Morgunblaðið - 25.04.1962, Qupperneq 20
20
MORCl’NBr Jmn
MiðvTluidagur 25. aprll 1963
GEORGE ALBERT CLAY:
III
Saga samvizkulausrar konu
-----— 40 -------
Hún hélt barninu í faðmi sér
alla nóttina. Drengurinn sprikl-
aði í fangi hennar og enda þótt
bæði Anna og Vicente beiddu
hana að sleppa honum, var hún
ófáanleg til þess. Hún hafði
nokkurra klukkustunda umhugs-
unartíma og hún vissi, að dreng-
urinn átti að verða einskonar
trygging fyrir hegðun hennar og
jafnvel fyrir liðsinni Vicentes
og Don Diegos. Þó að Japanimir
reyndu að kalla þetta eitthvað
annað, var tilgangur þeirra aug-
Ijós.
Hún vildi helzt fara til Don
Diego og leita hjálpar þar, því
að hún var orðin því svo vön
að telja hann vera almáttuga
forsjón, og varð nú að taka á
öllu sínu til að skilja, að hann'
var orðinn ennþá valdaminni en
Vicente og hún sjálf. Hún
reyndi að hringja til Blas og
Ishii, en símamaðurinn sagði
henni, að hún gæti ekki fengið
samband, og jafnframt vissi hún,
að jafnvel þótt hún legði það á
hættu að yfirgefa barnið, til
þess að fara til þeirra, þá mundu
verðirnir við hliðið aldrei hleypa
henni út.
Hún var í fullkomnum vand-
ræðum og úrræðalaus, og van-
máttarkenndin greip hana helj-
artökum. Hún ásetti sér að kom-
ast aldrei framar í svona minni-
máttar-aðstöðu. Héðan af skyldi
hún ekki treysta á neina vernd
af hendi Vicentes. Hún fékk
öðruhverju áköf grátköst, eftir
því sem leið á nóttina, en um
morguninn hafði hún jafnað sig
og var ógrátandi þegar hún af-
henti Filipseyjabarnfóstrunni son
sinn við hliðið.
Það var hr. Tanaka, sem til-
kynnti frú Lolytu um japanska
skólann, sem sonarsonur hennar
átti að fara að sækja.
Hún hafði orðið fegin að hitta
Tokyo-umboðsmanninn mannsins
síns, er hann bar þar að dyrum,
án þess að koma hans væri til-
kynnt. Tanaka hafði þjónað fyr-
irtækinu árum saman og sam-
komulagið við hann hafði alltaf
verið ánægjulegt og var miklu
meira en venjulegt atvinnusam-
band. Þetta var alveg eins og að
hitta vin í óvinaherbúðunum og
frú Lolyta var farin að gera sér
ljóst að svona vini þurfti hún á
að halda.
Japanirnir voru að flæða yfir
húsið eins og sandfok yfir gróna
jörð. Hún gat ekki tiltekið neinn
vissan tíma, þegar þeir fóru að
gera henni baga, heldur kom
þetta smátt og smátt og eins og
af sjálfu sér. Fyrst höfðu tveir
dátar verið sendir þangað í mat-
arvist. og höfðu jafrtan gert vart
við sig, en helzt eins og miður
æskilegir gestir. Þeir höfðu ver-
ið kurteislegir og formlegir og
þar eð þeir notuðu ekki herberg-
in til annars en að sofa í þeim,
voru þeir til lítilla óþæginda. En
svo tók frúin eftir því, að þeir
voru komnir með tvo vopna-
bræður sína til sín og sváfu nú
fjórir í tveim herbergjum, og
loks komu tveir í viðbót og
lögðu undir sig enn tvö gesta-
herbergi. Smámsaman tóku þeir
að koma saman á kvöldin í setu-
stofunni, og höfðu þar einskonar
klúbb, og það var ekki um að
villast, að þeir töldu sig ráða
yfir húsnæðinu. Fjölskyldan
hafðist þá við annarsstaðar og
enginn nefndi þetta einu orði.
Næst komu fjórir í viðbót og
__ Ungfrú Guðríður. Þér fáið ekki laun fyrir að sitja á
/ rassinum.
settu upp beddana sína í litlu
borðstofunni.
En aðalbreytingin varð þó
iþegar hús Sffredo, sem var
þarna næst var gert að höfuð-
stöðvum leynilögreglunnar. Þá
fluttu svo margir foringjar inn
í hús de Aviles, að stóra borð-
stofan varð líka að svefnskála,
og yfir foringinn, sem kunni vel
við morgunstofuna, tók hana sem
einkaherbergi fyrir sig. Og bekk-
irnir í kapellunni voru teknir
burt til þess að gefa rúm dát-
unum, sem höfðu þarna varð-
stöðu.
Að því er frú Lolyta vissi bezt,
voru engar eignir, hennar
skemmdar eða færðar á brott, og
að því frátöldu er dátarnir réð-
ust stundum á matarbirgðir
hennar, þegar þeir voru svangir
á kvöldin, var matarforði henn-
ar látinn í friði, enda mjög á
þrotum. Hún hafði áhyggjur af
að geta ekki fengið neitt í stað-
inn fyrir það, sem eyddist, og
enda þótt hún ætti eitthvað af
niðursuðuvörum, þá sparaði hún
þær og máltíðirnar urðu fátæk-
legri með hverjum degi, sem
leið. Einstöku sinnum kom Don
Diego með fisk heim, en ket var
ófáanlegt, eins kjúklingar og egg.
Rís var illfáanlegt og auk þess
dýrt. Mestallur jarðarávöxtur úr
garðinum og ávextir úr aldin-
garðinum fór í næsta hús, handa
foringjunum þar. Þjónustufólkið
tók að tínast burt og frúin var
því hálffegin, því að þá létti á
fóðrunum, en allir voru gerðir
jafnir, hvað fæði snerti. Þrátt
fyrir þetta var til bæði húsa-
skjól og matur handa Sffredo og
fjölskyldu hans og þau voru
hjartanlega velkomnir gestir.
daginn. Hvaða áhuga gat maður-
inn haft á þessu? Hafði hann
ekki komið til að ræða viðskipti
við Don Diego?
Hver tók perlurnar?
Það var einn dátinn.
Hvað hét hann?
Lolyta yppti öxlum. Og, það
var bara einn dáti af mörgum.
Hún brosti. Það láðist að kynna
okkur.
Þetta verður rannsakað og
skýrsla gefin um það, fullvissaði
hann hana.
En það skiptir engu máli,
reyndi hún að segja honum, en
hann vildi ekki hlusta á það.
Saknið. þér ekki neins annars?
Nei, það hefur verið stolið,
sagði hún lágt og fann, að hún
varð að vera varkár.
Þá eigið þér ennþá samaragð-
ana yðar?
Nei, ég seldi þá fyrir nokkru,
Hún brosti með sjálfri sér. Svo
að Tanaka gamli var þá einn af
átján. Skemmst frá að segja, hef
ég selt flesta skartgripina mína.
Hvers vegna? Spurningin var
snögg og reiðileg.
Maður kemst nú á þann aldur
þegar maður hættir að hafa
ánægju af skrauti, sagði hún. Ég
er náttúrlega komin á þann ald
ur fyrir all-löngu, enda þótt ég
yrði þess ekki vör fyrr en nú fyr
ir skömmu.
Kynnist SERVIS
- og þér kaupið Servis
Hr. Tanaka hafði hneigt sig
djúpt við dyrnar og í fyrstunni
ætlaði frú Lolyta ekki að þekkja
hann. En því næst varð hún í
vandræðum með, hvernig hún
ætti að bregðast við honum og
hvar hún ætti að bjóða honum
inn. Ekki gat hún farið með
hann inn í svefnherbergið sitt,
en öll önnur herbergi voru undir
lögð af hermönnum. Hún ákvað
að bjóða honum út í garðinn.
Þar ætlaði hún að gefa honum
kaffi.
Hann sat þarna mjög stífur og
formlegur á stólnum með skjala-
töskuna við hlið sér. Hafið þér
ennþá kaffi? spurði hann.
Ofurlítið. Það er nú að verða
búið, og ég get hvergi fengið
meira.
Þetta voru einu orðin, sem
snerust um ófriðinn. Hann
spurði kurteislega um hvern ein-
stakan af fjölskyldunni, rétt
eins og ekkert sérstakt hefði
gerzt síðan þau sáust seinast. Þá
sagði hann henni frá nýja skól-
anum og syni Ginu. Hann gaf
henni ofurlítið svigrúm til að
jafna sig, en ræskti sig þá, rétt
eins og hann ætlaði að fara að
ræða eitthvert hvimleitt efni.
Hafið þér orðið fyrir nokkrum
þjófnaði, frú de Aviles? spurði
hann.
Það eru bara bílarnir og ein-
stöku hlutir úr húsinu. Hún varð
hissa á þessari spurningu. Auð-
vitað hefur Don Diego misst
skipin sín og vöruhúsin og....
Ég átti nú aðallega við skart-
gripina yðar, tók hann fram í.
Nei, þeim hefur ekki verið
rænt, að undanteknum svörtum
perlum, sem voru teknar fyrsta
Fjórar gerðir — oftast fyrir-
liggjandi. — Viðgerða- og
varahlutaþjónusta að
Laugavegi 110. - Sími 11295
AFBORGUNARSKILMÁLAR
Hekla
Austurstræti 14. - Sími 11681.
THEM I SUBJECTTHE ALLOY TO V/BJtATIOH...
AT AN INCREDIBLY HISH SONIC PREQUENCY.
I ICEEP UPTHIS “SOUND BOWBARDMENT"
___ 60INfe, AND THEN... _
__ Takið eftir Geisli höfuðsmað- beini ég hátíðnishljóðbylgjum að og svo .... En það virðist sem ekk-
ur. Ég set þessa durabillium stöng stönginni. Ég held áfram að beina eit hafi gerzt!
jnn í sérstakan hljóðklefa. Svo þessum hljóðbylgjum að stönginni,
Ja, svo, sagði Tanaka. Gim»
steinarnir yðar voru heimsfræg
ir, og hljóta að hafa gefið mikið
í aðra hönd. Þér hafið kannske
andvirðið enn?
Nei, það hefur verið fest I
landareigntim, sagði hún og
hann glotti. Ég keypti fyrir þá
stóran búgarð í Kaliforníu.
Glottið hvarf snögglega af and
liti hans og hann seildist eftir
skjalatöskunni. Þér segist hafa
selt allt? spurði hann og lagði
töskuna yfir hné sér og hélt á
pennanum tilbúnum í hendinnL
Mest af því. Sumt gaf ég.
Hverjum?
Hinum og öðrum. Ég man það
ekki gjörla, enda skiptir það
engu máli. Þér hafið mikinn á-
huga á gimsteinunum mínum,
hr. Tanaka?
Það er ekki nema eitt af
skylduverkum mínum, frú. Ég
hef hér skrá yfir skartgipina
yðar. Við skulum athuga hana.
ajlltvarpiö
Miðvikudagur 25. apríl.
8:00 Morgunútvarp (Bæn. — 8:05
Morgunleikfimi — 8:15 Tónleik-
ar — 8:30 Fréttir — 8:35 TónL
— 10:10 Veðurfregnir).
12:00 IJádegisútvarp (Tóníeikar
12:25 Fréttir og tilkynningar).
13:00 „Við vinnuna“: Tónleikar.
15:00 Síðdegisútvarp (Fréttir og tilk.
— Tónl. — 16:30 Veðurfr. —
Tónl. — 17:00 Fréttir — Tónl.).
17:40 Framburðarkennsla í dönsku og
ensku.
18:00 Útvarpssaga barnanna: „Leitin
að loftsteininum" eftir Bern-
hard Stokke; XIII. (Sigurður
Gunnarsson þýðir og les).
18:30 Óperettulög. — 18:55 Tilk.
19:20 Veðurfregnir.
19:30 Fréttir.
20:00 Varnaðarorð: Ólafur Jónsson lög
reglufulltrúi talar um umferðar
mál.
20:05 „Með frönskum hreim'*: David
Carroll og hljómsveit hans leika.
20:20 Kvöldvaka:
a) Lestur fornrita: Eyrbyggja
saga; XVIII. (Helgi Hjörvar
rithöfundur).
b) íslenzk tónlist: Sunnlenzkir
karlakórar syngja.
c) Dr. Sigurður Nordal prófess
or les gamlar og nýjar þjóð-
sögur; IV.
d) Bergsveinn Skúlason flytur
frásöguþátt: Vetrarferð á
seglskipi.
21:45 íslenzkt mál (Dr. Jakob Bene-
diktsson).
22:00 Fréttir og veðurfregnir.
22:10 Erindi: Fræðslumál í Bretlandi;
I: Heimsókn í barnaskóla í
Lundúnum (Heimir Áskelsson
lektor).
22:25 Næturhljómleikar: Frá hátíð „nú
tímatónlistarmanna'' í Varsjá i
sept. s.l. — Flytjendur: Hljómsv.
og kór pólsku fílharmoníunnar
undir stjórn Witolds Rowicki
og Romans Kuklewicz. Einsöngv
arar: Catherine Gayer, Stefania
Woytowicz, Daniela Oglaza og
Eric Tappy.
a) „II canto sospeso" fyrir sópr
an alt tenór, blandaðan kór
og hljómsveit eftir Luigi
\ Nono.
b) „Erotiques" fyrir sópran og
hljómsveit eftir Tadeusz
Baird.
c) „Jeux Venitiens" fyrir hljóm
sveit eftir Witold Lutoslawski
23:25 Dagskrárlok.
Fimmtudagur 26. apríl.
8:00 Morgunútvarp (Bæn. — 8:05
Morgunleikfimi — 8:15 Tónleik-
ar — 8:30 Fréttir — 8:35 TónL
— 10:10 Veðurfregnir).
12:00 Hádegisútvarp (Tónleikar —•
12:25 Fréttir og tilkynningar).
13:00 „Á frívaktinni"; sjómannaþátt-
ur (Sigríður Hagalín).
15:00 Síðdegisútvarp (Fréttir og tilík.
— Tónl. — 16:30 Veðurfr.
Tónl. — 17:00 Fréttir — Tónl.).
17:40 Framburðarkennsla í frönsku
og þýzku.
18:00 Fyrir yngstu hlustendurna (Guð
rún Steingrímsdóttir).
18:30 Óperulög.
18:50 Tilkynningar — 19:20 Veðurfr.
19:30 Fréttir.
20:00 Um töluvísi: V. þáttur: Af undr
um talnanna (Björn Bjarnason
menntaskólakennari).
20:15 íslenzkir organleikarar kynna
verk eftir Johann Sebastian
Bach; VIII: Haukur Guðlaugsson
leikur sálmaforleiki; dr. Fád
ísólfsson flytur formálsorð.
20:45 Minnst 200 ára afmælis Svein*
Pálssonar læknis (25. apr.): —
Erindi og upplestur (Jón Ey-
þórsson veðurfræðingur og dr.
Sigurður Þórarinsson jarðtfræð*
ingur taka saman dagskrána).
21:45 Tónleikar: Philharmonia Promen
ade hljómsveitin leikur þrjá
konsertvalsa eftir Gounod, Deli
bes og Tjaikovsky; Henry Kripa
stjórnar.
22:00 Fréttir og veðurfregnir.
22:10 Garðyrkjuþáttur: Hafliði Jóns-
son garðyrkjustjóri talar um mait
jurtagarðinn.
22:30 Harmonikuþáttur (Högni og
Henry J. Eyland).
23:00 Dagskrárlok.