Morgunblaðið - 19.02.1969, Síða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 19. FEBRÚAR 1969.
KR-ingar til Eyja
Fyrsti leikurinn í meistaraliðakeppni KSI
UM NÆSTU helgi mun hefjast
meistarakeppni Knattspyrnusam
bandsins, en keppnisrétt þar hafa
í ár KR, sem íslandsmeistari og
Unglingolands-
lið í körfubolta
æfir
UNGLINGALANDSLIÐIÐ í
körf-uknattleik hefur nú hafið
æfingar, þrátt fyrir að enn liggi
ekki fyrir nein ákveðin verk-
efni hjá því. Æfir liðið vikulega
undir stjórn Helga Jóhannsson-
ar þjálfara, sem lengi var lands-
liðsþjálfari. Var fyrsta æfingin
sl. sunnudag.
Ákveðið hafði verið að Svíar
sæu um Norðurlandakeppni ungl
inga á þessu ári, en þeir hafa
nú heykst á því verkefni sínu
og loíorði.
í athugun mun vera hjá KSÍ
hvort hægt vær’i að halda hér á
landi keppni í einum riðli Ev-
rópukeppni unglinga, en ekkert
verður sagt um hvort úr verð-
ur eða ekki.
Landsliðin
á góðum
vetrarvelli
Á SUNNUDAGINN léku saman
í vetraTæfingaáætlun KSI, A-
landsliðið og unglingalandsliðið.
Leikar fóru svo að A-'liðið vann
með 5 mörkum gegn 2. Leik-
urinn var þó miklu jafnari en
sú markatala gefur til kynna og
reyndar áttu unglingarnir meira
í spilinu á löngum kafla.
Hins vegar sýndu A-landsliðs-
menn nú meiri röggsemi fyrir
framan markið en áður, en á það
hefur skort til þessa, en A-liðið
átti lakara spil nú en oft áður.
Leikurinn fór fram á Hóskóla
vellinum en mikið hefur nú ver
ið gert til þess að lagfæra hann
fyrir vetrarleikina og hefur Baild
ur Jónsson vallarstjóri stjórnað
því verki og hvergi til sparað
við þær aðstæður sem fyrir hendi
eru. Á hann þakkir knattspyrnu
unnenda og knattspyrnumanna
skilið fyrir.
Vestmannaeyingar sem bikar-
meistarar. Keppa félögin um bik
ar sem KSÍ gaf til keppninnar,
en ákveðið er að keppni fari
fram að vetri til, þ.e. áður en
vorleikirnir hef jast.
Tilgangur keppninnar er að
skapa æfingaleiki fyrir þau fé-
lög sérstaklega sem eiga að vera
fulltrúar fslands í Evrópuleikj-
unum. Þó sumir leikmanna lið-
anna séu í æfingaleikjum lands-
liðsins, telur KSÍ nauðsyn vera
á að liðin í heild fái góða æfingu
í keppni.
Var því ákveðið að liðin skyldu
keppa um nýjan þikar er KSÍ
gaf og hlýtur hann það ffelag-
anna sem hefur sigur í keppni
féiaganna í 4 leikjum, 2 í Eyjum
og 2 í Reykjavík.
Fyrsti leikurinn er ákveðinn
í Vestmannaeyjum á sunnudag-
inn.
Per Krustrup hefur leikið í unglingalandsliðinu og úrvalsliði Kaupmannahafnar og vakið athygli.
Erfið dagskrá hjá Dönum:
Mæta landsliði tvisvar auk Vals og FH
Eitt bezta lið Kaupmannahafnar kemur
hingað á laugardag og leikur 4 leiki
Á LAUGARDAGINN kemur
hingað í heimsókn á vegum hand
knattleiksdeildar Vals danska
Reykjavík:Varnarliðið
Keppa um sendiherrabikarinn í kvöld
í KVÖLD hefst í íþróttahöll-
inni í Laugardal hin árlega
körfuknattleikskeppni milli
úrvals úr Reykjavíkurfélögun
um og Bandarikjamanna á
Keflavíkurflugvelli. Þetta er
í sjötta skipti sem keppni þessi
fer fram og hefur Reykjavík-
urúrvalið sigrað í keppninni
í öll skiptin. í fyrra lauk öll-
um Jeikjunum með sigri
Reykjavíkur, en í ár má bú-
ast við mjög tvísýnni baráttu
þar sem Varnarliðsmenn eru
sterkari í ár en nokkru sinni
fyrr. í vetur hafa varnarliðs-
menn unnið úrval KKÍ nokkr
um sinnum, og síðast á laug-
ardag léku þau lið og sigr-
uðu vamarliðsmenn með 12
stiga mun. í liði KKÍ eru að
mestu sömu menn og leika í
kvöld fyrir hönd Reykjavík-
ur, og ef okkar liði tekst vel
upp verður leikurinn vafalaust
mjög spennandi.
Reykjavíkurliðinu er stjórn
að af hinum kunna þjálfara
Helga Jóhannssyni, en hann
var um árabil þjálfari Iands-
liðsins, og jafnframt þjálfari
ÍR á gullaldartíma þess. Er
þess að vænta að Reykjavíkur-
liðið nái vel saman undir hans
stjórn.
Keppnin í kvöld hefst klukk
an 20.30, en á undan eða klukk
an 20.00 er forleikur í 4. ald-
ursflokki milli ÍR og KFR.
handknattleiksliðið MK 31. Leik
ur liðið hér eftirtalda 4 leiki.
Sunnudaginn 23. febrúar kl. 4
gegn úrvalsliðið völdu af
íþróttaf réttamönn um.
Þriðjudaginn 25. febrúar kl.
20.15 gegn Val, Reykjavíkur-
meisturum 1968.
Fimmtudaginn 27. febrúar kl.
20.30 gegn FH íslandsmeistur-
um (utanhúss) 1968.
Föstudaginn 28. febrúar kl.
20.15 gegn úrvalsliðið völdu af
landsliðsnefnd H.S.Í.
MK 31 sem er eittt þekktasta
félag Kaupmannahafnar í hand-
knattleik leikur í 1. deild og náði
iiðið 3. sæti í keppninni á sl.
keppnistímabili, en á yfirstand-
andi keppnistímabili hefur lið-
inu ekki vegnað eins vel. Byrj-
uðu þeir fremur illa, en hafa í
seinni hluta keppninnar rétt hlut
sinn all verulega m.a. unnið eifct
af „toppliðunum" Árhuus-KFUM
18:15 fyrir skömmu. Þá haía þeir
einnig náð jafntefli við Stjern-
en, sem berst nú við HG um
Danmerkurmeistaratitilinn í ár.
Þá hafa þeir unnið Ajax, naum-
lega að vísu 20:19, og einnig tap-
að fyrir því liði naumlega 20:21.
Þeir hafa leikið báða leiki sina
við HG í meistarakeppninni í ár
og tapað báðum, ekki þó með
miklum mun. Hingað koma ails
16 menn, 3 fararstjórar og 13
leikmenn og eru nöfn þeirra
þessi:
Markmenn: Poul Jensen, Niels
E. Nieman, Curt Cylling. Aðrir
Glímu-
dómendur
Stjórn Glímusambands fslar.ds
hefur ákveðið að boða til glímu-
dómarafundar í Café Höll, Aust-
urstræti 3, fimmtudaginn 20. fe-
brúar nk. kl. 8.30 síðdegis.
Rædd verða glímulögin. Er
þess væmrt að glímudómarar fjöl
menni á fundinn.
leibmenn: Kurt Stripp, Max Ni-
elsen, Benny Nielsen, Tonny
Gjeldsted, Per Krustrup, Lasse
|Dam, Tommy PeBer&en, Willy
Hansen, Hans Petersen, Erik
Hommelgaard.
Með 68 landsleiki að baki.
Þekktastur þessara leik-
manna er Max Nielsen, sem
hefur Ieikið 65 lanðsleiki og
68 borgarleiki fyrir Kaup-
mannahöfn, og er það mesti
leikjafjöldi, sem einn leikmað
ur hefur leikið fyrir Kaup-
mannahöfn. Max Nielsen kom
mjög við sögu í síðustu heims
meistarakeppni í Svíþjóð ár-
ið 1967, þegar Danir hlutu
silfurverðlaun. í vetur hefur
hann átt við meiðsli að striða
framan af og þvi ekki komið
til greina í landslið Dana.
Hann hefur nú náð sér að
fullu og gefst áhorfendum hér
lendis nú tækifæri að sjá þenn
an snögga, skotharða leik-
mann.
Af öðrum leikmönnum má
nefna Benny Nielsen, Tonny
Gjeldsted og Per Krustrup, sem
allir hafa leikið í unglingalands-
liðum og í borgarliði Kaup-
mannahafnar. Þá hafa Willy
Hansen og Hans Petersen leiikið
í unglingalandsliði. Markvörður
inn Niels E. Nieman hefur átt
mjög góða leiki að undanförnu
og hrósaði Mogens Olsen hinn
gamalkunni leikmaður Árhuus-
KFUM og sem nú þjálfar 1. deild
arlið félags síns, honum sérstak-
lega eftir sigur MK 31 gegn Ár-
hus-KFUM nýlega, sem áður er
að viikið.
MK 31 (Motionskilubben af
1931) er frá Kaupmannahöfn og
rekur starfsemi sína í borgar-
hluta, sem nefnist Amager. Held
ur félagið uppi fjölþættri tóm-
stundastarfsemi bæði fyrir unga
sem eldri, ekki aðeins á sviði
íþrótta, heldur einnig á sviði
hvers konar tómstundavinnu.
Forsala aðgöngumiða verður í
bókabúðum Blöndals og aðgangs
eyrir 100 kr. fyrir fullorðna og
25 kr. fyrir börn.
Arsenol tapaði
í GÆRKVÖLDI léku Arsenal og
Ipswich í brezku deildakeppn-
inni á heimavelli Arsenal. Lauk
leiknum með sigri Ipswich óvænt
um, 2 mörk ge|gn 0.
Drengjameistaramót
DRlENGJAMEiSTARAMÓT ís-
lands innanhúss fór fram á Sel-
fossi 16. febrúaT. Héraðssamband
ið Skarphéðinn sá um mótið.
Úrslit urðu þessi:
Hástökk:
1. Elías Sveinsson, ÍR, 1,85
2. Friðrik Þór Óskarsson, ÍR, 1,76
3. Borgþór Magnússon, KR, 1,66
4. Kristján Gunnl.ss., HSH, 1,66
Hástökk án atrennu:
1. Elías Sveinsson, ÍR, 1,56
2. Friðrik Þór Óskarsson, ÍR, 1,51
3. S'kúli Arnarson, ÍR, 1,31
Langstökk án atrennu:
1. Hilmar Guðmundss., HVÍ, 3,15
2. Elías Sveinsson, ÍR, 3,11
3. Friðrik Þór ÓskarSson, ÍR, 2,95
4. Guðni Kjerbú, ÍBK, 2,71
Þrístökk án atrennu:
1. Hilmar Guðmundss., HVÍ, 9,22
2. Elías Sveirrsson, ÍR, 9,13
3. Friðriik Þór Óskarsson, ÍR, 9,08
4. Þorv. Sigurbjörnss., ÍBK, 8,48
Kúluvarp:
1. Grétar Guðmundss., KR, 12,92
2. Elías Sveinsson, ÍR, 12,09
3. Skúli Arnarson, ÍR, 11,79
4. Friðrik Þ. Óskarsson, ÍR, 11,11
Að lokinni keppni fór tfram
verðlaunafhending og kaffi-
dry.kkja í hinu nýja Skarphéð-
in-húsi.