Morgunblaðið - 19.02.1969, Page 3

Morgunblaðið - 19.02.1969, Page 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. FEBRÚAR 1969. 3 Útufkeyrslu við Búrfell Búrfelli, 18. febr. — Upp úr íhádegi í daig valt bíll uppi á Fjallinu og stafckst fram af 15-20 metra hiáum kanti. Grétar Hall- dórsson frá Seifossi heitir sá sem bílnum ók og var að koma ofan af fjallinu á 8 tonna Volvo vöru- bíl og lenti bíllinn á svellbunka. Fór hann últ af vaginum. Grétari tókst að komast út úr bílnum áður en hann stakkst fram af. Slapp Grétar óskaddaður, en reikna má með miklum skemmd- um á bílnum. Hann stendur á endann. — Þ. Smrkovsky kronkur Prag 18. febr. AP. TÉKKNESKA fréttastofan Cet- eka sagði frá því í dag, að Josef Smrkovsky, fyrrverandi forseti tékkneska þjóðþingsips, hefði verið fluttur tii læknisaðgerðar, en ekki var nánar skýrt frá veikindum hans. I viðtali við slóvakíska blaðið Smena segir Smrkovsky að svo virðist sem ástandið í landinu haifi batna'ð stórlega og engin ástæða sé til neinnar svartsýni. STAKSTEINAR Svo mikill ís er í höfninni í Stykkishólmi að óvíst er að bátar geti lagt þar upp afla sinn. Verður þá að aka aflanum frá Rifi til Stykkishólms. Fegurðorsamkeppni hnldin í vor FEGURÐARSAMKEPPNI 1969 fer fram í vor í Reykjavík. Und- irbúningur er nú í fullum gangi og nokkrir þátttakendur þegar Var bjargað úr illri vist — í sœluhúsi vegna reykjastibbu Akureyri, 18. febr. TVEIR menn úr Reykjavík lentu í hrakningum á Öxnadals- heiði í gær og í fyrrinótt. Þeir voru á leið austur yfir Öxndals- heiði seint á sunnudagskvöld í versnandi veðri og hríð, þegar Landroverbíll þeirra lenti út af veginum skammt austan við Grjótá og náðist ekki upp á veg- inn aftur. Þeir leituðu húsaskjóls á Sesseljubúð, sem er sæluhús í eigu Slysavarnafélags íslands og létu þar fyrir berast. f Sesseljuibúð er enginn sími en talstöð og tókst mönniunum ekki að ná sambandi við Akur- eyri um talstöðin fyrr en um há degi í gær og urðu Hveravellir að bera á milli. Flugtojörgumar- sveit A.kureyrar var þegar köll- uð út og héldu sjö menn úr ihenni af stað í tveimur fjallatoílum skömmu eftir hádegi. Þriðji bíU- inn var hafður með í förinni vegna hins lélega radiosambands við mennina. Leiðangursmenn komust að Sesseljutoúð í gær- kvöldi, þrátt fyrir mikla ófærð og leið mönnunum tveimur þá orðið mjög illa vegna reykjar- stybbu og reykeitrunar, sem staf aði fhá hitunartæki hússins. Rör ofan á strompinum hafði með einhverju móti horfið og reykn- um sló sífellt niður í húsið og gerði vistina þar mjög illa og nærri óbærilega. Voru mennirnir farir að kasta upp. Mennirnir tveir hresstust fljótt eftir að að þeim toafði verið hlynnt, í hreinu lofti og upphituðum bíl. Leið- ang.ursmenn komu til Akureyrar laust eftir kl. 2 í nótt. — Sv. P. komnir í keppnina, en beðið eft- ir ábendingum um aðra, einkum þó utan af landi. íslenzkar fegurðardísir gerðu víðreist í fyrra, tóku þátt i feg- urðarsamkeppnum á Norðurlönd löndunum, í Bandaríkjunum og allt suður í Kongó. Tekið verður við ábendingum' um væntanlega þátttakendur til mánaðarmóta febrúar — marz í pósthólf 1285, Reykjavík, merkt: Fegurðarsamkeppnin 1969. Sigríður Gunnarsdóttir mun hafa umsjón með keppninni, en hún og María Ragnars'dóttir munu vinna að undirbúningnum og þjálfun stúlknanna, sem vald- ar verða í úrslitakeppnina. (Fréttatilkynning). Snjólétt d Vestfjörðum — fært norður, en víða hálka á vegum í GÆR var fært alla leið til Ak- ureyrar, en þá hjálpaði Vega- gerðin toílum eins og venja er á þriðjudögum. Hafði veður gengið niður í gærmorgun og spáin góð, svo hægt var að ryðja, en fyrir- staða var aðallega á einum sdað, á Svínvetningabraut, þar sem kominn er mikili snjór. VeðuT hefur verið sérlega slæmt kring- Selja markríl í Þýzkalandi VÉLSKIPIÐ Súlan frá Akureyri seldi 61,1 lest af makríl í Þýzka Iandi sl. laugardag fyrir 28.837 mörk. Hafði skipið hluta af aflanum ísaða í kassa og fékkst helmingi meira verð fyrir kassafiskinn en þann sem laus var. Fyrir makríl í kassa fengust 18 kr fyrir kg. Súlan hefur selt þrisvar í Þýzka- landi á árinu síld og markríl og fengið fyrir það 129 þúsund mörk, eða 12.6 millj. ísl. króna. Jón Kjartansson ’hefiur mýlega selt 60 lestir af makríl í Þýzka- landi. í gæir seldi Neptúnus 145,2 lest ir af fiski í Cuxhaven fyrir 1(3T .667 mörk eða tæplega 1,9 millj. ísl. króna og var meðal- verð kr. 19,87 kg, Lá úti í hríð Var bjargað á siðustu stundu Ólafsvík, 18. feforúar. HÉR í Ólafsvík er nú heill á húfi Reykvíkingur, Ríkharð- ur Jóhann Jónsson, sem fannst á berangri hjá eyðibýlinu Görðum í Breiðuvík, þar sem hann hafði lagzt fyrir. En þá voru menn á Snæfellsnesi farnir að leita hans. Hafði mað urinn legið úti frá þvi á fimmtudagskvöld og fram á mánudag, eins og hann kveðst hafa gert áður, en missti frá sér svefnpokann og allt dót í óveðri, er skall á. Maðurinn kom vestur á fimmtudag og að Vegamótum Hélt hann svo gangandi vest- ur á leið. Hafði hann tvær byssur með og er talið að hann hafi ætlað að veiða ref eða eitthvað slíkt. Hafði hann meðferðis svefnpoka og næg- an mat, en ekki tjald. Kom maðurinn víða við á bæjum í Staðarsveit og hélt áfram vest ur á Breiðuvík. Á sunnudagskvöld fór hanp vestur í Breiðuvík og vestur fyrir Purkhóla, en þá er stutt í Malarrif. Þar lagðist hann til svefns, en kominn var norð austan stormur. Undir morg- un missti hann frá sér svefn pokann og vettlinga, sem hann var með og brauzt síðan áfram. Hann fór í vestur, en stytzt er til bæja í austurátt. nætur Var veðurhæðin ógurleg og varð maðurinn að skríða á fjórum fótum með vegarbrún inni. Menn, sem voru á ferð í bíi, fundu byssurnar. Þá var farið að grennslast fyrir um manninn og fannst hann á ber angri, rétt hjá eyðibýlinu á Görðum í Breiðuvík. Það var Pétur Pétursson, vitavörður á Malarrifi og fleiri leitar- menn sem fundu hann. Var hann þá lagstur fyrir. Björgunarsveitirnar frá Ól- afsvík og Sandi höfðu verið kallaðar út, 16 maiins í hvorri sveit og voru farnar að leita. Maðurinn kom til Ólafsivík- ur, þar sem hann er nú hress og óskaddaður á hótelinu. — Hinrik. um Blönduós að undanförnu. — Heiðarnar eru nokkurnveginn færar og var í gær opnaður veg- urinn tii Akureyrar, sem fyrr er sagt. í gær v»r einnig reiknað með að tækist að opna veginn til Húsa víkur, en hjálpardagar Vegagerð arinnar á þeirri leið eru venju' lega mánudagar. Einnig var ver- ið að opna veginn til Dalvíkur, þar sem venjulegir hjálpardagar eru mánudagar og fimmtudagar. Þá var verið að moka veginn til Siglufjarðar í gær, eins og venju- lega á þriðjudögum. Ágæt færð er um allt Suður- land, Borgarfjörð, Snæfallsnes og Dali. Víðá á Vestfj'rðum er snjólétt, einkum sunan tiL Er t. d. fært frá Patreksfirði til Bíldu dals og : Barðaströnd, en á Kleifa heiði og á Barðaströndinni eru víða háskaleg svell á vegunum, eins og víða annars staðar á land inu, þar sem er,u brattar fjalls hliðar, svo sem víða á Vestfjörð um. Fært er frá ísafirði til Bol- ungarvíkur. Og er Vegagerðin átti í gær tal við Kirkjuból Langadal, sagði bóndinn að hann myndi ekki eftir svo snjóléttum vetri þar síðan 1953. Ástand á vegum er verst Norðausturlandi, og er.u flestir vegir ófærir austan Hús'avíkur. Á Austfjörðum skall í gær versta veður og eftir það voru vegir illfærir. Þó var gert ráð fyir að hægt yrði að opna veg- inn um Fagradal í gær, en þar er nú allt önnur aðstaða síðan nýi vegurinn kom. Fært var næsta nágrenni við Egilstaði. Þjóðaihagur kraíðist skjótrar lausnar Fyrri forustugrein Alþýðu- blaðsins í gær ber fyrirsögnina, Sáttatillagan lögfest. Segir þar á þessa leið: „Rikisstjórnin Iagði í gær fyr- ir Alþingi frumvarp um lögfest- ingu á tillögu sáttasemjara rík- isins til lausnar á deilu yfir- manna á bátaflotanum og útvegs manna. Ef þetta frumvarp verð- ur að lögum, eins og fastlega má búazt við, lýkur verkfallinu á bátaflotanum við gildistöku þeirra. Lögin ná ekki til deilunn- ar í Keflavik, þar sem sjómenn felldu sáttatillöguna. Ekki verður um það deilt, að þjóðarhagur krefjist skjótrar lausnar á bátaverkfallinu. Meira en helmingur febrúarmánaðar er liðinn og vertíð ekki hafin. Drag- ist það lengi enn, mundi þjóðin tapa miklum verðmætum, en við því má hún alls ekki. Þá er rétt að minnast þess, að verakfallið veldur stórfelldu atvinnuleysi í öðrum stéttum. Margir munu segja að ríkisstjómin hefði átt að grípa til þessa ráðs fyrir löngu. Hitt er þó rétt að hafa i huga að þjóðfélagið má ekki rifta samningafrelsi nema í ítr- ustu neyð og mundi það geta leitt til annarra og verri tíðinda ef til þess yrði gripið í ótíma. Þetta vita ráðamenn þjóðarinnar af biturri reynslu og því hafa þeir látið reyna á það svo lengi hvort ekki næst eðlilegt sam- komulag“. Tví skinnungurinn í Framsókn Tvískinnungurinn og stefnu- leysið í Framsóknarflokknum var áberandi í umræðunum um lausn sjómannadeilunnar. Björn Pálsson var framsögumaður fyr- ir hönd Framsóknarflokksins við aðra umræðu málsins. í ræðu sinni komst hann hvað eftir annað þannig að orði, að ekkert hefði verið annað að gera en lög- festa miðlunartillögu sáttasemj- ara. Þjóðin þyldi ekki áframhald andi verkfall og stöðvun fiski- skipaflotans um hávertíðina. Rík isstjórnin hefði því í raun eg veru gert það eina rétta. En að hinu leytinu var svo þessi leiðtogi Framsóknarflokks- ins, sem oft talar af óvenjulegri hreinskilni um vandamál þjóðar- innar, að burðast við að kenna ríkisstjóminni um sjómannaverk fallið. Hann gekk þá alveg fram hjá þeirri staðreynd, að ráðstaf- anir þær, sem ríkisstjómim gerði í efnahagsmálum í haust voru frumskilyrði þess að bátar og frystihús yrðu yfirleitt rekin á næstunni. Slæmur kostur að sitja hjá LANDHELGISGÆZLAN fór is- ílug í gær og leiðbeindi m.a. við Horn, Tungufossi, sem var á leið vestur fyrir, því þar er nú mjög tafasöm sigling í björtu og ófær leið í myrkri. Frá Straumnesi og austur Óðinsboðasvæðið nær ísinn upp að landi, þéttastur er hann um horn 4—6/10 að þéttleika, að því er áhöfn landhelgisflugvélarinn- ar upplýsti eftir flugið. Litlar isspangir eru út af Skaga og Skagafirði, dreifðir ísjakar á sigl ingaleið frá tSraumnesi og suð- ur að Dýrafirði og einnig á Húna flóa og austur að Siglunesi. Framsóknarmenn völdu þann kostinn að sitja hjá við atkvæða greiðsluna um lausn sjómanna- verkfallsins. Það var ekki skörn- legur kostur. Þeir lýstu því yfir að „þeir vildu ekki leggja stein i götu frumvarpsins“. En þeir höfðu ekki manndóm í sér til þess að greiða atkvæði með þvi, sem þeir vissu að var lífs- nauðsynlegt og þjóðarhagur krafðist. Fer hér enn sem fyrr að Framsóknarmenn em úrræða litlir og ábyrgðalausir, enda þótt þeir krefjist stöðugt þingrofs og nýrra kosninga, og ætli sér með því að ná þeim völdum, sem þjóðin hefur neitað þeim um á undanförnum áratug.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.