Morgunblaðið - 28.05.1963, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 28.05.1963, Blaðsíða 2
18 MORCV\RLAÐlB I Þriðjudagur 28. maí 1963 52 ungir rœðumenn á fundum SUS um helgina — fundir á 11 stöðum SAMBAND ungra Sjálfstaeðis manna hélt fundi á 11 stöðum víðsvegar um land um helgina. Fundir voru á Akranesi, í Stykk ishólmi, á ísafirði, Ólafsfirði, Ak ureyri, Vestmannaeyjum, Selfossi Grindavík, Keflavík, Hafnarfirði os Kópavogi. Fundurinn, sem boðaður hafði verið á Siglufirði féll niður, vegna þess að tveír ræðumanna náðu ekki í tæka tíð, er flugferð féll niður. Þessi glæsilegu fundahöld sýna glöggt styrkleik og baráttu hug ungra Sjálfstæðismanna nú fyrir kosningar. Ungt fólk á nfr mest í húfi, að I ekki verði snúið til baka frá i viðreisn og framförum. Ungti fólk er staðráðið í því að berjast; gegn hverskonar tilraunum til ; þess að innleiða aftur „vinslri“ ] stefnu hafta og ófrelsis. Fundir ungra Sjálfstæðismanna um helg ina sýndu þetta glögglega. Brezki Verkamannaflokkurinn vildi víta innanríkisráðh. landsins Þingmenn flokksins hrópuðu og kölluðu meðan Macmillan forsætis- ráðherra talaði / þinginu London, 27. maí (AP) í DAG fóru fram í Neðri mál- stofu brezka þingsins umræður um tillögu, sem Verkamanna- flokkurinn bar fram. Xillagan fói í sér vítur á innanríkisráðherra Breta, Henry Brooke. Var hann sakaður um að hafa gefið þing- heimi rangar upplýsingar varð- andi Nígeríumanninn Enahoro, sem vísað var úr landi í Bret- landi og sendur til Nígeríu, en þar er hann nú fyrir rétti sak- aður um landráð. Eftir heitar umræður var tillaga Verkamanna flokksins felld með 313 atkvæð- um gegn 225. Verkamannaflokkurinn sakaði Brooke um að hafa haldið því leyndu fyrir þingheimi, að brezki lögfræðingurinn Dingle Foot fengi ekki að koma til Nígeríu Gils í reifum 'i 1 KOMMÚNISTAR í Reykja- neskjördæmi héldu skemmti- fund í Félagsheimilinu í Kópavogi á laugardagskvöld til að freista þess, að hlátur- inn gæti að einhverju leyti afmáð agnúana á samstarfinu sem kommúnistar hafa séð sig tilneydda að ganga til. Þetta virtist allt ætla að ganga vel þar til komið var að síðasta skemmtiatriðinu, bögglauppboði til styrktar kosningasjóði flokksins. Síðasti böggullinn, sem boð- inn var upp, var fyrirferðar- mikill á allar hliðar, og var þess getið þegar í upphafi, að hann væri lítils virði. Boðin hækkuðu þó smám saman, og loks var Gils Guðmundssyni, „þjóðvarnarmanninum“, sem nú er orðinn efsti maður kommúnistalistans sleginn þessi verðlausi böggull á 200 krónur. Gils greiddi böggulinn, en1 var um leið beðinn að taka utan af honum svo allir sæju Hóf þá Gils að rekja utan af pakkanum, og um það bil er sýnt þótti, að pakkinn væri ekki aðeins verðlaus, heldur einnig innihaldslaus gall við í einum fundarmanni: „Það er engu iíkara en Gils sé að rekja utan af sjáifum sér". til þess að verja Enahoro. Foot var vísað frá Nígeríu s.l. ár. og var synjað um að fá að snúa aftur til þess að verja Enahoro. Nú hefur öðrum lögfræðingi frá Bretlandi, Alun Davies, ver- ið heimilað að koma til Nígeríu í stað Foots. Er gert ráð fyrir að hann leggi af stað frá London á morgun. 7 óra drengur hljóp fyrir bíl SJÖ ára drengur varð fyrir bíl um kl. 1 í gærdag á gatnamótum Borgartúns og Lækjarteigs Meiddist hann nokkuð á höfði. Slysið bar að með þeim hætti, að drengurinn, Lúðvík Sveinn Albertsson, Laugateig 18, hljóp út á götuna og varð fyrir vinstra framhorni bils, sem ekið var aust ur Borgartún. Lúðvík var fluttur á Slysa- varðstofuna og síðar heim. Hann hafði meiðzt nokkuð á höfði, m.a. brotnuðu nokkrar tennur. 4 ára dreng- ur fyrir bíl FJÖGURRA ára drengur, Jón Gils Ólason, Hofteigi 16, varð fyrir bíl um kl. 12 á sunnudag á Hofteigi. Slysið bar þannig að, að Jón litli hljóp út á götu fyrir framan kyrrstæðan bíl, en um leið koma þar 'eftir götunni bíll, sem Jón lenti á. Brotnaði ljósker vinstra megin á bifreiðinni vð höggið, en Jón kastaðst í götuna. Hann var fluttur á Slysavarð- stofuna, en laeknar töldu meiðsli hans lítil. Gagnfræðaskóla- nem. í hringferð AKRANESI, 25. maí — Tæpir 40 nemendur úr Gagnfræðaskóla Akraness fóru í hringferð með Ms. Esju á fimmtudagskvöld og tekur ferðin viku. Eska kom hér við á vesturleið og tók nemend- urna um borð. Fjórir kennarar voru i íör með nemendunum. — Oddur, Harold Macmillan, forsætisráð herra, var meðal þeirra, sem tóku til máls við umræðurnar í Neðri málstofúnni í dag. Þingmenn Verkamannaflokksins létu all ó- friðlega á meðan að forsætisráð- herrann talaði. Hrópuðu þeir og kölluðu og báðu hann að halda sér við efnið. Þegar hann hafði lokið máli sínu hrópuðu þeir einum rómi æ ofan í æ: „Segið af yður“. Nýi löndunarkraninn, sem tekinn var í nokun á Vopnafirðl s.I. sumar. Afkastageta síldarverksmiðja á Austurlandi 20.500 mál í sumar M I K L A R framkvæmdir standa nú yfir á Austurlandi í síldarverksmiðjubygging- um. Eru bæði í undirbúningi tvær nýjar verksmiðjur og stækkun og aðrar endurbæt- ur á eldri verksmiðjum. Verð ur afkastageta síldarverk- smiðjanna á Austurlandi kom in upp í 20.500 mál á sólar- hring á síldvertíðinni í sum- ar, og má til samanburðar geta þess, að í árslok 1958 var afkastageta þeirra 8.850 mái. Hinar nýju verksmiðjur eru á Breiðdalsvík og Borgarfirði eystra, og verður afkastageta þeirrar hvorrar um sig 5—600 mál á sólarhring. Afkastageta síldarverksmiðj- unnar á Eskifirði mun við þessa stækkun aukast um 15—18000 mál. Afkastageta Vopnafjarðar- verksmiðjunnar hefur aukizt um 2000 mál, eða upp í 5000 mál á sólarhring. Eins og að framan getur, var afkastageta verksmiðjanna á Austurlandi 8.850 mál í árslok 1958, en mun í byrjun síldarver- tíðarinnar í sumar komin upp I 20.500 mál. Er þetta mesta fram- kvæmda. og framfaratímabil i þessum efnum á Austurlandi. Brotizt inn í kjallnrníbúð BROTIZT var inn í kjallaraíbúð ið Njálsgötu aðfararnótt sunnu- dags. Hjón, sem þar búa, höfðu farið úr bænum ög komu heim í gærmorgun. Rótað hafði verið til í íbúð- inni og ýmislegt úr lagi fært. Stolið hafði verið orlofsbók með nokkru af orlofsmerkjum, 12 manna hnífapörum, 6 silfurte- skeiðum, gítar og ýmsu öðru smá vegis. Þjófurinn hefur náðst, en hann var þá búin að selja mestan hluta þýfisins. Bjarni Beinteins- son sveitarstj. í Sel tjarnarneshreppi HREPPSNEFND Seltjarnar- neshrepps samþykkti á fundi sín- um í gær að ráða Bjarna Bein- teinsson, sveitarstjóra hreppsins, en Jón Tómasson, sem nú er sveitarstjóri er á förum til Bol- ungarvíkur. Bjami er lögfræð- ingur að menntun, útskrifaður 1961, sonur Beinteins Bjarnason- ar útgerðarmanns í Hafnarfirði og konu hans, Sigríðar Flygen- ring. Sex menn sóttu um starfið en ákveðið hefur verið að ráða Bjarna, sem fyrr er sagt. (5 NA /i hnitor SV SOtmutar H Sn/éicnma * Úii V Skúrir S Þrumur mss KuUoslíl H Hmi ( kJsdX Skúrasvæðið, sem sést á kort- in SV af Grænlandi var talin inu, bar með sér snarpa regn líkleg til að veita nýjum og haglskúri á Suður- og Vest fcrafti í lægðina yfir Grænl.- urlandi í gær, en á NA- landi hafi, svo að enn er von á út- var þurrt og bjart. Smálægð- synningi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.