Morgunblaðið - 19.02.1969, Qupperneq 11

Morgunblaðið - 19.02.1969, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. FEBRÚAR 1969 11 erum 12 á. Meiningin er að fara á útilegu, en annars fer það allt eftir því hvar fisk- urinn verður. Annars er mest úm vert að nú fer að færast líf í þetta allt saroan og þá verður allt í lagi. Ólafur Jónsson. EIGUM EFTIR AÐ NA OKKUR NIÐRI Ólafur Jónsson, vélstjóri á Sæborginni, ger'ðist ekki út- gerðarmaður í verkfallinu! „Auðvitað líkar mér bölvan lega að láta dæma mig á sjó- inn aftur,“ sagði Ólafur. „Ut- gerðarmenn sýndu enga sann- girni í samningúnum; þeir bara biðu og treystu á hjálp ríkijsitjórnarinnar. Og hún kom eins og alltaf, þegar þess- ir menn eiga í hlut. En við eigum eftir að ná okkur niðri á þessum háu herrum og munum nota til þess fyrsta tækifæri." Að svo mæltu snaraðist Ólafur um bolð til að gera vélina klára. ANÆGÐUR MEÐ HASETA- SAMNINGANA „Ég er ánæg’ður með háseta samningana og feginn að kom ast aftur á sjóinn,“ sagði Kári Davíðsson, háseti á Arnar- nesi GK, en hann hittum við suður í Hafnarfirði. „Mér skilst aftur á móti, að stýrimennimir séu ekki eins ánægðir og einn heyrði ég segja áðan, að nú vildi hann helzt fara út sem kokkur! Annars varð stoppið ekki eins langt hjá Arnarnesinu og flestum öðrum skipum, því það var í útilegu og svo var siglt til Bretlands með aflann. Ætli stoppi'ð hafi ekki orðið eitthvað tæpur hálfur mán- uður.“ — Hvaða veiðar farið pið á? — Við förum á net, svaraði Kári og tók að henda neta- trossum um borð til félaga sinna. HÉR ERU AÐEINS BJART- SÝNIR MENN UM BORÐ „Blessaður vertu. Við gerð- umst bara útgerðanmenn í verkfailinu og skiptum þar með alveg um skoðun,“ sagði Helgi Einarsson og hló dátt. „Nú treystum við Bjama fyrir þessu öllu.“ Helga hittum við um borð í Hring GK, þar sem hann og Ingimundur Jónsson voru að gera klárt. — Ingimundur er skipstjórinn og Helgi stýri- maður. — Þeir félagar keyptu Hring frá Siglufirði og komu suður með bátinn um helgina. Hringur er 61 tonn og ætla þeir félagar á net. „Jú. Þetta er okkar fyrsti bátur en von- andi ekki sá, síðasti," sagði Ingimundur. —• Hvar er vélstjórinn? spurðum við. — Vélstjórinn? Hann er orð inn útgerðarmáður lika; kéypti Hrinig með okkur og þeim fjórða, og er því auð- vitað hæstánægður með að komast út. Það þýðir ekkert fyrir ykkur að vera að þessu. Þið fáið ekkert neikvætt á þessum báti. Hér eru aðeins bjartsýnir menn um borð.“ „ÞAU HEFÐU MÁTT VERA BETRI“ Andrés Grímólfsson 2. vél- stjóri á Ásbimi RE-400 var að beita af fullum krafti um borð í Ásbirni, en þeir eru að fara í útilegu með Iínu. Þeir era 12 á og þar af eru 5 sem beita. Það voru fteiri sjó menn þarna í beituganginum og þeir létu móðann mása um sjóinn, jarðlifið og allt heila klandrið. I. vélstjóri var ekk- ert sérlega ánægður með sjötl unína á launamálunum, en hann var þó fjandi hress. Við ræddum stuttlega við Andrés: Andrés sagði að þeir væru að fara út á línu, en þeir hefðu verið á henni eftir ára- mótin. Áður en verkfail skall á fóru þeir í útilegu á línu og voru á sjó í hálfan mán- uð eða þar til um síðustu mánaðamót. Aflinn hjá þeim var 42 tonn af slægðum fiski. Mest var af þorski og ýsu, en drasl með. Þeir réru á Breiðafirðinum. — Jú jú, við erum ánægð- ir að komast út, sagði Andrés. en við erum ekkert ánægðir með kjörin, þau hefðu mátt vera betri. — Verðið þið lengi á línu? — Ég véit það nú bara ekki, ætli við förum ekki 1—3 túra, en síðan taka netin ugglaust við. VAR ORÐINN LANG- ÞREYTTUR Helgi Einarsson og Ingimundur Jónsson (t. h.) ,.KOKKURINN VIÐ KABYSSUNA" Sigmar Björgvinsson á Ás- birni er 20 ára og hefur verið kokkur sl. 4 ár til sjós. Hann var að hella upp á könnuna, því að strákarnir vildu fá Netasteinum sturtað á v bryssjuna. kaffi. Einnig var hann að ganga frá kostinum, sem var i nýkominn um borð, en þar var um að ræða allan mögu- legan mat. Sigmar eagði að það væri yfirleitt ágætt að vera kokk- ur á þessum bátum og að- spurður sagði hann að fæðis- %ostnaðurinn hjá sér hefði Verið um 4000 kr. fyrir verk- (fall. Við spurðum hann hvort hann væri ekki hress að geta hafið róðra aftur. — Jú, það er mjög gott að vera kominn á sjóinn aftur, sagði hann, ég var orðinn hundleiður á þessu reiðileysi í landi. Tvö skip að manúera í Hafnarfjarðarhöfn. „Ég var orðinn langþre.yttur á áð komast ekki á sjóinn," sagði Sigurður Bergsveins- son, háseti á Asgeiri RE. „Ég er ekki búinn að kynna mér samningana nógu vel, en mér skilst, að við hásetarnir meg- um vel við una. Hins vegar er ég ekki eins ánægður með 27%-in.“ — Og þið ætlið í þorskinn? — Já. Við förum í útilegu — með net; ég hef heyrt minnzt á Víkurálinn í því sambandi. Kan Daviösen kas.ar netatrossu boið um Sigurður Bergsveinsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.