Morgunblaðið - 22.02.1967, Page 8
8
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐMIKUDAGUR 22. FEBRÚAR 1967.
Landhelgisgæzlan fylgist með
björgunar og öryggisútb. skipa
— sagbi Pétur Sigurðsson á Alþingi i gær
P É T U R Sigurðsson flutti í
gær framsögu fyrir nefndar-
áliti allsherjarnefndar um
frumvarp ríkisstjórnarinnar
um Landhelgisgæzluna. —
Gerði nefndin nokkrar breyt-
ingar á frumvarpinu.
Að lokinni ræðu Péturs
þakkaði Jóhann Hafstein,
dómsmálaráðherra, nefndinni
fyrir athuganir sínar. Hér á
eftir fara nokkrir helztu kafl
ar úr ræðu Péturs Sigurðs-
sonar:
Pétur Sigurðsson (S); Allshn.
þessarar deildar hefur fengið á
sinn fund bæði þá, sem stóðu að
samningu frumvarpsins, ráðu-
neytisstjóra Baldur Möller í
dómsmálaráðuneytinu, forstjóra
Landhelgisgæzlunnar og lög-
fræðinga, sem hafa gefið upp-
lýsingar og rætt við nefndar-
menn um efni frumvarpsins.
Einnig sendi Skipstjórafélag fs-
lands nefndinni athugasemdir
aínar og átti formaður allsherj-
arnefndar viðræður við formann
Skipstjórafélagsins, Jón Eiríks-
son og má segja, að með breyt-
Þingmál i gær
,Stjónarfrumvarp til staðfest-
ingar á bráðabirgðalögum um
tekjustofna sveitarfélaga var til
annarrar umræðu. Til máls tóku
Guðlaugur Gíslason (S) og Þór-
arinn Þórarinson (F). Að lok-
inni umræðu var frv. borið und-
ir atkvæði og var það samþykkt
óbreytt og því vísað til þriðju
umræðu.
Stjórnarfrumvarp um veiting
ríkisborgararéttar var til ann-
arrar umræðu. Matthías Bjarna-
son formaður allsherjarnefndar
mælti fyrir nefndaráliti og lagði
nefndin til að allir þeir, er nefnd
ir voru í frv. hljóti ríkisborgara-
rétt, auk þeirra 23 aðrir.
Stjórnarfrumvarp um breyting
á lögum um varnir gegn sauð-
fjársjúkdómum var til annarra
umræðu. Sóra Gunnar Gísla-
son (S) mælti fyrir nefndaráliti
landbúnaðarnefndar og lagði
nefndin til, að frumvarpið yrði
samþykkt með nokkrum smá-
vægilegum breytingum. Breyting
artillögur nefndarinnar voru
samþykktar og frumvarpið þann
ig breytt samþykkt og því vís-
að til þriðju umræðu.
Frumvarp allra þingmanna
Austfjarða um löggilding á
verzlunarstað í Egilsstaðakaup-
túni var til annarrar umræðu.
Björn Fr. Björnsson framsögu-
maður allsherjarnefndar sagði
nefndina vera sammála um sam
þykkt frumvarpsins. Frumvarp-
ið var síðan samþykkt og því
vísað til þriðju umræðu.
Frumvarp Sigurðar Bjarna-
sonar um breyting á læknaskip-
unarlögum var til þriðju um-
ræðu. Enginn kvaddi sér hljóðs
og var frumvarpið samþykkt
og það sent forseta efri deildar
til meðferðar.
Björn Páisson (F) mælti fyr-
ir frumvarpi, er hann flytur
ásamt Jóni Skaftasyni (F) um
afnám launaskatts á útgerðar-
menn. Kom Björn víða við og
tæpti á mörgum vandamálum
þjóðfélagsins. Umræðu varð
ekki lokið.
ingu sem nefndin leggi til, sé
komið að nokkru og kannski að
öllu leyti á móti því aðaláhuga-
máli, er þeir impruðu á í sínum
tilmælum. Þá komu fram at-
hugasemdir frá Starfsmannafé-
lagi Landhelgisgæzlunnar við
frumvarpið og stjórn þessa fé-
lags óskaði eftir því að fá að
eiga viðræður við nefndina og
varð hún að sjálfsögðu við þvL
Og nefndin hefur orðið sam-
mála um það að taka athuga-
semdir þeirra að fullu til greina.
Við 1. gr. er bætt inn nýjum
staflið, sem orðast svo: „Að
fylgjast með öryggis- og björg-
unarbúnaði skipa, ef ástæða
þykir til“. Ósk um þetta atriði
hefur komið fram á undanförn-
um árum frá samtökum sjó-
manna. Síðast á sl. ári frá þingi
Sjómannasambands íslands, en
bæði á þingum þess, þingum Al-
þýðusambands íslands og þing-
um Farmanna- og fiskimanna-
sambands fslands hafa verið
ítrekaðar áskoranir til þings og
ríkisstjórnar um það að bæta
það eftirlit, sem á að vera og
þarf að vera með björgunar- og
öryggisútbúnaði skipa. Eins og
er, hefur Skipaskoðun íslands
með þetta verkefni að gera, en
vegna mannfæðar og fátæktar
hafa sjómannasamtökin talið, að
þessa væri ekki gætt sem skyldi
þrátt fyrir fullan vilj-a þeirra,
sem þar stjórna og starfa. Sjó-
mannasamtökin telja, að ef þetta
atriði verður samþv í lögum um
Landhelgisgæzlu íslands, geti
það orðið til mikillar styrktar
AUÐUR Auðuns hafði fram-
sögu fyrir nefndarmhl. í gær
um frv. um fávitastofnanir
og sagði að með frv. þessu
væri stefnt að betri og nýrri
skipan í meðferð fávita.
Benti hún á þá staðreynd, að
nauðsynlegt værL að fávitaheim
ilin væru að heppilegri stærð,
þannig að allir starfskraftar nýtt-
ust sem bezt. og hægt væri að
tala um sjálfstæða fávitastofnun.
Þá ræddi Auður einnig um
möguleika á því, að auka starf-
semi fávitastofnunarinnar, svo
sem mð því að stofna ýmsar
Ný mól
Lúðvík Jósefsson (K) hefur
lagt fram á Alþingi frv. um olíu-
verzlun ríkisins.
Einar Olgeirsson (K) ber fram
fyrirspurn til ríkisstjórnarinnar
um könnun á hag dagblaðanna.
ÞRÍR þingmenn Sjálfstæðis-
flokksins, Axel Jónsson, Sverrir
Júlíusson og Matthías Á. Mat/hie-
sen, hafa borið fram á Alþingi
fyrirspurn til samgöngumála-
ráðherra svohljóðandi: Hvað líð-
þessu þýðingarmikla máli að
fylgjast með björgunar- og ör-
yggisútbúnaði skipa og ég held,
að engum dyljist, að einmitt
þeir menn, sem þar starfa að
björgunar- og öryggismálum á
hafinu, starfsmenn Landhelgis-
gæzlunnar, séu kannski öllum
öðrum betur til þess fallnir að
fylgjast með þessu atriðL
Við 5. gr. frumvarpsins leggur
nefndin til, að gerð verði nokk-
ur breyting. Athugasemdir bár-
ust nefndinni munnlega um það,
að eins og fyrri mgr. þessarar
5. gr. væri orðuð, mundi hún
stangast á við önnur gildandi ís-
lenzk lög, en það væri um lög-
reglumenn ríkisins, en þar mun
kveða á svo, að þeir þurfa að
hafa náð 21 árs aldri. Frá for-
stjóra Landhelgisgæzlunnar og
ráðuneytisstjóra dómsmálaráðu-
neytisins komu þó fram þær
skýringar, að þarna væri ein-
göngu verið að tryggja áhafnir
varðskipanna, það væri að gefa
þeim rétt löggæzlumanna og þeg
ar háttvirtir þingmenn íhuga
þetta nánar og hafa í huga, að
oft og tíðum þarf að senda menn
um borð í erlend skip, sem verið
er að taka, undirmenn t.d. ásamt
sínum yfirmönnum, sem ekki
hafa náð þessum aldri, 21 árs
aldri, hljóta allir að vera sam-
mála um það, að okkur beri
skylda til að gefa þessum mönn-
um þau réttindi, sem löggæzlu-
mönnum ríkisins öðrum eru
gefin.
Við 7. gr. leggur nefndin til,
deildir, elliheimili og vinnustof-
ur.
Auður Auðuns minntist á dag
heimliði í Skálatúni og taldi hún
eðlilegt og sanngjarnt, að þau
börn, er þar dveldust fengju %
styrkveitingar, sem veitt væri
til þeirra barna er dvldust á
hælinu í Kópavogi.
Þá lagði Auður áherzlu á, að
festa þyrfti í lögum það ákvæði
um menntun þeirra, er hjúkra
fávitum.
Alfreð Gíslason (K) ræddi
nauðsyn þess að gerðar yrðu
sérstakar menntunarkröfur til
forstöðumanns fávitastofnunar
og gerði grein fyrir breytingar-
tillögu þess efnis.
Auður Auðuns (S) sagði að
það hefði verið af ráðnum hug,
sem nefnd sú er frv. samdi hefði
ekki lagt til að lögfestar yrðu
menntunarkröfur til forstöðu-
manns. Hugsantegt væri að
heppilegasti einstaklingur á
hverjum tíma útilokaðist frá
starfinu ef svo værL
ur störfum nefndar þeirrar, er
ráðherra skipaði á árinu 1965 til
að gera tillögur um framtíðar-
stefnu í flugvallarmálum höfuð-
borgarsvæðisins“. “
að breyting sé á gerð, og leggur
nefndin til, að komið sé a móti
óskum Starfsmannafélags Land-
helgisgæzlunnar um orðalag
þessarar greinar á þann veg, að
hún orðist þannig: „Starfsmenn
Landhelgisgæzlunnar mega
hvorki gera verkfall né taka
þátt í verkfallsboðunum. í frum-
varpinu segir, að starfsmenn
Landhelgisgæzlunnar megi
hvorki beint né óbeint taka þátt
í neins konar kjara- eða kaup-
deilum. Eins og þar segir, virð-
ist auðsætt, að það sé verið í
fyrsta lagi að skera þessa menn
algerlega frá sínum stéttarfélög-
um, þar sem sumir hverjir hafa
verið meðlimir og starfað um
tugi ára og í öðru lagi stangist
þetta á við það, sem á eftir komi
í þessum lagaákvæðum um það,
að gera þurfi sérstaka samninga
fyrir þessa starfsmenn ríkisins.
Og ef greinin hefði verið sam-
þykkt á þann hátt, sem hún var
hér fram borin, virðist erfitt að
sjá, hverjir ættu að taka að sér
samninga fyrir þessa menn, sem
eins og til var lagt, mega hvorki
beint né óbeint taka þátt í
kjara- né kaupdeilum.
Frá Skipstjórafélagi fslands
barst bréf til nefndarinnar. Þar
bendir á það réttilega að skip-
herrar á skipum Landhelgis-
gæzlunnar hafi um langt árabil
búið við það að hljóta minni
björgunarlaun en aðrir skip-
stjórar, t.d. á verzlunarflotanum.
Það má segja, að þetta sé á
margan hátt eðlilegt, þegar þess
er gætt, að í og með er eitt höfuð
viðfangsefni Landhelgisgæzlunn
ar að stuðla að og vinna að
björgun. En sú þróun hefur samt
sem áður orðið á síðari árum, að
með samningum við undirmenn
skipstjórans hafa komið inn lið-
ir, sem orsakað hafa, að hlutföll
hafa breytzt, þannig að þegar
búið er að skipta upp björgunar-
launum eftir þeim reglum, sem
gilt hafa fyrir starfsmenn Land-
helgisgæzlunnar, hefur dæmið
stundum komið þannig út, að
skipstjórinn hefur borið miklu
minna úr býtum heldur en marg
ir aðrir skipsmenn og má t.d.
geta um yfirvinnuna, sem allir
aðrir skipverjar en skipherrarn-
ir njóta á skipunum í dag. Og
þeir benda réttilega á, að ef
skipin, sem bjargað er, eru vá-
tryggð hjá Samábyrgð íslands,
þá fær skipshöfnin engin björg-
unarlaun. Hins vegar geta allir
undirmenn fengið miklar auka-
tekjur vegna yfirvinnu. Vegna
þessa og einnig vegna þeirrar
þróunar, sem orðið hefur á skip-
um Landhelgisgæzlunnar, skal
ég taka eitt dæmi, en það er um
þann nýja áhafnarmeðlim, sem
fer með hlutverk froskmannsins
HÖFUM
KAUPENDUR
AÐ
2-3 og 4 herb.
íbúðum full-
gerðum eða í
smíðum. Einnig
einbýlis- og rað
húsum. Góðar
útborganir
FASTEIGNA-
ÞJÓNUSTAN
Austurstræti 17 (Silli&Valdi)
Símar 246 45 & 16870
Kvöldsími 30587.
á skipunum. Þessi eini einstakl-
ingur getur kannski að miklu
leyti átt hlut að því, að skipi sé
bjargað eða sú aðstoð veitt, sem
veiti Landhelgisgæzlunni, björg-
unarsjóði og áhöfn viðkomandi
skips rétt til mikilla björgunar-
launa. Við teljum sjálfsagt f
allsherjarnefnd, að það séu mögu
leikar á því fyrir stjórnendur
Landhelgisgæzlunnar að taka
slíkt til greina, eins, ef skipherra
leysir þannig sitt starf af hendi
Framhald á bls. 31
íbúð óskast
Hef kaupanda að 6 herb. sér-
hæð nýlegri við Safamýri
Skipholt eða á góðum stað í
Vesturbænum. íbúðin þarf
ekki að vera laus fyrr en eftir
ár fyrir kaupanda.
Einar Sigurðsson
Ingólfsstræti 4, sími 16767.
Kvöldsími 35993.
Lítið einbýlishús á Vatnsenda
land, gott verð.
Einstaklingsíbúð við Laugar-
nesveg.
2ja herb. góð íbúð við Kapla-
skjólsveg.
2ja herb. íbúð við Laugarnes-
veg, nýstandsett.
3ja herb. góð íbúð við Kapla-
skjólsveg.
4ra herb. góð ibúð við Álf-
heima.
4ra herb. góð íbúð við Álfta-
mýri.
4ra herb. góð risíbúð við
Eikjuvog.
5 herb. íbúð við Hjarðarhaga,
væg útborgun.
5-6 herb. vönduð íbúð við
Bugðulæk.
6 herb. fullfrágengin íbúð við
Þinghólsbraut.
/ smiðum
2ja herb. íbúð við Kleppsveg,
undir tréverk.
4ra herb. íbúð við Digranes-
veg, fokheld.
4-5 herb. íbúð við Kleppsveg,
undir tréverk.
6 herb. hæðir við Digranes-
veg, fókheldar og einangr-
aðar.
6 herb. hæS í Vesturborginni
með innibyggðum bílskúr á
jarðhæð, tilbúin undir tré-
verk, allt fullfrágengið að
utan. Glæsileg eign.
Einbýlishús á Flötunum, fok-
helt.
Raðhús á Seltjamamesi, fok-
held, fullfrágengin að utan.
Einbýlishús við Hlaðbæ, fok-
helt.
Næstum fullgert einbýlishús
á Seltjarnamesi. Stór bílskúr.
Lítið einbýlishús á fallegum
stað í Kópavogi, fokhelt.
Lóð undir einbýlishús á Flöt-
unum og í Kópavogi og rað
hús á Seltjarnarnesi.
Tvíbýlishús í Garðahreppi,
með tveim bílskúrum, selst
uppsteypt með frágengnu
þaki, hvor hæð fyrir sig eða
í einu lagi.
i Málflufnings og
1 fasfeignasfofa j
■ Agnar Gústafsson, lirl. m
B Björn Pétursson m
B fastcignaviðskipti
B Austurstræti 14.
Símar 22870 — 21750. M
B Ulan skrifstofutíma: A
» 35455 — 33267.
Nýskipan í mál-
efnun fávita
— til umræðu í efri deild
Fyiirspurn um flugvullurmál