Morgunblaðið - 19.02.1969, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 19.02.1969, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. FEBRÚAR 1969 7 sf ; ■■■ v 'V‘. •• •• Goðafoss í Skjálfanda. 1968 Þeir segja það fyrir sunnan, a'ð sólin skíni þar mest og þeirra sé þjóðarstoltið þar líði öllum bezt. Þeir vita það fyrir vestan, að veðrin geysa oft hörð. Þar eru hxausfar hetjur, sem halda um staðinn vörð. Þeir nefna það fyrir norðan, að nóg sé um frost og hríð en þar er það andans eldur, sem yljar þeirra líf. Þeir álíta fyrir austan, þótt útkjálka húi á slóð, þá eigi þeir ekki að vera olnbogabörn hjá þjóð. Höfundur: Sigurborg Eyjólfsdóttir Lundberg, Neskaupstað. 1 Hólmatungum. FBÉTTIR Kristniboðs- og æskulýðsvika í Hafnarfirði í húsi KFXJM og K 16.—23. febrúar 1969. Miðvikudag 19. febrúar Ræðumaður: Guðni Gunnarsson, prentari. Unga fólkið: María Aðal steinsdóttir, fóstrunemi, og Sævar Guðbergsson, kennari. Björgólfur Baldursson syngur. Fimmtudagur 20. febrúar Sýndar litmyndir frá Eþíópíu. Sigurbjörn Sveinsson, mennt.nemi, og Arngrímur Guðjónsson, húsa- smiður. Æskulýðskórinn syngur. UD-fundur KFUK fellur inn í sam komuna. Föstudagur 21. febrúar Ræðumenn: Þórstína Aðalsteins- dóttir, mennt.nemi, Stína Gisladótt ir, kennari, og Ástráður Sigurstein dórsson skólastjóri. Vinstúlkur syngja. Laugardagur 22. febrúar Litkvikmynd frá fyrstu árum starfsins í Konsó. Ræðumenn: Gest ur Gamalíelsson, húsasmiður, og Gunnar Sigurjónsson, cand.theol., Kvennakór KFUK syngur. Allir velkomnir. Sunnudagur 23. febrúar Konráð Þorsteinsson, pípulagninga maður, talar. Raddir æskunnar: El- ín Elíasdóttir, fóstrunemi, og Gunn ar J. Gunnarsson, kennaranemi. Æskulýðskórinn syngur. Kvenfélag Kópavogs Námskeið í myndflosi hefst nú í vikunni. — Uppl. þriðjud. ogmið vikudag kl. 1—3 í síma 41382 Frá Félagi austfirzkra kvenna. Kjördæmisráð Sjáifstæðisflokksins í Reykjaneskjördæmi. Aðalfundur Kjördæmisráðs verður kl. 2 e.h. laugard. 22. febr í Grindavík í dag er Jóhann Einarsson frá Auðnum á Vatnsleysuströnd, en áð ur til heimilis á Nesvegi 72 í Reykjavík 85 ára. Hann er nú vistmaður á Hrafnistu. Hann verð- ur að heiman í dag. Margir íslendingar þekkja Árna G. Eggertsson. Þessvegna birtum við hér frétt úr Lögbergi Heims- kringlu. Mr. Árni G. Eggertsson Q.C. og Mrs Bonita Marion voru gefin sam an í hjónaband í fyrstu lútersku kirkju í Winnipeg 26 desember 1968. Prestur safnaðarins, Rev John A. A. Arvindson framkvæmdi hjó vígsluna. — Svo sem lesendum er kunnugt, er Mr Eggertsson einn af kunnustu og vinsælustu lögfræð- ingum hér í borg. Kona hans er af frönskum ættum: faðir hennar Mr. Simion Marion var lengi oddviti og svo bæjarstjóri í St. Jean-Bap- tiste og rekur fjölskyldan mikinn landbúnað þar í sveit, en móðir hennar Rose Marie Roy, er komin af hinni kunnu Roy fjölskyldu x St. Boniface. Við árnum þeim hjón um, Mr. og Mr.s AG Eggertsson allra heilla. Þau em nú stödd í Phoenix Arizona en í byrjun febr- úar fara þau til Berkley, Californía — IJ.“ Oddný Ólafía Eyjólfsdóttir frá Seyðisfirði Brekastíg 19. Vest- mannaeyjum varð 65 ára í gær. Nýlega voru gefin saman í hjóna band að Búrfelli í Grímsnesi af séra Ingólfi Ástmarssyni, ungfrú Sigþrúður Þórhildur Guðnadóttir og Árni Björnsson, prentari Heimili þeirra er að Dvergabakka 18 Reykjavík (Barna- og fjölskylduljósmyndir) Áheit og gjafir „Gjafir til Slysavarnasveitarinn- ar Dröfn á Stokkseyri. í 100 ára minningu Ingibjargar Gíslínu Jónsdóttur frá Gamla- Hrauni frá afkomendum hennar á Stokkseyri kr. 10.000. Neyðartalstöð gefin af Guðmundi Einarssyni Merkigerði, Stokkseyri og sonum hans í tilefni af 40 ára afmæli deildarinnar. Stjórn deildarinnar færir gefend- unum beztu þakkir fyrir gjafirnar og hlýhug þeirra til deildarinnar." F.h. Drafnar Helgi Sigurðsson for- maður. Selfoss í Jökulsá á Fjöllum. NÝKOMIÐ mjög ódýrar barnaúlpur frá 2ja ára. Falegar — vandaðar. Laugavegi 31. ÚTBOÐ Tilboð óskast um sölu á fyllingarefni, hrauni, rauða- mö!, eða grús ásamt akstri á því í götur í Smáíbúða- hverfinu hér í borg. Útboðsskilmálar eru afhentir í skrifstofu vorri og verða tilboð opnuð þar miðvikudaginn 26. febrúar n.k. kl. 11.00 f.h. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR VONARSTRÆTI 8 - SÍMI 18800 NYJAR SENDINCAR AF LOFTPLÖTUM frá Finnlandi og Svíþjóð. innrélii Grensásvegi 3 - Sfmi 83430 CHLORIDE RAFGEYMAR HÍNÍR VÍÐURKENDU RAFGEYMAR ERU FÁANLEGÍR í ÖLLUM KAUPFELÖGUM OG BÍFREIÐAVÖRUVERZLUNUM.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.