Morgunblaðið - 01.10.1964, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 01.10.1964, Blaðsíða 27
Fimmtudagur 1. okt. 1964 27 mOPGHfiBlABIB „Ekki lengur unnt að tefja framgang handritamálsins" segir Poul Möller Kaupmannahöfn, 30. september. Einkaskeyti til Mbl. frá Rytgárd POUL Möller, rikisendurskoð- andi og leiðtogi íhaldsmanna i Danmörku, sá er manna mest barSist fyrir því árið 1961, að lögin um afhendingu handrit- anna næðu ekki fram að ganga, sagði í dag í viðtali við „Kriste- ligt Dagblad“, að ekki vaeri leng ur unnt að tefja framgang máls- ins í þinginu. „Ef meirihlutinn greiðir lögunum atkvæði núna líka, verðum við að sætta okkur við það", sagði Möller. í sama blaði lýsir Harald Nielsen, ritari Venstre og formað ur Norðurlandaráðs yfir því að flokksmönnum Venstre verði nú eins og áður í sjálfsvald sett, Agnar Kofoed Hansen og Bergur Gislason eftir íyrsta Eyjaflugið. 25 ár síðan fyrst var lent í Eyjum í DAG eru 25 ár liðin síðan flug vél var fyrst lent í Vestmanna- eyjum. Var það lítil flugvél af KLEM-gerð. Flugmaður var Agn- ar Kofoed-Hansen og hafði hann með sér einn farþega. í»etta var fjórða tilraunin, sem gerð var til lendingar í Eyjum. Fyrsta tilraunin var gerð árið 1919 og var síðan reynt aftur 1920 og mistókust báðar tilraun- irnar. Ekki var reynt aftur að lenda í Eyjum fyrr en árið 1930, er Alexander Jóhannesson lét gera tilraun til lendingar á sjó við Eyjar og er því lýst á mjög áhrifaríkan hátt í bók hans „í lofti". f>essi tilraun mistókst einnig. Var lengi eftir þetta álit- ið að ekki væri unnt að lenda í Eyjum vegna „loftgata“. Þann 1. október 193>9 lenti svo Agnar Kofoed-Hansen lítilli þýzkri flugvél af KLBM-gerð í Eyjum. Hafði hann áður flogið nokkrum sinnum yfir Vestmanna eyjar og athugað staðhætti. Hafði hann komizt að því, að óvíða var nægilega slétt til lendingar og víða girðingar. Staður sá, er flugvélinni var ætlaður til lendingar var ekki sléttur nema á 100 metra löngum kafla. í>rátt fyrir þetta ákvað Agnar að reyna lendingu, sem tókst furðulega vel. Dvöldu þeir Agnar og farþegi hans Bergur Gíslason stórkaupmaður nokk- urn tíma í Vestmannaeyjum í boði bæjarstjórnar. Þegar þeir ætluðu að leggja af stað úr Eyjum komust þeir að því, að það mundi verða erfiðara að komast á loft en lenda. Að lokum var það tekið til bragðs að flytja flugvélina upp í hlíð og Nál. 200 farast í flóðum á Indlandi Nýju Dehli og Hyderabad, 30. sept., — AP—NTB í SUÐUR-INDVERSKU borginni Mecherla, sem er nokkuð norðan við Madras, brustu tveir geymar áveituvatns undan fargi flóða úr ánni Chandravanka og flæddi vatnið inn í borgina, sem telur um 25.000 íbúa. Leituðu menn hælis í trjám, þeir er til náðu en svo brátt bar þetta að, að flóðið tók með sér sjúklinga í rúmum sínum og strætisvagna á ferð. í óstaðfestum fregnum hermir að meira en 200 manns hafi látið lífið og á annað þúsund naut- gripa. Þá er ðttast um afdrif T5 fiski- báta með um 450 manns innan- borðs, er voru á veiðum á Bengal flóa, en þar skall á mikið óveður. í Kakinada, norðan Madras synti jnaður í land í gærkvöldi og sagði bát sínum hafa hvolft. Vissi hann Menntnskólinn settur i dng MENNTASKÓLINN 1 Reykjavík verður settur á Sal í dag kl. 2. í vetur starfar skólinn í 41 bekkjardeild og verða 22 þeirra í skólanum árdegis, en 19 síðdeg- is. Nemendum skólans fjölgar um 40 frá því, sem var í fyrra- vetur. Verða þeir nú um 950 talsins, þar af 320—330 í 3. bekk, seni starfar í 13 bekkjardeildum. ekkert um félaga sína en hafði sjálfur bjargast í land með reka- við, sem hann hafði hangið á í tvö dægur. Indverskar flugvél- ar leita nú bátanna á hafi úti en þeir héldu úr höfn í Kakin- anda á laugardag og áttu að koma aftur á mánudag. láta hana renna niður eftir henni til þess að ná nægilegum hraða. Neðst í hlíðinni var stórgrýti en síðan tóku við snarbrattir hamr- ar niður í sjó. Renndi Agnar flug vélinni niður hlíðina og hafði hún þá rétt náð nægilegum hraða til þess að hægt væri að lyfta henni yfir stórgrýtið. Steypti Agnar síðan flugvélinni fram af hömrunum um 60 metra en hafði þá náð eðlilegum flughraða. Þetta var eins og áður er sagt fyrsta tilraunin til lendingar í Eyjum, sem heppnaðist. Næsta skref í flugmálum eyjarskeggja var bygging flugvallar, sem hófst 1946. Áætlunarflug til Eyja hófst svo árið 1947. Vetrarilug til Færeyju DANSKA blaðið „Politiken“ hef ur það eftir fréttaritara sínum í Færeyjum að dansk-færeyska flugfélagið „Faroe Airways“ hyggist halda áfram flugferðum sínum í samvinnu við „Scanfly“ milli Kaupmannahafnar, Stavang er og Sörváag á VSgö í vetur. Félagið hafði áður gert ráð fyrir að hætta þessum flugferðum um mánaðamótin næstu eins og Flug félag íslands, sem haldið hefur uppi reglulegum flugferðum milli Sörvág, Reykjavíkur, Kaup mannahafnar og Glasgow siðan í vor. Tvær ísl. kvikmyradir á barna- sýningum í INiýja báó H itaveituœfinfýri og Surtseyjarmynd TVÆR íslenzkar kvikmyndir verða sýndar á barnasýningu í Nýjabíó næstu daga. Þær eru Hita veituævintýri og mynd frá gosinu í Surtsey. Umferðarslys á Snorrabraut UMFERÐARSLYS varð á gatna- mótum Flókagötu og Snorra- brautar um kl. hálf níu á mið- vikudagskvöld. Leigubifreið var að koma suður Snorrabrautina og lenti á konu, Guðfinnu Árna- dóttur, sem var á leið heim á Flókagötu 1 og átti-^aðeins eftir örstutt austur af götunni, er slysið varð. Hún lærbrotnaði og var flutt í sjúkrahús af Slysa- varðstofunni eftir að meiðsli hennar höíðu verið kunn. Framleiðandi beggja þessara mynda er Geysismyndir h.f. Hitaveituævintýri, sem er gerð að tilhlutan Reýkjavíkurborgar, er ný barnamynd og er nú orð- ið langt um liðið síðan komið hefur fram íslenzk barnamynd. Efni myndarinnar er saga tveggja barna, sem ferðast gegn- um mannvirki hitaveitunnar frá upphafi til enda, fyrst í veruleik anum og svo með ögn meira hug myndaflugi. Með hlutverk barn- anna fara Ragnheiður Gestsdótt- ir og Guðjón Ingi Gestsson. Mýndin frá Surtseyjargosinu er í litum og Cinemascope og þarf væntanlega ekki að kynna efni hennar svo þekktur sem Surtur og hans athafnir eru. Myndirnar verða sýndar kl. 3.30 i dag og næstu daga. hvernig þeir greiði atkvæði en að hanri muni sjálfur greið.a af- hendingarlögunum atkvæði og sama sé að segja um Erik Erik- sen. Dönsku blöðin ræða öll í dag þá ákvörðun stjórnarinnar að flytja aftur lagafrumvarpið frá 1961 um afhendingu handritanna. „Berlingske Aftenavis" ræðir á- kvörðun stjórnarinnar og segir m.a., að 'frá því málið hafi síðast verið rætt, hafi komið fram til- Háskólafyrir- lestrar um líf og tráarlmp;myiid- ir Eskimóa PRÓFESSOR Svend Frederiksen frá Washington flytur fyrirlestra í Háskólanum föstudag 2. okt. kl. 5.30 e.h. og laugardag 3. okt. kl. 2 e.h. um líf og trúarhug- myndir Eskimóa. Prófessor Frederiksen er fædd ur í Holstensborg í Grænlandi af dönsku foreldri. Hann stundaði nám í Kaupmannahöfn og var um árabil ráðunautur dönsku ríkis'bókasafnanna. Siðan 1948 hefir hann verið prófessor í Bandaríkjunum, m.a. við George town University. Prófessor Frederiksen hefir ferðazt mikið um Alaska, Kanada og Grænland og safnað heimildum um líf og háttu Eskimóa. Fyrirlestrarnir verða fluttir á ensku ,og er öllum heimill að- gangur. y Lögreglan vill liafa samband við tvo bílstjóra AÐFARANÓTT mánudagsins s.l. stóð bifreiðin R 7710, sem er Taunus ’55 á móts við verzlun- ina Víði, Laugaveg 166. Bíllinn er hvitur að ofan en rauður um miðjuna. Var ekið á vinstra aftur bretti bílsins, það dældað og rifið og stuðarinn rifinn frá. Ef ein- hver kynni að geta gefið upp- lýsingar um þetta, er hann beð- inn um að hafa samband við rannsóknarlögregluna. Á þriðjudaginn kl. 16,30—17 var drengur á reiðhjóli á leið niður Langholtsveg, þegar hann kemur vestantil á gatnamót Laugarásvegar kom lítil fólksbif reið með G-númeri, að hann held ur af Moskwitz-gerð akandi af Laugarásvegi Og inn á Langholts veg. Ók bíllinn á drenginn og felldi hann á götuna. Kona, sem bílnum ók, spurði hvort hann hefði meiðzt, en drengurinn bar sig vel. Og ók hún þá áfram án þess að athuga þetta frekar, þótt föt drengsins væru skemmd og fleira. Biður rannsóknarlögregl- an konuna um að hafa samband við sig. laga frá stjórn Árnasafns, um a& gera handritin aðgengileg mái- fræðingum frá Norðurlöndunum öllum með því að koma á fót norrænni stofnun. Telur blaðið, að þetta myndi koma til móts við óskir Norðmanna, en þær séu mikilsvert atriði í málinu, þar sem handritakrafa íslendinga taki m.a. til handrita, sem af- henda ætti Noregi, ef farið væri í öllu að sjónarmiðum íslendinga og nefnir blaðið þar m.a. til norsku konungasögurnar. „Úrskurður eins og á stendur“, segir blaðið, „byggður á hinu gamla lagafrumvarpi“, getur eng um aðilanna gagnað að nokkru. Hr. Jörgen Jörgensen var ein- ræðislegur í háttum þegar hann mátti sín, og það er varla við því að búast, að nokkur hlíti boð um hans með ánægju svo löngu seinna og eftir að komið hafa fram nýjar tillögur til sanngjarnr ar lausnar málanna," segir „Ber- lingske Aftenavis“ að lokum. í „Kristeligt Dagblad“ í gær skorar Bent A. Koch á andstæð- ingana að sætta sig við oröinn hlut eins og Poul Möller hafí gert. Koch leggur á það áherzlu, að ísland ætli sér að búa setn bezt að handritunum, vörzlu þeirra og rannsóknum á þeim og ættu danskir vísindamenn þá að láta stillast. „Við skulum sýna heiminum hvernig við förum að því á Norðurlöndum að leysa við kvæmt vandamál,“ segir Bent A. Koch að lokum. — Iþróttir Þessar æfingar voru mjög hertar síðasta mánuðinn fyrir Tokíóförina. Einn fréttamaður sá Bikila oft koma 5—7 min. á undan hópi væntanlegra oL-þátt- takenda úr 30 km hlaupi um- hverfis Addis Abeba á hörð- um og grýttum vegi. Bikila telur sjálfur að harin sé nú á hátindi afreks- tímabils síns en leynir þvi ekki að hann ætlar að stefna að þátttöku í OL í Mexico 1968 og þar hefur hann sann- arlega forskot þar sem eru æfingarnar heima fyrir í há- lendinu. Wolde landi hans sem tek- ur þátt í Maraþonhlaupinu. líka, getur fylgt Bikila eftir 35—38 km. Hann hefur hlaup ið 10 km hlaup á 28.20 mín. og líklegur til afreka þar einnig. Milli kappgreinanna eru 12 dagar í Tokíó og þykir Wolde það nóg til hvíldar undir Maraþonhlaupið. Það verða margir sem fylgj ast með afrekum þessara grannvöxnu Afríkubúa — og hvort .Bikila tekst að vinna klassiskasta hlaupið öðru sinni. Til sölu 6—7 herb. einbýlishús í Tún- Einar Sigurtksson há Ingólfsstræti 4. Sími 16787 Kvöldsími kl. 7—8 35993 JOHANNA MAGNÚSDÓTTIR BERGMANN Bergstaðastræti 59, sem andaðist hinn 23. þ.m. verður jarðsungin frá Foss- vogskirkjú föstudaginn 2. okt. kl. 1 30. J "— Eester B. Þórhallsdóttir, Reynir B. Þórhallsson, Sóley B. Þórhallsdóttir, Lýdía B. Þórhallsdóttir, Nói Bergmann, Sveinborg Kristjánsdóttir, Jóníua B. Þórhallsdóttir, Þorvaldur Iljálmarsson, Hilmar B Þórhallsson, Jóhanna Zimsen > börn og barnahörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.