Morgunblaðið - 25.04.1962, Síða 10
10
MORGUNBL AÐIÐ
M'fivikudagur 25. apríl 1962
«
í
í
I
í
f
I
i
' I
i
f
f
f
f
f
f
f
f
í
í
f
í
í
f
i
I
i
f
f
f
f
i
f
f
f
f
Ollum veitt úrlausn
Spjallað við Ragnar Lárusson um
starísemi Ráðningastofu Reykja-
víkurborgar
MARGIR halda, að á þess-
um tímum nægrar atvinnu
til lands og sjávar, þá hafi
hin merka stofnun, sem
nefnd er Ráðningastofa
Reykjavikurborgar, ekki frek
ari verkefni. Þetta er mikill
misskilningur, eins og blaða-
manni Mbl. varð ljóst, þegar
hann hafði rætt dálitla stund
við forstöðumann stofnunar-
innar, Ragnar Lárusson.
— Við útvegum fólki
vinnu, sem skiptir um vinnu-
staði, sagði Ragnar, — útveg-
um sumarvinnu og aukastörf,
þegar tímabundið atvinnu-
leysi herjar vissar starfs-
greinar og greiðum fyrir
fólki, sem ekki er fullkom-
lega vinnufært. Þd útvegum
við vinnukraft og er mikið
leitað til okkar um útvegun
á vinnufólki. Við sjáum um
ársfjórðungslega atvinnuleys-
isskráningu samkvæmt lög-
um og gefum út vottorð
vegna atvinnuleysistrygginga.
FJÖLÞÆTX VERKEFNI
Ráðningastofan var opnuð
étrið 1934. Fyrsti forsitöðumað
ur hennar var Gunnar E.
Benediktsson, hæstaréttarlög-
maður, og gegndi hann því
starfi til dauðadags, árið
1955. Þá tók núverandi for-
stöðumaður við stjórn stofn-
imarinnar.
Ráðningastofan starfar sam
lcvæmt lögum um vinnumiðl-
un frá 1956. í>ar segir m. a.
að í hverjum kaupstað og
kauptúni með meira en 300
íbúa skuli starfrækt vinnu-
miðlun og skuli viðkomandi
sveitarstjórn annast hana.
Jafnframt er almenn vinnu-
miðlun í ágóðaskyni bönnuð
með lögunum.
Hluiverk Ráðningastofnunn
ar er að veita verkamönnum
aðstoð við að finna vinnu við
sitt hæfi og atvinnurekendum
við að fá hæfa verkamenn,
hvort tveggja án endur-
gjalds. Að miðla vinnu milli
verkamanna um land allt,
eftir því sem unnt er. Að
veita öryrkjum og unglingum
aðstoð við að finna vinnu við
sitt hæfi. Að úthluta atvinnu-
bótavinnu og fylgjast .með
atvinnuháttum með söfnun
gagna um þau mál. Að veita
opinberum stofnunum og fé-
lögum launþega og atvinnu-
rekenda upplýsingar um
ástandið á vinnumarkaðinum.
Að annaet atvinnuleysis-
skráningu og útgáfu vottorða
um atvinnu eða atvinnuleysi
vegna ráðninga til annarra
starfa og vegna atvinnuleysis
trygginga.
GOTT ATVINNUÁSTAND
Ráðningastofu Reykjavíkur-
borgar er skipt í karla- og
kvennadeild og starfa þar
tveir karlmenn og tvær kon-
ur. Stofan er nú til bráða-
birgða til húsa í Tjamargötu
11, en mun flytja á næstunni
í hið nýja verkamannahús við
höfnina.
Eins og ég hef nefnt, þá
bæði útvegum við verka-
mönnum vinnu og atvinnurek
endum vinnukraft, sagði
Ragnar Það er ekki minna
að gera við hið síðarnefnda.
Þetta sýnir
nauðsynina á
því, að Signal
innihaldi hvort
tveggja í senn
ríkulegt magn
hreinsunar-og
rotvamarefna í
hverju rauðu striki
Ferskur og hreinn andardráttur er
hverjum manni nauðsynlegur. Það
er þess vegna, að Signal tannkremið
inniheldur hreinsandi munnskol-
unarefni—sem gerir munn yðar
hreinan. Munnskolunarefnið er í
hinum rauðu rákum Signals-
rákum, sem innihalda Hexachloro-
phene hreinsunarefni. Signal gerir
meira en að halda tönnum yðar
mjallahvítum, þaÖ heldur einnig
munni yöar hreinum.
y
Signal heldur
munni yéar hreinum
X-SIG «/IC-SU5
Atvinnuástandið er svo gott,
að ekki er mikið af útvegun
á atvinnu, þó er það tölu-
vert. Þetta er fólk, sem er að
flytja á milli vinnustaða og
slíkir flutningar eru aldrei
meiri, en þegar atvinnuástand
ið er mjög gott. Þá eru það
þeir, sem verða fyrir tíma-
bundnu atvinnuleysi, sumar-
vinna, störf fyrir fatlað og
sjúkt fólk og margt fleira.
EKKERT ATVINNULEYSI
GREIÐAR ÚRLAUSNIR
— Þið standið fyrir at-
vinnuleysisskráningu fjórum
sinnum á ári?
— Jú, við gerum það, sagði
Ragnar, ég er hérna með
nokkrar tölur, ef þú kærir
þig um. Tökum t. d. árið
1961. í febrúar voru 8 karlar
atvinnulausir, en engin kona.
í maí, enginn, í ágúst, eng-
inn og í nóvember, enginn.
— Hvað leituðu margir til
ykkar sl. ár?
— Við skulurn sjá, 1961
bárust okkur 3552 vinnuum-
sóknir frá körlum og konum,
mest voru þetta verkamenn
og vörubílstjórar og konur
til ýmissa starfa. Þá einnig
sjómenn, verzlunarmenn,
kennarar, skipstjórar o. s.
frv. Kennarinn og skipstjór-
inn voru t. d. ekki að leita
að vinnu í starfsgrein sinni,
kennarann vantaði sumar-
vinnu og skipstjórinn hafði
áhuga á húsvarðarstöðu. Við
réðum 3484 í ýmsa vinnu, en
hinir 70 gengu úr af ýmsum
ástæðum, flestir höfðu sjálfir
fengið atvinnu.
— Því minna sem þið haf-
ið að gera, þeim mun betra
er atvinnuástandið í þjóðfé-
laginu, segjum við við Ragn-
Axel Guðmundsson, sem
verið hefur starfsmaður
Ráðningastofunnar um ára-
bil.
— Það þarf alls ekki að
vera, segir Ragnar Lárusson
að lokum. Það er fjöldi
þeirra, sem við getum ekki
veitt úrlausn og sá tími, sem
menn verða áð bíða eftir úr-
lausn, sem gefur ástandið til
kynna. Nú í langan tíma höf-
um við getað veitt öllum úr-
lausn á mjög stuttum tíma.
Tilboð óskasf
t
í nokkrar fóiksbifreiðir er verða sýndar í Rauðar-
árporti fimmtudagitm 26. þ.m kl. 1—3. Tilboðin
verða opnuð t skrifstofu vorri kl. 5 sama dag.
Sölunfend varnarliðseigna.
TIL SÖLU
4ra herb. íbúð
efri hæð og rishæð í steinhúsi á hitaveitusvæðl í
Austurbænum. Laus strax. Hagkvæmt verð og væg
útborgun.
Nýja fasteignasalan
Bankastræti 7 — Sími 24300
og kl. 7,30—8,30 e.h. Sími 18546.