Morgunblaðið - 25.04.1962, Side 3
MiðviKudagur 25. apríl 1962
MORGVNnr JIÐIÐ
3
jinn fljúgandi“
om á skírdag
;
A SUMARDAGINN fyrsta
hafnaði togarinn Karls-
efni sig hér við Faxagarð
í hópi hinna mörgu, sem
nú liggja við landfestar
sökum verkfallsins.
Menn voru í spaugi farnir
að nefna togarann „drauga-
skipið'* og líktu Halldóri
skipstjóra Ingimarssyni við
„Hollendinginn fljúgandi",
því ógerningur var að hafa
samband við skipið. Ekki
leiddi það þó til neinna
skiptapa þótt Karlsefni bæri
fyrir á miðunum, sem fyrir
kom nokkrum sinnum, líkt
og þegar hinn fljúgandi Hol-
lendingur leið um höfin.
Menn bjuggust við hátíð-
legri viðhöfn er þetta glat-
aða skip kæmi til hafnar,
enda var mikill fjöldi fó'lks
á bryggjunni. Hitt höfðu
menn grun um að leynt ætti
að fara þegar „syndaselur-
inn“ tæki höfn.
Ekki kom þó til fólkorr-
ustu né neinna grimmilegra
átaka, þótt „stórlaxar“ sjó-
mannafélagsins og Dagsbrún-
ar væru mættir á staðnum.
Einhver frómur maður
tjáði okkur að þriðjungur
skipsmanna væru félagsmenn
í Dagsbrún, þriðjungur í
sjómannafélaginu og þriðj-
Forvígismenn Sjómannafélags Reykjavíkur ræða við trún-
aðarmann félagsins (með hattinn) um borð í Karlsefni.
(Ljósm. Mbl.: Ól.K.M.)
Nýi björgunarbáturinn á bátadekki Karlsefnis.
ungur ófélagsbundinn. Út-
gerðarstjórinn tjáði okkur
hins vegar að ekki stæði á
því hjá félögunum að inn-
heimta gjöld skipverja og
taldi hann því að þeir myndu
að minnsta kosti gjaldskyld-
ir hvort sem þeir væru að
öðru leyti félagsmenn eða
ekki. í>að vill eins og kunn-
ugt er vera allur gangur á
þeim réttindum er til kosn-
inga kemur.
★
Þeir Jón Sigurðsson og
Pétur Sigurðsson, stjórnar-
menn í sjómannafélaginu,
tóku trúnaðarmann félagisins,
sem er bátsmaður á skipinu,
tali er þeir voru komnir um
borð og boðuðu skipsmenn á
sinn fund. Ekki er okkur
kunnugt um hvaða niður-
staða hefur orðið af þeim
fundi. Þeir Eðvarð Sigurðs-
son og Guðmundur J. Guð-
mundsson fóru einnig á
fund sinna manna.
Guðmundur sagði okkur í
óspurðum fréttum að tveir
Dagsbrúnarmenn væru um
borð. Hins vegar hafði hann
aðaláhuga á að segja okkur
Mbl.-mönnum að það hefði
verið lágkúrulegt af okkur
að geta þess í fréttinni um
sölu skipsins, sem var met-
sala, að hlutur háseta af söl-
unni hefði verið 15 þúsund
krónur. Við veltum því fyrir
okkur hvort fjölskyldum þess
ara sjómanna finnist þá ekki
lágkúrulegt að nota þessa
peninga sér og sínum til
framdráttar meðan fyrirvinn-
urnar hafa ekki annað fyrir
stafni en bíða þess að skipin
verði leyst á ný.
★
Næst héldum við upp í brú
togarans og hittum þar skip-
stjórann, Halldór Ingimars-
son, og útgerðarstjórann,
Ragnar Thorsteinsson. Hall-
dór sagði að ekkert væri um
þessa ferð _að segja, annað en
skipverjar hefðu verið henni
allir samþykkir, annars hefði
hún ekki verið farin.
Útgerðarstjóri vildi bjóða
blaðamönnum veitingar um
borð í skipinu, en Halldór
mótmælti því. Við gátuyn
okkur þess til að hann myndi
hafa verið búinn að fá nóg
af skeytunum, sem við létum
rigna yfir hann meðan hann
var í hinni dularfullu veiði-
för.
Síðast skoðuðum við hinn
glæsilega björgunarbát, sem
nú hefur verið komið fyrir á
bátadekkinu og er það hinn
þekkilegasti gripur.
Þannig fór um sjóferð þá.
mtmmvmmi « niV|
Rússneskir listamenn
í Austurbæjarbíói
Tveir stjórnarmenn Dagsbrúnar og formaður Sjómanna-
félags Reykjavíkur ganga um borð.
SKRIFSTOFA skemmtikrafta
efndi til skemmtunar í Austur-
bæjarbíói sl. sunnudagskvöld,
þar sem eingöngu komu fram
ungir rússfleskir listamenn, þeg-
ar frá er talinn kynnirinn, sem
er rammíslenzkur, eða nánar til-
tekið hinn vinsæli fyrrv út-
varpsþulur Pétur Pétursson.
Skemmtiatriðin voru 12 og skipt-
ist þar á söngur og dans og
hljóðfæraleikur. Hófst skemmt-
unin með einleik á píanó. Er
píanóleikarinn ungur maður,
Sergey Schrynchenko. Lék hann
fjrrst þrjú lög, meðal þeirra
Fantasía Impromtu eftir Chopin
og svo aukalag Arabeske eftir
Schumann. Var leikur þessa
unga listamanns mjög athyglis-
verður. — Þá dansaði ballett-
dansmærin Nelly Navassardova
frá Stanislavsleikhúsinu í
Moskvu tilbrigði úr ballettinum
„París brennur". Ennfremur
dansaði hún ásamt Khadsinsel
Varsyen armenískan dans. Voru
þessir dansar mjög skemmtilegir
og stígnir af mikilli list Ein-
söngvarar voru Maja Kochan-
ova, Kalusatur-Sopsan frá Stan-
islavsleikhúsinu og bas-baryton-
söngvarinn Borris Masoun frá
Fílharmoníufélagi Novosibrisk.
Söngkonan er mjög ung, líklega
innan við tvítugt og hefur
Koluratur-sönginn alveg furðu-
lega á valdi sínu. Hins vegar
tókst henni ekki eins vel í til-
brigðalausum söng, t. d. Ave
Maria Schuberts. Masoun hefur
fallega og þróttmikla rödd: og
flytur lögin með svipbrigðum og
látbragði eftir því sem við á.
Er sjaldan að slíkt sést hér, því
að okkar ágætu menn eru oftast
óþarflega „stífir" einsöngvarar.
Framh. á bls. 13.
STAKSTEIiVAR
Öllu snúíð öfugt
Tíminn birtir á sumardaginn
fyrsta forystugrein um störf síð
asta Alþingis og kemst þar m. a.
að orði á þessa leið:
„Gengismálin voru aðalmál ^
þingsins og settu mestan svip á
það. Að vísu hafði þingið mörg
önnur mál til meðferðar, en nær
öll fjölluðu um minniháttar
breytingar á eldri lögum, eins
og t. d. aðstöðugjald í stað veltu
útsvarsins. Engin meiriháttar
umbótamál voru tekin til af-
greiðslu“.
I þessum orðum aðalmál-
gagns Frair.sóknarf lokksins er
öllu snúið öfugt. Því fór víðs
fjarri, að gengismálin settu
mestan svip á síðasta þing. Það
voru hin fjölmörgu umbótamál,
sem ríkisstjórnin og stuðnings-
menn hennar beittu sér fyrir,
sem fyrst og fremst mótuðu svip
mót þessa þings. í umræðunum
um gengismálin sannaðist það,
svo að eigi varð um villzt, að
gengisbreytingin sl. sumar var
óhjákvæmileg afleiðing af hin-
um miklu kauphækkunum, sem
Framsóknarmenn og kommún-
istar beittu sér þá fyrir. Leið-
togar stjórnarandstöðunnar ját-
uðu það hreinlega, að kaup-
hækkanirnar hefðu stöðvað út-
flutningsfram.leiðsluna, ef ekki
hefðu komið til jafnvægisráð-
stafanir ríkisstjórnarinnar.
Vinstra samstart
Enda þótt meiri glundroði og
upplausn ríki í röðum hinna
svokölluðu vinstri flokka en
nokkru sinni fyrr, hefur þeim
þó tekizt að komast að sanv
komulagi um sameiginleg fram-
boð á einstökum stöðum úti um
land. Á nokkrum stöðum eru
Framsknarmenn og kommúnist-
ar í náinni samvinnu og á
öðrum hafa Framsóknarmenn,
kommúnistar og Alþýðuflokkur
inn náð samkomulagi um sam-
eiginlega lista.
Mörgum mun finnast harla
einkennilegt að sjá Alþýðuflokk
inn í sálufélagi við kommúnista
og Franvsóknarmenn á einstök-
um stöðum í þessum bæjar-
stjórnarkosningum. — Reynsla
hans af vinstra samstarfinu á
tíma vinstri stjómarinnar var
sannarlega ekki glaísileg. —
Vinstra samstarfið var nærri
þvi búið að ganga að Alþýðu-
flokknum dauðum. Hér í
Revkjavík var fylgi hans komið
niður í 2800 atkvæði í síð-
ustu bæjarstjórnarkosningum,
og hann fékk aðeins einn bæjar-
fulltrúa kjörinn. Einu sinni átti
Alþýðuflokkurinn sex bæjar-
fulltrúa í Reykjavík.
Alþýðuflokkurlnn
hætti við að deyja
En um leið og Alþvðuflokk-
urinn losnaði við vinstra sam-
starfið og sá.lufélagið við komm
únista og Framsókn, stórjókst
fylgi hans í höfuðborginni. Hann
hætti við að deyja. Það sást
greinilegast af Alþýðukosningun
um, bæði sumarið 1959 og i
haustkosningunum það ár.
Á stöku stöðum úti á Iandi
virðast Alþýðuflokksmenn ekki
hafa gert sér ljósa þá hættu,
sem samstarfið við kommúnista
hefur í för með sér fyrir flokk
þeirra. En um það þarf ekki að
fara í neinar grafgötur, að yfir-
gnæfandi meirihluti fólks í Al-
þýðuflokknum fyrirlítur koirm-
únista og hefur hina mestu and-
úð á allri samvinnu við þá.
Mikill fjöldi Alþýðuflokksfólks
hefur einnig ríka andúð á
Framsóknarflokknum, enda er
reynsla Alþýðuflokksmanna af
samstarfi við hina gömlu mad-
dömu ekki glæsileg.