Morgunblaðið - 17.07.1964, Side 14

Morgunblaðið - 17.07.1964, Side 14
!4 MORGUNBLAÐIÐ r Fostudagur 17. júlí 1964 Nýkomnar danskar stretch- buxur frá WIKI í barna- stærðum. Marteinn Einarsson & Oo. Fata- & gardínudeild Laugavegi 31 - Sími 12816 Lokað vegna sumarleyfa, vikuna 20.—27. júlL Smith og IMorðlantl hf. Skrifstota vor verður lokuð eftir hádegi í dag, föstudaginn 17. júlí vegna jarðarfarar. Félag íslenzkra rðnrekenda. Hjartkær eiginkona mín og móðir okkar STEFANÍA GRÓA ERLENDSDÓTTIR andaðist aðfaranótt 16. júií í Landakotsspítaia. Pétur Ingjaldsson og börn. Litii drengurinn okkar RAFN KRISTINSSON dó af siysförum 16. júlí siðastliðinn. Sigrún Rafnsdóttir, Kristinn Einarsson. Maðurinn minn, GISSUR GÍSLASON Bólstaðahlið 62 andaðist að sjúkrahúsi Hvítabandsins, miðvikudaginn 15. júlL Arný Sigurðardóttir. Hjartkær eiginmaður minn JÓN GUÐMUNDSSON kaupmaður frá Felli, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni í dag, föstudag- inn 17. júií kl. 10,30. — Athöíninni verður útvarpað. Fyrir mina hönd og fósturbarna okkar. Þrúður Bjarpadóttir. Innilegt þakklæti vottum við öllum þeim, sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför KARLS HJÁLMARSSONAR fyrrv. kaupfélagsstjóra Þórdís Ingimarsdóttir, börn, tengdabörn og barnabörn. Þökkum hjartanlega auðsýnda samúð og hlýhug, við andiát og jarðarför föður okkar, tengdaföður og afa, GUNNARS BRYNJÓLFSSONAR Helga Gunnarsdóttir, Margrét Gunnarsdóttir, tengdadóttir, barnabörn. Vilborg Guðnadóttir 17. OKTÓBER 1908 fæddist þéim hjónUm, Sigurbjörgu Jöns- dóttur og Guðna Jónssyni, Kefla- vík, yngsta dóttirin af þremur og næst yngst sex efniiegra og mannvænlegra barna. Þegar litla stúlkan, Viiborg, fæddist, höfðu foreldrarnir búið i Kefla- vík í fimm ár, en þangað flutt- ust þau frá Miðnesi. keyptu þau íbúð í þeim að Faxa- braut 6. Þau hjónin eignuðust tvo efni- iega drengi: Kristin, fæddur 15. marz 1929, og Guðna, fæddur 20. ágúst 1932. Urðu hjónin fyrir þeirri þungu sorg að missa báða drengina kornunga. Yngri dreng- urinn dó tæpra tveggja ára. Kristinn andaðist 1945 á 17. ári. Hin kunnu sæmdarhjón, Sigur- björg og Guðni, síðar verkstjóri í Keflavík, urðu eins og annað al- þýðufólk í þá daga að heyja erf- iða iífsbaráttu til þess að verða vel bjargálna með barnahópinn sinn. Það tókst þeim fyrir dugn- að, þrek og framsækni, sem þeim hjónum var í blóð borin, enda þeir eiginleikar einkennandi í ættum beggja. Þótt hjónin væru ekki auð- mannéskjur á mælikvarða pen- ingainnstæðna og fasteigna, gaf forsjónin þeim mikia auðlegð. Þau höfðu einstakt barnaián. Aðeins þrjú þeirra systkina eru á lífi, Ólafía, ekkja í Kópa- vogi, Ragnar Jón og Sigurbjörn, báðir búsettir í Kefiavík. Ung lagði Vilborg haga hönd að verki við heimilisstörf, ásamt systrum sínum, og utan heimiiis var unnið, þegar vinnu var að fá. Á þessu mikla myndar- og hreinlætisheimili, lærðu þær syst ur eins og bezt má verða um ung- ar heimasætur í þá daga. Móðirin hagleikskona hin mesta, jók hún tekjur heimilisins með sauma- skap, þó hæpið sé að alltaf hafi verið gengið ríkt eftir borgun. í þeim skóla við móðurkné, sem hér er lýst, iærðu þær systur, að ekkert starf var fuliunnið, fyrr en búið var að ieggja sig aiian fram til þess að vanda verkið svo vel, sem kostur var á. Víst er, að sá lærdómur féil í góðan jarðveg. Þeir, sem áttu þess kost að kynnast Vilborgu Guðnadóttur, vinna með henni, eða þiggja verk hennar, vita að við hvert verk er hún vann, var hún öil. dugmikil, áhugasöm og vand- virk, enda hafði hún iært í þeim skóla á æskuheimiii sínu, þar sém mannrækt var áslunduð. Heimiii hennar, sem hún kveður í dag, lýsir betur en orð frábær- um myndarskap hennar, hagieik og smekkvísi. 8. október 1927 giftist Vilborg eftirlifandi manni sínum, Þórði Kristinssyni frá Eyrarbakka, mikium ágætis- og dugnaðar- manni, sem flutzt hafði til Kefla- vikur þá fyrir þrem árum. Ungu hjónin hófu búskap i Keflavik og bjuggu þar síðan, íyrst í leigu húsnæði. Þegar verkamannabú- staðirnir voru byggðir í Keflavík, Hafði hann kennt vanheiisu frá þvi um fermingu. Þá síðari þol- raun stóðust þau hjónin, sem hina fyrri, að standa yfir mold- um sonarins, ón þess að bogna í augsýn manna, enda þá komin yfir erfiðasta áfangann. Á löng- um andvökunóttum við sóttarbeð deyjandi barns verður þjáning móðurinnar þess eðiis, að orð eru óviðeigandi. „Þar ríkir fegurðin ein". Þótt þau hjónin, Viiborg heitin og Þórður, eignuðust ekki fleiri börn, eru samt börn þeirra eigi öll upptalin. Fyrir 11 árum trúði 6 ára snáði, Kristinn Jensson, Keflavik, mér fyrir miklu leyndarmáli á fyrsta skóiadegi sinum. Ég á tvær mömmur, sagði drengurinn hreykinn. Aðspurður um hver hin mamman væri, svaraði snáð- inn: Viiborg Guðnadóttir. Ég á sko alvörumömmu og alvöru- pabba, skilurðu, en Borga og Þórður áttu einu sinni dreng, sem hét Kristinn, eins og ég, hann er dáinn, þess vegna eiga þau mig lika. Þau eru öll voða góð. Og drengurinn var hjartaniega á- nægður. Seinha komst ég að raun um að hann mátti vera það, því Vilborg heitin lét sér annt um drenginn, eins og hann' væri hennar barn, og fyigdist af mikl- um áhuga meé fyrstu skólagöngu hans. Og drengurinn, sem nú er að verða íuHtíða maður, kveður þá iátnu hinztu sonarkveðju, og þakkar af öHu hjarta afla ástúð hennar og umhyggju frá því hann fyrst man eftir sér. Stúlkur Oss varitar nú þegar stúikur til starfa í gosdrykkja verksmiðju vorri að Þverholti 22. — Upplýsi'ngar hjá verkstjóranum. H.f. Ölgerðin Egill Skallagrinisson. Höfum opnað verzlun að Laugavegi 38, undir nafninu EEfur döntudeild Úrval af blússum, sloppum, stretehbux- um, undirfatnaði, brjóstahöldurum o.m.fl. Gjörið svo vel að líta inn. Verzliiffin Elfur dömudeild Laugavegi 38 Hér fylgja kvéðjuorð frá öðru heimili. Rebekka Friðbjörnsdótt- ir, Keflavík, segir svo frá: Hún Vilborg heitin var við fæðingu sex barna okkar hjóna með Ijós- móðurinni. Hún var þeim, og okkur öilum, svo óendanlega góð, og þau hjónin bæði. Börnin okk- ar kölluðu hana ávallt IjósU sína, og Guðný okkar heitir eftir yngri syni þeirra hjóna. Við eigum öll svo kærar minningar um þessa mikilhæfu og góðu konu. í húsi Vilborgar og Þórðar að Faxabraut 6, leigðu ung hjón, Haukur Magnússon, forstjóri í Keflavík, og kona hans. Til marks um hugarþel leigjendanna 'má geta þess, að dóttir þeirra, Vil- borg Þórunn, var látin heita 1 höfuðið á þeim hjónum. Fyrir 11 árum, 10. júlí, bar fundum okkar Vilborgu Guðna- dóttur fyrst saman. Það var á stofnfundi Verkakvennafélaga Keflavíkur og Njarðvíkur. En oft hafði hennar verið getið i mín eyru undanfarna daga, þegar rætt var um, hverjar væru bezt. til forustu fallnar. AHar voru konurnar einhuga um Vilborgu Guðnadóttur. Og þegar á fyrstu árum hins nýstofnaða féiags, sönnuðu bezt störf hennar fyrir féiagið, að það mat var rétt. Fyrstu árin var hún ávallt I fremstu viglínu, mikil íélags- störf hlóðust á hana, sem vænta má um svo mikilhæfa og ósér- hlífa konu. Kaupþjark var Vil- borgu heitinni lítt að skapi. En svo rík var réttlætiskennd henn- ar, að hún undi því ekki, að hall- að væri á hlut kynsystra hennar í þeim efnum. Við samningaborð hefur aldrei setið kona í Kefla- vík henni sterkari, enda þótt hún leggði ekki margt til máia. Þar, sem í öðru, sem hún tókst á hend- ur, var hún öll. Orð voru óþörf. Svo mikill var virðuleiki og skörungsskapur hinnar mætu sómakonu. Það var beinlínis ógerlegt fyrir vinnuveit- anda Vilborgu Guðnadóttur að þjarka um kaupið hennar í henn- ar áheyrn. Eitt sinn, er rætt var um þessi mál á samningafundi, voru ekki aliir sammála eins og oft vill verða. Sú, sem þessar Hnur ritar, spurði vinnuveitanda: Vinnur hún Vilborg ekki fyrir kaupinu sínu hjá þér? Milt bros íærðist yfir andlit mannsins. Það var mikil hlýja í röddinni. „Hennar verk verða nú vart metin til fjár". 10. júlí í fyrra sat Vilborg heit- in síðasta fundinn í félagi okkar. Það var 10 ára afmælisfundur fé- lagsins. 10. júlí síðastliðinn andaðist hún. Hún lifði það að sjá hylla undir þann áfanga, að mikið á- hugamál hennar yrði að veru- ieika. Fullt launajafnrétti kvenna og karla. Eggert Þorsteinsson, al- þingismaður, systursonur Vil- borgar, var einn af flytjendum frumvarpsins um launajöfnuð kvenna og karla, sem gert var að lögum á Alþingi 1961. Kæra nafna mín. Mig skortir orð til að_tjá þér þær þakkir, sem þér eru samboðnar fyrir þau ár, sem ég þekkti þig og starfaði með þér. En málskrúð var þér aldrei að skapi, því segi ég aðeins: „Þar sem góðir menn fara, þar eru Guðs vegir". Þórður Kristinsson. Það hefur fyrr syrt í álinn, en karlmennska þin, þrek og styrkur jafnan réynzt óbrigðul Megi svo enn verða á erfiðustu stund Hfs þíns, er eiginkona þín kveður fagurt heimiii ykkar í hinzta sinn. Ólafía Guðnadóttir. Hún systir þín var þér svo óendaniega góð og mest og bezt, þegar mest reyndi á svo ég endursegi þín eigin orð. Hún var umvafin kær- leika þínum og umhyggju síð- ustu stundirnar, þegar þungbær veikindi voru að yfirbuga þrek hennar. Ég tjái ykkur og bræðrum og ættingjum hinnar látnu innilega samúð mina. Vilborg Auðunsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.