Morgunblaðið - 19.02.1969, Qupperneq 16

Morgunblaðið - 19.02.1969, Qupperneq 16
16 MORGUNBLAKItt, MIÐVIKUDAGUR 19. FEBRÚAR 1969. Geymsla fiskimjöls ÞEGAR sjávaraflinn brást á síð- astliðnu ári, fann þjóðin srtrax á sjálfri sér og ólinni á hverju hún hafði fitnað á undanförnum ár- um. Það risu þegar upp ýmsir ágætir og gegnir menn með margvísleg patentráð í nýjum atvinnugreinum, en megin hluti þjóðarinnar gerir sér ljóst, að uppfylling slíkra drauma er of seinvirk og við yrðum öll löngu orðin hungurmorða áður en þeir næðu að uppfyllast jafnvel þótt gengið væri að framkvæmdinni með oddi og egg. Það er þó ósk allra að þessir stóru draumar nái að rætast í fyllingu tímans, en jafnframt er það von þjóðarinn- ar að gripið verði fyret til þeirra úrræðanna, sem næst liggja hendinni og það eru endurbætur í útgerð og fis'kvinnslu. Mikil alda hefur því gripið um sig að nýta betur möguleika sjávarútvegsins, en þeir eru geysilegir bæði í aukinni fram- leiðni og nýtingu. Áhugamenn hafa haft við orð að stofn-a ný félög, en gamlir menn ráð og nefndir. Um ráð okkar og nefnd- ir má ég ekki ógrátandi skrifa, mér finnst það svo uppátakan- legt kerfi hjá þessari litlu þjóð, en ég vil fara nokkrum orðum um þá hreyfingu að efna hér tii istofnunar nýrra áhugamanna- félaga. Fiskifélagið var stofnað lúll sem félagsskapur manna, sem áhuga höfðu á sjávarútvegi og vildu efla hann sem mest. Félag- ið varð einskonar óskabarn þjóð- arinar í líkingu við Eimskip. Ekki aðeins útgerðarmenn og sjómenn heldur áhugamenn í öll um landsfjórðungum etuddu þetta félag og unnu því margvís- legt gagn. Margir okkar beztu manna hafa starfað í þessu félagi og þegar Iitið er yfir feril þess sézt glöggt, að félagið hefur jafn an verið einn aðalburðarásinn í allri útgerð okkar. Það hefur lát ið flest útgerðarmál til sín taka, gefið út tímarit, safnað skýrsl- um og haldið námsskeið og þar haíá menn safnazt saman til að ræða sjávarútvegsmál. Á seinni árum hefur gætt tals- verðrar tilhneigingar til að draga burst úr nefi þessa félags- skapar. Það ber margt til þess. Ein ástæðan er siú að yngri mönn um finnst þeir ekki fá nægan hljómgrunn fyrir hugmyndir sín- ar hjá öldungunum í Fiskifélag- inu. Þetta er áreiðanlega mis- skilningur. í stjórn Fiskifélags- ins hafa jafnan setið menn, sem hafa verið reiðubúnir til að hlýða á hvers kyns tillögur sem til úrbóta stefndu þó að þeir væru við aldur. Margir þessara ínanna hafa sjálfir verið braut- ryðjendur um nýjungar og þó að þeir með aldrinum hafi svo sem eðlilegt er haft hægár um sig og gerzt þungfærari að standa sjálfir i eldi brautryðjand ans, þá hafa þeir augun opin fyrir því sem betur mlá fara ekki síður en þeir sem yngri eru og þeir vita margfalt meira um flesta hluti í sjávarútvegi. Sjáv- arútvegur er atvinnuvegur sem krefst mikillar og marghliða þekkingar, svo margt sem gríp- ur ínní reksturinn bæði tækni- legs, félagsfræðilegs og hagræns eðlis. Málið er ekki leyst þó að komð sé með tækninýjung. Það þarf að athuga félagslegar af- leiðingar hennar fyrir einstaka landshluta eða landið í heiid, af- leiðingar hennar fyrir fiskimið- in, hvort hún borgi sig fjárhags- lega og síðast en ekki sízt, hvort fólkið ráði við hana. Fiskifélag- ið saman stendur af mönnum, sem búa yfir mestri alhliða þekk ingu á sjávarútvegi allra aðila hérlendis, og það stendur á göml uni merg. Eðlilegra hefði virzt að gefa því blóð í stað þess að láta það gefa blóð til annarra aðila. Það er þegar nóg hér af blóðlausum og merglausum félögum með fjár magn rétt nægjanlegt fyrir skrif stofuhúsnæði. Farmanna- og fiskimannasambandið, Sjómanna sambandið og Landssamband íslenzkra útvegsmanna þurfa að leggja Fiskifélaginu meira lið en verið hefur. Hafrann- sóknarstofnunin var sett á laggirnar, en það er mikið þjóðþrifafyrirtæki, var henni fal ið verkefni, sem alls ekki átti að falla í hennar hlut að sinna, en það var raunhæfar tilrunir með veiðarfæri. Hafrnnsóknaristofnun in er vísindastofnun fiskifræð- inga og þetta verkefni á ekki heima hjá henni og hlýtur að angra þá ágætu menn, sem eru þar að vinna að sínum vísinda- störfum við rannsókn hrogna og svila. Raunhæfar tilraunir með veið arfæri eiga heima hjá tæknifræð ingum og sjómönnunum sjálfum. Bæði Bretar og þjóðverjar eru að reka sig á þá staðreynd, að sé vi'sindamönnum falið að ann- ast raunhæfar veiðrfæratilraunir myndast tómarúm milli þeirra og sjómanna í starfi sem hamlar árangri. Bretar hafa nú á prjónun- um að bæta úr þessu með því að l'eggja ekki eins mikla áherzlu og þeir fyrr hafa gert á byggingu eða rekst- ur stórra, vísindalegra rannsókn arskipa með vísindamenn ein- vörðungu um borð, heldur ætla þeir að færa ranmsóknarstarf- semina um borð í fiskiskip sín. Þetta telja þeir vænlegustu leið- ina til að fá raunhæfa reynslu á það sem -tæknifræðingurinn eða vísyndamaðurinn er að glíma við og með þessu nýtist hin prakt- íska reynsla sjómannanna. Eigi að emdurbæta eitthvað við veið- ar í fiskibáti eða togara verður það ekki bezt gert á teikniborði í landi og ekki heldur um borð í íérstaklega úttoúnu rannsóknar- skipi, heldur um borð í fiskibátn um eða togaranum sjálfum. Það er erfitt að kyngj þessu fyrir menntamanninn, sem hefur látið sig dreyma um þægilegar aðstæð ur við störf sín, en í þessu efni dugar það bezt, að hann vimni á þeim vettvangi og við þær að- stæður sem tækið skal notast við. Fiskifélag íslands er eini rétti tengiliðurinn milli sjómanna og vísindamanna. Nýtt félag væri ekki til annars fallið en dreifa kröftunum, það er miiklu nær fyrir unga og áhugasama menn að flykkjast í Fiskifélagið. Hér í Reykjavík er starfandi deild, sem er ágætur starfsvettvangur. Þar getur öldungurinn haldið í tauminn en folinn nagað mélin og ef hann er átkamikill neyðist sá gamli til að hlaupa við fót með honum, en tauminn má hapn ekki missa. Eftir að þessi grein var skrifuð hefur nýju félagi áhugamanna um sjávarútvegsmál verið hleypt af stofckum. Þrátt fyrir það sem hér að ofan er sagt, óskar .Sjó- GEYMSLA FISKIMJÖLS Það hefur um nokkurra ára bil valdið fiskiðnaðarfræðingum vangaveltum hvaða áhrif geymsla með eða án sýrueyð- andi efna hefði á fiskimjöl. Um þetta er rætt í grein í Fishing News International, janúarheft- inu. Prófessor Dreosti, sem er sagður forseti Vísindaráðs hnatt Keisara- skurður og tanga- læðing Það hefði einhvern tímann þótt saga að hásetarnir biðu búnir til róðurs, en skipstjórinn neitaði þeim um að losa landfestar og vélstjórinn neitaði að setja í gang — þessar stéttir, skipstjór- ar og vélstjórar eiga allt gott skilið, en það verða allir að gæta sín á því að gera ekki málstað sinn hlægileagn. — Læknastétt- in, bíður þess aldrei bætur að hún fór í verkfall um árið — vierkfall er neyðarúrræði. lægst launaðasta fólksins og það er í raunni skemmdarverk gagn vart þeim sem minnst mega sín og eiga ekki annað vopn á stundum en verkfallsvopnið — þegar betur miegandi stéttir beita þessu vopni í tíma og ótíma. Okkur, sem þykir vænt um sjó menn, og ekki sízt skipperana finnst að þeir eigi að gæta virð- ingar sinnar svo að blókin við rór ið þurfi ekki að snúa sér undan til að glotta að þeim og vélstjór- anum, þegar þeir fara að rekja harma sína á útleiðinni. mannasíðan því góðs gengis — og væntir þess að þa'ð ásannist ekki að það verði til að dreifa kröftunum. Fiskerimöte krever större statsstötle EKKI er opnað svo norskt blað. að norskur sjávarútvegur sé ekki þar að biðja u mstyrk og nú heimta norskir fiskkaupendur að ríkið kaupi af þeim allar óseldar biirgðir frá fyrra ári af skreið- inni. Hvernig ætli upplitið yrði á norskri útgerð, ef hún þyrfti að bera uppi þjóðfélag isitt eins og sú íslenzka? EINS og kunnugt er framleiðir Hampiðjan þrælsterka línu og lit ar hana, en þannig þykir hún veiðnari og endingartoetiri. Nokkr ir sjómenn telja sig fiska verr á þessa línu, þegar hún er orðin gömul en meðan hún er ný. Hannes Pálsson segir, að þetta komi heim við reynslu sjólax- veiðimanna við strendur Ame- ríku, sem veiða laxinn 1 lituð félags fiskimjölsframleiðenda (Chairman og the Scientific Committee of the International Association of Fish Meal Manu factures — sem sagt, hæstarétt- armálaflutningsmannsvinnukonu útidyralykill) — Þebta leiðir at- hyglina að því, hvað nafngiftir okkar á virðulegum embættum eru í rauninni fátæklegar og því spurning, hvort við aettum ekki að lengja embættisheitin — en lækka launin. Við eigum bara „fiskimálastjóra“, en það var nú reyndar liðna kynsslóðin sem fann þá nafngift upp, slík- ur stjóri hefur á enskunni em- bættisnafn uppá hálfa blaðsiðu. Lengst komumst við í nafngift, einmitt í ofannefndri fræðigrein — forstöðumaður rannsóknarráðs fiskiðnaðarins — og myndu mál skelfingarmenn kalla þetta áhrif frá enskunni. Ástæðulaust er að rekja of- annefnda grein hér alla, hún yrði ekki lesin nema af kannski tíu mönnum á fslandi, og þeir geta alveg eins lesið hana á enskunni, og eru sjálfsagt búnir að því. Hér er aðeins bent á greinina, því að í henni er full- yrt, að það sé rangt, sem hald- ið hefur verið að ofsýring (per oxide) og önnur sýrumyndun í mjöli gæti valdið eitrun og það svari oft ekki kostnaði að nota sýrueyðandi efni. Margt er það í koti karls, sem kóngs er ekki í ranni ■ ■ ■ Frá því er sagt í erlendum fiskveiðitimaritum, sem mikl- um tíðindum að Dr. Timothy Fohl, sem vinnur við bandaríska rannsóknarstofn un í Massachussetts hafi fundið upp tæki, sem hafin er smíði á og hann hefur fengið einkaleyfi. Þetta tæki stjórnar vörp- unni í drætti. Bandaríska fiski- málastofnunin beitti sér fyrir því, að fundið væri upp tæki til að stjórna vörpu einkum flotvörpu eða miðsjávarvörpu og öðrum slíkum veiðarfærum sem skip drægju á eftir sér. Meginhlutar tækisins er eins- konar sívalur vængur sem snýzt og gengur fyrir litlum mót or sem festur er á vörpuna og knýr hann veiðarfærið upp eða niður í sjónum eftir því sem ósk að er. Sama stofnun, það er hefur reynt með góðum árangri helmingi minni trollhlera en vant er að nota og byggist það á snúningi þeirra og kunnum vér ekki gerr frá því að segja. Kannski leynir hún á sér þessi stutta frétt að vestan úr hinu mikla kóngsríki, en úr kotrík- inu austar á hnettinum. Eru menn ekki hissa á þessari frétt, en dálítið sárar — þessi verka- tíðindi sem hugsanlega valda byltingu í fiskveiðum — hefðu heimurinn átt að fregna fyrst úr kotríkinu. nælonnet og heldur Hannes að þetta geti stafað af rotnunarlykt, sem getur orðið mjög stæk, þeg- ar lína eldist og liturinn er far- inn úr henni. Útvegsmaður í Súg andafirði var á dögunum að panta tunnu af lit og ætlar að iita línuna og telur Hannes ekki ólíklegt að það reynist vel að dífa línumni niður í lit í byrjun hverrar vertíðar. PARFU ME Við þorskveiði bœði á landi og sjó er lykfin mikið atriði.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.