Morgunblaðið - 19.02.1969, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 19.02.1969, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. FEBRÚAR 1969. 19 NEMENDUR á mcnntaskólastig- inu voru gagnrýnir við forráða- menn fræðslumála ráðherra, rektora, skólameistara, skóla- stjóra o. fl. á fundi um fræðslu- málin í Súlnasal Hótel s‘gu í fyrrakvöld. Umræður snerust einkum um húsnæðisvandamál menntaskólanna, fjárveitingar til menntaskólastigsins, og nýting f járins og um skipulagsmál stigs- ins almennt. Fundurinn var f jöl- sóttur og tók mikill fjöldi fundar manna til máls. Mælendaskrá var takmörkuð við nemendur, kennara og forystumenn viðkom- andi skóla og stóð fundurinn þar til klukkan var nær hálfeitt. — Umræður snerust aðallega um menntaskólastigið, og þvj bar landsprófið fremur lítið á góma, þrátt fyrir mikla gagnrýni und- anfarið. Fulltrúar menntaskólanna þriggja, sem -er.u sunnanlands fluttu framsöguerindi og hið fjórða flutti fulltrúi Kennara- skóla íslands. Fyrstur talaði Sig- urður Guðm.undsson M.R. Hann kvað fjárveitingu til fræðslumála hlutfallslega miklu meiri hér á landi en meðal nágrannas-jóðanna um 90 milljón krónur á ári, sem svaraði til 200 króna kostnaði á dag á hvern nemanda. Hins veg- ar kvað hann nýtingu þessa fjár- Rektorar, skólameistari, skólastjóri og kennarar hlýða á umræður um fræðslumálin Ljósm. Kr. B. Ný löggjöf um menntaskólastigið væntanleg: Gert rctö fyrir valfresi — Skylyrði til inngöngu í menntnskóla rýmkuð magns mjög ábótavant. Tómt mál taldi hann að ræða um mennta- skóla á Vestfjörðum og á Aust- urlandi á meðan húsnæðisskort- ur væri í skólum, sem þegar eru til. Nær væri að styrkja nemend ur í þessum landshlutum til setu í gömlu sólunum. Skóli væri af moldu kominn og myndi aftur að moldu hverfa. Hann væri lif- andi heild — nemendurnir sjálf- ir. Næsti frumælandi var Ólafur Þórðarson, Kí. Hann ræddi nokk uð um lýðræði í skólum og spurði, hvort 800 manna þorp léti sér nægja að því væri settur stjórnandi og það fengi engu að ráða um val hans. Skólinn væri samfélag og þar yrði lýðræði einnig að vera við lýði. lóafur ræddi nokkuð um vandamál Kennaraskólans. Húsið kvað hann byggt fyrir 175 emendur — kennslustofur 7, en í húsinu stunduðu nú nám 826 nemendur. Ríkti þar nú algjört öngþveitis- ástand, enda kennt í öllum skúmaskotum, m. a. í risi, sem á teikningu hefði aldrei verið kall að annað en geymsla. Kvað hann iþetta hljóta að brjóta í bága við eldvarnarreglur Jafnframt hefði skólinn lagt undir sig kirkju í nágrenninu og kennt væri í skúr við skólann. Öll þessi húsnæðis- ekla hefti síðan eðlilegt félags- líf nemenda. Frummælandi fyrir hönd MH var Gesitur Jónsson. Hann kvað þá gleðifrétt hafa kvisast 1942 að skipuð hafi verið nefnd til undirbúnings nýrri menntaskóla byggingu í Reykjavík. Störf þeirrar nefndar héfðu svo leitt af sér aðra nefnd þremur árum sáðar. 1953, 11 árum síðar var fyrsta skóflustungan tekin í Hlíðunum og urðu framkvæmdir varla meiri. 1965 — 23 árum frá því er fyrsta nefndin um málið var sett á fót hófst svo loks bygg ing Hamrahl'íðarskólans. Var skól inn settur 1966. Fjárveiting 1967 var til skólans 19.7 milljónir, og ’68 11.7 milljónir. Síðan spurði ræðumaður, hvað yfirvöld hyggðust gera til úrlausnar húsnæðisvandamálun- um í ljósi þeirrar staðreyndar að nemendum myndi fjölga mjög á næstunni. Árið 1960 hefðu 14.5% 16 ára nemenda staðizt landspróf, en 1968 21.3%. Ráð- gert væri að 1975 stæðusit 30% 16 ára nemenda prófi’ð. Yrðu þá 16 ára nemendur alls 4680, ef svo fer sem horfir, en voru 1960 3051. Stórauka verður fjárveit- ingu til skólamála sagði ræðu- maður. Rúnar Hafdail flutti framsögu- ræðu fyrir hönd Laugvetninga. Hann ræddi mjög um húsnæðis- vandamál í heimavist mennta- skólanema á Laugarvatni. Utan heimavisitar búa nú 40 nemendur og skólahúsið væri of lítið. Þriðjubekkingar yrðu að kúldr- ast í bráðabirgðahúsnæði, engin náttúrufræðistofa væri í skólan- um og nauðsyn væri á að feoma upp raunvísindaálmu l'íkt og við Menntas'kólann í Reykjavík. Þá gagnrýndi Rúnar mjög mötu- neyti skólans, sem væri í hæsita naáta ónóg og nemendur fengju aMrei að sjá reikninga þess, enda þótt þeir héldu því uppi adgjör- lega. Það væri í kjallara — hálf- niðurgröfnum og ónóg geymslu- tæki matvæla væru þar. Yrði því að geyma matvæli við venju legan stofuhita. Ræðumaður kvaðst vonast til að slagorðið: mennt er máttur, yr'ði ekki mennt er máttur hinna ríku. Gylfi Þ. Gíslason, menntamálá ráðherra talaði næstur og svar- aði m.a. fyrirspurnum, sem hon- um hafði borizt frá fundarmönn- um, m.a. spurningum frá sam- starfsnefnd kennara og nemenda við MR. Menntamálaráðherra sagði að fræðslulöggjöfin frá 1946 væri aðeins rammalöggjöf, sem kvæði svo á að námsstigin skyldu vera barnaskólastig, gagnfræðaskóla- stig, menntaskólastig og síðan væri frjálst að gera breytingar innan þess ramma. Ýmsar breyt- ingar hefðu verið framkvæmdar, m.a. fyrir tilstilli skólarannsókn- anna. Gylfi Þ. Gíslason bar sfðan saman heildarframlöf ríkis- og sveitarfélaga til skðlamála. 1956 voru veittar ti'l skólamála 426 milljónir króna, en í fyrra 1408 milljónir króna. Er hér um sam- bærilegar krónur að ræða. 1956 voru fjárframlögin 3.1% af þjóð- arframleiðslunni, en í fyrra 5.4%. Á þessum árum hefur orðið gífur leg fjölgun skólafól-ks á skóla- aldri, en framlög hins opinbera námu árið 1956 11440 krónum á hvern unglinig á aldrinum 7 til 19 ára. 1 fyrra nam kostnaður við hvern nemanda á þessu ald- ursbili 25600 krónum. Hér er einnig um samibærilegar krónur að ræða. 1960 hófst sókn í fjár- veitingum til skólamála. Þá var veitt 6.6 milljónum króna í þessi efni, ’65 17.6 milljónum og ’69 38.9 milljónum króna. Með þessu sæist greinilega að fjárveiting hefði aukizt gófurlega. Menntamálaráðlherra sagði að næsta sumar myndi nefnd skila áliti um framtíðaruppbyggingu Háskóla Íslands. f athugun væri að lögfesta kennsluskyldu pró- fersora sem annarra kennara í þjónustu hins opinbera. Hann kvað alla frummælendur hafa nefnt húsnæðisskort og það væri að réttu. Ástæðan væri sú að þau mál hefðu verið vanrækt í ára- tugi, unz mikil sókn hófst 1960. Til þess að ráða bót á hús- næðisvandamáli menntaskóla- stigsins í Reykjavík, kvað ráð- herrann viðræður standa yfir við Reykjavíkurborg um að fá einn af gagnfræðaskólum borgarinnar undir menntaskóla. Kæmi þar Ráðherrar og þingmenn hlýða á umræður á fundinum. einkum til greina Gagnfræða- skólinn við Vonarstræti og Gagn fræðaskóli Austurbæjar. Enn væri ekki ákveðið, hvor skólinn yrði notaður til þessa. Hann kvað fjárveitingu til Hamrahlíð arskólans aðeins hafa verið frest að um eitt ár og hún notuð í þess stað til byggingar raunvísinda- deild við Menntaskólann á Ak- ureyri. Engin fjárveiting til menntaskólastigsins hefði því verið felld niður — hún aðeins 'ærð norður. Aðspurður um það hvenær breytt yrði deildaskipulagi við MR í líkingu við það sem tíðk- ast í MH, svaraði ráðherrann: „Ég skal gera það þegar í fyrra- málið, ef ósk kemur um það frá Menntaskólanum í Reykjavík“. Við spurningu um það hvort menntaskólanemar fengju að velja rektora og ráða málum skól ans, sagði ráðherra að ekki kæmi til greina að veita nemendum veit ingavald ríkisins. Hins vegar hefði hann lýst þeirri skoðun sinni við háskólastúdenita að hann hefði ekkert á móti því að þeir fengju um það einhvern ákvörðunarrétt, hver yrði há- skólarektor, enda væri hann ekki skipaður af ríkisvaldinu, heldur kjörinn af meðprófessorum sín- um. Hann kvaðst þó bíða eftir álykbun háskólaráðs um þetta efni, en þar kvað hann mikla andspyrnu við þessa hugmynd. Síðan sagði ráðherrann, að það væri skoðun sín að nemendur ættu að fá aukin áhrif á stjórn skólanna. Lýðræði fylgdi ekki aðeins réttur heldur einnig skyld ur og ,,ég vil að þið fáið hvort- tveggja — réttinm og skylduna“. Nú var mælendaskrá opin og tóku ýmsir til máls, m.a. Einar Magnússon, rektor, sem taldi að menntaskólarnir ættu að veita fræðslu á sem breiðustum grunni. Ekki ætti að loka leið- um og hver nemandi gæti þá við stúdentspróf lagt stund á hvað hann ó-ikaði. Taldi hann of snemmt fyrir 17 ára mann að taka ákvörðun um sérnám. Að stúdentsprófi loknu ættu allar leiðir að standa opnar. Mennta- skólarnir ættu að leggja einn og heilan grunn að menmtun ungs fólks, en ekki kljúfa það til sér náms á unga aldri. Jóhann Hannesson, skólameist ari á Lau.garvatni kvaðst virða þessi sjónarmið Einars en hann var þeim ekki sammála. Hann kvað þó ekki kennarana eina standa í vegi fyrir breytingum. Nemendur óttuðust þær alla jafna einnig — þeir væru hrædd ir um einkunnir sínar. Ef þetta viðhorf nemenda væri nú að breytast — sagðist harrn gleðjast mjög. Hingað til hefðu þó nem- endur verið eilítið úreltir. Gylfi Þ. Gíslason tók aftur til máls, er liðið var á kvöld. Svar- aði hann fyrirspurnum, m.a. frá einum nemanda, sem spurði um atvinnu nemenda á komandi sumri. Ráðherrann kvað yfirvöld gera sér grein fyrir þeim vanda, er 8000 unglingar þyrftu atvinnu að vori og myndi allt verða gert sem í mannlegu valdi stæði til þess að útvega þeim atvinnu. Því næst skýrði menntamála- ráðherra frá niðurtsöðum nefnd- ar, sem kannað hefur mennta- skólastigið. Á grunni þeirrar rannsóknar verður lagt fyrir þetta þing, sem nú situr frum- varp að lögum um menntaskóla- stigið. Mun það væntanlega werða samþykkt á næsta þingi. Aðalbrieytingar, sem frumvarpið gerir ráð fyrir eru þessar: Próf úr bóknámsdeild miðskóla verður áfram beinasta inngöngu leið í menmtaskóla, en skýlausari heimild veitt til þess að taka inn nemendur af öðrum skólastigum, ef undirbúningur þeirra telst full nægjandi. Gert er ráð fyrir að taka upp nýja skipan á skiptingu námsbrauta innan skólanna og raskar hún verullega núverandi deildaskiptingu og bekkjakerfi. Námsefni yrðu þríþætt: kjarni, kjörsvið og frjálsar valgreinar. Kjarninn er það námsfeni, sem er sameiginlegt öllum nemend- um skólans, hvaða námsgrein, sem þeir velja sér. Kjörsviðin, Framhald á bls. 27

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.