Morgunblaðið - 19.02.1969, Page 24

Morgunblaðið - 19.02.1969, Page 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. FEBRÚAR 1969. með siglingafræðingnum, sem var harðgiftur maður og talaði ekki um annað en hundaveðhlaup. Var Joy kannski bara að kvelja hana af ásettu ráði. Var það Kaninn eða flugstjórinn? Siglingafræðingurinn fór eitt- hvað að minnast á „fæðingar- deildina“ og segja skál. Peter tók undir handlegginn á Lísu, þegar henni varð snögglega lit- ið við og hún sá Blake McCall sitja einan við barinn. Hann hlaut að hafa verið þarna allan tímann. Það var þá Kaninn, sem var að tala í landssímann og Joy hafði verið með úti. Lísa reyndi að hemja á sér brosið, svo að ekki sæist í því ánægjan, sem hún fann er flug- stjórinn steig niður af stólnum og gekk til þeirra. Hann var enn mjög þreytulegur og er hann kom nær, sá hún enn þenn an sama einmanasvip, og hún hafði áður séð í augum hans. Peter ætlaði að fara að ná í stól handa honum, en McCall sagði: — Nei, ég ætla að koma mér út úr þessari knæpu og út í hreint loft og niður að sjó. Vildi bara vita, hvort allt væri í lagi með ykkur. Skemmtið ykkur vel, börnin góð, en í Herrans nafni, hafið þið ekki mjög hátt. Góða nótt öllsaman! Kemur þú með mér Bill? sagði hann við sigl- ingafræðinginn, sem stóð sam- stundis á fætur. En þá gekk hann að Lísu, henni til mestu undrunar og hvíslaði að henni: — Ég vara þig við því að hún Joy hrýtur! Feginleikurinn sem hafði snöggvast gripið Lísu við það, að hann skyldi gefa sig þannig að henni var ekki lengi að hverfa er hún fór að hugsa um, hvað í orðum þessum gæti legið, en það hafði hann einmitt haft í huga, þóttist hún vita. Þeg- ar hann var farinn, tók hún að velta því fyrir sér, hvort hann mundi raunverulega hafa nokkra hugmynd um hvort Joy hryti eða ekki. Þessi hroki hans og Gerum gömul húsgögn sem ný Nýtt fyrir þá, sem þurfa að láta mála, ný eða gömul húsgögn, alls konar, iranréttingair, vegghillur o.fl. — með hinum nýju plastefnum (sýruhert plastlaikk, hálfmatt, i öllum litum). Þorsteinn Gíslason, málarameistari Verkstæðið: sími 19047. Heimasími 17047. YS jál f stæðiskvennaf álagið VORBODI Hafnarfirði heldur aðalfund í Sjálfstæðishúsinu miðvikudaginn 19. febrúar kl. 8.30. Dagsltrá: V’enjuleg aðalfundarstörf. Önnur mál. Spiluð verður félagsvist. STJÓRNIN. Nýtt fyrir húsbyggjendur frú Þeir sem eru að byggja eða lagfæra eldri hús ættu að kynna sér hina miklu kosti sem Somvyl-vegg- klæðningin hefur. Klæðir vel hrjúfa og holótta veggi. Hentar vel á böð, eldhús, ganga og stigahús. Á lager í mörgum litum. sjálfsþótti var algjörlega óþol- andi og þessi illkvittnislega gamansemi var henni alls ekki að skapi. Hann talar við mig, hugsaði hún, eins og ég væri ein hver blábjáni, og gerir mig líka orðlausa í hvert sinn. En Joy sem hafði áreiðanlega líka heyrt þessar hvíslingar, hló bara með honum, og henni virt- ist vera alveg sama um það. Lísa varð að hafa gott vald á andlitinu á sér til þess að láta ekki hina sjá að "hún tæki neitt mark á þessari glettni. Sjálf var hún orðin afskaplega þreytt og sagði því við Joy, að hún ætlaði að fara að hátta. Henni hefðj þótt gaman að hitta Ameríkumanninn hennar, en á morgun væri líka dagur. Joy hafði þegar stungið upp á því að þau færu öll að synda, þegar þúðarápinu væri lokið. Þau ákváðu nú tímann til þess og Peter fylgdi Lísu að herbergis- dyrunum hennar. Hún þakkaði honum fyrir kvöldið og vonaði, að hann ætlaðist ekki til að hún kyssti hann góða nótt. En hann fór langt úr vonum hennar með þvi að kyssa hönd hennar með glettnislegri viðhöfn, og kvaðst vona, að þau gætu hitzt mörg kvöld í framtíðinni. Þar sem hún lá í rúminu og blaðaði í skáldsögunni áður- 35 nefndu, tóku sögupersónurnar að koma ljóslifandi og hún skildi nú, hversvegna hún hafði valið þessa bók. Það var vitanlega vegna hans Heathcliff — sem var svo harðneskjulega fálátur og karlmannlegur. Hún flýttisér að slökkva Ijósið og sofnaði brátt. Nú var hún úti á eyði- legri heiði með þessum s'tolta óró lega manni. Guldeplóttu augum horfðu alveg í gegn um hana, er hann tjáði henni þrá sína eft- ir henni og loks hvarf heimur- inn henni algjörlega. 10. KAFLI Niðri í fjörunni var sjávar- loftið og sólskinið hressandi. Lísa notaði sér þetta til fullnustu og velti sér til og frá, til þess að sólbrenna almennilega. Hamish kom loksins, ásamt Joy og hafði meðferðis ríkulegt nesti, handa þeim öllum. Hann hafði líka keypt bikinj -sundföt handa Joy og þau voru með gylltum borðum, sem Lísu fannst alveg hræðilegir. Að minnsta kosti gerði þessi búnaður það að verkum, að hennar eigin sundföt voru eins og á skólastelpu. Péter fékk hana til að reyna sig í sjóskíðum, en það endaði alltaf í hlátri, eftir að hún hafði sopið sjó! Hún vildi miklu held- ENERGIT BREMSUBORÐAR frá VARTA fyrir OPEL Jóh. Ólafsson & Co hf. Brautarholti 2, sími 1-19-84. ur liggja í sandinum með hugs anir sínar. í huganum rifjaði hún upp hvert einstakt skipti, sem hún hafði hitt Blake. Fyrsti fundur þeirra stóð henni lifandi fyrir sjónum. Þreytulegi kæruleysis- svipurinn nokkrum mínútum síð ar. Hæðnishláturinn þegar hann horfði á hana úr lyftunni. Snöggi áhuginn vegna litla drengsins trúðanna í veitingahúsinu, en þó sérstaklega þráin sem skein út úr guldílóttu augunum þegar hann kvaddi hana um kvöldið í Bagdad. í hvert sinn, sem einhver nýr maður birtist þarna á baðströnd inni var hún að vona, að það væri hann, en hann kom bara ekki. Um klukkan fjögur var hafgolan orðin svöl og þau komu sér saman um að fara. Hamish hafði stóra rjómagula bilinn sinn skammt frá og bauðst til að flytja þau öll í gistihúsið. Hamish var fölur og skvapað ur ungur maður með gull í tönnunum. í sundfötum leit hann ekki sem verst út, þrátt fyrir byrjandi ístru, en alklæddur var hann allur einhvern veginn of íburðarmikill. Gleraugu af allra nýjustu gerð, digurt úrarmband úr gulli, hringi, skrautlega erma hnappa og mjóa gullkeðju með nafnmerki hans á, um vinstri únlið. Öll föt hans voru spánný og veiklulegi fölvinn á andlitinu, lagði aukna áherzlu á allt þetta gervi-útlit mannsins. Lísu skild- ist, að hann væri sölumaður fyr ir einhverja vöru, sem fjölskylda hans framleiddi og nú ætti að vinna markað fyrir í Ástraliu. Hann átti að hitta einhverja viðskiptavini frá Ameríku um kvöldið og bauð Lísu að koma með Joy í það samkvæmi. Lísa af þakkaði, án þess að finna sér neitt til afsökunar og Joy sendi henni eitrað augnatillit. Ekki gat hún vitað, að eina ástæða Lísu var sú, að hún ætlaði að vera í hverberginu sínu, ef ske kynni, að Blake hringdi. Hún horfði út á sjóinn meðan hin voru að koma sér niður á því, hvað gera skyldi um kvöld- Kaupum hreinar og stórar léreftstuskur ptí»r0TOiiMs#i$i Prentsmiðjan. I 19. FEBRÚAR Hrúturinn 21. marz — 19. apríl Gakktu í lið með fleiru líflegu fól'ki. Nautið 20. apríl — 20 maí Eigin sannfæring er sterkasta vopnið sem þú átt, ef þú þarft að snúa öðrum í lið með þér . Tvíburai nir 21. maí — 20. júní Ágætur dagur til samninga. Taktu ekki mark á gríni og glensi kunningjanna. Mundu að þú gengur fyrir. Krabbinn 21. júní — 22 júlí Haltu ótrauður áfram í viðskiptum og byggingum. Þú færá góðar fréttir írá gömlum ættingjum. Þú getur gert ráð fyrir aðstoð. Ljónið 23. júií — 22. ágúst Þú getur rétt einhverjum hjálparhönd. Meyjau 23. ágúst — 22. september Þér gefst tækifæri á að bæta úr starfsskilyrðunum. Biddu um það sem þig vantar , Vogin 23. september — 22. október Þér gengur vel í dag, úr því að allir vinna svona vel Gerðu tilboð, þar sem það á við. Sporðörekinn 23. október — 21. nóvember Samvinnan gengur alltaf jafn vel. Taktu einhverjar byrðar á þig Bogmaðurinn 22. nóvember — 21. desember Næsti mánuður verður fyrir áhrifum af því, sem þú hefur í dag. Steingeitin 22 desember — 19 janúar Þú getur grætt á samvinnu. Gerðu skyldu þína, og taktu jafnvei einhverja ábyrgð. Samningar ganga vel. Þú verður að skrifa bréf. Vatnsberinn 20 janúar — 18. febrúar Þrennt er það, sem þú sérð á næsta ári: Breyting á högum, stöðu og nýir kunningjar til handa þeim, sem eru ungir í anda Fiskarnir 19. febrúar — 20. marz Þér vegnar betur í starfinu Byrjaðu á einhverju nýju.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.