Morgunblaðið - 25.04.1962, Síða 23
Miðvlkudagur 25. aprí! 1962
MORGUNBT/AÐIÐ
£3
Framh. af bls. 1
ann hvenær þeir samningar yrðu
gerðir, og sagði að Rússar
mundu ekki krefjast þess að þeir
yrðu gerðir nú þegar.
Groimyko benti á að ef griðar-
Vesturveldanna um eftirlit í sam
bandi við samninga um bann við
tilraunum með kjarnorkuvopn.
Sagði hann að Bandaríkin óski
eftir slíku eftirliti til þess eins
að fá tækifæri til þess að afla
»ér leynilegra upplýsinga um
Sovétríkin, og það gætu Rússar
ekki samþykkt. Þá sagði ráð-
herrann að ef Bandaríkjamenn
hæfu að nýju tilraunir yrðu Sov-
étrikin af öryggisástæðum að
gera það einnig.
Gromyco benti á að ef griðar-
eamningur yrði gerður - milli
Atlantsihafsbandalagsins og Var-
sjárbandalagsins gæti hann or-
eakað mjög bætta sambúð Aust-
urs og Vesturs. Og ráðherrann
*agði það staðreynd að bæði
Bandaríkjunum og Sovétríkjun-
um væri ljóst að hvorki mætti
afhenda Austur- né Vestur-Þjóð
verjum kjarnorkuvopn.
KRÚSJEFP
Áður en þingið hófst hafði
Krúsjeff lagt fram lausnar-
beiðni fyrir ríkisstjórn sína. En
hann var nú endurkjörinn for-
eætisráðherra til fjögurra ára
með lófataki. Að þvi loknu flútti
Nikolai Podgorni lofræðu um
Krúsjeff og þakkaði honum
framgang Sovétríkjanna á sviði
vísinda og efnahagsmála undan-
larin fjögur ár.
Leonid Breznev hefur verið
forseti Sovétríkjanna frá árinu
1960, er hann tók við embeetti af
Klimenti Voroshilov marskálki.
Hann var nú endiurkjörinn for-
eeti, en Voroshilov endurkjörinn
i stjórn Æðstaráðsins. — Á þing-
biu voru mættir 1429 fulltrúar.
II kvöld kl. 8,30 er næst síð-
asta sýningin á Kviksandi
hjá Leikfélagi Reykjavíkur.
Þetta leikrit er búið að ganga
aijög vel og allir sem séð
hafa sýninguna, bera á hana
einróma lof.
Meðfylgjandi mynd er úr
einu atriði Kviksands og sýn-
ir bræðurna Jonna og Póló,
sem Steindór Hjörleifsson og
Gisli Halldórsson leika og
(öður þeirra, Pope, sem
Brynjólfur Jóhannesson leik-
ur. —
— Krúsjeff
IMeita að greiða affnota-
gjald af útvarpstækjum
109 ÚTVARPSHLUSTENDUR á
Raufarhöfn hafa ritað Ríkisút-
varpinu bréf, þar sem þeir lýsa
yfir, að þeir muni ekki greiða
afnotagjald útvarpsviðtækja á
næstkomandi gjalddaga, meðan
núverandi ástand helzt, er þeir
telja gersamlega óviðunandi.
Mimdu glaðir greiða
hærra gjald —
í bréfi þeirra segir m.a., að
svo sé nú háttað, að hvellsterk-
ar erlendar stöðvar yfirgnæfi
allar sendingar íslenzka útvarps
ins, er halla tekur degi. Hafi
þeir ritað útvarpsstjóra vegna
þessa og farið fram á afslátt á
afnotagjöldum, en ekki fengið.
Undirtektir þar hafi annars ver-
ið þægilegar, en engin svör eða
fyrirheit um neina bót fengizt.
250 þús. kr. sekt
KLUKKAN 11.00 mánudaginn 23.
apríl 1962, var kveðinn upp dóm-
ur í máli akipstjórans, Charles
Alfred Grimmer, á skozka togar-
anum Ben Lui A 715, sem tek-
inn var að ólöglegum veiðum á
Selvogabanka miðvikudaginn 18.
þ.m.
Var skipstjórinn dæimdur í
250.000.00 króna sekt til Land-
hielgissjóðs íslands og afli og
veiðarfæri gert upptæikt. Þé var
Skipstjórinn og dæmdur til
greiðslu alls saikartkostnaðar.
Löks segir að það sé ekki sakir
þess, „að afnotagjaldið sé of
hátt, að vér neitum að greiða
það, því vér mundum glaðir
greiða hærra gjald, ef nauðsyn
krefði, því aðeins þó, að vér
fengjum ein'hver not af dag-
skránni á löngum vetrarkvöld-
um, þegar minnst völ er dægra-
styttinga á þessum slóðum.
Heldur það, að vér neitum að
greiða sama gjald og aðrir, þar
eð vér njótum ekki sömu þjón-
ustu og almennt er ætlazt til, en
fyrir hana er gjaldið greitt.“
Bílvelta
Neihjólið brotnaði í flugtaki
KLUKKAN hálf níu á páskadag
hlekktist lítilli fjögurra manna
flugvél á í flugtaki á Reykjavík-
urflugvelli en nefhjólið brotnaði
undan vélinni. Fernt, sem í vél-
inni var, sakaði ekki. Vélin
skemmdist nokkuð, en viðgerð
muiii í þann veg að Ijúka.
Plugmaðurinn á vélinni, sem
var af gerðinni Cessna, fjögurra
sæta, var Magnús Sverrisson. Er
flugvélin var í þann veg að losna
við brautina fór hún skyndilega
að hristast til, Og steyptist síðan
á nefið og rann 60—70 metra
vegalengd þannig eftir brautinni
Nokkur mótvindur var, og mun
— Tilraunir
Framh. af bls. 1
bann fyrir apríllok. Er á það
bent nú að tilboð Kennedys um
að hætta við tilraunirnar, ef
Rússar fallast á slíka samninga,
standi íram á síðustu stundu.
Þessi ákvörðun Bandaríkj-
anna um að hefja nýjar tilraun-
ir er tekin þrátt fyrir mótmæli
víða að, m.a. frá Nehru forsæt-
isráðherra Indlands og U Thant
aðalfram'kvæmdastjóra SÞ.
Ekki er ljóst hve miklar upp-
lýsingar Bandaríkjamenn gefa
um tilraunirnar, en fréttamönn
um var sagt að ekki væri víst
að þær yrðu allar tilkynntar.
í frétt frá Honululu hermir að
meðal þeirra, sem starfa við und
irbúninginn á Jólaey, séu um
400 brezkir hermenn. Yfir 50
skip, aðallega flutningaskip, séu
á þessum slóðum og tugir flug-
véla.
það hafa valdið þvi að vélin
steyptist ekki yfir sig. Ennfrem-
ur hjálpaði það til að bvennt sat
í aftursætum vélarinnar. Við ó-
happ þetta brotnaði skrúfan, og
í fyrstu var óttast að mótorinn
hefði eyðilagst, en á daginn mun
hafa bomið að svo var ekki. Flug
skólinn Þytur, eigandi vélarinn-
ar, átti annað nefhjól af sams-
konar vél, sem eyðilagðist fyrir
nokkrum áirum, og mun það
verða sett á vélina.
Auk Magnúsar voru í vélinni
kunningi hans og tvær stúlkur,
sem voru að fara í sina fyrstu
flugferð, og sakaði ekkert þeirra.
— Salan
Framh. af bls. 15.
Paui Gardy, fyrrverandi yf-
irmaður Frönsku útlendinga-
hersveitarinnar, hefur lýst því
yfir, að hann hafi tekið að sér
yfirstjórn OAS í Alsír, og telja
verður vist, að hann sé harður
í horn að taka, en hivort hann
getur sameinað hin ýmsu öfl,
á sama hátt og Salan, er enn
óvitað.
Aðrir háttsettir menn inn-
an OAS^ sem enn leika lausum
hala, eru Yves Goddard, fyrr-
verandi yfirmaður lögreglunn
ar (Surete) í Alsír, Jean Gard-
es, áður yfirmaður sálfræði-
legra hemaðargerða fransika
hersins í Alsír og Jean Jacques
Susini, sem talinn er vera sá,
sem stendur að baki flestum
hryðjuverkum samtakanna.
Þótt hringurinn þrengist, þá
má enn búast við talsverðri
andspyrnu þessara manna.
UM PÁSKANA gerðist það að
stýri á Dodge Weaponbíl fór úr
sambandi við Elliðaár með þeim
afleiðingum að billinn valt. Var
bíllinn á vesturleið og var rétt
kaminn yfir brýrnar þegar stýrið
bilaði. Rann bíllinn út af veg-
inum og á vegg jarðttiúss, sem
þarna er. Rann hann síðan upp
vegg jarðhússins og valt. Meiðsli
urðu ekki á fólki önnur en þau
að dætur ökumannsins, sem vom
farþegar í bílnuim, munu hafa
skrómast lítillega.
Fyrirlestur um
amerískar nútíma-
bókmenntir
PRÓFESSOR Gerald Thorson,
ameríski sendikennarinn við Há-
skóla íslands, flytur síðasta fyrir
lestur sinn fyrir almenning um
amerískar nútímabókmenntir í
kvöld kl. 8.15 í VII. kennslustofu
háskólans. Fyrirlesturinn fjallar
um William Styron, hinn unga
ameríska höfund skáldsögunnar
„Lie Down in Darkness“. Willi-
am Styron, sem fæddist árið
1925 í Virginia, hefur skrifað
þrjár skáldsögur: ,,Lie Down in
Darkness“, „The Long Maxch“
og „Set This House on Fire'
Fyrsta skáldsaga hans hlaut
„Prix de Rome“ verðlaunin árið
1952.
Prófessor Thorson hefur starf-
að í vetux sem sendikennari við
Hásbóla íslands á vegum Ful-
bright-stofnunarinnar. Hann hef
ur haldið kvöldnámskeið fyrir
almenning í amerískum nútíma-
bókmenntum. Þátttakendur í
námsikeiði þessu hafa fengið lán-
aðar bækur þær, sem rætt hefur
verið uim, og eru þeir beðnir að
skila þeim á miðvkudagskvöld
eða láta prófessor Thorson vita,
hvenær þeir geti skilað þeim.
SVEITAKEPPNl fslandsmótsins
í bridge lauk á skírdag og sigr-
aði þar sveit Einars Þorfinnsson
ar. Að þessu sinni tóku 12 sveit-
ir þátt í keppninni og vOru 10
þeirra frá Reykjaví'k, ein frá
Kópavogi og ein frá Keflavík.
Auk Einars eru í sveitinni Gunn
ar Guðmundsson. Lárus Karls-
son, Kristinn Bergþórsson, Ás-
mundur Pálsson og Hjalti Elías-
son.
Röð sveitanna varð þessi:
1. Sveit Einars Þorfinnssonar
36 stig; 2. sveit Agnars Jörgens-
sonar 29 stig; 3. sveit Brands
Brynjólfssonar 27 stig; 4. sveit
Jóns Magnússonai 26 sti-g; 5.
sveit Stefáns J. Guðjohnsen 25
stig; 6. sveit Bernharðs Guð-
mundssonar 22 stig; 7. sveit Hil
mars Guðmundssonar 22 stig;
8. sveit Laufeyjar Þorgeirsdótt-
ur 22 stig; 9. sveit Eggrúnar
Arnórsdóttur 16 stig; 10. sveit
El'ínar Jónsdóttur 12 stig; 11.
sveit Gylfa Gunnarssonar, Kópa
vogi 8 stig; 12. sveit Eyjólfs
Eysteinssonar, Keflavík 8. stig.
S.I. laugardag flæddi 12 kind-
ur á skeri skammt frá Brynju-
dalsá í Hvalfirði. Tíu þeirra
björguðust í landi en tvær
drukknuðu. — Myndin er af
nokkrum kindum á skerinu.
Ljósm.: Finnur Ellertsson.
29 April - 8 May
Hanover Fair
.1962
Hjartanlega þakka ég hjónunum Kristleifi og Guð-
jónu á Sturlureykjum fyrir höfðinglegar móttökur
á sjötugsafmæli minu svo og öðrum fyrir heilla-
skeyti, blóm og ýmsar aðrar gjafir.
Guð blessi ykkur ölL
Kristín Erlendsdóttir.
Hjartans þakkir færi ég öllum vmum og vandamönn-
um sem heimsóttu mig og glöddu með skeytum og gjöfum
á sjötíu ára afmæli minu 19. apríl.
Jósefína Sigurðardóttir,
Urðarvegi 50, Vestmannaeyjum
verður haldin 29. apríl til 8. ma£. 5400 aðilar sýna
allar greinar vestur-þýzkrar tækniframleiðslu og
mikið af framleiðslu annarra Vestur-Evrópuþjóða.
Hópferð veröur farin á sýninguna. Aðgönguskír-
teini gisting, flugíarseðlar. Hafið samband' við
oss sem fyrst.
FERÐASKRIFSTOFA RÍKISIIMS
Sími 1 15 40.