Morgunblaðið - 19.02.1969, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. FEBRÚAR 1969.
21
— Mjólkursölumál
Framhald af bls. 17
búða, sem hentar fyrir mjólkur-
dreifingu Mjólkursamsölunnar."
Það virðist furðulegt að þurfa
skuli nefnd til að athuga þetta.
Annað eins hefir selstöðusamsal-
an ákveðið hjálparlaust. Hvern-
ig stendur á því að samsalan,
eða stjórn hennar, snýr sér ekki
til mjólkurbúanna á Húsavík,
Egilstöðum, Höfn í Hornafirði,
Akureyri, _ ólafsfirði, Sauðár-
króki og ísafirði og spyr stjórn-
endur þeirra hvernig umbúðir
þeirra reynist? Ég hef gert þetta
og þar ljúka allir mjólkurbús-
stjórarnir upp einum munni um
það að kassarnir, sem þeir nota,
séu afbragðs umbúðir. Auk þess
sjá allir, sem vilja sjá, að þess-
ar umbúðir eru sjálfsagðar þeg-
ar flytja þarf mjólkina milli
landshluta til dreifingar hér í
þéttbýliniu við Faxaflóa. Það er
staðreynd að vöruflutningar á
landi hér eru fyrst og fremst
frá Reykjavík og út um lands-
byggðina. Þetta leiðir af sér að
flutningabílarnir eru oftast tóm-
ir, eða létt lestaðir, til höfuð-
staðarins. Hvað væri þá auðveld
ara en flytja mjólkina um leið
og aðrar vörur væru teknar til
baka? Þó þyrfti hún að vera í
þeim umbúðum, sem ekki þyrfti
að flytja aftur tómar norður í
land. En hvað er gent? Mjólk-
in er flutt í brúsum, sem svo
þarf að flytja tóma norður aft-
ur, og taka fyrir þá sama rúm
tóma sem fulla. Og hverjir bera
svo tjónið af þessari ráðstöf-
un? Ætli það séu ekki eigendur
og rekendur Mjólkursamsölunn-
ar, sunnllenzkir bændur.
En nú skulum við athuga sam
anburðinn á kostnaði við sænsk
ar fernur og íslenzkar. Mjólkur
samsalan hefir farið fram á að
fá viðurkenndan pökkunarkiostn
að á mjólk og skulum við taka
fernumar til athuguruar og miða
við tveggja lítra fernur. Umbúð
irnar sjálfar kosta 153,30 aura
pr. lítra, liður sem nefnist V.A.R.
byggingar vélar 11,97 pr. lítra,
en hefir áður verið reiknaður
10.71 og er þá enginn bygging-
arliður í tölunni, svo þeitta er
raunar vélaleiga, ársfjórðungs-
leilga er 1.22 anrar pr. lítra og
framleiðslugjald 7.64 pr. lítra.
Þessi upphæð samanlögð, eða
172,87 aurar, greiðast hinum
sænsku viðskiptavinum af hverj
um lítra, sem settur er í fernu
hér. Hið innlenda tilboð Kassa-
gerðar Reykjavíkur er, umbúðir
135.00 aurar pr. lítra og 8,4 aur-
ar sem greiða þarf í afborgan-
ir og vexti af pökkunarvél, sams
konar þeirri, sem samsailian hefir
nú á leigu. Hér í Reykjavík
þarf að setja um 24 milljónir
lítra í umbúðir á ári. Sparnað-
urinn við það að taka innlenda
tilboðinu, og pakka a'llri mjólk
í fernur, nemur því hvorki meira
né minna en 7 milljónum (sjö
milljónum) 72 þúsundum og 800
krónum á ári. Þá er ótalinn
gjaldeyrissparnaðurinn og vinnu-
launahagnaðurinn við að fram-
leiða þetta í landinu sjólfu.
Þarna er eikki einasta
sýnit fram á hvernig Mjólkur-
samsalan fyriblítur innlendan
iðnað, heldur á að fara að leika
sér með dýrmætan gjaldeyri. Og
svo leyfir samsölustjórnin sér
að kvarta um að stjómvöld og
fulltrúar neytenda í verðlags-
nefnd stuðli að því að þessar
sænsku fernur hverfi af mark-
aðnum!
Stjórn samsölunnar segir í at-
hugasemdum sínum til mín:
„Hins verðum vér daglega var-
ir, að það fólk er fjölmargt,
sem 'lætur ekki blekkjast (af
annarlegum áróðri. innsk. V.G.),
en sýnir Mjólkursamsölunni vin
semd og skilning."
Af þessari fáránlegu fullyrð-
ingu sjá neytendur hve barna-
Qiegt tal mjólkursamsölustjórnar-
innar er. Öll þau miklu skrif,
sem komið hafa fram í bréfa-
dálkum blaðannia, sanna vissu-
lega hið gagnstæða, undirskrifta
söfnun húsmæðra í heilum
byggðarhverfum, barátta Garða
hreppsbúa við samsöluna eiga að
þeirra dómi að sýna vinsemd og
skilning. Það væri kannske rétt
Kælihyllurnar í Síld og fisk biða eftir mjólkinni.
FLAUEL
20 LITIR
DÖMU OC HERRABÚÐIN
________________Laugavegi 55.
TIL SÖLU
stór loðnunót ef samið er strax.
Sími 41437.
BÍLL ÓSKAST
Vil kaupa 4ra—5 manna nýlegan og vel með farinn
bíl. Tilboð með upplýsingum um tegund, árg., verð
og greiðsliuskilmála sendist Mbl. fyrir 24. þ.m. merkt:
„Bíll — 6158“.
að koma á ofurlítilli skoðana-
könnun um málið.
Samsölustjórnin hælist um yf-
ir því að hvergi í heiminum sé
neytt jafn mikillar mjólkur og
hér á landi. f því sambandi
spurðist ég fyrir um það að
gamni mínu hvert hlutfall væri
milli verðs á gosdrykkjum í
Bandaríkjuinum og mjólkur sam
anborið við það sem er hér á
landi. Ég fékk upplýsingar um
að verð mjólkur þar færi mjög
eftir því í hvaða gæðaflokki
hún væri, en þeir eru eftir fitu-
magni hennar. Hér er, eins og
allir vita, aðeins einn gæðaflokk
ur mjólkur og svo undanrenna.
Sambærileg mjólk í Bandaríkj-
unuim, oig við eiguim koist á hér,
kostaði þar ekki alls fyrir löngu
50 cent lítrinn, en allir gos-
drykkir 5 cent flaskan. Þar var
því hægt að fá 10 kókflöskur
fyrir sama verð og einn lítra
mjólkur. Hér kostar kókið 6
krónur flaskan og því ætti
mjólkin hér að kosta 60 krónur
lítrinn til þess þarna væri sam-
ræmi á milli, en hún kostar
11,35 kr. Við þennan samanburð
sést að kókið 'hér er nærfellt
600 prs. dýrara í samanburði
við mjólkina. Kannski heldur
stjórn Mjólkursamsölunnar að
þessi aðstöðumunur hafi engin
áhrif?
Margra glapræða Mjólkursam
sölunnar er enn ógetið. Eitt skal
nefnt, en það er sú fásinna að
leggja niður að fullu notkun á
flöskum. í fréttum frá Akureyri
heyrum við, að með þrengri efna
hag fólks hafi dregið úr sölu
mjólkur í kössum, en aukist að
sama skapi sala mjólkur á flösk
um. Þetta stafar af því að enn
er enigin pökkunaraðferð á
mjólk, sem fullnægir ströngustu
heilbrigðiskröfum, eins ódýr og
flöskurnar. Mjólkursamlagið á
Akureyri hefir því valið bæði
nýjustu og fullkomnustu pökk-
unaraðferðina, sem enn er jafn
framt sú dýrasta, þ.e. 10 lítra
kassar, og jafnframt flöskurnar,
sem er ódýrasta pökkunarað-
ferðin. En Mjólkursamsalan í
Reykjavík var svo hrifin af
hyrnunum sínum sænsku að hún
lét rífa niður allar vélar til
pökkunar og þvotta á flöskum
og getur því ekki veitt ódýr-
ustu þjónustuna. Ég geri ekki
ráð fyrir að sala mjólkur yrði
mikil hér á flöskum, en þar sem
öll tæki voru til að veita þá
þjónustu verður ekki séð hag-
ræðið við að hienda þessum tækj
um út á hauga.
Þetta sannar enn að Mjólkur-
samsölunni er engin akkur í að
veita þjónustu umfram það sem
hún er neydd til. Hún lifir í
einokunarveldi sínu, bændum og
neytendum til óþurftar.
Vignir Guðmundsson.
Nauðungaruppboð
Eftir kiröfu Jónis Arasanar hdl. o. fl. ,verðuir þvottavéla-
samstæða EMANUEL, talin eign Bliks h.f. seild á opin-
beru uppboði að Sigtúini 3, laiuigardaiginm 22. febrúar n.k.
kl. 9.15 f.h.
Greiðsila við haimainslhögg.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Nauðungaruppboð
Bftir kröfu Sigunðar Siguirðsision hrl., verður kæiiiborð
LEVI, tailið eigin Guðmunidair Kristjánisson, MávaMíð 25,
sellt áé opinlberu uppboði ,að Mávahlíð 25, lauigardaiginn
22. febrúar n.k. kl. 11.30 f.h.
Greiðsla við hamarshögg.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Nauðungaruppboð
Eftir kröfu Villhjálms Ármaisonar hrl., verða ritvél af
TORPEDO ge,rð, BRAMSVIK mairgiföldumarvél, RONEO
sikjalaskápuir, HANSA hiliur og uppistöður ásiamit 2 s'krif-
borðum, talið eign Noris, Norsik-ísil. verztaniarfélagsiins,
selt á opinlberu uppboði að Sætúni 9, laugardaginm 22.
febrúar n.k. kil. 10.30 f.h.
Grediðsla við hamarshögg.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
12 tonna bntur til sölu
Upplýsingar hjá Hrafni Jónssyni Brautar-
holti 22. Sími 22255.
Einkabilreið
Hef kaupanda að 5 manna bifreið, sem er lítið keyrð
og vel með farin. Útborgun við sölu veruleg.
Björn Tryggvason, hdl., pósthólf 475, Reykjavík.
Atvinna
Viljum ráða strax vana karlmenn og kvenfólk til
fiskvinnu í frystihús á Snæfellsnesi.
Upplýsingar hjá Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna sími
22280.
Innréttingasmiðir
Hrærivélalyfturnar
komnar aftur.
Verðlækkun.
^"nreUT^c^
Grensásvegi 3
Sími 83430.
Héraðslœknisembœtti
auglýst laust til umsóknar
Héraðslæknisembættið í Húsavíkurhéraði er la-ust til
umsóknar.
Laun samkvæmt launakerfi opinberra starfsmanna.
Umsóknarfrestur er til 12. marz 1969.
Veitist frá 15. marz 1969.
Dóms- og kirkjumálaráðuneytið,
18. febrúaæ 1969.