Morgunblaðið - 19.02.1969, Page 1
28 síður
41. tbl. 56. árg. MIÐVIKUDAGUR 19. FEBRUAR 1969 Prentsmiðja Morgunblaðsins
Skotárás á EL AL
þotu í Ziirich
— samtök Araba, sem berjast fyrir frels-
un Palestínu, frömdu verknaðinn
Zúrich 18 febr. AP. NTB.
SKOTIÐ var á ísraelska farþega-
flugvéi á flugvellinum við Ziir-
ich í Sviss, siðdegis í dag, þriðju
dag. AP-fréttastofan segist hafa
það eftir öruggum heimildum, að
fjórir farþeganna hafi meiðzt,
þar á meðal flugstjórinn. I sömu
fregn segir, að fjórir karlar og
ein kona hafi framið verknaðinn
og eru þau félagar í þeim sam-
tökum Araba, sem krefjast frels
unar Palestínu.
Vélin, sem var af gerðinni
Boing 72ú, og í eigu ísraelska
félagsins EL AL, var að búast til
flugtaks, með sautján farþega
innanborðs, þegar vélbyssuskot-
hríð hófst skyndilega á vélina.
Framhald á bls. 27
Hefnd Kínverja vegna flótfa Shu:
Aflýsa fundi með
Bandaríkjamönnum
— sem átti að hefjast í Varsjá 20. feh
Tókío 19. febr. AP.
KÍNA hefur ákveðið að hætta
við fyrirhugaða fundi sendi-
herra Bandaríkjanna og Kína
í Varsjá, sem áttu að hefjast
eftir árs hlé, þann 20. febrúar.
Segir í yfirlýsingu kínversku
stjórnarinnar, að þetta sé af-
ráðið í mótmælaskyni við
meint klækjabrögð og bak-
tjaldamakk Bandaríkjanna
gegn Kínverska alþýðulýð-
veldinu.
1 yfirlýsingunni segir meðal
annars orðrétt: „Þann 6. febrúar
sl. bar fuill'trúi kínverska utan-
ríkisráðuneytisins fraan eindreg-
in mótmæli vegna skipulagðrar
samvinnu Bandaríkjannia og Hol-
lands til að fá kínverskan
sendifulltrúa til að svíkja land
Framhald á bls. 27
Myndin var tekin í Karachi fyrir fáeinum dögum, er andstæðingar stjórnarstefnu Ayubs Khans for
seta höfðu kveikt í húsi eins embættismanns stjórnarinnar.
Pakistan:
Stjórnarandstæðingar hunza
friðarfund Khans forseta
A.
Laird til
Washington 18. febrúar. NTB.
MELVIN Laird, varnarmálaráð-
herra Bandaríkjanna, sagði á
blaðamannafundi í Washington í
kvöíd, að hann færi til Suður-
Vietnam þann 5. marz næst kom
andj og myndi dvelja vikutíma í
landinu. Laird sagði, að hann
færi sem fyrsti fulltrúi nýju
stjórnarinnar, tii að kanna
ástandið með eigin augum og
með honum í förinni yrði Earl
Vietnam
Wheeler, yfirmaður varnarmála-
ráðs Bandaríkjanna.
Laird vísaði á bug þeim sögu-
sögnum, að miklir flutningar
sovézkra herflokka stæðu yfir í
Austur-Þýzkalandi í sambandi
við fyrirhugaðar kosningar for-
s’eta Vestur-Þýzkalands í Vestur-
Berlín á næstunni. Laird kvaðst
enga ástæðu hafa til að ætla að
yfir stæðu ólöglegar hernaðarað-
gerðir af hálfu Sovétmanna.
Karachi, Pakistan, 18. febr.
AP-NTB.
LEIÐTOGAR þriggja helztu
stjórnarandstöðuflokkanna í
Pakistan, kunngerðu í dag þá
ákvörðun sína að hunza friðar-
viðræðurnar, sem Ayub Khan,
forseti landsins, hefur boðað til
að binda endi á stjórnmáladeilur
og ókyrrð, sem hafa svo mjög
sett svip sinn á líf í landinu síð-
ustu mánuði. Einn þessara
þriggja er Zulificar Ali Bhutto,
fyrrverandi utanríkisráðherra, en
hann var nýlega látinn laus úr
stofufangelst.
Enn ein menntamanna-
réttarhöld í Sovétríkjunum
Moskva 18. febrúar. NTB.
ENN EIN menntamannarétt-
arhöld eru í uppsiglingu í
Moskvu. Ákærð verða karl og
kona, sem eru stærðfræðingur
og verkfræðingur að mennt-
u.n. Þau hafa ekki haft sam-
vinnu með árér, en báðum er
gefið að sök að hafa haft uppi
óhróður um Sovétríkin.
Konan er Irina Belgorodsk-
aja, verkfræðingur. Hún er
frænka Larissu Daniels, sem
var dæmd til fjögurra ára út-
legðar í fyrra, eftir að hún
hafði tekið þátt í að mótmæla
innrásinni í Tékkóslóvakíu.
Irina var handtekin í ágúst
sl., en hún hafði af vangá
skilið eftir bænarskjal í leigu
bifreið. í skjalinu var hvatt
til, að Anatoli Martsenko yrði
látinn laus úr fangelsi. Mart-
sjenko var handtekinn er
hann hafði skrifað bréf til
sovézkra blaða, þar sem hann
lét í ljósi andúð á stefnu
Sovétríkjanna gagnvart
Tékkóslóvakíu. Á innrásardag
inn var hann dæmdur til eins
árs nauðungarvinnu.
Karlmaðurinn Ilja Burmist-
ovitsj, sem verður dreginn
fyrir dóm ásamt Irinu Belgor-
odskaja, hefur setið í fangelsi
í fullt áT. Hann er borinn
þeim sökum að hafa átt í fór-
um sínum vélrituð eintök af
ýmsum bókum, sem útgáfa
hefur verið bönnuð á í Sovét-
ríkjunum. Þar á meðal eru
bækur eftir þá Siniavsky og
Daniel.
Ákærðu eiga yfir höfði
sér að fá allt að þriggja ára
fangelsisdóm. Vinir Irinu Bel-
gorodskaja segja, að hún hafi
neitað allri samvinnu við full
trúa ákæruvaldsins við yfir-
heyrslur og hún muni lýsa sig
saklausa þegar hún verður
leidd fyrir rétt.
Bhutto sagði fréttamönnum, að
honum hefði ekki gefizt nægilegt
ráðrúm tiil að kynna sér boð
Khans og athuga málið, en við-
ræðurnar eiga að hefjast á morg
un, miðvikudag í Rawalpindi.
Hinir tveir eru þeir Abdul Hamdi
Bhashani, forimgi Awami-flokks
ins, sem er sagður velviljaður
Peiking, og Mujibur Rehman, for
ingi Awamai-bandalagsins í
Austur Pakistan.
Til óeirða dró í höfuðborg
Austur Pakistan Dacca, í dag,
þegar lögreglan skaut að veg-
farendum, sem virtu ekki út-
göngubannið. Einn maður að
minnsta kosti beið bana. 1
Karachi efndu stúdentar, hollir
Bhutto, til mótmælaaðgerða, en
lögreglan hefur þar mikinn við-
búnáð, þar sem óttazt er, að
frekari átök kunni að brjótast út
hvemær sem er.
Sprengingar í Berlín -
Berlín, 1«. febr. (AP-NTB)
AUSTUR-þýzk yfirvöld hafa til-
kynnt að fyrirhugað sé að
sprengja í loft upp stall undir
minnisvarða um töku Berlínar
árið 1945. Minnisvarði þessi er
sovézkur skriðdreki af gerðinni
T-34, sem stóð á steyptum stalli,
og stendur við hraðbrautina frá
Vestur-Berlín til Vestur-Þýzka-
lands. Hefur skriðdrekinn verið
fluttur á brott fyrir nokkru, en
fyrirhugað er að sprengja stall-
inn burt í áföngum, og hittist svo
á að sprengt verður meðan Nix-
on Bandaríkjaforseti heimsækir
Berlín í þessum mánuði, og
kvöldið áður en vestur-þýzkir
þingmenn koma þar saman til að
kjósa nýjan forseta Vestur-
Þýzkalands.
Skriðdrekanum var komið fyr-
ir á istalli sínum að lokinni heims
styrjöldinni síðari til minningar
um það þegar sovézkir hermenn
tóku Berlín. Hefur yfirvöldum
Vestur-Berlínar verið tilkynnt
að minnisvarði verði fluttur, og
er talið að austur-þýzk yfirvöld
hafi hug á að færa hraðbrautina
til Vestur-Þýzkalands, eða breyta
legu innkeyrslunnar til borgar-
innar.
Sprengingarnar hefjast. á morg
un, miðvikudag, en síðar verður
sprengt 21. og 25. febrúar og 27.
febrúar, daginn s§m fyrirhiugað
er að Nixon komi til Vestur-
Berlínar. Síðustu sprengingarn-
ar verða svo 4. marz, kvöldið áð-
ur en þingmennirnir koma sam-
an til að kjósa forseta.
Fimm risaskip ,
Aþenu, 18. feb. — AP —
SKIPAKÓNGURINN Aristotle
Onassis hefur samið við fransk-
ar skipasmíðastöðvar í St. Naza-
ire um smíði þriggja olíuflutn-
ingaskipa, sem hvert um sig verð
ur 250 þúsund tonn. Eiga þau
að afhendast fullsmíðuð á árinu
1972. Hjá þessum sömu skipa-
smíðastöðvum á Onassis í smíð-
um tvö önnur olíuflutningaskip.
Verða þau 220 þúsund tonn og
afhendast á árunum 1970 og 1971.