Morgunblaðið - 22.02.1967, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐMIKUDAGUR 22. FEBRÚAR 1967.
21
Hannes Pálsson:
Veiðarfæraiðnaður
og mótmælafundur
t SAMBANDI við útvarps og
blaðafregnir að undanförnu um
fundansamþykktir, þar sem því
er haldið fram að mikill verð-
munur sé á innlendum og er-
lendum veiðarfærum, er rétt að
taka fram að sá verðsamanburð-
nr, sem þar er gerður er mjög
óraunhæför, þar sem ekki er
borið saman verð eftir gæðum
varanna. í slíkum samanburði
mun aðallega vera átt við verð
á köðlum og botnvörpugarni frá
FortúgaL
Sýna eftirfarandi prófanir,
sem framkvæmdar hafa verið af
Rannsóknarstofnun iðnaðarins,
að efnisstyrkleikinn í porúgölsk-
nm köðlum og garni er lakari
en á íslenzkum. í sumum tilfell-
nm er um alls ósambærilegt efni
að ræða, þar sem verðmunur er
fundinn með því að bera saman
framleiðslu með Trevira og
Kurlon þráðum, sem eru dýr
hráefni, við porúgalska kaðla úr
polyproppylene.
Skýrsla Rannsóknarstofnunar
Iðnaðarins fer hér á eftir:
Umsögn um niðurstöður mæl-
Inga gerðar daganna 7.—8. febrú
ar 1967, samkvæmt meðfylgjandi
töflum.
Ur niðurstöðum slitþolmæling
•nna var myndað hlutfallið:
slitþol / þyngd (T/>) fyrir sver-
ustu kaðlanna 16, 14 og 10 mm
að þvermáli, mætti kalla þessa
stærð eðlissíitþol og nota hana
sem mælikvarða á styrkleika
kaðlanna. Fyrir mjórri taugarn-
ar 4 og 5 mm að þvermáli var
ekki hægt að mynda þessa stærð
beint úr mælingum, heldur var
hún reiknuð út. í ljós kom, að
eðlisslitþol kaðla og tauga frá
Hampiðjunni er meira en hinna.
Úr tognuninni var mynduð
stærðin L, sem láknar lengdar-
aukningu / lengdareiningu í prós
entum. L er minna í köðlum og
taugum frá Hampiðjunni en i
hinum. Teljum við það kost, þar
sem það þýðir minni minnkun
þvermáls og þar með meiri end-
ingu gagnvart síendurteknu á-
taki á kaðlana. Mælingarnar
leyfðu hins vegar ekki að reikna
út, hve elastisk tognun er mik
ill hluti af heildar slittognun
inni.
Sýnishornin af portúgalska
efninu voru keypt í verzl. O.
Ellíngsen h.f. 6. febrúar 1967 og
í heilum rúllum og báru vöru-
merkið Movlon.
Sýnisihorn Hampiðjunnar voru
fengin I verksmiðjunni þ. 7.
febrúar 1967 af heilum rúllum.
Rannsó’knarstofnun iðnaðarins
Pétur Sigurjónsson (sign).
Axel Carlqwist (sign).
Aðalfundur
Sjálfstæðis-
manna í Grund-
arfirði
AÐALFUNDUR Sjálfstæðis-
félagsins í Grundarfirði var hald
inn miffvikudaginn 15. þ.m., þar
■em m.a. voru rædd atvinnumál
f þorpinu, einkum meff tilliti tll
þeirrar stöffvunar á hrafffrysti-
húsunum undanfarna mánuffi.
Kosin var ný stjórn og hana
akípa Páll Cecils formaður, og
aðrir í aðalstjórn þeir Þorkell
©unnarsson, Þorsteinn Bárðar-
•on, Ágúst Sveinsson og Hinrik
Elbergsson.
Fráfarandi formaður, Emil
Magnússon, sem gegnt hefur for-
mannastarfi frá upphafi, svo og
meðstjórnendur hans, báðust
•indregið undan endurkosningu.
Eðlis-
Slitþol slitþol Tognun
Hampiðjan kg. pr. kg. efnis %
16 mm. Marlin p. p. kaðlar 3300 13,8 32,3
16 mm. Multiflex — 3060 14,1 29,4
14 mm. — — 2940 16,5 27,7
10 mm. — — 1500 18,9 19,2
5 mm. Marlin garn 269 13,8 60,1
Meðaltal slitþolsprófana :
Portúgal 16 mm. Movlon kaðlar 2880 12,7 34,1
14 mm. — — 2370 14,4 28,3
10 mm. — —• 1350 16,2 26,5
5 mm. Corfi garn 262 12,0 63,9
Framangreindar niðurstöður ar talið sig ná betra árangri
>ru meðaltal þriggja prófana af veiðarnar með því að nota
hvorri tegund og hefur heildar-
skýrsla Rannsóknarstofnunar iðn
aðarins verið afhent iðnaðar-
málaráðuneytinu.
Eins og fram kemur af skýrsl-
unni hafa vörur Hampiðjunnar
í öllum tilfellum meira slitþol,
hærra eðlisslitþol á kíló efnis og
minni tognun en hinar portú-
gölsku vörur, sem teknar voru
til samanburðar.
Þegar tekið er tillit til gæða
á vörum Hampiðjunnar, sem
náðst hafa með ítrekuðum próf-
unuim og veiðihæfni á fisklinum
í samvinnu við fyrirmyndar út-
gerðarfélög eins og t.d. Einar
Guðfinnsson í Bolungarvík, er
verðmunur hverfandi, enda hafa
margir útvegsmenn og skipstjór-
lenzkar línur og kaðla á undan-
förnum árum þótt þeir hafi átt
kost á nokkru ódýrari vörum frá
Portúgal. Fundarsamþykbtir um
40% hærra verð á hliðstæðum
vörum eru tilhæfulaus ósann-
indL
Hinn mikli áróður þeirra hags
muna er vilja gera hlut inn-
lends veiðarfæraiðnaðar, sem
minnstan hefur náð hámarki í
ódrengilegum málflutningi og
rógi um léleg gæði á framleiðslu
vörum Hampiðjunnar.
Framangreind rannsókn fór
fram að gefnu tilefni og er birt
fyrir þá, sem vilja heldur hafa
það, sem sannara reynist,
Hannes Pálsson.
Dæmdur í 20 ára
þrælkunarvinnu
Salisbury, Ródesíu, 20. febr.
— AP —
ÞRÍTUGUR mannkynnssögu-
kennari viff háskólann i Salis-
bury var í dag dæmdur til 20 ára
þrælkunarvinnu fyrir hlutdeild í
því er ríkissaksóknari hæstarétt-
ar borgarinnar nefndi: „Djöful-
legt samsæri, sem orffiff hefði
mörgum hvítum Ródesíubúum
aff fjörtjóni". Kennarinn, John
A. Conradie, er sagffur hafa ját-
aff á sig dreifingu peninga fyrir
hinn útlæga afríska þjóffernis-
flokk og einnig fyrir aff hafa
dreift fyrirmælum, og hand-
sprengjum, sem varpa átti inn í
evrópskar byggingar.
Almenningur fékk ekki að
hlusta á yfirheyrslurnar yfir
Conradie og blöðum var bannað
af „öryggisástæðum", að birta
nöfn þeirra, sem voru í hinum
bannaða flokki.
Conradie er einnig sagður
hafa lýst því yfir, að hann hefði
aldrei verið handtekinn áður, og
hefði aðeins verið í tengslum við
flokkinn síðan Ian Smith gaf út
sjálfstæðisyfirlýsinguna í nóv-
ember 1965.
Verjendur Conradie hvöttu
réttinn til að sýna honum vægð,
þar eð hann hefði aldrei haft
lykilaðstöðu i flokknum og
stjórnmálahugsjónir hefðu ráðið
gerðum hans.
Jomo Kenyatta, forseti Kenya, sést hér í hátíðabúningi sínum á-
samt hinum ensk-fædda talsmanni Kenya-þings, Humphrey Slade
Þeir eru aff koma tii þingsetning arinnar, sem fór fram í Nairobi
hinn 16. þ.m. Slade var einróma endurkjörinn talsmaffur þingsins.
Mikið mannfall Viet
Cong í síöastl. viku
Saigon, 20. febr. AP-NTB.
VIET CONG og N-Víetnam
misstu 1765 hermenn í vikunni
sem leiff, aff því er talsmenn
stjórnar S-Víetnam upplýstu í
dag. Er þaff mesta mannfall
þeirra á einni viku síffan styrj-
öldin í Víetnam hófst.
Alls féllu 746 hermenn Víet
Cong á sunnudag og einnig var
tilkynnt um 118 fallna skæru-
liða 1 héraðinu Quang Nam og
220 í Binh Dinh-héraðinu á síð-
ustu átta dægrum. Fréttastofa
N-Víetnam sagði í dag, að átta
bandarískar flugvélar hefðu ver-
ið skotnar niður yfir N-Víetnam
á tímabilinu 16.—18. febr. Tals-
menn Bandaríkjastjórnar í Sai-
gon hafa upplýst, að á sama
tíma sé aðeins einnar flugvélar
saknað.
Leiguflugvél byggingarfyrir-
tækis í Saigon fórst í lendingu
í dag á Nha Trang-flugvellinum.
Fjórir Bandaríkjamenn sem í vél
inni voru létu lífið, og einnig
fórust fimm Víetnamar, er flug-
vélin lenti á strætisvagni, sem
þeir voru í. Ekki er enn vitað
hvað flugslysinu olli.
Herbergi óskast
íbúð til sölu
Eignarhluti minn í húseigninni Hringbraut 5 í Hafn-
arfirði er til sölu.
Upplýsingar í dag í síma 52343.
JÓN ÓI. BJARNASON.
Fiat-umboðið óskar eftir herbergi með húsgögnum
fyrir ítalskan sérfræðing sem hjá okkur starfar um
1 árs skeið.
Upplýsingar í Fiat-umboðinu, sími 38888.
Einbýlishús
í Kópavogi
Höfum til sölu fokhelt einbýlishús. sem verður til—
búið í maí. Húsið er 126,28 ferm. Svefnherbergi,
stór stofa, skáli, eldhús, bað og W.C., þvottahús,
geymsla,allt á sömu hæð, ásamt uppsteyptum bíl-
skúr. Teikningar liggja frammi á skrifstofu vorri.
TRYGGINGAR og FASTEIGNIR
Austurstræti 10 A 5. hæð — Sími 24850.
Kvöldsími 37272.
Aðvörun
um stöðvun atvinnurekstrar
vegna vanskila á söluskatti
Samkvæmt kröfu tollstjórans í Reykjavík og heimild
í lögum nr. 10, 22. marz 1960, verður atvinnu-
rekstur þeirra fyrirtækja hér í umdæminu, sem enn
skulda söluskatt IV. ársfjórðungs 1966, svo og sölu-
skatt eldri ára, stöðvaður, þar til þau hafa gert full
skil á hinum vangreiddu gjöldum, ásamt áföllnum
dráttarvöxtum og kostnaði. Þeir, sem vilja komast
hjá stöðvun, verða að gera full skil nú þegar til
tollstjóraskrifstofunnar, Arnarhvoli.
Lögreglustjórinn í Reykjavík, 20. febrúar 1967.
SIGURJÓN SIGURÐSSON.