Morgunblaðið - 19.02.1969, Side 15

Morgunblaðið - 19.02.1969, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. FEBRÚAR 1969. 15 Blaðamaður Morgunblaðsins skrifar frá Bandaríkjunum: „Við höfum enga hugmynd um afstöðu hans...?“ Madison, Wisconsin 2. febr. RICHARD Nixon hefur nú verið forseti Bandaríjkanna í tvær vikur og eins og við var að búast hefur ekki mikið markvert heyrzt frá honum enn sem komið er. Það tekur tíma að komast inn í hlutina í þessari miklu valda- miðstöð, Washington, og á það bæði við forsetann sjálf- an, ríkisstjórn hans og hinn gífurlega fjölda ráðgjafa og annarra háttsettra embættis- manna sem Nixon þarf að velja. Nixon sjálfur virðist róleg ur og ánægður í hinu nýja embætti og sumir vilja halda því fram, að það sé einmitt á bending um þá tíma, sem fram undan eru. Fleiri en einn og fleiri en tveir af hinum miklu stjórnmálaspekingum þessa lands vilja halda því fram, að næstu fjögur ár verði ein hver þau rólegustu í sögu Bandaríkjanna, og það sé ein mitt það, sem þjóðin þarfnist til þess að jafna sig eftir 8 ára demókratastjórn Kenned ys og Johnsons. MIÐSTÉTTARKLÍKAN Þeir benda á, að það hafi verið miðstéttarfólkið, sem vann forsetakosningarnar, og það voru kjósendurnir, sem Nixon leitaði eftir og fann, þó að hann hefði kannski kosið, að þeir hefðu verið fleiri en raun varð á. Þetta fólk býr í smáborgum og útborgum Mið vestur og Vesturríkjanna svo og á mörkum Suðurríkjanna. Nixon lýsti þeim sem hinum gleymdu borgurum Banda- ríkjamna. Vinnusömum og frið sömum skattborgurum. Það er sagt að síðan á tknum Cool- idge og Hoovers hafi aldrei verið önnur eins miðstéttar- valdaklíka verið ráðandi í Washington eins og sú, sem Nixon hefur safnað í kring- um sig. Allir ráðherrarnir eru dæmigerðir fyrirmyndar Nixon og ríkisstjórn við fyrstu embættisundirskrift hans. repúblíkanar, sérfræðingar hver á sínu sviði, traustir, rólegir, athugulir og fram- kvæmdasamir. Margir þeirra eru vellauðugir menn og einn meira að segja meðal auðugustu manna Bandaríkj- anna sem metinn er á 26400 milljónir ísl. kr. FÁAR SKULDBINDINGAR Stjórninni hefur verið lýst sem „getur framkvæmt" stjórn (can do) og draga fá- ir framkvæmdagetu hennar í efa. Hitt er svo annað, eng- inn af forsetum síðustu ára hefur komið til Hvíta Húss- ins með jafn fá loforð og skuldbindingar og Nix- on. Stjórnmálafréttaritarar bentu líka á strax eftir að Nixon hafði lokið embættis- tökuræðu sinni, að þó að slík ar ræður séu venjulega hvatn ingaræður til þjóðarinnar og því ekki mjög merkilegar hvað stefnumörkun snertir, þá hafi ræða Nixons verið sérlega laus við hverskönars yfirlýingar eða heitstreng- ingar af hálfu forsetans. For- setinn sagðist mundu einbeita öllum starfskröftum sínum og vizku til eflingar friðar þjóða í milli, en hann minntist ekk- ert á Tékkóslóvakíu, Vietnam Kína eða Sovétríkin. Hann sagði líka að stjórn hans myndi sækja fram með hvít- um mönnum og svörtum sam- einuðum sem ein þjóð en ekki tvær. Hann minntist þó ekkert á hvernig hann hefði hugsað sér að draga úr kyn- þáttahatri, glæpum, ofbeldi, skorti og fávizku, sem þjóð- ina svíður svo mjög undan nú. Þessi tilhneiging Nixons fer í taugarnar á mörgum, sem bíða óþreyjufullir að þeg ar verði hafizt handa um að bera klæði á sár þjóðarinnar Þeir segja að nóg sé komið af öllum þessum rannsóknar- nefndum og álitsgerðum sem tröllriðið hafi þjóðinni á und anförnum árum að tími sé kominn til að taka til hönd- um og framkvæma. Það er auðséð að Nixon og stjórn hans verða að gæta þess að vera ekki of varkár og bíða ekki of lengi. Það kann að vera að ummæli háttsetts v- þýzks embættismanns túlki tilfinningar margra, en hann sagði í viðtali við bandarísk an fréttamann, sem var að ispyrja hann álits á stjórn Nixons, „Við höfum ekki minnstu hugmynd um afstöðu Viðhorf Asíukommúnista til Nixons Eftir Cuy Searls ÞÓ að 'tíminn eigi enn eftir að leiða í ljós, hver verður í meg- inatriðuim stafna Richards Nix- on í miálefnuan Austur Asíu; hafa þó bandarísku stjórnar- skiptin þegar sýnt fram á hvílík sundruínig er ríkjandi með komm únistum í Asiu. Og það hefur fcomið fram, svo að ekfci verð- ur um vi'llzt, að þau þrjú ríki í Asíu, þar sem kommúnistar ráða lögum og lofum; þ. e. Norður-Kórea, Kína og Norður Vietnaim, líta ekki lemgur á Sovétríkin sem forysituiríki. Samtímis því að Nixon tek- ur við embætti Bandaríkjafor- seta og boðuð eru baett sam- s'kipti Washington og Moskvu, hefur málgagn Norður-Kóreu- stjórnar ráðizt á nýja forset- ann af offorsi og með eins mikium svívirðingum og orða- forðinn leyfir. Hið opinbera málgagn stjórn- ar Norður-Kóreu, Rodong Shibun, hefur borið fram þá ásökun, að meðan á Kóreu- styrjöldinni stóð, hafi Nixon „fundið til dýrslegrar gleði við hvern þann kóreamákan blóð- dropa, sem útheilt var,“ og ekki er þar látið staðar numið heldur eru notuð lýsingarorð eins og „stríð®brjálsæðimigur“ og „ófrýniilegur vilimaður“ „fasisti" og fleiri í þeim dúr. Dagblað alþýðunnar í Pe- king birti, sama daginn og Nixon tók við embætti, grein, siem bar yfirskriftina „blygð- Mao formaður unarlaus klíkuskapur“ og reyndist þar vera á ferðinni, ekki aðeios ein allsherjar for- dæming á Nixon forseta, held- Nixon ur einnig á stjóm Sovéríkj- anna fyrir að rétta vináttu- hönd í átt til forsetams nýja. Kínverja.r hafa löngum valið húsfoónda Hvíta hússins það nafn, að hann væri hamdfoendi heimsvalda sinna og þeir ganga feti lengra með því að lýsa Nixon sem „handbendi og mál- pípu millljarðamæriniganna.“ Samlkvæmt Pekinig speking- umum er höfuðsynd Sovét- sitjóirnarinniar sú að reyna að koma á bæfctri samtoúð miilli Sovét og hins nýja leiðtoga forsetans til þeirra mála sem efst eru á baugi og þar af leiðandi getum við ekki mynd að okkur skoðun.“ TÍMASPRENGJUR Það er að vísu satt að fátt er vitað um hvaða stefnur eða afstöður Nixon hefur í hyggju að marka stjórn sinni, en þess ber líka að gæta, að hann er ekki að taka við skipstjórn á neinum trillubát. Hér er um að ræða stærsta og mikilvægasta hafskip heims. Skipið er að vísu haf- fært, en eins og nýja drottn- ingin Bretanna, er ýmislegt, sem þarf að lagfæra áður en stefnan er sett. Lyndon Johnson skildi eft ir mjög skýra vísbendingu um, hvað hann vill að Nix- on geri fyrir þjóðina. Hann skildi líka eftir, eins og einn stjórnmálafréttaritarinn orð- aði það „allmargar tíma- sprengjur" handa eftirmanni sínum, en það kann að líða langur tími þar til í ljós kem ur, hversu kraftmiklar þær eru. Áætlun Johnsons er traust og inniheldur ýmis for gangsatriði. Nixon hefur líka ýmisleg forgangsatriði í huga, en enga haldfasta áætl un, eða réttara sagt enga sjá- anlega áætlun. Nixon og menn hans hafa undanfarna mánuði lagt áherzlu á að þeir hafi alls ekki í hyggju að þyngja skattabyrðar þjóðar- innar með kostnaðarsömum nýjum þjóðfélagsumbóta- frumvörpum í anda síðustu ára. Svo virðist sem Nixon ætli fremur að leggja áherzlu á að velja úr og endurskipu- leggja það sem þegar er fyrir en að eiga frumkvæðið. Lyk- ilorðið er „Framkvæmdir" en ekki dirfska. Fréttamenn segja að mönn- um Nixons hafi létt mikið er þeir höfðu kannað til hlítar áætlunartillögur fráfarandi Framhald á bls. 20 „bandarísfcra heimsvaldasinna.“ Peking segir, að sleikjuákapur Sovétmanma vekji „viðbjóðs- lega klígju" og að þeir „geri sig að algeru viðundra.“ Hvað snertir fréttasfcofufirá- saignir í NoTður-Vietnam virðist Ijósit, að þar er reynt að fara bil beggja og eftir því sem bezt verður séð, reyna þeir að komast hjá því að styggja Bandaríkjamenn meira en þeir telja alveg bráð'nauðsynlegt. Þeir .veigra sér við að taka stórt upp í sig ,en segjast vom- ast til að Nixon falli ekki í sömu gryfjumair og Johnson, fyrirrennari hans, og að hann ætti þegar í sfcað að lýsa yfir uppgjöf Bandaríkjamanna í Vietnaim-styrjöldinni. Hið opin bera málga'gn Hanoi stjórnar- innar heifur látið skína í von- brigði með ræðuna sem Nixon flutti, þegar hann tók við for- setaembættinu og segja hana skrúðmælgi eina og þair hafi verið gefin flausitursleg og yfir borðsleg loforð og hann hafi hvergi 'komið niálægt kjarna vandaimálanna. Hanoi útvarpið, sem eklki er beinlínis talið mál- pípa stjórnarinnar, að minnsta kosti ekki opintoer fulltrúi hennar hefur þó tekið það mikið upp í sig að fordæma Nixon forseta sem stríðsæsimga mann, engu betri en fyrirrenm- ari hans. Ho-Chi-Minh

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.