Morgunblaðið - 24.12.1964, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 24.12.1964, Blaðsíða 6
6 MORGUNBLADIÐ Fimmtudagur 24. des. 1964 AUSTURBÆJARBÍÓ: Skautadrottningin Jð'a.myndin í Austurbæjar- bíói er þýzk litmynd, sem nefnist Skautadrottningin og er hún tekin í cinemasdope. Eins og nafn myndarinmar bendir til, er hér á ferð mynd sem fjallar um unga stúlku, sem kemst langt í skauta- íþróttinni. Uniga stújikan er ieikin af ekki minni skauta- konu, en Inu Bauerz, sem fyrrum var meistari í skauta- hlaupi. Toni Saiiler hinn heimsfrægi skíðamaður og margfaldur Olympíumeistari fer einnig með stórt hlutverk, svo hér er á ferðinni ósvikin mynd fyrir þá, sem unna vetrariþróttum. Efni myndar innar er annars vegar á þann veg, að Inga König (Ina Bau- er) hefur mikinn áhuga á leiklist, en fser eigi að sinna því áhugamáli sem skyldi fyr ir fraenda sínum Hermanni König, ríkisbubba og eiganda skautahallar. En Inga gefst ekki upp ráðaiaus og stundar nám í leiklist í lanmi hjá prófessor Engelbert. í>rátt fyr ir andstöðu Hermans, sem vilil gera Ingu að heimsmeist ara á sviði skaiutaíþróttarinn ar, tekst Ingu að komast að í Palaceleikhúsinu. Ekki er þó öll sagan sögð enn, þvi að þegar Inga birtist á leik- sviðinu í fyrsta sirm verður mikið fjaðrafok á meðal starfsmanna og eiganda leik- hússins. Raunin var sú, að hér var uim mikinn misskiln- ing að ræða, og sést það bezt á því, að þegar aðalprima- donnan átti að koima fram á sviðið, þustu tvær ungimeyj- ar, sem að sjálfsögðu vissu ekki hvaðan á sig stóð veðr- ið, fram á sviðið en þær höfðu báðar verið ráðnar til að fara fram. Þetta verðtur upphafið að sprenghlægileg- um fflækjum, en hrekklausir áhþrifendur skemmta sér kon unglega og hyila leikara í Jeikslok, í þeirri trú, að prima donnurnair tvær séu fyndin brella af hálfu leikstjórans. Vitaskuld lendir Inga litla í skemmtilegum ástarmálum og á þar í hlut Hans Haller, mikill skautagarpur. Ekki er Hermanni, frænda Ingu, gef ið um slíkan „kjánaskap“, en allt fer vel að lokum. Eins og fyrr segir, fer Inga Bauer með hlutverk Ingu König, en Oskar Sima leikur hinn duttlunigiaifulla Hermann frænda. í Mutverki Hans HaMer draumaprins Ingu, sjá um við Toni Sanler. BÆJARBÍÓ: Höllin • Bæjarbíó sýnir á jólunum fjöruga danska litkvikmynd, sem nefnist Höllin (Slottet). Myndin er tekin í fallegu um- hverfi á Suður-Sjálandi og gerizt að mestur leyti á óðals- setri, sem reist var þar 1579. Aðalhlutverk leika Malene Schwartz, Lone Hertz og Olaf Ussing. Söguþráðurinn er á þá leið. að daginn, sem Bente Falke kemúr heim frá námsdvöl í Englandi, fer faðir hennar, Falke kammerráð, í sam- kvæmi til Stenfeldt óðalseig- anda. Kammerráðið hefur beð ið Stenfelt að koma um kring spilakvöldi ásamt nokkrum fjársterkum mönnum úr við- skiptalífinu, þar sem Falken- borgarhöllin hefur undanfarin ár verið skuldum vafin og hyggst hann nú freista gæf- unnar í spilamennskunni til þess að geta rétt við efnahag- inn. Hefur hann ferugið mikla fjárhæð að láni til þess að geta lagt undir. Sú verður hins vegar raunin, að hann tapar einnig þessum pening- um og skömmu síðar sálast hann. Dóttir hans, Bente. verður þess vísari, hversu komið er fjárhag hallcwinnar oi? fær systur sína x lið með sér til þess að reyna að koma í veg fyrir það, að höllin igangi fjöl skyldunni úr greipum. Myndin fjallar um þá bar- áttu þeirra systra, en inn á milli fléttast ástarævintýri og svo auðvitað misskilningur á misskilningi ofan, en allir hnút ar leysast þó um síðir. GAMLA BÍÓ: Börn Grants skipstjóra ÞETTA er ein aif hinum skemmtilegu og litríku kvik- myndum Walt Disney, ævin- týramynd fyrir alla fjölsikyld en lengdarstigið vantaði. Próf essorinn færir börnum skip- stjórans, Mary (Hayley Mills) og Robert (Keith Hamslhere) jþessar fréttir, og þau eru staðráðin í að fara og leita föður síns. Og Paganel próf- essor er rei'ðubúinn að hjálpa þeim. í>au halda frá Plymouth til Glasgow til að hitta Glen- arvan lávarð, sem var eigandi skipafélagsins, sem Grant hafði starfað hjá. Lávarður- inn var í þann veginn að leggja upp í langferð á skemmtisnekkju sinni, og börnin og prófessorinn verða að laumast um borð til að ná tali af honum. Hann er lítt trúaður á, aíð mark sé takandi á flöskuskeytinu og því síður er hægt sé að leita allan 37. breiddarbauginn eða umhverf- is jörðina. Um síðir fellst hann þó á að hefja leitina, og nú hefst ævintýrið: Leitið að Grant skipstjóra, föður Mary og Ro- berts, eins og vænta miá, geng- ur á ýmsu, — þau lenda í hinum ótrúlegustu ævintýr- um, en eru samt staðrá'ðin í að gefast ekki u-pp, fyrr en hinn horfni skipstjóri hefur es Veren. Eins og jafnan áður hefur Walt Disney tekizt að fá úrvals leikara til að fara með aðalhlutverkin, en þau eru áð þessu sinni í höndum hins déða franska leikara Maurice Ohevalir og Hayley Milis. Myndin gerizt árið 1858. I langan tíma hafa enigar fregn- jr 'borizt af enskum skip- stjóra, Grant að nafni, og var ta'lið, að hann hefði farizt með skipi sínu einhversstað- ar í suðurhöfum. Svo gerist það, að franskur vísindamað- ur, Paganel prófessor (Maur- ice Chevalier), finnur dular- fullt flöskusikeyti í hákarl's- maga. Skeytiö virðist vera frá Grant sskipstjóra, og hafði hann þá verið staddur á 37. breiddarbaug suðurhvels jarðar, Þegar hann sendi það, HÁSKÖL ABÍÓ: Arabíu-Lawrenee SAGT ER, að kvikmyndin Arabíu-Lawrence, sem er jókamynd Háskólabíós, sé ein stórfenglegasta mynd sem gerð hafi verið — og jafn- framt ein sú lengsta, en sýn- ingiartíminn er fulil þrjár og hálf klukkustund. Myndin hefur hlotið 7 Oscarsverð- laun: sem „bezta mynd árs- ins“, fyrir „beztu leikstjórn" (David Lean), „listrænasta litameðferð", „beztu tónlist“, „beztu litmynduin," „beztu klippingu“ og „beztu hljóð- ritun“. Auk þess hefiur Ara- bíu-Lawrence fengið verð- iaun og viðurkenningar frá 13 öðrum stofinunum, sem fást við að meta og dæma kvikmyndir. Leikstjóri og framleiðandi eru hinir sömu og gerðu myndina ,,3rúin yfir Kwai- fljótið," sem hlaut heims- frægð og metaðsókn á sinum tíma. Aðalhlutverkið í þeirri imynd lék hinn kunni, brezlki skapgerðaleika ri Alec Guinn ess, en hann leikur eitt af aðalhlutverkumum í Arabíu- Lawrenoe, Feisal Prins. Sjálfan Arabíu-Lawrence, þann dUlarfuMa og rómatíska ævintýramainn, sem leiddi ara bíska ættiítokka fram til sig uns í uppreisn þeirra gegn Tyrkjum í fyrri heimsstyrj- öldinni, leikur Peter O’Toole. Hann er írskur og hlaut leik menntim sína í Konunglega leikilistarskólanuim í London. Fimm árum eftir að hann lauk námi vann hann fyrsta stórsigur sinn á leiksviði og var kjörinn „leiikari áirsins“ en fyrir leik sinn í Arabíu- Lawrence var hann kjörinn „bezti leikari ársins“. Svo skemmst sé frá að segja, bregður kvikimyndin „Arabíu-Lawrenoe upp fyrir okkur mynd af þeim ævin- týralega þætti manmkynssög- uninar, þegar skapheitur, ung ur, brezkiur liðsforingi gerist virkur þátttakandi í uppreisn Araba gegn Tyrkjium í fyrri heimsstyrjöldinni, og tekur það nánast sem guðlega köll un sírxa að sameina Araba og efla þá til baráttu. Sjálfur Winston Churchilil hefur sagt um Arabíu-Law- rence: „Nafn hans lifir í sög unni. Það er sannleilkur. Það lifir í enskum bókmenntum. Það lifir í frásögnum styrj- a'ldarimnar. Það lifir í arfleifð brezka flughersins og þjóð- sögum Araba.“ H AFN ARF JARÐARBÍÓ: Nitouche ÞBSSI skemmtilega og bráð- snjalla danska söng- og gam- anmynd, er gerð eftir óper- ettunni með sama nafni eftir fransika tónlistarmanninn Flórimond Hervé, sem þekkt- ur var í heimalamdi sínu og víðar sem tónskáld og þó eink um sem ágætur óperettuhöf- undur, enda samdi hann marg ar óperettur, sem nutu mik- illa vinsælda á sínum tíma. Óperettuna Nitouche samdi Hervé árið 1883. Vakti hún þegar mikla athygli í Frakk- landi og öðrum löndum Evrópu. Síðan hefur hún ver- ið leikin oft og mörgum sinn- um víða um heim, bæði aust- an hafs og vestan, og nýtur hún mikilla vinsælda hvar- vetna enn í dag. Nitouch mun hafa veri'ð sýnd á Norðurlönd- um oftar en nokkur önnur óperetta. Hún var fyrst sýnd í Danmörku árið 1884. Hér á landi var Nitouch fyrst sýnd í Reykjavík á veg- um Leikfélags Reyikjavíkur og Hljómsveitar Reykjavíkur á leikárinu 1940—41 og aftur 1941—42, og einnig sýndu þess ir aðilar víða um land sumar- ið 1941. Með aðallhlutverkin fóru þau Lárus Fálsson, er lék Celestin söngkennára og Sigrún Magnúsdóttir, er fór með hlutverk Nitouche. Þótti þessum leikendum takast af- burðavel og minnast menn enn hins ágæta leikis Lárusar, en þetta mun hafa verið fyrsta hlutverk hans hér. Vorið 1954 tók Þjóðleikhús- ið Nitouöhe til sýningar og var óperettunni þá sem fyrr forkunnarvel teki'ð. Þau Lárus og Sigrún fóru að þessu sinni með sömu hlutverk og áður, en meðal annarra leikenda voru söngvararnir Guðmund- ur Jónsson og Magnús Jóns- son. Kvikmyndin, sem hér um ræðir, er ný af nálinni og hefur fengið mjög góða dóma í dönskum blöðum. Með hlut- verk fara allir fremstu leik- arar Dana, en aðalhlutverk leika hinn óviðiananlegi Diroh Passer sem leikur Celestin og Lone Herz, sem leikur Nito- uohe. HAFNARIBÍÓ: Riddari drottningarinnar Þetta er bandarísk stór- mynd og fjallar um Lancelot og Guinevere, en um þau má raunar segja, að „þeim var ekki skapað nema að skilja'*. Guinevere er konurngsdóttir, sem Arthur konungur hefur biðlað til, en faðir hennar er mótfallinn ráðahagnum, þar eð hann vill ekki viðurkenna Arthur sem konung alls Eng- lands. Setur hann það skilyrði fyrir kvonfanginu, að einn af riddurum Arthurs heyji burt- reiðaeinvígi við einn riddara sinna, og sigri riddari Arthurs verður af giftingunni, annars ekki. Arthur verður ofsareið- ur og teflir fram einum hraust asta ridara sinna, Lancelot Einvígið verður að sjálfsögðu harður bardagi. En Lancelot siigrar og heldur heim með Guinevere. Á leiðinni heim ræðst á þau ræningjaflokkur, sem hefur í hyggju að drepa þau. Eru þar á ferð launmorð ingjar Mordred prins. en hann er launsonur Arthurs konungs, sem veit að ef að giftinigunni verður, missir hann af ríkis- erfðum. Eftir stuttan en harð an bardaga bera Lancelot og Framhald af bls. 15.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.