Morgunblaðið - 19.02.1969, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 19.02.1969, Qupperneq 14
14 MORGUN.BLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. FEBRÚAR 1969. Ú.tgieíaTKÍi H.f. Árvafcur, IReyfejiavSk. Friamfcvsemdiaisitjóri Haraldur Sveinsaon. ‘Ritstjórar Siguróur Bjamason frá Viigur. Matthías Johannesslen. Eyjólfur Konráð Jónsaon. Ritstj órnarfulltrúi Þiorbjöm GuðimundsBon. Fréttaistjóri Björn JófoannsBon, Auglýsingastjóri Árni Garðar Kristinsson. Ritstjórn og afgreiðsla Aðalstræti 6. Sími 10-100. Au.glýsingar Aðalstræti 6. Sími 22-4-60. Áisifcriftargj'aM fcr. 160.00 á mánuði innanilainds. í lausasölM kr. 10.00 eintafcið. FULL ATVINNA TVTú þegar ríkisstjórnin hefur ’ leyst deilu yfirmanna á bátaflotanum við útvegs- menn með löggjöf ríður á að hver fleyta fari á flot, og raunar er ekki ástæða til ann ars en ætla, að mikill þrótt- ur muni verða í íslenzkri út- gerð á næstunni, því að sæmi legur rekstrargrundvöllur er nú fyrir útgerðina. Samhliða aukinni útgerð mun vinna í landi stóraukast. Þá er þess einnig að gæta að iðnaðurinn hefur nú góðan rekstrar- grundvöll eins og sjávarút- vegurinn, og mikil gróska er að færast í hvers kyns iðnað- arstarfsemi, ekki sízt marg- háttaðan útflutningsiðnað. Ástæða er þess vegna til að ætla, að atvinnuleysið muni brátt úr sögunni og full at- vinna verði handa hverjum þeim, sem vinna vill, og vissulega er það tímabært, því að uggvænlegt hefur verið í íslenzkum atvinnumál um, einkum vegna verkfalls- ins á bátaflotanum. Ríkisstjórnin hefur notið almenns og mikils stuðnings við lausn deilunnar. Sumir segja að vísu, að hún hefði átt að grípa inn í fyrr, en þess ber að gæta, að samn- ingafrelsið er grundvöllur okkar stjómskipunar og þess vegna á að reyna samninga til þrautar. En óverjandi var að láta fámennan hóp manna valda svo gífurlegu tjóni sem áframhaldandi verkfall var fyrir þjóðina alla, eins og for- sætisráðherra komst að orði í Morgunblaðinu í gær. Að vísu leyndi sér ekki skapvonzka Framsóknarfor- ingjanna yfir því, að deilan skyldi leysast, og kommún- istaklíkan hjá „Þjóðviljan- um“ nefndi lausn deilunnar: Þrælalög á sjómennina. En lausn þessarar deilu væri tilgangslítil, ef þjóðin væri svo ógæfusöm að lenda á ný í verkföllum 1. marz, sem þó er ekki ástæða til að ætla. Allur landslýður gerir sér grein fyrir því, að þau áföll, sem yfir þjóðina hafa dunið sl. 2 ár, hljóta að leiða til nokkrar kjaraskerðingar að sinni. Þess vegna skilur hvert mannsbarn, að það væri óðs manns æði að hefja nú kapphlaup á milli kaup- gjalds og verðlags, og útilok- að er að allar þær hækkan- ir, sem af gengisfellingunni leiðir fáist bættar með vísi- tölugreiðslum. Þá væri til einskis unnið og gengisbreyt ingin mundi renna út í sand- inn og öllu atvinnulífi væri stefnt í hættu. Ástæða er til að menn geri sér glögga grein fyrir þess- um staðreyndum, því að kommúnistar eru þegar tekn- ir til við að reyna að æsa menn til verkfalla 1. marz, og allar líkur benda til þess, að Framsóknarforingjarnir muni styðja þá í þeirri iðju, eins og allri niðurrifsstarf- semi á undanförnum árum. Lífsnauðsyn er, að öll at- vinnutæki landsmanna verði nú rekin með fullum þrótti og ekkert lát verði á auðæfa- öflun næstu mánuðina. Þá munu líka verða skjót um- skipti í íslenzkum efnahags- málum. Við munum á ný treysta fjárhag okkar gagn- vart útlöndum og leggja grundvöll að stórstígustu framförum í sögunni. Allir velviljaðir menn verða að vera vel á verði og gæta þess, að þær tilraunir, sem áreið- anlega verða gerðar til þess að kollvarpa þeim árangri, sem náðist með gengisbreyt- ingunni, renni ekki út í sand- inn. Næstu tvær vikur skera úr um það, hvort íslenzka þjóðin ber gæfu til að treysta fjárhag sinn og stefna fram til stöðugra hagsbóta eða hvort hér skapast tíma- bil mikilla erfiðleika, atvinnu leysis og versnandi lífskjara. Nú fær þjóðin að sjá, hverjir það eru, sem hugsa um hags muni hennar og hverjir hin- ir eru, sem einskis svífast í pólitískri valdabaráttu. ENDURSKIPU- LAGNING BÆJARÚT- GERÐARINNAR 1 ð undanförnu hefur verið unnið að athugun á rekstri Bæjarútgerðar Reykja víkur og miklar umræður hafa verið bak við tjöldin um breytt rekstursfyrirkomu lag og stofnun hlutafélags um þetta fyrirtæki. Munu mál þessi verða skýrð á borgar- stjórnarfundi á morgun. Þegar Nýsköpunarstjórnin beitti sér fyrir endurnýjun togaraflotans eftir styrjöld- ina, reyndist erfitt að fá ein- staklinga og hlutafélög til að kaupa þessi skip og gera þau úr. Varð niðurstaðan sú, að ýmis bæjarfélög eignuðust mörg þessara skipa, ýmist beint eða óbeint, og leituðust við að gera þau út. Þessi út- gerðarfyrirtæki sveitarfélag- Skartgripir fyrir 100 milljónir Nina Dyer hafði mikla ást á öllum dýrum, og von Thyssen barón gaf henni þessa hlébarða-skartgripi úr safírum og de- möntum, sem smíðaðir voru hjá Cartier í París. ari, var erfðaskráin ekki við- urkennd í heild, því svissnesk lög mæla svo fyrir að ættingj um beri ákveðinn hluti alls erfðaf j ár. SvisSneskir lögfræðingar auglýstu eftir ættingjum Ninu í samræmi við lögin og aðeins einn gaf sig fram. Var það brezkur verkfræðingur. William Stanley Aldrich, 67 ára, er sagðist vera faðir Ninu. Hefur enn ekki endan- lega verið gengið úr skugga um að svo sé. Uppboðið á skartgripum Ninu verður haldið í danssal Richmond-hótelsins í Genf, og er búizt við því að auðmenn víða að mæti til að ná í smá- glaðning handa konum sínum. Er það Cristie's uppboðsfélag- ið brezka, sem heMur uppboð ið. Astæðan fyrir því að upp- boðið er haldið í Sviss er sú, að ef glingrið væri selt í Eng- landi, þyrftu kaupendur að greiða af því 80% söluskatt. Margt eigulegra muna verð ur á uppboðinu, og er þar fyrst að nefna 32,07 karata demantslhring, sem talið er að verði seldur á rúmlega 100 þúsund sterlingspund, eða um 21 milljón króna. Þá er þarna annar demantshringur, Framhald á bls. 20 ÁRIÐ 1950 var Nina Dyer tví- tug og óþekkt .Hún var að hefja störf sem sýningar- stúlka hjá tízkuhúsum í London ,bjó í fátæklegri íbúð í South-Kensington og leit framtíðina björtum augum. Fimmtán árum seinna framdi Nina sjálfsmorð. Hún tók inn eitur, og nafn hennar var á forsíðum dagblaða víða um heim. Hún Iét eftir sig mikil auðæfi, og 1. maí í vor verða skartgripir hennar seldir á uppboði í Sviss. Er búizt við að fyrir þá fáist um 500 þús- und Sterlingspund eða rúm- ar 100 milljónir króna. Fimm árum eftir að Nina hóf störf í London var hún orðin ein þekktasta sýningar- stúlka Parísar og trúlofuð þýzka baróninum og stáljöfr- inum Heinrich von T'hyásen, sem hún giftist skömmu síðar. Hjónabandið mistókst, og skildu þau árið 1956. Von Thyssen var örlátur við konu sína þegar þau skildu, og er talið að eignir hennar hafi ver ið nærri milljón sterlings- punda virði eftir skilnaðinn. Árið 1957 giftist Nina á ný, og þá Sadruddin Khan prins, náfrænda Aga Khans. Skildu þau 1962, og ekki rýrnuðu eignir Ninu við það. í júlí 1965, þegar hún var 35 ára, framdi Nina sjálfsmorð að heimili sínu í París. Arfleiddi hún góðgerðafélög að öllum eigum sínum, en þar sem hún var þá svissneskur ríkisborg- Hálsfestin á miðri myndinni er úr svörtnm perlum, en efst eru eymalokkar úr safírum, smarögðum og demöntum. Neðst eru tveir demantshringir, sá til vinstri 27,22 karöt, en til hægri 32,07 karöt, í miðjunni neðst er næla með 37,41 karata smar- agði umkringdum demöntum. Perlufestin umlykur smaragðs- hring (16,38 karöt) og tvo eyrnalokka með svörtum perlum og demöntum. flL^l ||7 II1 AN DR HEIMI anna týndu þó fljótt tölunni | Bæjarútgerðarinnar og borg- og biðu ýmis sveitarfélög 1 arsjóðs, svo að skattborgarar verulegt tjón af þessari til- raunastarfsemi. Bæjarútgerð Reykjavíkur hefur þó haldið velli fram að þessu, en verið þungur baggi á borgarsjóði, enda hefur öll togaraútgerð átt við erfiðleika að etja að undanförnu. Nú mun ákveðið að skera algjörlega á milli fjárhags í Reykjavík verði ekki sjálf- krafa að bera halla útgerðar- innar. Jafnframt mun verða leitast við að styrkja fjárhag Bæjarútgerðarinnar og koma þar við endurbótum. Æski- legast væri að sameina dug- mestu útgerðaraðila í höfuð- borginni um rekstur öflugs útgerðar- og fiskvinnslufyr- irtækis, hvort svo sem það héti Bæjarútgerðin h.f. eða eitthvað annað. Vonandi bera þær tilraun- ir, sem borgarstjórn Reykja- víkur nú gerir til endurskipu lagningar Bæjarútgerðarinn- ar, tilætlaðan árangur, enda hefur margsannazt, að bæjar- útgerðir og samvinnuútgerð- ir standast einkarekstri ekki snúning.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.