt verf.ur unnið að því að
steypa í nfur og göt að innan-
verðu og er það gert með sjó-
sementi og frostvarnarefni. Er
gert ráð íyrir að framkvæmdum
ljúki á morgun, ef ekkert nýtt
kemur fram, sem engin ástæða
er til að ottast eins og sakir
standa, enda hugmyndin að reyna
að koma skipinu til Reykjavíkur
sem allra fyrst.
tillaga hans um 2ja millj. kr.
lækkun heildariðgjalda.
Geir Hallgrímsson borgarstjóri
benti á, að hvergi í tillögunni
kæmi fram, hvernig þeirri
lækkun ætti að vera varið, hvort
endurgreiða ætti tryggingarið-
gjöld síðasta árs eða lækka þau
í ár o. s. frv. En hitt væri þó
athyglisverðara, að hinn 2. nóv.
1961 hefði borgarstjórn einróma
samþykkt tryggingariðgjöld yf-
irstandandi árs, þar á meðal
með atkvæði varafulltrúa Fram-
sóknarflokksins, Valborgar
Bentsdóttur. Hefðu iðgjaldaseðl-
ar þegar verið sendir öllum
húseigendum í bænum, en Þórð
ur Bjömsson lét sér fátt um
þessar upplýsingar finnast og
kvaðst því miður ekki hafa ver-
ið á landinu 2. nóv. og bætti
við:
„Er þá fokið í flest skjól, þeg-
ar háttvirtur borgarstjóri vill
skýla sér á bak við Valborgu
Bentsdóttur"!
A Iðgjöld Iægst í Reykjavík
I ræðu sinni benti Geir Hall
grímsson, borgarstjóri á það, að
áður en bærinn tók tryggingarnar
j eigin hemlur hefðu tryggingar-
iðgjöld verið að meðaltali 1,3%^.
Þau hefðu síðan farið lækkandi
Og væru nú 0.93%o að meðaltali.
Iðgjöidin væru miklu lægri en í
B'ramh. á bls. 19.
Nýr forsetaritari
HINN 16. janúar sl. var Þorleif-
ur Thorlacius, deildarstjón í ut-
anríkisráðune> tinu skipaður for-
setantari frá 15. s.m. að telja, i
stað Haraldai Kröyer, sem tek
ur við öðru starfi.
Bóklineigður
þjófur
f FYRRINÓ’FT var brotizt inn I
bókaverzlunina Sögu að Lang-
holtsvegi 51. Stolið var nokkur
hundruð Krónum í peningum,
nokkru af bókum og loks nokkr-
um hringum
Ók á moldarbmg
UM hálf tvöleytið í gær varð það
óhapp á Lönguhlíð við mót
Skaftahlíðar, að maður, sem þar
var á ferð á bíi sínum, blindaðist
af sólinni og ók á moldarbing með
þeim afleiðingum að bíllinn
skemmdist töluvert. Er þetta að-
vörun til ökumanna að fara var-
lega á meðan sól er lágt á lofti.
MBL. átti tal við Guðjón Teits-
son, forstjóra Skipaútgerðar rík-
isins í gærkvöldi. Sagði hann að
vonir stæðu til að hægt yrði að
sigla Skjaldbreið með eigin vél-
arafli til Reykjavíkur í dag. —
Sennilega yrði þó fylgdarskip
með í förinni til öryggis.
ÞESSI mynd var tekln er
varðskipið ÞÓR kom með
SKJALDBREIÐ við síðuna
inn til Stykkishólms. Unnið
hefur veri® að þéttingu
strandferðaskipsins og «r ráð
gert að því verði siglt til
Reykjavíkur í dag. (Ljósm.
Árni Helgason).
Neptunevélin
ófundin enn
LEITINNI að bandarisku Nep-
tune flugvélinni var haldið áfram
í gær, en ám árangurs. Leitað
var með ströndum Grænlands og
ennfremur leituðu gæzluflugvél-
in Rán og varðskipið Óðinn að
hinni týndu flugvél. Leitinni verð
ur enn haldið áfram í dag.
braut
símastaura
Veglr tepptust í IMýrdal
VÍK, 18. jan. — 1 byrjun vik-
unnar gekk yfir ofsaveður hér.
A laugardag var tekið allmikið
að hvessa og rigndi talsvert.
Stormurinn fór vaxandi á
sunnudag, og þá kólnaði og und-
ir kvöld tók að snjóa. Seint
um kvöldið var komið ofsaveð-
ur með mikilli snjókomu. Á
mánudagsmorgun voru komnir
Valið
My
í hlutverk
Fair
NÚ eru æfingar um það bil
að hefjast í Þjóðleikhúsinu á
bandaríska söngleiknum My Fair
Lady. Leikstjórinn, Svend Aage
Larsen, sem er danskur, kom
hingað til landsins síðastliðinn
þriðjudag og mun hann taka til
staría einhver næstu daga. Að
vísu hefir hljómlistin, texti og
fleira verið æft um alllangt skeið.
Þá er von á Erik Bidsted á næst-
unni, en hann á að æfa dansana.
Miklar bollaleggingar hafa ver-
ið um það hver fara á með aðal-
Lady
hlutverkið, Elízu Doolittle, í leikn
um og ýmis nöfn nefnd. Nú hef-
ir endanlega verið ákveðið að það
verði annað hvort Valgerður dótt
ir Einars Kristjánssonar söngvara
eða Snæbjörg Snæbjarnardóttir.
Með önnur veigamestu hiutverk-
in fara Rúrik Haraldsson, sem
leikur Henry Higgins, Ævar
Kvaran Alfreð B. Doolittle og
Róbert Arnfinnsson Piokering.
My Fair Lady mun verða til-
búin til flutnings í marz og verð-
ur mannflesta sýning, sem hér
hefir verið sett upp.
skaflar um allt þorpið og veglr
frá því ófærir með öllu. Einnig
var rafmagnslaust í hluta af
þorpinu lengst af á mánudaginn.
Skóli féll niður þann dag, enda
varla komandi út fyrir veðri.
Nokkrar járnplötur fuku af
einu húsi í þorpinu og bilanir
urðu á rafmagnsheimtaugum i
tveimur húsum. Þá slitnaði víða
niður útvarpsloftnet. Strax á
þriðjudag tók veðrið að ganga
niður og í gær var komið gott
veður. Þjóðvegurinn út í Mýr-
dal var ruddur strax á þriðju-
dag, en ennþá er ófært austur
Mýdalssand nema á trukkum
með tvöföldu drifi.
1 óveðrinu urðu miklar
skemmdir á símalínum. Munu
að minnsta kosti 30 símastaurar
hafa brotnað í Mýrdal. í gær,
miðvikudag, hafði bráðabirgða-
viðgerð farið fram, en fullnað-
arviðgerð mun taka nokkurn
tíma. Símasambandslaust er
austur yfir Mýrdalssand og bil-
unin ófundin enn.
Hér er nú mjög vetrarlegt um
að litast. girðingar víða á kafi
í snjó, og skaflar á annan meter
á þykkt. Ekki mun snjókoman
hafa náð yfir nema austurhluta
Mýrdalsins og austur á Mýr-
dalssand. —■ Jónas.