Morgunblaðið - 12.09.1964, Síða 2
2
MORG UN BLAÐIÐ
Laugardagur 12. sept. 1964
vtiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiisiiiiiiiiiiifiiiiiiimiiiiiiiuiiuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiitiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiua
I — Ameríkubikarinn
3 Framh. af bls. 1.
3 sem skorafS er á bandarísku
3 siglingamennina.
Brezki aðiUnn sem stendur
3 að áskoruninni, „The Royal
3 Thames Yachtclub" lét byggja
3 tvo nýja báta, annan Sover-
5 eign, hinn Kurrewa V, og
3 kepptu þessir bátar sín á
3 milU baeði í Englandi og sáð-
3 an í júlí hér á þeim slóðum,
3 sem bikarkeppnin á nú að
= fara fram. Við höfum keppt
3 f tveimur áfbngum hér og
3 var keppnin mjög hörð, en
3 árangurinn var sá að Sover-
3 eign vann fleiri sigUngar í
= báðum áföngum en Kurrewa
3 Og var því valin til keppninn-
= ar við bandarísku snekkjuna
3 Constellation.“
„Siglduð þér bátnum í und
3 ankeppninni?“
„Já, ég hef siglt honum síð-
H an í júnílok."
„Hvernig líkar yður snekkj
3 an?“
3 „Það er dásamlegt að sigla
3 henni. Hún vekur með manni
= unaðsiegar tilfinninigar. Hún
3 er mjög kraftmikU og létt í
3 stýri og ég held að sjóhæfni
3 (hennar sé einstök.“
„Og stjómið þér henni?“
„Já, ég stend við stýrið.“
„Hafið þér lengi lagt stund
= á þessa íþrótt, Mr. Scott?“
S „Ég hef siglt bátum frá því
3 ég var ungur drengur og
j§ raunar stundað kappsigling-
3 ar frá því í bernsku. Sigling-
3 ar eru sérstakt áhugamál
3 mitt, en þó hef ég ekki gert
3 mi'kið af því að sigla bátum
5 af þessari stærð, þ.e. í 12
3 metra flokknum“.
„Finnst yður jafnvel
3 síkemmtilegra að sigla bátum
§§ en smala saman gæsum á ís-
3 lenzkum öræfum?“
Mr. Scott hló í símann og
3 svaraði:
„Þessu tvennu er ólíku
3 saman að jafna, hvort hefur
3 sinn tíma. Ég hafði svo sann-
3 arlega mjög mikla ánægju af
j= dvöl minni á íslandi þau
3 skipti sem ég dvaldist þar,
3 mér finmst ísland spennandi
3 land, sérsta'klega fyrir nátt-
úrufræðinga eða fuglafræð-
inga, en ég held ekki að þar
sé lögð jafn mikil stund á
siglingar og gert er í Eng-
landi“.
„Þér komuð til íslands
1951 og 1953 og genguð að
eiga konu yðar hér í Reykja-
vík að einni öræfaferðinni
lokinni. Ef við munum rétt
voruð þið gefin saman í hjóna
band af brezka sendiherran-
um í Höfða. Hvenær komið
þér aftur til fslands?"
„Ég mundi mjög gjarnan
vilja koma aftur til íslands
sem fyrst“, svaraði Peter
Scott. „Félag mitt „Wild
Fowl Trust“, sem hefur að-
setur við Severn-ána, en hún
rennur út í Bristolflóa, hefur
stundað margvíslegar rann-
sóknir á þeim farfuglum á
Íslandi, sem fara til Bretlands
á veturna, og nokkrir vís-
indamenn frá félaginu voru
á íslandi í sumar. Rannsókn-
um þessum verður senini'lega
haldið áfram næsta vor, og
Óg geri ráð fyrir, að þar verði
ekki látið staðar numið. Við
munum halda áfram rainn-
sóknum á fuglum á fslandi,
ein'kum öndum <yg gæsum“.
„Komið þér kannski til ís-
lands næsta ár?“
„Ég vona að ég geti komið
því við. Þó Areit ég það ekki
með vissu, en eins og ég sagði
þykir mér mjög vænt um
ísland og finnst gott að vera
þar“.
Við snerum okkur nú aftur
að siglingunum og spurðum
Peter Scott þessarar spurn-
ingar:
„Hvað haldið þér um
keppnina og sigurmöguleika
ykkar? “
Hann svaraði:
„Það er ómöigulegt að spá
neinu. Margir segja að banda-
ríska snekkjan muni reynast
hraðsigldari en Sovereign,
en þeir hafa raunar engar
upplýsingar til að byggja á
þessa spá sína. Auðvitað geta
þeir haft á réttu að standa.
En hvað sem hver sagir.
valinn til að stýra Sovereign. M
Ég hafði gert aílt sem í mínu 3
valdi stóð til að verða fyrir 3
valinu að stjórna Sovereign 3
og auðvitað var ég mjög glað 3
ur þegar það tókst. Svo kom 3
keppnin við Kurrewa og okk j
ur tókst að sigra hana, og þá 3
var ég ekki síður ánægður 3
með þann sigur. En nú er aðal 3
hindrunin eftir að sigra Const- 3
ellation og það er sannarlega ^
erfiðasti spretturinn. En við ||
vonum að við getum unnið 3
keppnina nú.“ 3
★ 3
VLð .sbgðum Peter Soott að =
lokum, að vinir hans á ís- 1
landi mundu fyLgjast rækilega 1
með keppninni og óska hon- 3
um góðs gengis. Hann varð 3
Iglaður við og bað fyrir kveðju 3
til vina og kunningja á ís- 3
landi, ekki sízt síns góða vin- =
ar Finns Guðmundssonar, 3
fuglafræðings. . 3
Þess má enn geta að 3
Peter Scott er forstöðu- 3
maður Wild Fowl Trust, en |
þar starfar lið sérfræðinga =
að rannsóknum. Peter Scott |
hefur lengi verið áhugamað- |
ur um fuglarannsóknir oig 3
má segja að hann hafi komið 1
upp þessum félagsskap, sem =
hefur eignazt fallegan fugla- 3
garð með fuglum hvaðanæva |
að úr heiminum, og er þar =
t.d. gott safn af íslenzkum §
öndum og gæsum. =
Eins og fynr segir hefur f
Peter Scott ekki verið við eina §
fjöl felldur. Hann hefur t.d. i
lagt stund á sviffLug, málara- 3
list, blaðamensku, ritstörf og =
sjónvarpsfyrirlestra, svo eitt- =
hvað sé nefnt. Fúmur Guð- =
mundsson sagði í samtali við 3
Morguniblaðið í gær, að fugla =
garður félags hans væri til |
fyrirmyndar og hann. hefði |
unnið miikið og þamft starf í 3
þágu fuglarannsókna á ís- 3
landi. Þó hefur hann ekki haft 3
alltof mikinn tíma til kyrr- |
látra rannsófcna, eins og dr. =
Finnur komst að orðL
Loks má geta þess að Peter 1
Scott hefuir á ferðum sínum f
til íslands tekið fjölda fcvik- I
mynda og sýnt þær víða um I
heim, auk þess siem hann I
hefur flutt fyrirlestra urn |
landið. 3
Þessa mynd tók dr. Finnur Guðmundsson af brúðhjónunum
Philippu og Peter Scott, 7. ágúst 1951. — Myndin var tekin
í Reykjavik.
breytir það f engu gerðum
okkar. Við reynum aðeins að
sigla eins hratt og við getum
— og vonum að það nægi“.
„Er þetta hættuleg íþrótt “
„Nei, eiginlega ekki. En hún
er spennandi og ævintýraleg
og fyrir kemur að einhver úr
áhöfninni falli fyrir horð eða
eitthvað detti í höfuðið á þeim
— en að það sé hættulegt að
sigla, nei það held ég ekki.“
„En er ekki erfitt að beita
bátnum rétt?“
„Jú, það krefst mikillar sér-
þekkingar. Ég held að hægt sé
að segja að það sé erfitt. Mitt
hlutverk er t. d. að vera eins
konar manniegur rafeinda-
heili, ég verð að vinna úr upp-
lýsingum sem mér berast ým-
ist um augu mín eða mér eru
sagðar af félögum minum um
borð,_ ag verð að draga
ályktanir sem vonandi verða
til þess að við siglirm hraðar
en keppinauturinn og sigrum“
„Megum við spyrja hvers
vegna þér urðuð fyrir valinu
til þess að stjórna Sovereign?“
„Ég stjórnaði bátnum í eitt
sflcipti í fynra og hef gert það
öðru hverju frá því í apríl í
vor. f byrjun siglingatímans I
aixríl voru þrír menn, sem
komu til greina sem skip-
stjórar á Sovereign. Við reynd
um okkur í kappsiglingum og
notuðum til þess annan bát,
Pacemaker, og einnig keppt
um við við Kurrewa. Ég vann
stundum og þeir stundum, en
ég var svo heppinn að vinna
oftar en þeir. Þannig var ég
IfiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiMiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiiiiiiLiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiJiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiil
Gæzlulið S.Þ. verður á
Kýpur næstu þrjá mánuði
U Thant segir liðið ekki fá aðhafzt,
þrátt fyrir aukinn vopnabúnað Grikkja,
sem nú séu öflugri en lið S.Þ. — Krafizt
aukins athafnafrelsis gæzluliðsins
New York, 11 september —
AP — NTB.
U THANT, aðalfram-
kvæmdast j óri Sameinuðu
þjóðanna, tilkynnti í dag, að
gæzluiið samtakanna á Kýp-
ur myndi verða þar um
kyrrt næstu þrjá mánuði
Núverandi dvalartími liðsins
er á enda 26. september.
Jafnframt tilkynnti fram
kvæmdastj órinn, að gæzlu-
liðið yrði að fá nánar kveð-
ið á um starfssvið sitt, þann-
ig að það gæti betur gegnt
starfi sínu.
U Thant vék að því í þessu
sambandL að nauðsynlegt
væri fyrir gæzluliðið að fá
frjálsari hendur. Liðsmenn
yrðu að fá meira ferðafrelsi
á eyjunni, og meira frelsi til
að gera þær ráðstafanir, sem
nauðsynlega væru til að
halda friðinn.
M.a. lagði U Thant til, að
liðið fengi heimild til að rífa
niður vamargarða og víggirð
ingar, og rétt til þess að
mynda hlublaus svæði, þar
sem til átaka horfði.
Framkvæmdastjórinn skýrði
frá þesou í skýrslu, sem hann
flutti öryggisráði samtak-
anna í dag.
Haon Lagði ááætzlu á, að sam
tökin skorti enn fé tíl gæzlu-
starfsiris og kvaðs-t hann vona
eftir frekari frjálsum framlög-
um. Fengist þau ekki, kvaðst
hann ekki hafa önnur ráð en
stofna til aukinna skulda sam-
takanna.
U Thant sagði, að gæzluliðs-
menn á Kýpur hefðu undanfar-
ið verið vitni að auknum víg-
búnaði á eyjunni, en sakir tak-
markaðrar heimildar til gagn-
ráðistafana, fátt geta aðhafzt til
að draga úr hættunni, sem yf-
ir vofir. Sagði framkvæmdastjór
inn, að grískir menn á Kýpur
hefðu nú fengið svo mikið af
vopnum og skotfærum, að þeir
væru mun öflugri en sjáLft
gæzluliðið.
Jafnframt kom fram í skýrsl-
unni, að stjómir Tyrlclands,
Grikklands, Kýpur og Stóra-
Bretlands hafa farið þess á leit
að gæzluliðið verði áfram á
Kýpur.
Þá skýrði U Thant frá því £
dag, að stjórn Tyrklands hefði
ákveðið að rjúfa flutningafbann
það, sem Grikkir á eyjunni hafa
sett á. Skýrði framkvæmdastjór
inn aryggisráðinu frá þtví, að í
tilkynningu, sem sér hefði bor-
izt frá tyrknesku stjórmnni,
hefði hún í huga að grípa til
ráðstafanna í þessu efni, ekki
síðar eu eftir tvo U1 þrjá daga.
í orðsendingu tyrknesku sitjórn
arinnar segir, að hún muni ekki
Lengur við það una, að Grikkir
á Kýpur komi í veg fyrir flutn-
inga á matvælum og öðrum
nauðsynjum til tyrkneskra eyj-
arskeggja.
Þá segir í orðsendihgunrii:
„Komi það fram, að ætlunin sé
að korna alveg í veg fyrir slíka
flutninga, þá hlýtur það að vera
ljóst, að ætlunin er áð svelta
tyrkneska Kýpurbúa £ hel.
Þetta sýnir jafnframt, að
Grikkir vilja koma sínum mál-
um fram með ofbeldi. Því blýt-
ur , tyrkneska stjórnin að grípa
til þeirra ráðstafana, sem nauð-
synlegar kunna að reynast til
að bæta úr þesisu ástandi.
Verzlunar og iðnaðarmála-
ráðherra Kýpur, Androas Araou
zoz, kom í dag til Moskvu, en
þangað er hann kominn til að
ræða við sovézlca ráðamenn um
aðstoð til handa Kýpurstjóm.
Með Araouzoz var Kostast AsS
iotis, starfsmaður utanríkisráðu-
neytis Kýpur. Hann skýrði frá
því í dag, að aðstoð sú, sem hér
um ræðir, sé bæði efnahagsilega
og hernaðarlegs ðelis.
Gert er ráð fyrir, að utanrík-
isráðherra Kýpur, Spyros Kyprl
anau, muni halda til Moskvu.
Hann er nú í New York, þar
sem hann er viðstaddur umræð-
ur um Kýpurmálið hjá S.Þ.
Heimsókn Kýpurráðherranna
til Moskvu kemur í kjöhfar orð-
sendingar sovézku stjórnarinnar
frá 15. fyrra mánaðar, þar sera
boðin var aðstoð til handa Kýp-
ur.
í kvöld mótmæltu Sameinuðu
þjóðirnar atferli grískra Kýpur-
búa, sem lögðu hindranir í veg
fyrir finnska hermenn í gæzlu-
liðinu í dag. Mótmæiunura var
beint til Kýpurstjómar,
Morgurtblaðið
á Djúpavogi
• MORGUNBLAÐIÐ hefur ráðið sem umboðsmann
sinn austur á Djúpavogi, frú Dagmar Óskarsdóttur
í Garði Með þessu fyrirkomulagi hyggst Morgunblaðið auð-
velda kauptúnsbúum þá þjónustu er blaðið lætur í té í öllum
kaupstöðum landsins og nær hverju einasta kauptúnl.
• Frú Dagmar Óskarsdóttir tekur á móti föstum áskrlf-
endum að blaðinu, en mánaðaráskrift að Morgun-
blaðinu kostar 90 krónur. Einnig mun hún annast sölu blaðs-
ins í lausasölu, en það kostar fimm krónur.