Morgunblaðið - 22.02.1967, Síða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐMIKUDAGUR 22. FEBRUAR 1967.
Hver myrti Kennedy?
Vaxandi tortryggni gagnvart
niðurstöðum Warren-nefndatinnar
IMý bók um
skýrsluna
yekur mikla
athygli
ENN hefur verið blásið á
gl'æður þeirra grunsemda,
að hið voveifilega morð
Jeflm F. Kennedys Banda-
ríkjaforseta hinn 22. nóv.
1963 hafi ekki verið framið
af einum manni, heldur
verið afleiðing samsæris,
þrátt fyrir hina umfangs-
mi'klu rannsókn, sem hin
stjórnskipaða svonefnda
Warrennefnd framkvæmdi,
þar sem komizt var að
þeirri niðurstöðu, að það
hafi verið Lee Harvey Os-
wafld, sem einn og án þess
að hafa verið í vitorði með
öðrum, hafi myrt forset-
ann.
Þegar Skýrsla Warren-
nefndarinnar var birt, var
fargi létt af Bandaríkja-
mönnum. Fólk var al-
mennt þeirrar skoðunar,
að með skýrslunni hefði
sannleikurinn heill og ó-
skiptur um morðið verið
dreginn fram í dagsljósið
og öllum grunsemdum og
efa um, að um samsæri
hefði verið að ræða, verið
eytt.
En það stóð ekki lengi.
Smám saman fór að koma
fram ýmis gagnrýni á störf
um Warren-nefndarinnar
og nú er svo komið, að um
þetta hafa verið ritaðar
margar bækur auk ara-
grúa blaðagreina í Banda-
ríkjunum og öðrum lönd-
um. í þessum skrifum er
mjög misjafnlega fjallað
um þetta mál. Sums stað-
ar er gagnrýnin byggð á
svo léttvægum rökstuðn-
ingi, að fæstir hafa gefið
henni nokkurn gaum. Ann
ars staðar hefur hins veg-
ar komið fram gagnrýni,
sem rök hafa verið færð
fyrir á “þann veg, að efa-
semdir og tortryggni varð-
andi meðferð þessa máls,
hafa að nýju skotið svo
rótum, að umræður á op-
inberum vettvangi um það
hafa farið stöðugt vaxandi.
Ein bók hefur einkum
átt mikinn þátt í þessu.
Hún er eftir Mark Lane,
39 ára gamlan lögfræðing
og rithöfund frá New
York. Hann hefur fengizt
við að kanna morðið á for-
setanum frá því í desem-
ber 1963 og gaf síðan út
rannsóknir sínar og niður-
stöður um morðið og
skýrslu Warren-nefndar-
innar í bók, sem nefnist
„Rush for Judgement".
Bók hans hefur verið mjög
umdeild. Henna-r vegna
hefur hann verið kalflaður
lygari eða þjóðhetja. Víst
er, að sú gagnrýni, sem
fram kemur þar á störfum
Warren-nefndarinnar, hef-
ur vakið almennari athygli
en nokkur gagnrýni, sem
fram hefur komið annars
staðar.
Fyrirfram
mótuÖ skoðun
Mark Lane telur, að það
hafi háð Warren-nefndinni
mjog og raunverulega leitt
til rangrar niðurstöðu henn-
ar, að nefndin hafi fyrirfram
verið búin að mynda sér
skoðun á því, hver morðing-
inn hefði verið. Lane vænir
engan nefndarmanna um að
hafa farið vísvitandi með lygi
né beitt fölsunum. Nefndin
hafi verið skipuð framúrskar-
andi mönnum og sjálfur for-
seti Hæstaréttar Bandaríkj-
anna, Earl Warren, hafi ver-
ið formaður hennar . Nefnd-
armönnum hafi hins vegar
verið mikið í mun að við-
halda heiðri Bandaríkjanna
út á við sem inn á við og
sýna fram á, að Bandaríkin
væru lýðræðisríki, þar sem
ekki væri unnt að steypa lög
legri stjórn landsins með sam
særi glæpamanna. Vegna
þessa hafi þeir haft ríka til-
hneigingu til þess að skella
skuldinni fyrirfram á Lee
Harwey Oswald, og sýna
fram á, að þar hefði verið um
ódæði að ræða, sem truflaður
óhappamaður einn og óstudd-
ur hefði staðið að. Með þvl
móti væri heiðri Bandaríkj-
anna að mestu borgið. Af
þessari ástæðu hefði nefndin
virt að vettugi og vanrækt
hvaðeina, sem var gagnstætt
þessari skoðun.
Hér verður greint frá
tveimur öðrum atriðum, sem
Lane heldur fram og hljóta
að vekja athygli. Annars veg
ar er það sú skoðun hans, að
um samsæri hafi verið að
ræða og fleiri en einn maður
hafi skotið forsetann (og Os-
wald hafi hvergi komið þar
nærri). Hins vegar er það sú
staðhæfing hans, að Warren-
nefndin hafi ekki getað feng-
ið fram sanleikann varðandi
morðið, vegna þess að þeim,
sem eitthvað vissu og viidu
segja frá, hvað gerðist í Dall-
as þennan örlagaríka dag fyr
ir rúmlega 3 árum, hafi ann-
að hvort verið rutt úr vegi
eða þeir fengnir til að þegja
með hótunum.
0
Hvaðan komu
skotin?
Eins og kunnugt er, þá var
það niðurstaða Warren-nefnd
arinnar, að Oswald hefði
skotið á forsetann með riffii
úr glugga á 6. hæð i bók-
hlöðu í húsi, sem forsetino
ók framihjá, og að engin skot
hafi komið annars staðar frá.
Skoðun Mark Lanes er a’lt
önnur. Þegar forsetinn var
skotinn, var bifreiðin, sem
hann var í, rétt komin fram
hjá bókhlöðunni. Til hægri
framundan bifreið forsetans
var grashóll með trégirðingn.
Nokkru áður en bílalest for-
setans var komin að þessu
svæði, sá ung kona, Julia
Ann Mercer að nafni, vöru-
bíl fyrir neðan grashólinn og
var honum lagt ólöglega,
þannig að hann var hálfur
uppi á gangstéttinni og skag
aði þannig ú\ á götuna, að
hann hindraði að nokkru um
ferðina.
Lögreglumenn stóðu þar
ekki alls fjarri, en þeir gerðu
ekkert til þess að hnika við
vörubílnum. Ungfrú Mercer
sá, hvar maður nokkur fór
úr bílnum og klifraði upp á
grashólinn. Annar maður
varð eftir í bílnum. Þegar nún
ók burtu, var vörubíllinn far-
inn og var það áður en bíla-
lest forsetans fór fram hjá.
í eiðfestri yfirlýsingu, sem
hún gaf lögreglunni í Datlas
síðar, sagði ungfrú Mercar,
að maðurinn hefði haldið á
einhverju, „sem sér hefði
virzt vera byssuslíður" um
þrjú til fjögur fet á lengd.
Ungfrú Mercer var aldrei köll
uð til þess að bera vitni né
heldur verið spurð neinua
spurninga af Warren-nefnd-
inni. Allt og sumt, sem frá
henni væri komið, var þessi
vitnisburður hennar hjá lög-
reglunni í Dallas.
Mark Lane bendir á, að
framburður enn fleira fó’ks
bendi í þá átt, að skotið hafi
verið á forsetann af manni,
sem var í felum bak við gras
hólinn. Maðui að nafni Lee
Bowers var staddur í járn-
brautarbyggingu, er þetta
gerðist, þaðan sem hann gat
séð yfir framangreindan hól
og samkvæmt vitnisburði
hans sá hann tvo menn
standa á bak við trégirðing-
una, rétt áður en skotunum
var hleypt af, Bowers kom
fyrir Warren-nefndina, þar
sem hann vottaði, að á sama
augnabliki og skothríðin
hófst, hafi eitthvað beint at-
hygli hans að girðingur.r.i.
Hann lýsti því „sem ein-
hverju óvenjulegu”, sem dró ’
að sér athygli sína af ein-
hverri ástæðu, „sem ég gerði
mér ekki grein fyrir“. Þegar
hann var beðinn um að gera
nákvæmari grein fyrir þessu,
sagði hann, að hann hefði
séð: „Ekkert ákveðið, sem ég
gat bent á, að hefði gerzt,
þannig......“ Hér var gripið
fram í fyrir Bowers af lög-
fræðingi nefndarinnar.
Þegar Mark Lane síðar átti
viðtal við Bowers sem bæði
Lee Harvey Oswald. Mark
Lane heldur því fram, að
draga megi þá ályktun af
skýrslu sjálfrar Warren-
nefndarinnar, að einhver,
sem mjög hafi líkzt Oswald,
hafi unnið markvisst að því
vikum saman fyrir morðið að
gera Oswald tortryggilegan,
þannig að líkurnar myndn
heinast að honum eftir morð
forsetans.
var tekið upp á segulband og
kvikmyndað, kveðst hann
hafa sagt við Bowers, að sér
hafi verið það mikið áhuga-
mál að vita, hvernig framan-
greind setning hefði átt að
enda og svaraði Bowers þá
þannig: „Það var gripið fram
í fyrir mér af lögfræðingi
nefndarinnar. Það var greini-
legt, að hún vildi ekki, að
skýrt_ yrði frá staðreyndun-
um. Ég ætlaði einmitt að fara
að skýra frá því, að í sama
mund og skotið var, þá leit
ég í átt til girðingarinnar og
sá reykjarstrók eða glampa'*.
Bowers lýsti mönnunum
tveimur fyrir Lane og bar
þeirri lýsingu nákvæmlega
saman við þá lýsingu, sem
Julie Aann Mrcer gaf lögregl
unni í Dallas á mönnun im
tveimur, sem hún hafði séð 1
vörubifreiðinni.
Enn eitt vitni, maður að
nafni J.C. Price, sem stóð
uppi á þyggingu, þaðan sem
hann sá yfir bílalest for-.et-
ans, þegar skotunum var
hleypt af, skýrði Mark Lane
síðar frá því, að þegar hann
heyrði skothríðina, þá hafi
athygli sín beinzt þegar i stað
að graghólnum. Þar sá hann
mann hlaupa í átt frá girð-
ingunni og hverfa á bak v'ð
bókhlöðuna. Hefði maðurinn
haldið á einhverju og sagði
Price, að það hefði vel getað
verið byssa.
Hér að framan hefur verið
skýrt frá framburði þriggja
vitna, sem stangast algjörlega
á við þá niðurstöðu Warren-
nefndarinnar, að öll skotin,
sem skotið var í átt til for-
setans, hafi komið frá bók-
hlöðubyggingunni, en Lane
bendir einnig á, að af um 90
vitnum, sem gátu gefið vitn-
isburð um, hvaðan skot.in
komu, hafi 58 sagt, að skotin
hefðu komið frá grashólnum,
þar sem girðingin var.
Bezt að vita
ekki neitt
Mark Lane leggur mikla
álherzlu á það, eins og greint
var frá, hér að framan, að
ef framburður einhvers vitn-
is hafi ekki verið í samræmi
við hina fyrirfram mótuðu
niðurstöðu Warren-nefndar-
innar, þá hafi þessu vitni yfir
leitt verið ýtt til hliðar og
ekkert hirt um, frá hveiju
það hefði að segja, Á þennan
hiátt hefði mjög margt aldrei
verið upplýst varðandi morð
ið og þá fyrst og fremst atlf
það, sem gat bent til þess,
Framhald á bls. 24.
Mynd þessi
sýnir útsýnið
úr glugganum
á byggingunni,
þaðan sem Os-
wald á að hafa
skotið á forset
ann. Bifreið
forsetans var
stödd á sama
stað og öfin
bendir.