Morgunblaðið - 19.02.1969, Page 4
MORGUNBLAÐIÐ, Mlf /IKUDAGUR 19. FEBRÚAR 1969.
BÍLALflGANFALirr
car rental service ©
22-0-22-
RAUDARÁRSTÍG 31
Hverfiscötu 163.
Simi eftir lokun 3116«.
MAGIMÚSAR
aciPHDtnJl s«mar21190
eftir lokwn *ím» 40381
LITLA
BÍLALEIGAN
BergstaSastraeti 13.
Sími 14970
SAMKOMUR
Skógarmenn K.F.U.M.
Aðalfundur Skógarmanna
verður haldinn í kvöld kl.
8.30 í húsi K.F.U.M. og K. við
Amtmannsstíg. — Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Eldri deild fjölmennið.
Stjómin.
AVERY
iðnaðarvogir.
Ólafur Gislason & Co hf.,
Ingólfsstræti 1A. Sími 18370.
-funnar ^Siótjeiriion
Suðurlandsbraut 16.
Laugavegi 33. . Sinti 35206,
Sfrauið rétf,
létt og slétt
með
.. ’ * 'b' *Wj
Husqvarna
£ Hællinn og táin á
Reykjanesskaga
„Vaivakandi góður!
Mig langar til þess að biðja þig
um að birta í dálkum þínum eft-
irfarandi linur!
Reykjanes, sem er syðsti hluti
Reykjanesskagans og hann dreg-
ur nafn sitt af, hefur að undan-
förnu verið mjög í fréttum blaða
og útvarps vegna þess, að þar
er um að ræða eitt mesta jarð-
hitasvæði landsins og í rannsókn
eru möguleikar á nýtingu hinnar
miklu hitaorku til hagsbóta fyrir
þjóðina alla. Kemur sér nú vel
fyrir okkur íslendinga að eiga á
að skipa vel menntuðum sértræð-
ingum.
Reykjanesskaga hefir verið líkt
við mannsfót klæddan í skinn-
sokk, þar sem Reykjanes er hæll-
inn, en Garðsskagi táin (Sjá upp
drátt af Reykjanessfcaga).
um jarðhita á Reykjanestá og
kemur það kunnugum einkenni-
lega fyrir, því að hingað til hefir
hann verið í hælnum, en nú virð-
ist hann, eftir sumum blaðaskrif-
um að dæma, hafa hlaupið í tána.
Egill Hallgrímsson.".
0 Vond þjónusta í
verzlun
„Berhent kona“ skrifar:
„He. Velvakandi!
Svo er nú málum hagað, að þótt
60-menningarnir hafi getað ráð-
ið sjónvarpsmálum landsins, þá
getur kaupandi í verzlunum bæj
arins ekki leitað réttar síns, þótt
aleinn sé. Einn möguleiki er því
aðeins fyrir hendi, sá að skrifa í
dálka þína. Ég var ein af þeim
mörgu, sem fá flenzuna, er Mao
karlinn sendi okkur fyrir jólin.
Nýstaðín upp úr henni fór ég nú
á stúfana 12. febrúar s.1. þeirra
erinda að skipta jólagjöfum er
mér höfðu verið gefnar, og sa_gt
að skipta ef mér líkuðu ekki. Ég
fór i búsáhaldaverzlun í Hafnar
stræti, og þar fékk ég fyrirhafn-
arlaust innlagsnótu og má taka
út á hana þegar ég vil. Ég hélt
nú sem leið liggur í aðra verzlun
í sömu götu, með leðurhanzka sem
ég hafði gefið tengdadóttur minni
í jólagjöf, en reynzt höfðu of litl
ir. Hún hafði sjálf farið með þá
deginum áður, en fengið þau
svör, að reyna bara að selja þá
sjálf einhverjum sem hefði minni
hendi, afskaplega einföld lausn
miðað við það að verzlunin hafði
lofað að skipta þeim, ef stærðin
passaði ekki, án þess að tilta'ka
neitt innan hvaða tíma. Afgreiðlu
stúlkan kannaðist við hanzkana og
sagði mér hvað þeir hefðu kost-
að, og það var rétt. En það væru
bara lög verzlunarinnar að taka
ekki við vöru, sem væri uppseld,
skiljanlega væri um dýra vöru að
ræða s.l. kápur kjóla og a.þ.h nú
var þetta sígild vara sem kost-
aði innan við 300 kr, svo að ég
bað um að mega tala við eig-
andann hann hlyti að sjá að svona
verzlunarmáti svaraði ekki kostn
aði
Q Ókurteisi
En viti menn, hann brást reið-
ur við, og sagði mig ekki hafa
keypt þessa hanzka í siirni verzl-
un, þeir væru löngu uppseldir, en
þó gæti kannski veríð að það
hefði legið eitt par, um það gæti
hann ekkert sagt, og hanzkana
gæti ég hirt. Ég sagði honum þá
að hanzkarnir væru mér einskis
hýtir, hann skyldi bara eiga þá
sjálfúr, sem hann og fékk, en ég
myndi fara lengra með þetta.
Um það var honum alveg sama,
svo leyfi hans hef ég til þess, á
vissan hátt.
Q Nauðsynlegt að fá nótu
Ég hef sjálf verið kaupkona,
en aldrei vitað til að ókurteisi
yki hag verzlunarinnar, síður en
svo. Nú mun ég þvi benda kunn-
ingjum mínum á að verzla ekki
þarna, því að á þessum verstu
og síðustu tímum, hefur enginn
ráð á að sitja uppi með vöru
sem ekki er nothæf. Ég vil enn-
fremur benda fólki á að fá nótu
með þeim vörum, sem verzlanir
olfa að skipta á, svo fleiri verði
ekki fyrir barðinu á svona verzl-
unareigendum.
Virðingarfyllst,
berhent kona“
0 Götulýsing skemmd í
Háaleitishverfi
„K^eri Velvakandi!
Er mér varð litið út um glugg-
ann í gær og sá bifreið og við-
gerðairmenn frá Raftnagnsveitu
Reykjavíkur vera að endumýja
ljósakúlur, sem einhverjir krakka
óvitar höfðu brotið nýlega á tveim
ur staurum i hinni mjög svo
snotru og nauðsynlegu lýsingu á
göngustígnum, sem liggur frá
„Miðbæ“ og niður i Safamýrina,
datt mér í hug, að við íbúar
þarna í hverfinu ættum að brýna
fyrir börnum okkar að brjóta
ekki af stráksskap þessar kúkjr,
og sömuleiðis að koma upp um
þá, sem þar sæjust fremja þennan
verknað.
Mér skilst að Ijósakúlur þessar
séu mjög dýrar, og það gæti kom-
ið að því að þolinmæði R.R. þryti,
að endurnýja fyrnrefndar ljósa*
kúlur, og væri það miður gagn-
vart öryggi gangandi fólks Um
stíg þennan í skammdeginu, ekki
sízt barna.
Undirritaður skrifar ekki þerin
an greinarstúf eingöngu vegna
þessara tveggja ljósakúlna, sem
minnzt var á í upphafi, heldur
einnig vegna þess, að í fyrravet-
ur voru brotnar einar 4—5 kúlur
á einu eða tveimur kvöldum.
Að lokum vildi ég einnig biðja
foreldra, bæði hér í Háaleitishverf
inu og annars staðar, að brýna
fyrir börnum sínum að sýna gætni
gagnvart trjáhríslum og öðrum
gróðri, vetur sem sumur, — gróðri
sem í framtíðinni á að gera um-
hverfi okkar hiýlegra og feg-
urra.
Með kærri kveðju.
Faðir í Háleitishverfi.
• ,,Miðbær“(!)
— Það er von, að bréfritari
hafi þetta einkennilega húsnafn,
„Miðbær“, innan tilvitnunarmerkja
Hver í ósköpunum skyldi sá
snillingur vera, sem var svo frum
legur að láta sér detta í hug að
kalla stóreflis verzlunarhús, óra- ,
fjarri Miðbænum, þessu nafni?
0 FÍB á móti hækkun
benzínverðs
FÍB sendi Velvakanda I gær
eftirfarandi athugasemd vegna
bréfs „Þorra’:
„í gær, 18. febrúar ritar „Þorri“
í Velvakanda hugleíðingar um
verðhækkun á benzíni og sitthvað
fleira um hagsmunamál bifreiða-
eigenda.
í þessar athyglisverðu hugleið-
ingar hefur slæðst ein meinleg
villa, sem byggist á rangtúlkun
á fréttafyrirsögn í Tímanum 12.
febrúar s.l. og er mLsskil ningurinn
á þann hátt, að FÍB hafi mselt
með hækkuðu verði á benzíni.
Þessu er í rauninni þveröfugt
farið. FÍB hefur um langt árabil
stöðugt mótmælt öllum sköttum á
benzíni öðrum en þeim, sem
sem renna beint til vegamála og
hefur einnig að þessu sinni tekið
sömu afstöðu til væntanlegrar
verðhækkunar á benzíni, sem kom
ið getur til greina, ef leyfisgjald
bifreiða verður afnumið, og verð
nýrra bifreiða þar með lækkað
stórlega.
Áður hafði komið í Ijós, að
stöku bifreiðaeigendur höfðu mis
skilið fréttafyrirsögn Tímans 12.
febrúar, þar sem rætt var um af-
skipti FÍB af afnámi leyfisgjalda
á innfluttum bifreiðum og sam-
hliða væntanlegri breytingu á
benzínverði. Viljum við benda
„Þorra“ og öðrum, sem misskil-
ið hafa áðurnefnda fréttafyrir-
sögn á, að lesa útskýringar FÍB,
seiri birtust í Tímanum 18. íebr-
úar s.l.
Þá viljum við benda öllum bif-
reiðaeigendum, sem nánar vilja
kynnast afekiptum FÍB af þess-
um málum að lesa skýrslur um
þau í „ökuþór" 1963—1968. Þar
kemur fram stefna félagsins í
þessum málum, og er hún að sjálf
sögðu óbreytt síðan.“
En nú eru sumir farnir að ræða
Öniirðingar
Árshátíð Önfirðiugafélagsins verður að Hótel Borg
sunnudaginn 2. marz n.k. og hefst með borðhaldi
kl. 19.00.
Burstafell Burstafell
Vatnsleiðslurör
Vonim að fá rör Vz tommu til 2ja tommu.
Pantanir óskast sóttar strax.
BURSTAFELL byggingavöruverzlun
Rcttarholtsvegi 3 — Sími 38840.
Tilboð óskast í jarðvinnu og sprengingar í húsgrunni
á lóð Landspítalans í Reykjavík. Útboðsgögn verða
afhent á skrifstofu vorri gegn 1000 kr. skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð föstudaginn 28. febrúar næst-
komandi kl. 11 fyrir hádegi.
INNKAUPASTOFNUN RÍKiSINS
BORGAKTÍINI 7 SÍMI 10140
Höfum kaupanda að nýlegu, vönduðu
frekar stóru
EINBÝUSHÚSI
í KÓPAVOGI
MJÖC HÁ ÚTBORGUN í BOÐI
Fasteignaþjónustan
Austurstræti 17
s. 16870 & 24645.
—— TIL SÖLU ■■■...................
EINBÝLISHÚS
í VOGUNUM
Húsið er 19 ára, 130 ferm. að grunnfleti, kjallari, hæð
og ris. Á hæðinni eru 3 stofur, 3 svefnherbergi, eldhús
og bað, í risi eru 3 svefnherbergi, baðstofa, aukaeldhús
og W.C. f kjallara hússins er m.a. innbyggður bílskúr,
2 herbergi o. fl.
Upplýsingar EKKI gefnar í síma.
Fasteignaþjónustan
Austurstræti 17