Morgunblaðið - 25.04.1962, Page 12
12
MOFCUNBT 4T>1Ð
MiSvikudágur 25. apríl 1962
Otgeíandi: H.l. Arvakur. Reykjavik.
Framkvaemdastjóri: Sigfús Jónsson.
Ritstjórar: Valtýr Stefánsson (áPm.)
Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Auglýsingar: Arni Garðar Kristinsson.
Útbreiðslustjóri: Sverrir Þórðarson.
Ritstjórn: Aðalstræti 6.
Augiýsingar og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 22480.
Askriftargjald kr. 55.00 á mánuði innanlands.
1 lausasðlu kr. 3.00 eintakið.
BROSLEGAR
BOLLALEGGINGAR
t’ðlilegt er, að framboðs-
^ listi Sjálfstæðisflokksins
við borgarstjórnarkosning-
arnar vekji meiri athygli en
listar annarra flokka. Þess
vegna var við því að búast,
að andstöðublöð borgarstjórn
armeirihlutans ræddu um
framboðslista Sjálfstæðis-
flokksins. Það gerðu þau öll
rækilega á skírdag.
Öll höfðu blöðin ítarlegar
„upplýsingar" að flytja les-
endum sínum um lista Sjálf-
stæðisflokksins og skelfilega
„ólgu hjá íhaldinu“.
Það er mikið vandaverk að
stilla upp borgarstjómarhsta
Sjálfstæðisflokksins. Svomik
ill fjöldi ágætismanna kem-
ur þar til greina, að hægt er
að stilla upp mörgum listum,
sem ef til vill væru jafngóð-
ir og sá, sem endanlega er
ákveðinn, eins og Bjami
Benediktsson, dómsmálaráð-
herra, benti á í ræðu í full-
trúaráði Sjálfstæðisfélag-
anna. Þess vegna höfðu Sjálf-
stæðismenn nokkum áhuga á
að sjá hvað andstæðingamir
helzt mundu reyna að gagn-
rýna.
Alþýðublaðið, Tíminn og
Þjóðviljinn ræða öll sérstak-
lega um hlut einnar stéttar,
þ.e.a.s. kaupmanna. Málflutn
ingurinn er þó broslega ósam
ræmdur. Eitt blaðið segir:
„Það er athyglisvert, að
enginn kaupsýslumaður eða
atvinnurekandi er í öruggu
sæti á lista íhaldsins að þessu
sinni.“
Annað blað segir:
„Þeir, sem annars skipa
lista íhaldsins, eru margir ný
liðar þar, en það stingur sér-
staklega í augu, hve kaup-
menn eiga þar nú marga full
trúa.“
Eitt blaðið segir:
„Var mikil ólga meðal í-
haldsmanna í gær út af list-
anum, einkum meðal kaup-
sýslumanna ....“
Annað blað talar um „auk-
in áhrif heildsala og kaup-
manna“.
Segja má að vangavelturn-
ar um kaupmennina sé mee-
inuppistaðan í fregnum allra
blaðanna, svo að gagnrýnin
er ekki sem haldbezt. Auk
þess er svo rætt um þá borg-
arfulltrúa Sjálffstæðisflokks-
ins, sem nú hætta, og skyndi-
lega njóta þeir sannmælis á
síðum andstöðublaðanna. Þau
tala nú um menn, sem „kunn
ugastir voru borgarmálefn-
um“, borgarfulltrúa sem
„naut verulegt (svo) traust“;
annar er „allvinsæll maður“
og enn einn „góður fulltrúi í
bæjarstjóm.“
Fyrir fjórum árum hefði
það þótt saga til næsta bæj-
ar, ef andstöðublöðin hefðu
gefið frambjóðendum Sjálf-
stæðisflokksins þær einkunn-
ir, sem að framan getur, en
þær eru góðra gjalda verð-
ar, þó síðbúnar séu.
4°/o 1. JÚNÍ
IT'ins og kunnugt er verður
almenn 4% launahækk-
un eftir rúman mánuð eða
1. júní. Er þar um að ræða
raunhæfar kjarabætur, því
að ekki er gert ráð fyrir
hækkandi verðlagi af þessum
sökum sem neinu nemi.
Yfirleitt þykir gott, efkjör
geta batnað um 2—3% ár-
lega. 4% almenn hækkun er
því áreiðanlega það mesta,
sem hættandi er á, án þess
að efnahagslífið fari úr skorð
um. Hins vegar er talið unnt
að bæta eitthvað meira kjör
einstakra starfshópa, enda
hefur rikisstjómin heitið því
að beita áhrifum sínum til að
þeir verkamenn, sem lægst
hafa laun, fái eitthvað meiri
hækkun.
Nýlega örlaði fyrir skyn-
semi í umræðum kommún-
istablaðsins um kaupgjalds-
mál. Þá stóð þar eftirfar-
andi:
„Það er rétt hjá Morgun-
blaðinu, að ef um árlegar
kjarabætur væri að ræða,
mundu þær ekki geta numið
hárri hundraðstölu hverju
sinni.“
Enginn efi er á því, að
Jaunþegum væri fyrir beztu
að ekki yrðu gerðar tilraun-
ir til að Jmýja fram almenn-
ar kauphækkanir umfram
þau 4%, sem fást 1. júní.
Hins vegar á að fylgjast
rækilega með þróun efna-
hagsmála og tryggja laun-
þegum frekari hækkanir, þeg
ar þjóðarframleiðslan leyfir.
Ætti þá að mega gera ráð
fyrir árlegum hækkunum,
sem næmu frá 2—4%, en
meiri hækkanir þolir ekkert
efnahagskerfi.
Sem betur fer skilja nú
orðið allir þessar augljósu
staðreyndir og hin tilvitnuðu
orð í kommúnistablaðinu
sýna, að jafnvel kommúnist-
ar treystast ekki lengur til
að neita þessum staðreynd-
um.
Bannfærð
MÁNU-DAGINiN 16. apríl sl. var
lasin upp fyrir fréttamönnum og
fleirum í New Orleans tilkynn-
ing frá hinum rómversk ka-
þólska biskupi borgarinnar,
Joseph Francis Rummel þess
efnis, að hann hefði ákveðið að
'beita þrjá borgara New Orleans
hinni þyngstu refsingu kaþólsku
kirkjunnar, — bannfæringu.
Boirgararnir þrír, Leander. H.
Peres, Jackson G. Ricau og frú
Uara Gaillot hafa allir barizt
harðlega gegn þeirri ákvörðun
kaþólsku kirkjunnar að veita
negrum jafnan aðgang að skól-
um kaþólskra sem hvítum.
Með bannfæringu er þeim ó-
heimilt að sækja guðsþjónustur
kaþólskra, þeim verður ekki
veitt sakramenti og hljótá ekki
greftrun að hætti kaþólskra.
öll hafa þau lýst því yfir, að
þau muni halda áfram að berjast
fyrir kynþáttaaðskilnaði, — þau
hafa vísað málinu til Páfa en
talsmaður hans lýsti stuðningi
páfastóls við ákvörðun erki-
biskupsins. Rummel hefur verið
erkibiskup í New Orleans í 27
ár, og er þetta í fyrsta sinn, sem
hann beitir bannfæringu.
Frú Gaillot hefur vakið mesta
athygli þeirra þremenninga. Hún
er forystukona fámenns félags
í New Orleans, sem gengur und-
ir nafninu „Bjargið þjóðinni".
Stefnumið þess félags eru að
berjast fyrir aðskilnaði kyn-
þátta, berjast gegn Sameinuðu
iþjóðunum og aðstoð við erlend
tríki og loks að berjast gegn
kommúnisma. Ekki er vitað
hversu margir fylgismenn frú
Gaillot eru, sumir segja 15—20,
aðrir, að þeir séu fleiri.
Daginn eftir bannfæringuna
kom hún til biskups, varpaði sér
á kné fyrir framan hann og bað
hann veita sór náð, — og bað
TILRAUN OFNA-
SMIÐJUNNAR
TTér í blaðinu var nýlega
skýrt frá tilraun þeirri,
sem gerð hefur verið í Ofna-
smiðjunni til að tryggja
starfsmönnum hærri laun og
styttri vinnutíma. Er þar um
að ræða kaupuppbót fyrir
aukin afköst.
Sl. ár varð kaup starfs-
manna Ofnasmiðjunnar 29%
hærra en það hefði verið
með 5 klst. yfirvinnu, enhún
var alveg fel'ld niður.
Hér er reynd ein af þeim
Jeiðum, sem Morgunblaðið
hefur margbent á að í ríkari
mæli þyrfti að taka upp hér-
lendis, í stað hinnar úreltu
verkfallastefnu, sem komm-
únistar hafa barizt fyrir.
Að sjálfsögðu eru fjölmörg
fyrirtæki, þar sem eins væri
hægt að koma við slíku
vinnufyrirkomulagi eins og i
Ofnasmiðjunni. Nefnd sú,
sem kjörin var á Alþingi í
vetur til að fjalla um kjara-
bætur eftir nýjum leiðum,
hlýtur að kynna sér þessa
tílraun og enginn efi er á
pví, að innan skamms verður
slíkt fyrirkomulag tekið upp
víða.
Þannig munu kjörin batna,
þegar skynsamlega er á mál-
um haldið.
þess ennfremur, að Guð fyrir-
gæfi honum. Hún sagði: „Viður-
kennið, yðar herradómur, að þér
óskið eftir aðskilnaði kynþátta.
Ég bið yður um náð. Lítið til
Drottins og játið. Þér vitið að
aðskilnaður ky-nþáttanna er lög-
mál Guðs. Hlýðið ekki rödd
Satans heldur Drottins og horfið
á mig Ég krýp fyrir yður og bið
fræði nam hann í Rómaborg og
starfaði þar sem kapellán. Hann
hefur víða starfað, sem prestur,
m.a. í Harlem, en biskup varð
'hann í New Orleans í marz 1935.
Lengi hefur verið vitað, að hann
var andvígur hverskyns misrétti
kynþátta, en hann beið þó með
að opna skólana negrum þar til
bandarísk lög skipuðu svo fyrir.
Frú Gaillot er aftur á móti
fædd í New Orleans og hefur
alltaf búið þar. Hún hlaut mjög
strangt uppeldi í æsku, var ein
af sjö systkinum og fékk aldrei
að vinna utan heimilisins meðan
faðir hennar lifði, — það hæfði
Meðfylgjandi mynd er af frú Gaillot þar sem hún krýpur
fyrir erkibiskupi.
G’uð að hafa meðaumkun með
yður.“
Biskupi var í fyrstu fátt um
svör en svo neitaði hann kon-
unni um náð.
★ ★
Rummel, erkibiskup, sem er hálf
níræður að aldri, er trúarleið-
togi um það bil 550.000 manna.
Það var í byrjun þessa mánaðar,
sem hann ákvað að opna skóla
kaþólsku kirkjunnar í Louisiana
fyrir blökkum börnum jafnt
sem hvítum. Rummel er fæddur
í Þýzkalandi en fluttist barn að
aldri til Bandaríkjanna. Guð-
henni ekki — og hún var frá
upphafi alin upp í þeirri trú, að
Guð hefði fyrirskipað aðskilnað
allra kynþátta. Þegar Una Gaill-
ot var ung stúlka, var hún eitt
sinn fengin til þess að þvo heigi-
myndirnar í sóknarkirkju fjöl-
skyldunnar, sökum þess, að hún
var grönn og lipur að príla þang-
að upp sem stytturnar voru. Hún
þvoði myndirnar svo rækilega að
öll málning fór af þeim og varð
að mála þær allar að nýju. Þetta
atvik hefur frú Gaillot talið
tákn þess hvernig hún eigi að
verja lífi sínu.
Búizt við átökum í Oran
Oran og Algeir borg,
24. aprW (AP-NTB)
EKKERT lát er á mannsdrápum
og árekstrum í Alsír. í Algeirs-
borg voru að minnsta kosti 13
menn drennir í ,dag, en í Oran
er franski herinm að undirbúa
stórsókn gegn OAS mönnum. Þar
í borg drápu Serkir í dag þrjá
evrópska menn í hefndarskyni
fyrir það að þeir höfðu í gær
ekið á serkneskan mann og drep-
ið hann.
í Oran hefur Joseph Katz hers-
höfðingi dregið saman um 8000
manna franskt herlið og á von á
liðsauka til að brjóta niður mót-
stöðu OAS manna. Tóik herinn
í dag á sitt vald þrjé skýjakljúfa
í borginni og hafa sett þar upp
varðstöðvar. Um 200.000 menn
af evrópskum ættum búa í Oran
og hafa OAS samtökin þar 2000
—3000 manna herlið vel vopnum
búið. Óttast Frakikar að OAS
menn muni gera árás á aðalstöðv-
ar franska hersins með sprengju-
vörpum og ráðast síðan inn í
Serkjahverfin til að egna Serki
til átaka. Gæti þá svo farið að
franski herinn neyddist til að
beita vopnum gegn Serkjum f
varnarskyni
í Algeirsborg voru 14 OAS
menn handteknir í dag í Bab-el«
Oude hverfinu eftir að franska
lögreglari hafði framikvæmt hús-
leit þar. Einnig náði lögreglan
miklu magni af skotfærum og
ýmsum skjölum varðandi OAS
hreyfinguna.
Buenos Aires, 24. apríl
(NTB-AP)
JOSE Maria Guido forseti Argent
ínu tilkynnti í dag að ógiltar hafi
verið allar kosningar, sem fram
hafa farið í Jandinu eftir 16. des.
í fyrra. Jafnframt fyrirskipaði
forsetinn að öll héruð landsins
skyldu hlíta boðum ríkisstjórnar-
innar í öllum mélum en ekki
héraðsstjóra hvers um sig.
Með þessu eru ógiltar kosning
ar héraðsstjóra fré 17.—18. des.
sl. og þingkosningarnar 18, marz.
En í þingkösningunum unnu Per-
onistar verulega á og leiddu þær
til þess að herinn tók völdin f
nokkrum héruðum Argentínu.