Morgunblaðið - 19.02.1969, Page 2
2
MORGUNiBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. FEBRÚAR 1969.
FISKUR ER FRAMTÍÐIN
Tvöföldun mannkyns á nœstu 30 árum
krefst gífulegrar matvœlaaukningar
— AP —
UM 1400 vísindamenn frá 14
þjóðum sitja um þessar mund
ir ráðstefnu í Brighton og
ræða hafrannsóknir. Á fundi
ráðstefnunnar í dag sagði
Ritsuro Harano, einn af for-
ustumönnum hafrannsókna í
Japan, að leggja þyrfti mun
meiri áherzlu en hingað til á
vinnslu matvæla úr fiski og
öðrum sjávardýrum, ef koma
ætti í veg fyrir almennt hung
ur í heiminum.
Áætlaður íbúafjöldi jarðar er í
dag um þrír milljarðar, en búizt
við að sú tala tvöfaldist á niæstu
þrjátíu árum, þannig að íbúarn-
ir ver'ði um sex milljarðir árið
2000. Eðlilegast er, sagði Harano,
að það gífurlega magn matvæla,
sem þarf til að fæða þessa við-
bót við íbúafjöldann, komi úr
Nixon búnar heitar
móttökur í London
London, 18. feb. — AP —
London, 18. febr. (AP).
YFIRMENN Scotland Yard
komu saman til fundar í
London í dag til að skipu-
leggja varúðarráðstafanir
vegna komu Richards Nixons
forseta Bandaríkjanna til
borgarinnar síðar í þessum
mánuði. Hefur leiðtogi rót-
tækra stúdenta þar í horg,
Edward Davoren, lýst því
yfir að rúmlega 50 félagssam-
tök hafi tekið höndum saman
og skipað sérstaka nefnd til
að undirbúa mótmælaaðgerð-
ir gegn Nixon og föruneyti
hans.
Fulltrúar félagssamtakanna
komu saman til leynifundar í
London í gær, mánudag, og sam
þykktu þar að stefna fjölmenni
á vettvang til að sýna Nixon ó-
vild. Verður Nixon „hundeltur
stað úr stað og húsa á milli með-
an hann dvelst í Bretlandi“, sagði
Æstor skóla-
siúikur ráðust
gegn lögreglu
Retlehem 18. febrúar. NTB.
ISRAELSKIR lögregluþjónar
fjarlægðu í dag með valdi um
f jögur hundruð æstar skólastúlk-
nr frá skóla í Betlehem. Stúlk-
urnar höfðu uppi háreysti og
báru spjöld, sem á var letrað
„Við erum allar í E1 Fatah“. —
Þegar lögreglan kom að hófu
stúlkurnar að grýta bifreiðir
hennar, en lögregluþjónunum
tókst að ná yfirhöndinni um síð-
ir. Fjórtán stúlkur og þrjár
kennslukonur voru handteknar.
í Gasa grýttu skólanemendur
ísraelskar bifreiðir og hrópuðu
ókvæðisorð að ísraelum. í Jerúsa
lem sprakk sprengja við bæjar-
skrifstofur í Gyðingahverfinu, en
engan sakaði.
Davoren. Spáði hann því að um
60 þúsund manns tækju þátt í
fyrsta mótmælafundinum fram-
an við bandaríska sendiráðið við
Grosvenor-torg daginn sem Nix-
on kemur til London. Fleiri mót-
mælafundir eru fyrirhugaðir,
sagði Davoren.
Meðal þátttakenda í mótmæla-
aðgerðunum verða fulltrúar frá
ýmsum samtökum vinstrimanna
þeirra á meðal frá samtökutn bylt
ingarsinnaðra stúdenta. Frá sam
tökum Vietnam-vina og stuðn-
ingssamtökum Biafra.
Scotland Yard hefur falið John
Lawlor yfirstjórn varúðarráðstaf
ana í sambandi við heimsókn for
setans, en Lawlor er yfirmaður
þeirrar deildar Scotland Yard,
er koma á í veg fyrir uppþot.
Stjórnaði hann aðgerðum við
bandaríska sendiráðið í fyrra,
þegar við lá að þar kæmi til
óeirða.
sjónum. Úthöfin þekja um sjö
tíundu hluta yfirborðs jarðar, en
matvælin sem þaðan fást eru
ekki nema brot úr heildarmagn-
inu.
Harano sagði, að sérfræðing-
um hefði reiknazt svo til að eiggja
hvítuefni unni'ð úr fiski kostaði
ekki nema þriðjung á við sama
magn unnið úr nautakjöti, og
væri sú staðreynd ein næg til að
sanna gildi aukinna nota sjávar-
afla. Gizkaði hann á að alls
væru í höfunum um tveir mill-
jarðar tonna af fiski hæfum til
manneldis, en árlegur heildarafli
þjóðanna væri ekki nema um
5% af því magni.
Á næstu árum ætla Japanir að
einbeita sér að rannsóknum er
miða að auknum sjávarafla. Ætla
þeir meðal annars að rannsaka
möguleika á fiskveiðum í Suður-
íshafinu, þar sem vitað er að
fiskgöngur eru miklar, kanna
nýjar leiðir til veiða á miklu
dýpi, og kynna sér vinnslu eggja-
hvituefnis úr fiski og eggjaJivítu-
vökva úr sjávardýrum, sem talin
hafa verið óhæf til maitar. Einrtig
er fyrirhugað að kanna nánar
möguleika á fiskrækt á land-
grunninu við Japan.
Mjólkurdufti
skipað upp í Femando Po.
Merki Rauða krossins seld í dag
MERKJASÓLUDAGUR Rauða
kross íslands er í dag, en með
honum lýkur útbreiðsluviku
Rauða krossins. Hefur tilgangur
útbreiðsluvikunnar verið að
kynna landsmönnum hina fjöl-
þættu starfsemi félagsins og
reyna með því að auka skilning
á henni og fá fleiri til að gerast
félagar og taka virkan þátt í fé-
lagsstarfinu.
f dag munu börn og unglingar
ganga um og selja merki Rauða
krossins eins og þau hafa gert á
öskudaginn ár hvert. Verða vafa
lauit margir til þess að ka.upa
Grjótey með 470 tonn af
skreið til Nigeríu
GRJÓTEY mun á næstunni taka
470 tonn af skreið á ýmsum höfn
um og sigla með hana til Nígeríu,
en skreiðina hafa ýmsar hjálpar
stofnanir erlendis keypt hér til
að fæða hungraða í Nígeriu. Er
skreiðin seld héðan á vegum Sam
lags skreiðarframleiðenda og SfS.
Kurjuluinen
í Moskvu
Moskvu, 18. feb. — NTB —
AHTI Karjalainen utanrikisráð-
herra Finnlands kom til Moskvu
í gær í sex daga opinbera heim-
sókn. Átti hann í dag viðræður
við Alexei Kosygin forsætisráð-
herra í Kreml og fór vel á með
þeim að sögn fréttamanna.
Fundur forsætisrúðh. Norðurlundu
Grjótey mun fara af stað und-
ir næstu helgi kringum land og
lesta skreið. Verður síðan siglt
beint til Lagos, höfuðborgar Ní-
Búnuðarmála-
stjóri ilutti
skýrslu
Á Rúnaðarþingi í gærmorgun
flutti Halldór Pálsson, búnaðar-
málastjóri, skýrslu um starfsemi
Búnáðarfélagsins sl. ár. Skýrði
hann frá því hvernig starfsemin
hefði gengið og gerði grein fyrir
framgangi þeirra mála, sem
síðasta búnaðarþing afgreiddi.
Enginn fundur var síðdegis x
gær, næsti sameiginlegi fundur
verður á föstudagsimorgun. En í
mi'llitíðinni verður starfað í
nefndum.
geríu og til Calabar í Austur-
Nigeríu.
Mbl. leitaði frétta af skreiðar-
sölu það sem af er þessu ári hjá
Skreiðarsamlaginu. Hefur áður
farið sending til Afríku. 181 tonn
sem selt var til Nígeríu og Csun-
eroon.
í nýútkomnum Hagtíðindum
eru birtar tölur um skreiðar-
útflutning á árinu 1968. Voru þá
fluttar út 1.323,3 lestir fyrir 63,6
millj. króna. Hefur akreiðarsai-
an til Afríku mjög dregist saman
síðan 1966 vegna stríðsins þar,
en erfiðleikarnir byrjuðu í mai
1967.
1 GÆR, þriðjudag, hófst í Hels-
ingfors tveggja daga fundur for-
sætisráðherra Norðurlanda, og
ræða ráðherrarnir þar nánari
efnahagssamvinnu rikjanna. Aðal
dagskrármálið er staða landbún-
aðarins í hugsanlegu tollabanda-
lagi Norðurlanda, og liggur fyrir
Gurðu- og Bessu-
stuðuhreppur
AÐALFUNDUR Sjálfstæðisfé-
Iags Garða- og Bessastaðahrepps
verður haldinn í kvöld kl. 20.30
í samkomuhúsinu Garðaholti.
Auk aðalfundarstarfa verða
umræður um hreppsmál.
fundinum nefndarálit um það
mál.
Per Borten, forsætisráðlherra
Noregs, og Hilmar Baunsgaard,
forsætisráðherra Danmerkur,
komu til Heisingfors á mánu-
dagskvöld, og voru þeir sammála
um að ekki væri áð vænta neinna
þýðingarmikilla ákvarðana frá
fundinum. Væri það hluitverk
fundarins að kanna málin, en
ákvarðanir biðu fundar Norður-
landaráðs í Osló í marzbyrjun,
þar sem væntanlega yrði ákveð-
inn næsti fundur forsætisráð-
herranna.
Samkvæmt upplýsingum, sem
Mbl. fékk hjá forsætisráðuneyt-
inu í gær, sækir Bjarni Benedikts
son forsætisráðherra ekki fuhd-
inn í Helsingfors.
Verhfulli fær-
eyskru sjó-
munnu lokið
Einkaskeyti til Mbl. frá
Þórshöfn, 18. febr.
VERKFALLI, sem hefur ver-
ið hjá færeyska fiskiskipa-
flotanum síðan 16. desember,1
með þátttöku um þrjú þúsimd I
manna, lauk í kvöld. Bátar |
eru óðum að búa sig út til,
veiða og tíu togarar leggja af
stað til veiða við Labrador'
næstu daga.
Arge.
EITURGAS
Crete, Nebraska, 18. febr. AP.
ÞEGAR flutningalest var að fara
fram úr annarri kyrrstæðri lest
í borginni Crete í suð-austur-
hluta Nebraskaríkis í Bandaríkj-
unum í dag, hentust nokkrir
vagnar út af teinunum. Lentu
þeir á tankvagni úr kyrrstæðu
Iestinni, og var sá fullur af
ammoníaki. Sprakk tankvagninn,
og eitrað ammoníak-gas lagðist
yfir borgina. Vitað er um átta
manns, sem létust af eiturgasinu,
en óttast að fleiri hafi farizt.
Var strax hafinn flutningur fólks
frá nærliggjandi húsum.
litlu rauðu krossana, því fjár-
öflun er undirstaða hinnar fjöl-
þættu starfsemi Rauða krossins.
Veigamikill þáttur í fjáröflunar-
starfi Rauða krossins eru safn-
anir til hjálpar bágstöddum þjóð
um og hafa Biafra-söfnuninni,
sem nú stendur yfir, borizt á átt-
undu milljón króna. Er því fé,
sem safnazt handa bágstöddum
þjóðum varið í samráði við Al-
þjóða Rauða krossinn og er öll-
um matvælasendingum og öðr-
um gjöfum á vegum RKÍ til
annarra landa fylgt eftir af sér-
þjálfuðu starfsfólki þar til þær
eru komnar í hendur því nauð-
stadda fólki, sem gjafimar eTu
ætlaðar.
Hj'álparsjóður RKÍ, sem stofn-
aður var fyrir nokkrum árum,
nemur nú nær hálfri milljón
króna. Er gripið til hans í skyndi
legum neyðartilfellum og er ætl-
unin að reyna að efla hann til
muna og gera hann mátitugan
hjálparsjóð. Aðaltekjur hans eru
árleg framlög fyrirtækja, stofn-
ana og einstaklinga og segir hver
þessara aðiia til um á hvaða tíma
árs framlag hans skuli imnheimt.
Þá hafa allir bankar og spari-
sjóðir í landinu fallizt á að taka
á móti framlögum til Rauða
krossins — en þe®s má geta að
þau eru frádráttarbær til skatts
í samræmi við lög um þau.
Vorboðufundur
í Hnfnurfirði
Sjálfstæðiskvennafélagið Vor-
boðinn heldur aðalfund í Sjálf-
stæðishúsinu í kvöld kl. 8.30. Að
loknum aðalfundarstörfum verð-
ur spiluð félagsvist og einnig
verður kaffidrykkja. Eru félags-
konur og sjálfstæðiskonur hvatt-
ar til að mæta og taka með sér
gesti.
Aðulfundur kjördæmisrúðs
Beykjuneskjördæmis ú luugurdng
Á LAUGARDAGINN, kl. 2 hefst
aðalfundur kjördæmisráðs Sjálf-
stæðisflokksins * Reykjaneskjör-
dæmi. Verður fundurinn haldinn
í samkomuhúsinu j Grindavik, og
er þess faslega vænzt að kjörn-
ir fulltrúar mæti stundvíslega.
Aðalfulltrúar sem ekki geta kom
ið því við að mæta eru vinsam-
'egast áminntir um að hafa sam-
'band við formenn þess félags eða
fulltrúaráðs sem þeir eru fulltrú-
úr fyrir, svo hægt verði að boða
Varafulltrúa.